Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1982, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1982, Blaðsíða 16
16 DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1982. Spurningin Hefur þú fylgzt náið með efnahagsmálum þjóðarinnar upp á síðkastið? Sigríður Guðmundsdóttir: Nei, ég get ekki sagt það. AUa vega ekki svo náiö aö ég hafi lausn þeirra i sjónmáli. Ingibjörg Guðmundsi'óttir: Nei, ekki náiö. En ég kíki ann.ið slagiö á þetta fyrirbrigði. Ragnheiður Suorrmdóttir: Nei, þaö hef ég ekki gert. Ég hef einfaldlega ekki hugmynd um hvaö er aö gerast i þeim efnum núna. Svo hef ég Uka svo litiö vit áþessu. Bjöm Lindal: Ekki nógu vel. Ég veit þó vel hvað er aö gerast hverju sinni. T.d. er ástandið um þessar mundir mjög ógnvænlegt. Jóhann Guðlaugsson: Auövitaö fylgjast allir með þeim af meira eða minna kappi. Astandið í dag er eins og i Póllandi, þaö er hver höndin uppi á móti annarri. Halldóra Sigurðardóttir: Nei, en ég gerði það hérna áöur fyrr. En maður er orðinn þreyttur á þessu núna. Lesendur Lesendur Lesendur Móðir telúr Utla ástæðu hafa verið til þess að fárast yfir auglýsingu innheimtu- deildar sjónvarpsins, en öðru máU gegni með auglýsinguna fyrir Láttu mig gráta. AKIÐ MEÐ UÓSIN Á í Vegna bókarinnar LÁTTU MIG GRÁTA: Auglýsingin er til skammar Móðir hringdi: Það gekk ekki svo lítið á, þegar innheimtudeild sjónvarpsins dirfðist að slá á léttari strengi og kom með hina margumtöluðu „dillibossa- auglýsingu”. Þá ætlaði allt vitlaust að verða og ekki var þó tilefnið mikið. Nú er hins vegar svo sannarlega á- stæða til þess að kvarta undan auglýsingu í sjónvarpinu. Það er auglýsing á vegum Samhjálpar, að mér skilst, og er henni ætlað að hampa bók með heitinu Láttu mig gráta. Maður situr þarna i sára sakleysi með ung börn fyrir framan sjónvarpið, þegar allt í einu birtist viðbjóöslegur ofbeldisþáttur og það I auglýsingatilgangi. Hópur ofbeldis- seggja veifar leðurólum að nazista- sið, fettir upp á granir sér eins og villidýr og eltin dauðhræddan ungan mann upp einhvern brunastiga, þangað til hann hrapar. Hvernig stendur á að sjónvarpið birtir þetta? Svo má maður gjöra svo vel að róa bömin sin fram eftir öllu kvöldi. Auk þess er ekki nokkur leið aö fá neinn botn í hvað aðstandendur þessarar auglýsingar meina með henni. Maður gæti haldið að hér væri verið að hampa sjúklegum hneigðum. Auglýsingin er til skammar. Mynd þessi var á forsíóu þýzka blaðsins Der Spiegel og sýnir póiska verka- lýósleiðtogann Lech Walesa og rússneska björninn. Vegna Póllands: „Kommamir ættu að fjasa meira um verkfallsrétt” - skrífar verkamaður Verkamaóur skrífar: Ástandið í Póllandi hefur sýnt okkur svart á hvítu hversu mikla virðingu Sovétrikin, eða Rússar, bera fyrir tilverurétti hins almenna verkamanns. Eining, samtök óháðra verka- lýðsfélaga í Póliandi, hefur nú verið murkuð niður og þar með allur hennar ágæti árangur. Ekki máttu þeir við ofureflinu, vesalings mennirnir og nú verða forustumenn Einingar sennilega látnir hverfa eða veslast upp í Siberíu. Kommarnir ættu að fjasa meira um verkfallsrétt og sjálfsagt vald alþýðunnar. Tékkóslóvakía, Ung- verjaland og nú seinast Pólland sýna nú bezt hvernig farið er með verkamenn og þeirra rétt, þar sem þessir andskotar ná völdum. Ég sendi ykkur mynd af forsiðu þýzka blaðsins Der Spiegel, sem mig langar til að biðja ykkur að birta, því hún sýnir pólska verkalýðsleiðtogann Lech Walesa og það farg sem honum tókst þó lengi að axla. Er það þessi tegund af „frelsun” sem kommarnir vilja kalla yfir okkur fslendinga? Já, þeim ferst að tala fögrum orðum um verkfallsrétt og gildi launþegasamtaka. Á þessu fleyta þeir sér svo inn á þing — en til þess að koma hverju I kring, mér er spurn? SKAMMDEG INU — notið stef nuljósin Bílstjóri skrifar: Hvernig stendur á því að margir bílstjórar aka um götur borgarinnar, eins og það sé um að gera að halda því leyndu fram á síðustu stundu hvort þeir ætla að beygja eða jekki? Þessi akstursmáti getur verið mjög óþægilegur fyrir aðra umferð auk þess sem af honum stafar slysahætta. Það er sjálfsagt að nota stefnuljósin og það í tæka tíð; ekki í blábeygjunni. Ég vil einnig gera að umtalsefni hve margir bílstjórar slá slöku við að aka með ljósum. Það er mjög varasamt í skammdeginu, ekki sizt ef þeir eru á gráum eða drapplitum bílum. Aðspurðir segjast sumir þeirra alls ekki þurfa að kveikja ljósin, því þeir sjái ágætlega til fram eftir öllu. Það kann að vera, en málið er, að þeirsjástekki. Verður of lítið úr Húsnæðismála- stjórnaríánunum? Er óhentugu greiðslufyrírkomulagi um að kenna? Árni Sigurjónsson hríngdi: Mig langar til þess að koma athugasemd á framfæri í sambandi við húsnæðismálastjórnarlán. Ég er einn þeirra mörgu sem eru að byggja. Þegar maður fær byggingarleyfi er hægt að sækja um húsnæðismála- stjórnarlán, síðan tekur eina 6 mánuði, eftir að hús er orðið fokhelt, að fá fyrsta þriðjung þess út- borgaðan. Það er ekkert tillit tekið til þess, að sumt fólk getur ekki leyft sér að bíða með að flytja, þar til það fær þessa aura í hendurnar. Ef það býr í íbúð, þarf það oft að selja ofan af sér og/eða velta undan sér öðrum lánum með öllum hugsanlegum brögðum, til þess að fara ekki á hausinn með alltsaman. Á þessum tímum efnahags- erfiðleika og húsnæðisskorts, finnst mér óþarfa silagangur vera allsráðandi í þessum efnum, enda verður fólki oft harla lítið úr húsnæðismálastjórnarlánunum. Tæplega er þeim ætlað að hrökkva einungis fyrir vöxtum og kostnaði af öðrum lánum. Væri ekki meira vit I því að maður fengi þessa aura í hendurnar, þegar hús er orðið fokhelt og peninganna er mest þörf? Ætli slík fyrirgreiðsla myndi ekki greiða töluvert úr hús- næðisvandanum? | Árni Sigurjónsson telur húsnæðismálastjórnarlánin fara fyrir IICA K„l fAII. (U

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.