Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1982, Blaðsíða 36
Mikill æsingur á gðtum Self oss f gærkvöld:
Ráðizt að lögreglu með
flösku- og grjótkasti
Mikill æsingur greip um sig á
götum Selfoss í gærkvöldi og þurfti
lögreglan aö fjarlægja um þrjátíu
manns af þeim sökum. Hin árlega
þrettándagleði fór fram á Selfossi í
gærkvöldi en undanfarin ár hefur sú
gleði kostað múgæsing. Lögreglan á
Selfossi var því viðbúin látum að
þessu sinni og hafði fengið aukalið
frá Reykjavík sér til hjálpar.
Strax er skemmtunin var að byrja
þurfti lögreglan að byrja að fjarlægja
fólk vegna óspekta. Æstist leikurinn
til muna er leið á kvöldið en þá var
haldinn dansleikur í Selfossbíói.
Nokkur ungmenni reyndu að loka
götum bæjaris og er lögreglan reyndi
að stöðva leikinn var hafizt handa
gegn henni.
Ungmennin köstuðu flöskum og
grjóti að lögreglumönnum og hlutu
nokkrir þeirra meiðsl. Þá var einn af
lögreglubílum grýttur. Einnig var
nokkuð um rúðubrot í bænum.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi
var gífurlegur mannfjöldi saman-
kominn í bænum og margir komnir
langt að. Það munu þó einungis hafa
verið heimamenn sem í óiátunum
stóðu. Þá sagði lögreglan að búizt
hefði verið við átökum eftir reynslu
fyrri ára. Ekki var vitað hvaða stefna
yrði tekin í áframhaldandi þrettánda-
gleði á Selfossi. Margir munu þó
telja að bezt væri að leggja gleðina
niður. -ELA.
A Akureyri héldu Þórsarar sína úrlegu álfabrennu og dans f gœr-
kvöldi að viðstöddu miklu fjölmenni. Fremur kalt var í veðri en fólk
yljaði sér við eldinn og hér sést hluti af göngu þátttakenda í
þrettándagleðinni. (D V-mynd GS Akureyri)
Vestmannaeyjar:
í NETAGERÐINGÓLFS
BRUNI
Stórbruni varð í Vestmannaeyjum í
gærkvöldi er eidur kom upp í Netagerð
Ingólfs. Eldurinn kom npp í þaki ný-
byggingar fyrirtækisins um kl. 21.30.
Það tók slökkvilið staðarins um hálfa
þriðju klukkustund að ráða niður-
lögum eldsins.
Að sögn Eliasar Baldvinssonar að-
stoðarslökkviliðsstjóra var mikill eldur
er að var komið, aðallega í vesturenda
hússins. Slökkvistarf var allt mjög
erfitt, mikið frost og snarpur norðan-
vindur. Fjöldi sjálfboðaliða aðstoðaði
slökkviliðið við slökkvistarfið en rjúfa
þurfti þekju hússins að nokkru leyti.
Skemmdir urðu mestar á þaki neta-
gerðarinnar en veiðarfæri, síldar- og
loðnunætur voru í eldtraustum geymsl-
um á neðri hæð hússins. Elías sagði að
það hefði verið mesta mildi, því ella
hefði illa farið.
Brunavakt var við netagerðina í nótt.
Eldsupptök eru ókunn en slökkviliðs-
menn töldu nokkrar líkur á því að flug-
eldur hefði valdið íkveikjunni. Þrett-
ándagleði Eyjamanna stóð einmitt sem
hæst er eldurinn kom upp.
-JH/FÓV Vestmannaeyjum.
Stálfélagsmenn gefast ekki upp en...
AÐEINS EIN MILUON
SAFNAÐIST í HLUTAFÉ
,,Enn liggur ekki ljóst fyrir,
hvenær Stálfélagið verður stofnað.
Ég geri þó ráð fyrir að það geti orðið
í febrúar eða marz,” sagði Jóhann
Jakobsson efnaverkfræðingur, er DV
spurði hann hvað liöi undirbúningi
að stofnun Stáifélagsins.
