Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1982, Page 32
*>
c Iskalt
Seven up.
hressir betur.
Bandaríkjamarkaður:
Bylting i lag-
metissölu
—stórfyrirtækið Atlanta Co. tekur að sér söluna
Nú er verið að ganga frá samning-
um Sölustofnunar lagmetis og stór-
fyrirtækisins Atlanta Co. í Banda-
ríkjunum um að það fyrirtæki taki að
sér sölu íslenzks lagmetis um gjörvöll
Bandarikin, jöfnum höndum undir
merkjum beggja fyrirtækjanna. At-
lanta er eitt stærsta fyrirtækið i mat-
vælainnflutningi á Bandaríkjamark-
aðnum.
Sala íslenzks lagmetis á þessum
markaði hefur undanfarin ár verið í
höndum dótturfyrirtækis Sölustofn-
unar lagmetis, Iceland Water Indus-
tries, en það verður nú lagt niður.
Ennfremur hefur norska fyrirtækið
Bjelland selt töluvert af íslenzku lag-
meti, einkum reyktum síldarflökum,
undir eigin merki í Bandaríkjunum,
og mun svo verða áfram. En aðalsal-
an færist nú frá þessu litla dóttur-
fyrirtæki með 2—3 starfsmenn, til
stórfyrirtækis með þúsundir starfs-
manna og dreifingarkerfi um öli
Bandaríkin.
Meðal þekktra merkja Atlanta er
Celebrity og undir því merki er meðal
annars selt geysimikið af dönsku
svínakjöti í Bandarikjunum. Þetta
merki verður nú á hluta af íslenzka
lagmetinu, auk fleiri vörumerkja
Atlanta og merkis Sölustofnunar.
Undanfarna mánuði hefur verið
unnið að umbúðagerð vegna þessara
breytinga og eru allar umbúðirnar
tölvumerktar.
Að sögn Heimis Hannessonar,
framkvæmdastjóra Sölustofnunar
lagmetis, er nú einnig búið að semja
við sænskt markaðsfyrirtæki um
söluátak þar. Og Ioks er á döfinni
sameiginleg kynningarherferð Flug-
leiða hf. og ýmissa útflytjenda á
Spáni i byrjun ársins. Þar verða út-
flytjendur með sölusýningar, bæði í
Madrid og Barcelona.
-HERB.
frjálst, óháð dagblað
MÁNUDAGUR 4. JAN. 1982.
Selfoss:
Þjófarnir
sátu við
drykkju
og átu
harðfisk
Brotizt var inn í fiskverkunarhús
Bóasar Emilssonar, Gagnheiði 9 á Sel-
fossi, á nýársnótt. Stolið var tveimur
harðfiskkössum en i hvorum voru 50
hundrað gramma harðfiskpokar.
Auðséð var á öllu að setið hafði verið
við drykkju góðra vína um leið og hinn
gómsæti harðfiskur var etinn á skrif-
stofu fiskverkunarhússins.
Sennilegt er og að siminn hafi verið
óspart notaður. Málið er í rannsókn
hjá lögreglunni. Bóas heldur að þjóf-
arnir hafi farið inn um lyftuop i hús-
inu. Ekkert var skemmt og umgengni
þokkaleg. Hins vegar var um þúsund
krónum í skiptimynt stolið. Peningarn-
ir voru i ólæstum kassa á skrifborði
skrifstofunnar.
Greinilegt er að þjófarnir eru góðu
vanir, því fyrsta flokks harðfiskur
bráðnar uppi í mönnum með góðu víni.
-Regína, Selfossi.
,a0 vor enS,n smarœoissveifla hjú Ingva Hrafnt sjónvarpsfréttamanm á nýársfagnaði valins hóps á Naustinu. Gömlu og góðu
Presleylögin eru þvlllkt stuð að menn enda á bakinu I túlkun þeirra. Að baki fréttamannsins ber Laddi húðirnar og Gunni
Þórðarfer mjúkum höndum um gltarinn. jy V-mynd G VA.
Nauðgunartilraun í miðbænum í gærmorgun:
Ætlaði að draga stúlkuna
með sér inn f húsasund
Ung stúlka slapp naumlega úr
klóm árásarmanns er réðst að henni
'þar sem hún var á leið til vinnu sinnar
í miðbænum í gærmorgun.
Hún stoppaði til að skoða í búðar-
glugga á leiðinni en þá vatt maður sér
að henni og reyndi að draga hana
með sér inn í næsta húsasund.
Stúlkan streittist á móti og komst
árásarmaðurinn ekki með hana nema
að sundinu. Þar gafst hann upp og
lagði á flótta.
