Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1982, Side 18
18
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 1982.
íþróttir 0 íþróttir íþróttir íþróttir
Uppstokkað Liver-
pool-lið small
saman í Swansea!
Stjóri Liverpool, Bob Paisley, stokk-
aði heldur betur upp lið sitt fyrir bikar-
leikinn við Swansea á laugardag eftir
tapleikina að undanförnu. Hann tók
fyrirliðastöðuna af Phil Thompson og
gerði Graeme Souness að fyririiða.
Thompson lék þó sem miðvörður. Alan
Kennedy kom inn sem vinstri bak-
vörður en Mark Lawrenson var færður
fram sem tengiliður vinstra megin.
Kenny Dalglish á ný fremsti maður
sóknarinnar — Sammy Lee og Craig
Johnston settir úr liðinu. Lee þó tólfti
maður en kom ekki inn á.
Og allt small þetta saman í Swansea.
Liverpool lék einn sinn bezta ef ekki
bezta leik á keppnistímabilinu. Swan-
sea steinlá á heimavelli, 0—4, og sigur
Liverpool hefði getað orðið stærri ef
stangir og þverslá marks Swansea
hefðu ekki nokkrum sinnum tekið
ómakið af markverði liðsins, Dai
Davies.
Þrátt fyrir mikla yfirburði frá fyrstu
markið með þrumuskoti af 6 m færi,
eftir að Paul Mariner hafði skallað
knöttinn aftur fyrir sig, eftir horn-
spyrnu Eric Gates. Alan Brasil skoraði
síðan sigurmarkið með skalla af 8 m
færi, eftir sendingu frá hinum hættu-
lega Gates.
Parkes varði
vítaspyrnu
Leikmenn West Ham áttu í miklum
erfiðleikum með Everton á Upton
Park. Billy Bond skoraði fyrst fyrir
West Ham á 7. mín., eftir sendingu frá
Trevor Brooking, og síðan bætti David
Cross öðru marki við — 2—0. Þá fóru
leikmenn Everton að láta að sér kveða
og á 64. mín. skoraði Peter Eastoe með
skalla, eftir aukaspyrnu frá Trevor
Ross. Þegar 10 mín. voru til leiksloka
fékk Trevor Ross gullið tækifæri til að
jafna metin, þegar hann tók víta-
spyrnu. Phil Parkes varði þá spyrnuna
frá honum.
Góður endasprettur
Leeds
Leikmenn Leeds tryggðu sér sigur
(3—1) yfir Úlfunum, með því að skora
tvívegis á síðustu sex mín. leiksins. Það
var Andy Gray sem opnaði leikinn fyrir
Úlfana, með fallegu marki á 13. min.
og rétt á eftir fór hann illa með gullið
marktækiíæri. Það gerðu leikmenn
Leeds einnig — Kevin Hird misnotaði
vítaspyrnu. Gary Hamson jafnaði 1—1
fyrir Leeds með þrumuskoti af 22 m
færi. Kevin Hird kom Leeds yfir á 84..
mín. — sendi knöttinn efst upp í mark-
hornið á marki Úlfanna, eftir fyrirgjöf
frá Trevor Cherry og síðan skoraði
gamla kempan Eddie Gray — 3—1.
Cardiff veitti
City harða keppni
Leikmenn Cardiff veittu leikmönn-
um Manchester City harða keppni á
Maine Road. Trevor Francis, sem
hefur sjaldan verið betri, skoraði fyrst
fyrir City — 1—0 á 22. mín., en Paul
Maddy náði að jafna fyrir Cardiff á 39.
mín., eftir sendingu frá John Lewis.
Bakvörðurinn Bobby McDonald kom
City aftur yfir á 44. mín. — skallaði
knöttinn í netið, eftir fyrirgjöf frá
Tommy Hutchinson. McDonald var
síðan aftur á ferðinni á 72. mín. —
gulltryggði þá sigur City, eftir að
Francis hafði sundrað vörn Cardiff og
sent knöttinn til McDonald. -SOS.
