Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1982, Qupperneq 19
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 1982.
19
íþróttir
íþrótt
íþróttir
íþróttir
Alan Young er
Dýrlingur í
Leicester
— eftir að Leicester hafði lagt Southampton að
velli 3:1 á Filbert Street — Manchester United
og Nottingham Forest fengu skelli
Skotinn Alan Young cr sá maður er
allir i Leicester töluðu um á laugardag-
inn. Hann var hetja Leicester, sem
vann óvæntan sigur (3:1) yfir Dýrl-
ingunum frá Southampton — átti stór-
góðan leik og skoraði tvö mörk. Kevin
Keegan, sem hefur skorað 18 mörk á
keppnistímabilinu fyrir Southampton,
varð að yfirgefa Filbert Street - meidd-
ist á ökkla.
Leikmenn Leicester mættu ákveðnir til
leiks og eftir 19. min. mátti Júgóslav-
inn Ivan Katalinic, markvörður
Southampton, hirða knöttinn úr netinu
hjá sér.Katalinic misreiknaði fyrirgjöf
fyrir mark Southampton, þannig að
Andy Peake náði að skalla knöttinn til
Young, sem sendi knöttinn i netið —
1:0.
Andy Peake var síðan aftur á ferð-
inni á 26. mín. — þá átti hann góða
krosssendingu fyrir mark Southampton
þar sem Alan Young var á réttum stað
og skallaði hann knöttinn i netið - 2:0.
Kevin Keegan náði að minnka mun-
inn rétt fyrir leikhlé með góðu marki,
eftir fyrirgjöf frá Mike Channon.
Þegar 10 mín. voru til leiksloka var-
Alan Yong tekinn út af-var orðinn yfir
sig þreyttur og inn kom annar Skoti—
Jim Melrose, sem ekki var búinn að
vera inn á nema þrjár mín., þegar hann
lagði upp þriðja mark Leicester. Hann
Enska bikar-
keppnin...
Úrslit urðu þessl i 3. umferð ensku
bikarkeppninnar á laugardaginn:
Barnet-Brighton 0—0
Birmingham-Ipswich 2—3
Bolton-Derby 3—1
Bournemouth-Oxford 0—2
Coventry-Sheff. Wed. 3—1
Doncaster-Cambridge 2—1
Enfield-C. Palace 2—3
Leicester-Southampton 3—1
Luton-Swindon 2—1
Man. City-Cardiff 3—1
Nott. For.Wrexham 1—3
Orient-Charlton 1—0
QPR-Middlesb. 1—1
Rotherham-Sunderland 1—1
Stoke-Norwich 0—1
Swansea-Liverpool 0—4
Tottenham-Arsenal 1—0
Watford-Man.Utd. 1—0
WBA-Blackburn 3—2
West Ham-Everton 2—1
Wolves-Leeds 1—3
Þremur leikjum var frestað vegna
veðurs. Millwall-Grimsby, Notts C.-
Aston Villa og Newcastle-Colchester.
Aðrir leikir, sem eftir er að leika í 3.
umferð eru: Carlisle eða Bishop Auck-
land - Huddersfield, Blackpool-Barns-
ley, Scunthorpe-Hereford, Petersbor-
ough - Bristol City, Shrewsbury - Port
Vale, Altrincham - Bury eða Burnley
og Gillingham - Oldham.
átti snjalla sendingu fram á Gary
Lineker, sem náði að rífa sig lausan frá
Alan Ball og skora 3:1 við mikinn fögn-
uð áhorfenda.
United fókk skell
Það var einnig mikill fögnuður hjá
áhorfendum Vicarage Road í London,
þar sem „gulldrengirnir” hjá Watford
náðu að leggja Manchester United að
velli -1:0. Eftir að dómarinn var búinn
að flauta leikinn af, dönsuðu leikmenn
Watford og fjölmargir áhorfendur -
stríðsdans á vellinum. Leikmenn Unit-
ed gengu vonsviknir af velli —
minnugir þess, að það var einmitt Wat-
ford sem sló þá út út bikarkeppninni
fyrir þremur árum.
Leikmenn Watford lögðu allt í söl-
urnar til að vinna sigur og þeir léku vel
ogvörn þeirravar mjög öflug. Það var
22 ára Hollendingur — Jan Lowmann
sem skoraði sigurmark Watford á 44.
mín.úr þvögu eftir hornspyrnu. Þetta
var fjóiði leikur hans með Watford.
Palace í erfiðleikum
Leikmenn Crystal Palace áttu í
miklum erfiðleikum með utandeildar-
liðið Enfield. Palace byrjaði vel—
David Price og Vince Hilaire voru bún-
ir að skora (2:0) eftir 23 mín. Þá náði
Nikky Ironton að minnka muninn en
Vince Hilaire skoraði síðan 3:1 fyrir
Palace á 72. mín. Aðeins 60 sek. síðar
var Steve Oliver búinn að skora fyrir
Enfield og eftir það sóttu líkmenn
utandeildarliðsins stíft að marki
Palace. Leikmenn Palace urðu mjög
glaðir, þegar þeir heyrðu dómarann
flauta leikinn af.