Stúlkan kærði árásina til lögregl-
unnar og gat gefið svo góða lýsingu á
árásarmanninum að hann náðist
skömmu siðar. Mun lögreglan hafa
kannazt við kauða af lýsingu hennar
og vissi hvar ætti að ná í hann. -klp-
„Þingrofs-
tillagan
erorðin
ónýt”
— segir stjómar-
þingmaður í viðtali
viðDV
„Þingrofstillagan er orðin ónýt að
mínu mati, eftir að búið er aö segja
frá henni. Við teljum að hún hefði
getað reynzt góð, ef þingrof og
boðun nýrra kosninga hefði getað
komið á óvart, án teljandi umræðu
fyrirfram,” sagði stjórnarþing-
maður í viðtali við DV í gær.
Fleiri forystumenn í stjórnarliðinu
hafa I viðtölum við DV látið svipaðar
skoðanir í Ijós, eftir að DV skýrði frá
þessum hugmyndum síðastliðinn
miðvikudag.
Þessar hugmyndir fóru mjög leynt.
Þær nutu einkum stuðnings sumra al-
þýðubandalagsmanna og höfðu verið
ræddar í þröngum hópi. Forystu-
menn stjórnariiðsins hafa ekki viljað
kannast við hugmyndimar á opin-
berum vettvangi nema þannig að
nafna þeirra yrði ekki getið.
Eins og DV skýrði frá vakti fyrir
talsmönnum hugmyndanna að
stjórnarliðiö reyndi í kosningum að
tryggja sér áframhaldandi umboð.
Eftir kosningar yrði auðveldara en nú
er aö ná samkomulagi um ákveönar
almennar efnahagsaðgerðir.
Eins og fram kom í frétt DV á mið-
vikudag lýsti Friðjón Þórðarson
dómsmálaráðherra því yfir að hann
yrði ekki í framboði utan Sjálfstæðis-
flokksins. Með því hafnaði Friðjón
mikilvægum þætti i þessum hug-
myndum þar sem þær gerðu ráð fyrir
sérframboöum stjórnarsinna í Sjálf-
stæöisflokknum.
-HH.
Fá Sóknarkonurá
Grund enga uppbót?
Bíð eftir
bænum
— segir Gísli á Grund
„Þetta er ekki rétt að við viljum
ekki borga. Við bíðum bara eftir því
hvað bærinn gerir. Ef ríkið og
Reykjavíkurborg borga þá borgum
við líka. Við höfum ekki neitað þess-
ari greiðslu,” sagði Gísli Sigurbjörns-
son, forstjóri Elliheimilisins Grund-
ar, um hina svokölluðu desember-
uppbót.
í viðbótarsamningum ríkisins og
Starfsmannafélagsins Sóknar var
samið um 1.825 kr. desember-
uppbót. Sóknarkonur á Grund eru
óhressar með að elliheimilið skuli
ekki hafa greitt þessa uppbót. Að
sögn Aðalheiðar Bjarnfreðsdóttur er
Grund eini viðsemjandi Sóknar sem
ekki hefursamþykkt uppbótina.
-KMU
Fárviðri á Spáni
ogPortúgal:
Veðrið skemmdi
þóekkijólahá-
tíð íslendinganna
Mikið óveður hefur geisað á Spáni
og Portúgal undsnfarna daga og það
valdið gífurlegu tjóni. Fjöldi manns
hefur látizt af völdum óveðursins og
margir slasazt.
Veðrið var verst í Portúga! og á
norður-hluta Spánar en náði ekki til
suðurstrandárinnar þar sem fjöl-
margir íslendingar dvelja um þessar
mundir.
Gréta María Pálmadóttir, farar-
stjóri hjá Útsýn, sem var með stóran
hóp af eldri borgurum á sólarströnd
Spánar, sagði aö þau hefðu ekkert
haft af þessu veðri að segja, er við
náðum tali af henni í Torremolinos í
gær.
,,Það rigndi svolítið hressilega hjá
okkur í eina fimm daga og annað var
það ekki,” sagði hún. „Það skyggði
ekkert á jóla- eða áramótagleðina hjá
okkur ísiendingunum hér og allir eru
í sólskinsskapi enda sktn sólin hér nú
aftur,” sagði Gréta María.
-klp-
Dregiðíjólaget-
raun DV7. janúar
Sldlafrestur í jólagetraun Dagblaðs-
ins og Visis átti að renna út í kvöld en
vegna erfiðra póstsamgangna af lands-
byggðinni er drætti frestað til fimmtu-
dagsins7. janúar.
LOKI
Menn bíða eftir viðlíka
tilþrifum Ingva Hrafns í
Þingsjánni og í Presiey-
æfingunni góðu á Naustinu.