Toshackfékk
MBE-orðuna
John Toshack, framkvæmda-
stjóri Swansea, fékk MBE-orðuna á
gamlársdag. Elisabet drottning
veitti honum orðuna fyrir frábæran
árangur sem hann hefur náð með
Swansea en hann hefur komið lið-
inu upp úr 4. deild i 1. deild á
aðeins fjórum áruin.
Þá fékk John Smith, formaður
Liverpool, OBE-orðuna.
-SOS.
Houghton hættir
hjá Bristol City
Bob Houghton, framkvæmdastjóri
Bristol City, fyrrum þjálfari Malmö
FF, hætti hjá Bristol City á laugardag-
inn, eftir að félagið hafði tapað, 1—3,
fyrir Wimbleton á heimavelli sfnum.
Nokkrir leikir voru leiknir í ensku
deildarkeppninni um áramótin og urðu
úrslit þessi:
2. deild:
Charlton-Norwich
0—0
3. dcild:
Swindon-Fulham 1—4
Bristol C-Wimbleton 1—3
Brentford-Huddersfield 0—1
Newport-Reading 3—1
Plymouth-Bristol R 4—0
4. deild
Mansfield-Wigan 1—2
Sheff. Utd.-Halifax 2-2 -sos.
Fékk á sig klaufamark og varð síðan að yf irgefa
völlinn - meiddur í nára
Pat Jennings, markvörðurinn snjalii
hjá Arsenal, var heldur betur i sviðs-
Ijósinu á White Hart Lane, sem var
heimavöllur hans í 14 ár — þegar hann
iék með Tottenham. Þessum 36 ára
markverði, sem Arsenal keypti á aðeins
40 þús. pund fyrir fjórum árum, urðu á
mikil mistök á 15. min. og kostuðu þau
mark, sem dugði Tottenham til sigurs
— 1—0. Þar með voru bikarmeistar-
arnir búnir að hefna fyrir ósigurinn
1949, þegar Aisenal vann sigur (3—0)
yfir Tottenham f bikarkeppninni.
Jennings varði skot frá Garth
Crooks á 15. mín., en hann náði ekki
að halda knettinum, sem skoppaði yfir
márklínuna. Jennings koni síðan aftur
við sögu 13 min. fyrir leikslok — þá
hljóp hann út í vítateig, til að koma í
veg fyrir að Crooks skoraði. Hann varö
þá fyrir því óhappi að meiðast í nára og
þurfti hann að yfirgefa völlinn. Velski
landsliðsmaðurinn og miðvallarspilar-
inn Peter Nicholas, fór þá í markið og
blökkumaðurinn Raphael Meade tók
stöðu hans á miðjunni. Nicholas sýndi
góða takta í grænu peysunni.
Leikurinn var mikill baráttuleikur og
hafði Tottenham betur. Eftir að
Crooks var búinn að skora átti hann
skot í slá og síðan í stöng. Arsenal fékk
einnig tækifæri til að skora — Ray
Clemence varði vel skot frá Alan Sund-
erland og Graham Rix.
Glenn Hoddle átti mjög góðan leik
með Tottenham og einnig Argentínu-
mennirnir Ardiles og Villa. Þá var
Tony Galvin mjög góður — var alltaf á
ferðinni. Leikurinn verður eftirminni-
legur fyrir hinn 17 ára Stuart Robson,
sem lék i vörninni hjá Arsenal.
Liðin voru skipuð þessum leikmönn-
um:
Tottenham: — Clemence, Perryman,
Miller, Roberts, Hughton, Ardiles,
Villa, Hoddle, Galvin, Falco og
Crooks.
