Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1982, Síða 17
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1982.
17
Myndin sýnir líkan að fyrirhaguðum byggjngarframkvæmdum á Laugaríunum
Hönnuður er Knútur Jeppesen. DV-mynd: Bjarnlei
Bygging 30 raðhúsa heimiluð við Vesturbrún:
Laugarásinn í brenni-
depli byggjenda á ný
—búast má við handagangi í öskjunni við úthlutun lóða
í samræmi við ákvörðun um þétt-
ingu byggðar á höfuðborgarsvæðinu
hefur nú verið ákveðið og samþykkt að
heimila byggingu 30 raðhúsa á háhæð
Laugarássins. Verða þau staðsett rétt
sunnan háhýsanna við Austurbrún 2 og
4. Verður aðkeyrsla að húsunum frá
Vesturbrún.
Knútur Jeppesen er hönnuður hús-
anna og i samtali viö hann kom fram
að þau yrðu að meira eða minna leyti
tengd saman. Er það gert til að auka
skjól við húsin því býsna vindasamt
getur orðið á háhæðinni. Myndast oft
sterkir sviptivindar við háhýsin.
Ennfremur er ætlunin með samtenging-
unni að koma í veg fyrir að íbúar há-
hýsanna geti að vild fylgzt með gerðum
þeirra sem búa í raðhúsunum.
Um er að ræða þrjár mismunandi út-
gáfur raðhúsa. Tvær þeirra eru jafn-
stórar, um 200 m2 hvor, en sú þriðja er
um 160 m2 að stærð. Bygging húsanna
er fyrirhuguð í vor. Má fastlega gera
ráð fyrir að handagangur verði í öskj-
unni þegar að lóðaúthlutun kemur.
Fleiri hundruð umsóknir úm bygginga-
lóðir liggja nú þegar fyrir. Laugarásinn
hefur verið eitthvert dýrasta svæði
borgarinnar og hafa íbúðir og hús þar
gengið kaupum og sölum á verði langt
umfram það er viðgengizt hefur í
öðrum bæjarhlutúm.
-SSv.
Unniðá
fulluvið
rannsókn
starfsemi
Videosón
”Það er unnið að rannsókn málsins
af fullum krafti en niðurstöðu er ekki
að vænta fyrr en i mánaðarlok,” sagði
Arnar Guðmundsson hjá Rannsóknar-
lögreglu ríkisins sem vinnur nú að
rannsókn á starfsemi Videosón.
í kjölfar niðurstaðna myndbanda-
nefndar, sem menntamálaráðherra,
Ingvar Gíslason, skipaði í haust, var
farið fram á rannsókn á starfsemi
Videosón. Komst myndbandanefndin
að þeirri niðurstöðu að starfsemi fyrir-
tækisins væri með öllu ólögleg.
-SSv.
Selfoss:
Kjötvinnslu-
f ólkið vann
á vöktum
— sóknin íhangikjötið
fyrir jóiin svo mikii
að herða varð á
vinnslunni
Hér er sól og alltaf alautt svo fólk
hefur ferðazt mikið um þessa stórhátíð
að hitta vini og skyldmenni sín. Aldrei
verið keypt meira af hangikjöti að sögn
matvælaráðherrans í verzluninni Höfn
og Kaupfélagi Árnesinga, en kaupmað-
urinn í verzluninni Höfn sagði mér
að það hefði engin hangikjötssala verið
fyrr en eftir miðjan desember, en þá
jókst salan svo mikið að kjötvinnslu-
fólkið varð að vinna á vöktum til þess
að fuUnægja eftirspurninni éftir hinu
góða hangikjöti.
Iönaöarmenn byggja hér íbúðarhús
af fullum krafti með stórvirkum tækj-
um. Hér sést sólin allan ársins hring og
þar af leiðandi er aldrei drukkið sólar-
kaffi á Selfossi eins og á Austfjörðum.
Ég sakna þess að fá ekki sólarkaffi og
grautaríummur, en ég mun drekka sól-
arkaffi 14. janúar en þá sést sóUn á
Eskifirði ef vel viðrar.
Regína, Selfossl/ -SSv.
Reykjavíkurprestar
heimsækja starfs-
félaga á Kjalarnesi
Prestar í Reykjavíkurprófastdæmi
munu nk. sunnudag, 10. janúar, heim-
sækja presta í Kjalarnesprófastdæmi
og stíga í stóla hjá þeim. Það er Presta-
félags Suðurlands sem stendur fyrir-
þessari tilbreytingu og skipuleggur
hana.
Markmiðið er að efla og auðga allt
innra starf kirkjunnar með nánari
kynnum á milli presta og safnaða.
Um kvöldið kl. 18.30 verður kvöld-
vaka fyrir presta í Prestafélagi Suður-
lands og maka þeirra að Garðaholti við
Garðakirkju, sem prestar í Kjalarnes-
prófastdæmi munu sjá um.
-JH.