Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1982, Side 5
DAGBLAÐIÐ& VlSlR. MÁNUDAGUR 8. MARZ 1982.
5
„Kjaftakeriing” ígagnið
hjá fíkniefnalögreglunni
Tekur við öllum upplýsingum um f íkniefnamál
sem almenningur lumar á
„Þetta er sjálfvirk hljóðritun
upplýsinga um fíkniefnamál í næstu sjö
minútur og hefst með hljóðmerki. Ef
óskað er að tala lengur en í sjö minútur
þarf að hringja aftur.” Þetta segir gull-
falleg kvenmannsrödd ef hringt er í
síma 14377 í Reykjavík.
Símanúmer þetta er hjá fíkniefnalög-
reglunni, en þar var sjálvirkur símsvari
eða „kjaftakerling” tekinn í notkun
fyrir nokkru. í síma þennan er hægt að
hringja ef viðkomandi telur sig hafa
einhverjar upplýsingar um sölu eða
óeðlilega notkun fikniefna og þarf
hann ekki að láta nafn sins getið.
Starfsmenn fíkniefnadeildarinnar
sögðu, er við töluðum við þá í gær, að
engin reynsla væri komin á þetta enn-
þá. Síminn hefði sama og ekkert verið
notaður og því lítið á honum að græða
enda vissu sjálfsagt ekki margir um
þetta símanúmer.
Símsvarar eins og þessi eru mjög al-
gengir á lögreglustöðvum víða um
heim. Hafa mörg mál verið upplýst eft-
ir að lögreglan hafði fengið ábendingar
í símsvarann. Má þar m.a. nefna fíkni-
efnamál, morð, mannrán og hvað eina
enda er nú símsvara að finna í nánast
öllum deildum lögreglunnar í flestum
löndum heims.
-klp-
Ef þú lumar & einhverjum
uppfýsingum um fíkniefnamál áttu
að hringja í þetta simanúmer I
Reykjavik.
14377
Gagnrýni á rekstur Norræna hússins
íNorðurlandaráði:
FJÁRVEITINGAR
EKKIVERÐBÆTTAR
— og þvíerfitt að gera raunhæfar áætlanir, segir
Guðlaugur Þorvaldsson stjórnarformaður
„Þessi gagnrýni mun beinast gegn
fjármálastjórninni í tíð Eriks
Sönderholms sem var forstjóri Nor-
ræna hússins frá miðju ári ’76 til árs-
loka 1980,” sagði Guðlaugur Þorvalds-
son, stjórnarformaður Norræna húss-
ins, um þá ákvörðun norræna
menningarmálasjóðsins að láta fara
fram gagnrýna endurskoðun á rekstri
hússins.
„Fjárlög Norræna hússins eru samin
allt að tvö ár fram i tímann. í verð-
bólgu, eins og er hér á landi, er mjög
erfitt að gera raunhæfar áætlanir nema
allar fjárveitingar séu verðbættar sam-
kvæmt vísitölu, en það eru þær ekki.
Aðeins launakostnaðurinn hefur verið
verðbættur en hann er aðeins lítill hluti
af rekstrarkostnaði.Kostnaður við kaup
á erlendum dagskráratriðum og far-
gjöld erlendra gesta er stærsti liðurinn
og hann er ekki verðbættur. í því sam-
bandi má nefna að flugfargjöld hala
hækkað miklu meira heldur en fram-
lögin til hússins.
Ég vil ekki draga fjöður yfir það að
þegar Ann Sanderlin tók við forstöðu
Norræna hússins í ársbyrjun 1981 var
afskaplega lítið fé til ráðstöfunar. Þetta
stafaði af því að áður en Sönderholm
fór hafði hann staðið fyrir mjög
kostnaðarsamri dagskrá þannig að
varla var fyrir hendi fjármagn til að
halda uppi eðlilegri starfsemi. Það er
að þessu sem gagnrýnin beinist,” sagði
Guðlaugur Þorvaldsson.
Guðlaugur sagði að þessu ástandi
hefði verið mætt með auknum
sparnaði í rekstri og ódýrari dag-
skráratriðum auk þess sem fyrirgreiðsla
fékkst hjá íslenzka ríkinu og 250
króna aukafjárveiting frá norræna
menningarmálasjóðnum. Þessi vandi
hefði nú verið leystur að mestu, sagði
Guðlaugur.
ÓEF
HLEKKUR í NÝRRI
KEÐJU BRAST
Grimseyingar misstu einn fimmta af
bátaflota sínum í fyrrinótt þegar 11
tonna bátur, Sigurbjörn, slitnaði upp á
legunni og rak upp í fjöru.
Floti Grimseyinga, en hann var fimm
11 tonna bátar, var úti á legunni í fyrri-
nótt en þá var vestanátt og stórstreymt
við Grimsey. Um klukkan fjögur um
nóttina tóku menn eftir þvi að einn bát-
urinn hafði slitnað upp og var kominn
upp í fjöru. Hafði hlekkur í nýlegri
keðju, sem hann var festur með, slitn-
að.
Menn komust strax að bátnum en
gátu ekkert gert þar sem þungt var í
sjóinn og var þvi ákveðið að bíða til
morguns. Um klukkan sex um
morguninn gerði aftur á móti hið versta
veður og þegar því slotaði var báturinn
gjörónýtur eftir að hafa lamizt um í
grjótinu.
Í gær var unnið að því að bjarga vél-
inni og öðru nýtilegum hlutum úr bátn-
um á strandstað og tókst það vel enda
veður þá orðið gott.
-klp-
Lögreglan rakti sloð
bílþjófanna í snjónum
Lögreglan í Hafnarfirði hafði í fyrri-
nótt hendur í hári þriggja ungra manna
sem leitað hafði verið vegna bílþjófn-
aðar.
Þarna var um að ræða þrjá pilta á
aldrinum 16 til 19 ára. Brutust þeir inn i
bíl í Breiðholti og óku á honum suður
með sjó. Sást til þeirra í Grindavík en
þar er talið að þeir hafi unnið spjöll á
tveim bílum og auk þess brotið rúðu í
íbúðarhúsi.
Á lciðinni til baka óku þeir út af og
festu bílinn við Engidal, á milli Garða-
bæjar og Hafnarfjarðar. Var engan
annan bíl að hafa í næsta nágrenni fyrir
þá og löbbuðu þeir því af stað.
Lögreglan í Hafnarfirði fann bílinn
og rakti síðan slóð piltanna í sjónum
upp Hraunsholtið að biðskýlinu við
Ásgarð. Þar voru kauðar teknir með
fangið fullt af dóti sem þeir höfðu stol-
ið úr bílum sem þeir brutust inn í á
gönguferðinni. Er vitað um a.m.k. 3
bíla sem þeir fóru inn í á þeirri ferð en
verið er að rannsaka nánar ferðalag
þeirra og viðkomustaði á ökuferðinni
suðurmeðsjó. -klp-
xfv.V
Laugavegi 54, sími 11232.
Hafnargötu 16 Kefiavík, sími3220.
Sérsaumaðir
fermingarkjólar
frá ítafíu