Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1982, Blaðsíða 6
Ný sending, lœkkað verð, þ.e. frákr.
550,- settið í bílinn. 3 litir: drapplitað,
dökkbrúnt og grátt
w erzttj
( Siöumúla 17
Sími 37140
Pósthóll 5274 125 fícyk/avik
ÚTBOÐ
Hitaveita Rangæinga óskar eftir tilboðum í framleiðslu á
greinibrunnum.
Útboðsgögn verða afhent á eftirtölum stöðum gegn 500
kr. skilatryggingu:
Á Hellu: Skrifstofu Rangárvallahrepps, Laufskálum 2.
Á Hvolsvelli: Á skrifstofu Hvolhrepps.
í Reykjavik: Á verkfræðistofunni Fjarhitun hf. Borgartúni
17.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Rangárvallahrepps,
Laufskálum 2, Hellu, þriðjudaginn 23. marz 1982 kl. 14.
LÍFSGLEÐIOG
STARFSÁNÆGJA
Allir vilja vera lífsglaðir og ánægðir i starfi. Nú er tæki-
færið með því að taka þátt í Dale Carnegie starfsþjálfun og
fríska upp á sjálfan sig 5 mánudagsmorgna kl. 9.15—
11.15.
Námskeiðið hefst 15. mars nk.
Námskeiðið getur hjálpað þér að:
• stjórna þínu eigin viðhorfi og finna skemmtilegu hliðam-
ar á starfinu og vera í góðu skapi,
• hlusta betur og verða þakklátari einstaklingur,
• svara betur í síma og muna mannanöfn,
• taka á móti kvörtunum á réttan hátt og virkja eld-
móðinn,
• spyrja viðeigandi spurninga og starfa árangursríkara
með öðru fólki.
Námskeið þetta er ætlað einstaklingum, starfshópum og
félögum er vilja þjálfa betur hæfileika sína. Námskeiðið
byggir á áratugareynslu Dale Carnegie námskeiðanna í 56
löndum svo að þú ert í góðum höndum.
Innritun og upplýsingar í síma 82411. Fjárfesting í
sjálfum þér og starfsfólkinu skilar arði og betri þjónustu.
Einkaleyfi á íslandi
STJÓRNUNARSKÓLINN
dai.i; cakM’.qie Konráð Adolphsson
' %Jmski ii'n"v '________
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MÁNUDAGUR 8. MARZ 1982.
Neytendur Neytendur Neytendur
Eru tré myrt í stórum stfl?
TRE DEYJA SEU ÞAU
EKKIKLIPPT RÉTT
Rifsberjarunninn var vaxinn fram og greinarnar farnar að skjóta rótum. Kristján rifur þær þarna upp með látum.
,,Tré til dæmis í Þingholtunum,
Hlíðunum og annars staðar þar sem eru
30—40 ára gamlir garðar eru í dauða-
teygjunum í stórum stíl. Það er alveg
ferlegt að vita af þessu. Það ætti i raun
og veru að skikka fólk til að klippa
trén,” sagði Kristján Vídalín Jónsson.
Hann og Yngvi Sindrason garðyrkju-
maður hafa í mörg ár klippt tré fyrir
fólk. Við hittum þá félaga einn morg-
uninn þar sem þeir voru að klippa tré
niðri á Smáragötu.
„Þessi tré eru ekki illa farin,” sagði
Yngvi. ,,Þeim hefur verið vel við haldið
og klippt reglulega. En rifsið hefur
verið klippt vitlaust og sjást þess glögg-
lega merki. I stað þess að klippa við
stofninn þannig að hann skipti sér hafa
litlu greinarnar verið klipptar
Afleiðingin er sú að stofninn getur fún-
að og rifsið dáið. Önnur afleiðing er
lika að greinarnar vaxa niður, leggjast
út og skjóta þar rótum. Rifsið breiðir
því æ meira úr sér lárétt í staðinn fyrir
að vaxa lóðrétt.”
Yngvi brá sér í reynitré eitt mikið til
að klippa það til. „Reyni verður að
klippa reglulega,” sagði hann. Kristján
sýndi okkur dæmi um það hvernig fer
N
Yngvi uppi í reynitrénu. Hann varð að
saga töluvert af greinum af þvi vegna
þess að þær nudduðust við aðrar grein-
ar.
ef það er ekki gert. „Greinarnar vaxa
þannig að þær nuddast hver við aðra.
Þegar þær hafa nuddazt svona saman i
töluverðan tíma flagnar börkurinn af,
greinin fúnar og deyr. Þegar ofan á
bætist eins og hér og víðar í gamla
bænum að trjám er plantað of þétt í
upphafi nuddast greinar af einu tré við
greinar af öðru. Þetta verður bókstaf-
lega að laga í tíma áður en tréð er orðið
ónýtt,” sagði Kristján.
Hann sagði að ef vel ætti að vera
þyrfti bilið á milli t.d. reynitrjáa að
vera 5—7 metrar. En víða er það niður
í 1 metra og jafnvel enn minna bil. Af-
leiðingin verður sú að trén verða eins
og spírur beint upp í loftið í staðinn
fyrir að breiða úr laufmiklum krónum i
allar áttir.
Nokkrum dögum áður höfðu þeir
félagarnir einmitt verið að gera skurk í
garði við Fjólugötuna. Þar þurfti að
höggva nokkuð mörg tré til þess að hin
hefðu einhverja lifsmöguleika. „Við
þurfum hreinlega að búa til tré. Þetta
sem eftir var var varla hægt að kalla
tré,” sagði Kristján.
Hann hófst þá handa við að klippa
rifsberjarunnann. Það verður að
segjast eins og er að hálf-ber varð hann
á eftir. „Það verður að klippa þetta allt
burt til að hann vaxi rétt,” sagði
Upplýsingaseðilli
til samanbuiðar á heimiliskostnaði j
Hvað kostar heimilishaldið? ,
Vinsamlega sendið okkur þcnnan svarseðil. Þannig eruð þér oröinn virkur þátttak- |
andi i upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar ,
i fjölskvldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nytsamt heimilis- (
I
tæki.
Nafn áskrifanda
i
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks
Kostnaður í febrúarmánuði 1982
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annað kr.
Alls kr.
M
&
D,
Í
Kristján. ,, Hann vex aftur og verður
mikið fallegri fyrir bragðið.”
Þegar við vorum að fara benti hann
okkur á tré í næsta garði. í einni grein
þess hékk eitthvað sem í fjarlægð líktist
hreiðri. „Þetta er nornakvistur,” sagði
Kristján. Og Yngvi æpti ofan úr reyn-
inum að nornakvistar væru nokkurs
konar krabbamein í trám. Þá verður að
skera burt, annars fer öll orka trésins í
að láta þá stækka og það veslast upp.
Nú mun vera alveg rétti tíminn til að
klippa tré þannig að þau verði veru-
lega fallegi sumar.
DS
Hálf varð runninn ber að sjá þegar bú-
ið var að klippa hann. En miklu varðar
að klippa hann rétt tii þess að fá rétt
sköpulag á hann. - DV-myndir Einar.