Brighton átti einnig í miklum erfið-
leikum með utandeildarliðið Barnet
frá N-London. 4 þús. áhorfendur
mesti áhorfendafjöldinn hjá Barnet í 15
ár, sáu leikmenn Barnet halda jöfnu
(0:0) gegn Brighton. Garry Philip,
markvörður Barnet, átti mjög góðan
leik.
Óskabyrjun dugði
Forest ekki
Það voru ekki upplitsdjarfir leik-
menn Nottingham Forest sem yfirgáfu
leikvöll sinn, City Ground, eftir að
þeir höfðu tapað þar 1:3 fyrir
Wrexham. Forest fékk óskabyrjun -
þegar Mark Proctor skoraði eftir að-
eins 67 sek. Þetta mark dugði ekki—
leikmenn Wrexham gerðu út um leik-
inn á 11 mín. kafla í s. hálfieik, er þeir
skoruðu þrjú mörk. Það var Steve Fox
sem var hetja Wrexham — hann átti
snilldarleik og lagði upp jöfnunar-
markið, þegar Steve Downan skallaði
knöttinn i netið 1:1. Mick Vinter skor-
aði síðan glæsilegt mark, eftir auka-
spyrnu af 25 m færi og síðan gull-
tryggði Dixie McNeill sigurinn, eftir
sendingu frá Fox.
úruggt hjó Coventry
Leikmenn Coventry unnu góðan sig-
ur (3:1)1 yfir Sheffield Wednesday. Eft-
ir að Andy McCulloch hafði skorað
fyrir Wednesday, tóku leikmenn
Coventry leikinn í sínar hendur og
Steve Hunt skoraði 2 mörk fyrir leikhlé
og Mark Hateley gulltryggði síðan sig-
urinn
Ross Jack tryggði Norwich sigur
(1:0) yfirStoke, meðmarkiá ll.mín.
Keit Cassell og táningurinn Andy
Thomas skoruðu sigurmörk Oxford
(2:0) gegn Bournemouth. lan Moores
fyrrum leikmaður Tottenham, skoraði
sigurmark Orient (1:0)gegn Charlton.
WBA vann góðan sigur yf-
ir Blackburn — 3:2. Þeir Steve Mac-
Kenzie, Andy King og Clive Whitehead
skoruðu fyrst (3:0) fyrir Albion en
Siinon Garner tókst að minnka mun-
inn, með tveimur mörkum.
L í i l
lL V .... I I
0 Alan Young leikmaðurinn snjalli
hjá Leicester.
„Boro" óhappið
Það var ekki langt frá að Middles-
brough næði að tryggja sér sigur yfir
QPR á Loftus Road i fyrsta skipti. [
Bobby Thompson skoraði gott mark
fyrir Boro á 9. mín., skallaði knöttinn
þá fram hjá hinum unga markverði
QPR, Peter Huker. David Hearer átti
síðan þrumuskot, sem skall i stönginni
á marki Lundúnaliðsins. Það var |
Simon Stainrod sem tryggði QPR jafn-
tefli 1:1. Þegar 19 mín. voru til leiks-1
loka
Tony Towner skoraði mark Rother-
ham, en Gary Rowell jafnaði (1:1) fyrir
Sunderland á 80. mín.
Alan Gowling Foster og Chris I
Thompson skoruðu mörk Bolton (3:1)
gegn Derby, en Steve Powell skoraði |
fyrir Derby.
Leikmenn Cambridge urðu fyrir þvi I
óhappi að byrja að skora sjálfsmark |
gegn Doncaster, en Alan Tylor, fyrr-
um leikmaður West Ham - náði siðan I
að jafna metin - 1:1. Það var Alan
Warboys, sem skoraði síðan sigurmark
Doncaster -2:1. -SOS [
Anderlecht
f ékk skell
Belgíumeistarar Anderlecht fengu I
heldur betur skell i 16-liða úrslitum
belgísku bikarkeppninnar, þegar þeir
töpuðu 1:3 fyrir Waterschei á útivelii.
Pétur Pétursson kom inn á sem vara-
maður hjá Anderlecht — undir lok |
leiksins.
Arnór Guðjohnsen og félagar hans I
hjá Lokeren unnu öruggan sigur 3:0
yfir Molenbeek á útivelli og er það
mjög gott. Arnór tókst ekki að skora í
leiknum. Pólverjinn Lato skoraði 2
mörk og Ver Heyen bætti því þriðja |
við.
