Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1982, Side 8
DAGBLAÐID & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1982.
Kefívíkingar
Suðumesjamenn
Myndlistadeild Baðstofunnar byrjar starfsemi sína 12.
janúar.
Innritun og greiðsla skólagjalda að Hólabraut 9, 8. janúar
frákl. 17—22.
Upplýsingar í síma 92-1142.
Útlönd Útlönd Útlönd
NAMSKEIÐ
Ný námskeið í manneldisfræði (hollt matar-
æði og heilsuvernd) hefjast 12. janúar.
Námskeiðin fjalla m.a. um eftirfarandi atriði:
★ Grundvallaratriði nœringarfræði
★ Innkaup, vörulýsingar, vörumat og auglýsingar.
★ Fæðuval, mataræði mismunandi aldursflokka:
ungbarna, skólabarna, unglinga, fullorðinna
og barnshafandi kvenna.
★ Gerð matseðla, matreiðsluaðferðir, uppskriftir
(hollir, Ijúffengir, sjaldgæfir réttir).
12VIKNA
MEGRUNARNÁMSKEIÐ
hefst 12. janúar. (Bandarískt megrunar-
námskeið sem hefur notið mikilla vinsælda
og gefið mjög góðan árangur).
Munið að aðeins rétt nærður einstaklingur getur
vænzt bezta árangurs í námi, leik og starfi. Upplýsing-
ar og innritun í síma 74204.
Kristrún Jóhannsdóttir
manneldisfræðingur
19 000
Frumsýnir:
EILÍFÐARFANGINN
m 'mm; m m r'i" „ i
Sprenghlægileg, um furðufugla i furðufangelsi með
RONNIE BARKER og fleiri góðum.
Leikstjóri: DICK CLEMENT
íslenzkur texti
Sýnd kl. 3,5,7,9 og 11.
Skriðdrekar við vörzln á gðtn i Gdansk þar sem nú rikir vonzkuveður, blindhrið og skafrenningur.
„YHRVOLMN ERU
MORÐINGJAR”
— segir einn foríngja Einingar íávarpi til félaga sinna, sem
hann hvetur til að mynda leynilegar verkf allsnef ndir
Einn af foringjum hinnar óháðu
verkalýðshreyfingar Póllands hefur
hvatt pólska verkamenn til þess að
skipuleggja verkföll með leynd. hann
hvetur þá þó til að grípa ekki til of-
beldis gegn herlagayfírvöldum.
”Munið, að yfirvöldin eru morð-
ingjar,” segir Zoigniew Janas,
foringi Einingar í Ursus-dráttarvéla-
verksmiðjunum skammt frá Varsjá.
”Þau láta sér i léttu rúmi liggja hve
marga þau skjóta, ef það þjónar
hagsmunum þeirra.”
Nokkrir ganga
lausir
Janas skrifar þessar hvatningar í
neðanjarðarrit Einingar. Skorar
hann á verkamenn að mynda leyni-
verkfallsnefndir til undirbúnings alls-
herjarverkfalli. Hvetur hann félaga
sína um leið til að dreifa leyniriti Ein-
ingar eins viða og unnt er.
Wladyslaw Frasynuk, einn af ör-
fáum foringjum samtakanna sem enn
gengur laus, lýsti því yfir í bréfi til
Einingarmanna að samtökin væru
síður en svo liðin undir lok þrátt fyrir
innleiðingu herlaga.
Báðir vara verkamenn við beinum
mótþróa við yfirvöld. Segja þeir að
of miklu blóði hafi þegar verið út-
hellt.
Til viðbótar þessum tveim er vitað
um nokkra aðra forystumenn Eining-
ar, sem ganga lausir ennþá. Þar á
meðal þrímenningarnir sem skipu-
lögðu verkföliin í ágúst 1980: Bogdan
Lis, Alina Pinkowska og Bohdan
Borusewics, sem öll eru frá Gdansk.
Hungurverkfall
í fangelsi
Margir af helztu forvígismönnum
Einingar eru hafðir í haldi í Bialol-
eka-fangelsinu skammt frá Varsjá.
Kvisazt hefur þaðan að fangarnir þar
ráðgeri hungurverkfall til að mót-
mæla aðbúnaðjnum. — Heyrzt hefur
að einhverjar hreinsanir hafi verið
gerðar meðal starfsliðs fangelsisins.