Arsenal: — Jennings, Robson,
O’Leary, Whyte, Sanson, Hollins,
Nicholas, Talbot, Davis, Sunderland
ogRix. -SOS.
mínútu til hinnar síðustu gegn slöku
liði Swansea tók það Liverpool 35 mín.
að koma knettinum í fyrsta skipti í
mark Swansea. Miðvörðurinn Allan
Hansen skallaði knöttinn í mark eftir
hornspyrnu Terry McDermott, sem á
ný lék í liði Liverpool. Á lokasekúnd-
um fyrri hálfleiksins skoraði Ian Rush
annað mark Liverpool, renndi knettin-
um innanfótar í markið eftir að boltinn
hafði hrokkið til hans eftir spyrnu
Ronnie Whelan í þverslá. í siðari hálf-
leiknum skoraði Liverpool tvívegis.
Fyrst Lawrenson á 74. mín. eftir frá-
bæra sendingu Souness og síðan Rush
alveg í lokin. Rush og Whelan áttu
báðir skot í stangir Swansea-marksins í
hálfleiknum. Souness átti snilldarleik í
Liverpool-liðinu. Greinilegt að fyrir-
liðastaðan þvingaði hann ekki eins og
raunin hefur verið hjá Phil Thompson
að undanförnu.
í heild lék Liverpool-liðið mjög vel.
Phil Neal kvað Leighton James alveg í
kútinn — það svo að James færði sig
yfir á hægri kantinn. Þó með litlum
árangri. Miðverðirnir Thompson og
Hansen höfðu Curtis og Latchford
einnig í vasanum. Whelan hinn tvítugi
er sagður efni í stórleikmann og naut sin
vel með Souness, McDermott og Law-
renson á miðjunni. Dalglish var 1 essinu
sínu þó hann skoraði ekki en Rush
sendi knöttinn tvívegis i markið. Hefur
nú skorað 12 mörk í 15 leikjum með
Liverpool á leiktímabilinu. Bruce
Grobbelaar öryggið sjálft í markinu,
nokuð annað en gegn Man. City á dög-
unum.
Lið Swansea var þannig skipað.
Davies, Stevenson, Irwine, Rajkovic,
Stanley, Robbie James, Máhoney,
Marustik. Leighton James, Curtis og
Latchford. Max Thompson kom inn
fyrir Marustik á 73. mín. og Liverpool
skoraði sitt þriðja mark nokkrum sek-
úndum síðar. Colin Irwine var ekki
fyrirliði að þessu sinni heldur Júgó-
slavinn Rajovic.
-hsim.
O Graeme Souness átti stórgóðan lelk
meö Llverpool sem fyrirliði.
H
• Alan Brasil skoraði 2 mörk fyrir
Ipswich.
• Pat Jennings markvörður Arsenal.
Leikmenn Ipswich, með þá Paul
Mariner og Terry Butcher sem beztu
menn, léku mjög vel gegn Birmingham
á St. Andrews — sérstaklega eftir að
þeir voru undir 1—2. Ipswich var á
undan að skora — Alan Brasil skoraði
gott mark á 35. mín., eftir fyrirgjöf frá
Erik Gates.
Á 42. mín. varð hinn ungi leikmaður
Ipswich, Kevin Steggles, fyrir þvi
óhappi að handleika knöttinn inni í
vitateig og Frank Worthington skoraði
örugglega — 1—1 úr vítaspyrnunni.
Alan Curbishley kom Birmingham
síðan yfir á 49. mín. — þá átti hann
skot að marki, sem Paul Cooper varði,
en missti knöttinn frá sér og inn fyrir
marklínu.
Eftir þetta meiddist Curnishley og
síðan gerði Ipswich út um leikinn með
tveimur mörkum á6 min.—72. og78.
mín. John Wark skoraði jöfnunar-
Pat Jennings var
í sviðsljósinu
Leikmenn Ipswich
tvíefldust
— þegar Birmingham komst yf ir,
2:1 og unnu góðan sigur, 2:3,
á St. Andrews