Þau lið sem eru eftir i bikarkeppn-
inni og leika í 8-liða úrslitum, eru: I
Lokeren, Waterschei, Tongtes, Patro
Eisden, Lierse, Waregem, Antverpen |
og Beveren. -SOS.
Englendingar
leika í Bilbao
Búið að raða niður í sty rkleikaf lokka í
HM-keppninni á Spáni
Heimsmeistarakeppnin i knatt-
spyrnu fer fram á Spáni i sumar og
nú hefur verið dregið f styrkleika-
flokka. Englendingar eru f fyrsta
styrkleikaflokki og leika þeir sína
leiki f Bilbao í undankeppninni.
Aðrar þjóðir sem eru í fyrsta
styrkleikafiokki eru:
Spánii, sem leikur sína leiki í
Valencia.
Brasilia, sem leikur sina leiki í
Sevilla.
Argentina, sem leikur sína leiki í
Alicante.
Ítalía, sem leikur sfna leiki i Vigo.
V-Þýzkaland, sem leikur leiki sína í
Gijon og Oviedo á N-Spáni.
Þessar þjóðir geta ekki dregizt
saman, en þær lenda í riðli með
þjóðum í öðrum, þriðja og fjórða
styrkleikaflokki.
Sovétríkin, Tékkóslóvakía, Ung-
verjaland, Pólland, Júgóslavía og
Austurríki eru í öðrum styrkleika-
flokki.
Frakkland, Belgía, Skotland, N-
írland, Chile og Perú eru í þriðja
styrkleikaflokki.
Cameroon, E1 Salvador,
Hondúras, Alsír, Kuwait og Kína eða
N-Sjáland eru í fjórða styrkleika-
flokki.
Ástæðan fyrir því að Englending-
ar voru settir í fyrsta styrkleikaflokk
er sú að Englendingar urðu HM-
meistarar 1%6, en í fyrsta styrkleika-
flokki eru fimm fyrrverandi HM-
meistarar ásamt gestgjöfunum —
Spáni.
-sos.
Fiorentina
vann Inter
— og heldur forustunni á Ítalíu
Efsta liðið í 1. deildinni ítölsku i
knattspyrnunni, Fiorentína, byrjaði
árið 1982 vel. Sigraði Inter Milanó
4—2 á heimavelli i gær. HM-leik-
maðurinnDaniel Bertoni skoraði eina
markið fyrir Fiorentina f fyrri hálf-
leiknum. Aldo Serena jafnaði á 47.
min. en á 51. min. skoraði Bertoni
aftur. Nú úr vitaspyrnu. Francesco
Graziani kom Fiorentfna i 3—1 og
spenna var mikil. Serena skoraði
aftur og minnkaði muninn i 3—2.
Það nægði ekki Milano-liðinu.
Eraldo Pecci skoraði fjórða mark
Fiorentina á 64. min.
Juventus komst í annað sætið með
sigri á Udinese, 1 —0. 18 ára strákur,
Giuseppe Galderisi, skoraði eina
markið í leiknum. Hann kom inn sem
varamaður fyrir Marco Tardelli. Úr-
slit urðu annars þessi:
Ascoli-Torino
Bologna-Genúa
Catanzaro-Cesena
Como-Avellino
Fiorentina-Inter
Juventus-Udinese
AC Milano-Cagliari
Napoli-Roma
Staða efstu liða:
Fiorentina
Juventus
Roma
Inter
Napoli
13 8
13 8
12 6
13 5
13 4
0—0
1 — 1
3— 0
0—1
4— 2
1—0
1—0
1—0
18—10 19
17—6 18
17—10 16
16—12 16
13—8 15
-hsím.
Steve Fleet
til Eyjamanna
Englendingurinn Steve Fleet, sem
þjálfaði Skagamenn með góðum
árangri sl. keppnistímabil, verður
aftur hér i sviðsljósinu i sumar. Fleet
verður þjálfari Vestmannaeyjaliðs-
ins. Eyjamenn höfðu samband við
Fleet fyrir stuttu og um áramótin var
endaniega gengið frá þvi, að Fleet
kæmi til þeirra — og kemur hann til
landsins f byrjun marz.
Nú hafa öll 1. deildarliðin i knatt-
spyrnu nema Valur og Keflavík ráðið
þjálfara fyrir næsta keppnistfmabil.
Þess má geta að Keflvíkingar höfðu
áhuga á að fá Fleet til sín.
-FÓ/-SOS.
Steve Fleet.
H RESSING ARLEIKFIMI
KVENNA OG KARLA
Kennsla hefst aftur fimmtudaginn 7. janúar 1982 í leikfimisal
Laugarnesskóla.
Fjölbreyttar æfingar — músík — slökun.
Get bætt við örfáum nemendum.
Upplýsingar í síma 33290.
Ástbjörg S. Gunnarsdóttir
íþróttakennari.