Meðal annars hefur fangelsisstjórinn
verið látinn víkja fyrir of mikla mildi
við fanga, sem fólst í því að leyfa
þeim að mynda kór, efna til tungu-
málanámskeiða og halda fyrirlestra.
Blaðamenn og
kennarar undir
nánu eftirliti
Aðrar fréttir gefa tU kynna, að
herlagastjórnin sé smám saman að ná
traustu taki á öðrum þáttum þjóðlífs-
ins. Blaðamenn hafa t.d. verið kall-
aðir fyrir einn og einn í senn og yfir-
heyrðiraftíu spyrjendum um stjórn-
málaskoðanir þeirra. Þeir blaðamenn
sem þegar hafa gengið undir prófið
segja að ekki hafi dulizt að spyrjend-
ur hafi fyrirfram verið búnir að
ákveða hvort þeir fengju áfram að
stunda starf sitt eða ekki.
í menntaskólum finna nemendur
áberandi mun á kennslunni síðan hún
byrjaði aftur. Nú er einkennisklædd-
ur liðsforingi sitjandi á stól í hverri
kennslustofu til þess að fylgjast með
kennurum og nemendum. Að lokn-
um skóladegi eru kennarar boðaðir á
fundi með majórum úr hernum og
fulltrúum úr menntamálaráðuneyt-
inu. Á þeim fundum er hamrað á
nauðsyn aukins aga og meiri áherzlu
á innrætingu föðurlandsástar.
Lítt fjölgar Svíum
. Svíum fjölgaði aðeins um 6000 á
árinu 1981 og er þetta lægsta fólks-
fjölgunartala í sl. 100 ár.
Fæðingar voru 94.000 á móti
91.000 dauðsföltum og hefur ekki
verið svo lítill munur á þessum tölum
í 171 ár.
Innflytjcndum fæk'kaði einnig um
19%. Voru þeir í ár 32 . 000 á móti
29.000 útflytjendum. Hefur tala út-
fiyijcnda haldizt svipuð undanfarin-
ár, en hins vegar hafa innflytjendur.
ekki verið svo fáir síðan árið 1973.
Smygl fyrir milljónir
Brezkum tollvöröum tókst að
góma'86,79 kíló af smygluðu heróíni
á liðnu ári eða 128% meira magn en á
árinu 1980.
Áætlað gangverð á magni þessu,
hefði það komizt á almennan
markað, eru 16,5 milljónir sterlings-
punda. Um 10% af heróíninu átti að
fara til annarra landa í gegnum
Bretland.
Mínna var um kókaínsmygl en
áður og þakka tollveröir það vel
heppnuðum aðgerðum gegn stór-
smyglurum i þeim bransa.
Séu öll eiturlyf talin, er
tollvörðum tókst að komast yfir á
liðnu ári, nemur áætlað heildarverð
gómaðs smygls 51,7 milljónum
sterlingspunda.
Verkfall hjá Ford
Rúmlega 11.000 starfsmenn Ford-
verksmiðjanna í Bretlandi lögðu
niður vinnu sína í gær til að mótmæla
kjarasamningum við fyrirtækið er
samþykktir voru af 14.000 starfs-
félögum þeirra.
Vilja harðlinumenn innan
verkalýðssamtakanna meiri
kauphækkun en samningurinn gerir
ráð fyrir en verkalýðsleiðtogar vilja
að verkföllum verði frestað.
Fordverksmiðjurnar eru að visu í
eigu Bandaríkjamanna en framleiða
flesubíla allra sambærilegra fyrir-
tækja í Brctlandi, eða 3 af hverjum
10 seidum bílum þar í landi.
Til vinnustöðvunar kom i 24 verk-
smiðjum fyrirtækisins, i átta voru
samningarnir samþykktir en í tveim-
ur var þeim hafnað án þess að verka-
menn legðu niður vinnu.
Ekkert lyf gegn
Nefnd sérfræðinga er starfar á
vegum fræöslu- og lyfjaeftirlitsins í
Bandaríkjunum hefur kveðið upp
þann úrskurð að ekkert lyf geti í
rauninni hjálpað fólki til að hætta að
reykja. Er hér átt við lyf þau er fást á
almennum markaði án lyseðils og
auglýst eru til slíks brúks. Þeir sögðu
þó að tvö efni væru verð nánari
könnunar. Fæst annaö úr plöntu og
sýnir svipaða eiginleika og nikótín,
en hitt er silfuracetat, salt sem á að
gefa óbragðaf tóbaksreyk.