Sag-'ii Jóhann að stofnun slíks
fyrirtækis væri mjög þörf. Þrátt
fyrir það hefði söfnun hlutafjár ekki
gengið sem skyidi. Upphaflega hefði
verið gert ráð fyrir að hlutafé næmi
um 30 milljónum króna. Með þeirri
upphæð hefði verið unnt að stíga
skrefið til fulls og stofna fyrirtæki
sem gæti brætt járnið, valsað og
fullunnið það. Þess i stað yrði nú
farið af stað með eina milljón. Yrði
stofnað starfandi hlutafélag, sem ýtti
á og byrjaði að nýta alla möguleika
sem tiltækir væru til að hefja
bræðsluna.
„Við munum halda hlutafjár-
söfnun áfram,” sagði Jóhann. „Hún
hefur gengiö hægt og sígandi. Mörg
hundruð manns hafa gerzt hluthafar
en hlutirnir eru smáir. Við þurfum að
safna 10 milljónum í hlutafé til að
geta hafið bræðslu. ”
Eins og DV hefur greint frá, varð
nokkur ágreiningur um Ióðaleigumál
Stálfélagsins. Hluti stjórnarmanna
hjá Landgræðslusjóði hafði leigt
Stálfélagsmönnum lóð norðan við
Álverið i Straumsvik.
Aörir stjórnanarmenn hjá Land-
græðslusjóöi neituðu að samþykkja
leigusamninginn. Aðspurður um
þetta atriði sagði Jóhann að
samningurinn við Landgræðslusjóð
stæði að sínu mati óbreyttur. Hefði
verið gengið frá því máli í nóvember.
Kristinn Skæringsson stjórnar-
maður hjá Landgræðslustjóöi sagöi I
samtali við DV að stjórnin hefði enn
enga ákvörðun tekið um leigu
umræddrar lóðar og ekkert veriö
samþykktiþeimefnum. -JSS.
fifálsl, óháð dagblað
■ FIMMTUDAGUR 7. JAN, 1982.
Fram-
kvæmdir
hefjast
brátt hjá
Seðlabanka
Brátt líður að því að Seðlabankinn
geti hafið byggingu sex hæða stórhýsis
og bílageymslu, 1579 rúmmetra að
stærð, við Kalkofnsveg.
Umsókn bankans uam byggingar-
leyfi var tekin fyrir hjá bygginganefnd
Reykjavíkurborgar 30. desember sl.
Þar var ákveðið að fresta veitingu leyf-
anna. Að sögn Gunngeirs Péturssonar
ritara nefndarinnar var það fyrst og
fremst gert vegna þess að brunatækni-
lega hönnun vantaði í skrifstofubygg-
inguna. Þá ákvað bygginganefnd að
leita eftir umsögn umferðardeildar
vegna aðkomu í bílageymsluna. Sagði
Gunngeir að Ijóst væri að laga þyrfti
Kalkofnsveginn að hluta til að bílar
ættu greiða leið inn og út úr bíla-
geymslunni. Væri þó ekki um stórvægi-
legar lagfæringar að ræða.
Gunngeir sagði ennfremur, að álit
hefði nú borizt frá brunamálastjóra
rikisins varðandi eldvarnir í húsinu.
Væri beðið eftir umsögn umferðar-
deildar. Að því fengnu yrði hægt að af-
greiða málið, sem trúlega yrði gert
M.þessamánaðar. —JSS
Elduríhúsi
við Vitatorg
Eldur kom upp í gömlu steinhúsi við
Vitatorg um hálftvöleytið í gærdag.
Mikill reykur var um húsið og þá sér-
staklega í stigagangi og risi. Fjórir
reykkafarar fóru inn í húsið með há-
þrýstislöngur og tók um 25 minútúr að
slökkva eldinn. Talsverðar skemmdir
urðu á húsinu en engin slys á fólki.
Þrettán manna iið slökkviliðsins tók
þátt í slökkvistarfi og var síðan haldin
vakt við húsið fram á kvöld. Ekki er
vitað um eldsupptök. -ELA.
Þá er vinstri meirihlutinn í
borginni farinn að berjast
gegn ríkisstjórninni meö þvf
að segja öllum upp hjá BÚR.