Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1982, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1982, Blaðsíða 8
8 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 8. MARZ 1982. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Morðingjar Sadats: Mubarak hefur mánaðar frest til að ákveða örlög þeirra. Banamenn Sadats dæmdir Hosni Mubarak Egyptalandsforseti þarf nú að ákveða örlög morðingja fyrirrennara síns, Anwars Sadats. Her- rétturinn, sem í rúma þrjá mánuði hefur fjallað um mál tilræðismann- anna, dæmdi um helgina fimm þeirra til dauða og sautján aðra til fangelsis- vistar frá fimm árum til lífstíðar. Mubarak forseti, sem er um leið æðstráðandi hersins, hefur nú mánað- arfrest til þess að gera upp við sig hvort hann staðfestir dóma herréttarins, mildar þá eða lætur rétta að nýju í mál- inu. Ríkisfjölmiðlarnir létu í ljós vel- þóknun sína á dauðadómunum og virðast þeir mælast víða vel fyrir meðal almennings. Þeir sem trúa á hina heil- ögu bók múhameðstrúarmanna, kór- aninn, telja eðlilegt að auga komi fyrir auga, tönn fyrir tönn og líf fyrir líf. Fjórir sakborninganna, þar á meðal Islambouli liðsforingi sem stjórnaði árásinni á Sadat forseta, voru dæmdir til dauða fyrir árásina sjálfa. Sá fimmti dauðadæmdi var maður sem látið hafði þeim í té skotfæri. Lögreglan sökuð um morð Stjórnvöld í Perú hafa fyrirskipað rannsókn vegna meininga um að lög- reglan hafi dregið þrjá öfgasinna særða út úr rúminu á sjúkrahúsi og myrt þá. Íbúar í bænum Ayachucho í suð- austurhluta landsins segja að mennirnir hafi verið myrtir síðasta þriðjudag, eða skömmu eftir að vopnaðir menn höfðu ráðizt á fangelsi staðarins og sf.ppt lausum 247 föngum að undangengnum bardaga þar sem tólf menn lágu i valnum (10 þeirra úr árásarliðinu). Hinir myrtu höfðu verið á sjúkrahúsi vegna sára sem þeir hlutu í stroku- tilraun úr fangelsinu tveim dögum áður. í yfirlýsingu innanríkisráðuneytisins er heitið ítarlegri rannsókn á þessu máli, en um leið er tekið fram að sannað sé að mennirnir hafi ekki látið lífið í lögregluaðgerð. Ayachucho-búar halda því samt fram að einkennis- klæddir menn úr þjóðvarðliðinu hafi tekið mennina þrjá út úr sjúkrahúsinu, sleppt þeim á götuna og skotið þá síðan til bana. Læknar sjúkrahússins hafa mótmælt þessum drápum og klagað málið til mannréttindanefndar þingsins. Réttarhald byrjað í Dozierráninu Fjórir af sextán hryðjuverkamönn- um Rauðu herdeildanna á Ítalíu sem ákærðir hafa verið fyrir ránið á banda- ríska hershöfðingjanum James Dozier hafa skorað á félaga sína að hætta bar- áttunni gegn yfirvöldum. Þessi áskorun var rækilega kynnt í ítölskum fjölmiðlum í gær. í henni segja hryðjuverkamennirnir fjórir að fimm ára löng barátta Rauðu herdeild- anna sé tapað spil. Hryðjuverka- sveitunum hafi ekki tekizt að vinna sér stuðning öreiganna. Frá því að þessir fjórir voru handteknir hafa þeir látið lögregl- unni i té mikilvægar upplýsingar um Rauðu herdeildirnar og hafa yfir 200 meintir félagar þeirra verið handteknir. Þessir fjórir og fjórir til viðbótar koma fyrir rétt í Verona. Þar er mikill öryggisviðbúnaður vegna réttarhalds- ins. Hinir átta leika enn lausum halda en verða dæmdir ,,in absentia”. Fimm þessara átta, sem leiddir verða á sakabekkinn, voru allir handteknir þegar Dozier var bjargað úr fjörutíu og tveggja daga prísund i Padúa 28. janúar. Hershöfðinginn er nú snúinn aftur til starfa sinna í stöðvum NATO en óvíst er hvort hann verður leiddur fram til vitnis gegn hryðjuverkamönn- unum. Réttarhaldið hefst í dag en, fljótlega mun dómarinn gera vikuhlé á dómhaldinu til þess að veita vörninni frest til frekari undirbúnings. Sex sakborninganna eru ákærðir 11 starfsmenn farangursgeymslu fluggesta á Heathrow-flugvelli i London hafa nú verið handteknir fyrir að stela 2400 sterlingspundum frá flug- vellinum og þeir sem þar eiga leið um. Var því haldið fram við réttarhöldin að hver starfsmannanna hafi tekið ófrjálsri hendi allt að 20 pundum á hverri vakt í sex mánuði. fyrir mannránssamsæri, en hinir fyrir einhverja hlutdeild i því eða árásinni á eiginkonu hershöfðingjans, sem kefluð var og bundin meðan bónda hennar var troðið inn í sendibíl og gat því ekki gert viðvart um ránið fyrr en þrem stundum síðar. Tíu sakborninganna eru ákærðir fyrir ólöglegan vopnaburð. Upp komst um fjárdrátt þennan er maður nokkur þurfti að sækja legstein í eina af geymslum flugvallarins, en steinninn hafði verið sendur flugleiðis frá Pakistan. Sendi maðurinn síðan kæru til viðeigandi yfirmanna vegna þess að kvittunin sem hann fékk hafði enga undirskrift. Hann tók einnig eftir því að sá sem afhenti honum send- Einn hinna ákærðu er Antonio Savasta sem er sonur lögreglumanns. Hann er einnig grunaður um ránið og morðið á kaupsýslumanninum Guiseppe Taliercio í fyrra. Hann hefur eftir handtökuna verið yfirvöldum samvinnulipur og varpað ljósi á margt um Rauðu herdeildirnar. Þar á meðal ýmislegt varðandi ránið og morðið á Aldo Moro 1978. Savasta, ásamt Giovanni Cincci, Emilia Libera (sem lögreglan hafði lengi leitað) og Eman- uela Frascella (læknisdóttir frá Padúa) stóðu að áskoruninni til Rauðu her- deildanna. inguna hélt ekki eftir eintaki af reikn- ingnum. Hann lagði greiðsluna ekki heldur í peningakassann. Hinir ákærðu viðurkenndu fjár- dráttinn og voru dæmdir til 2—6 mán- aða fangelsisvistar. Heathrow-flugvöllur hefur lengi á sér illt orð vegna tíðra stuldra á far- angri og flugsendingum. Dæmdir fyrír þjófnað á Heathrow-flugvelli Teg. 4211 Loðfóðmð og moð hrufóttum sóla Lttur: dökkblitt rúakhm Stærðir: 36-41 Vorö áðurkr. 448,20 Núkr. 248J0 Tmg. 224126Moon Boota Utur. BotnhvíttlmmrinbUtt Stærðtr. 36-41 VerO áöur kr. 297,50 Núkr. 197,50 Tmg. 212100 Moon Boota Utk: bUtt/hvltt mða rautt/hvrtt Stærðir: 39-46 Verö áöurkr. 268,50 Núkr. 197,50 Teg. 2260020 Moon Boota m/rennilós að innanvetðu Utk: biátt eða brúnt/beige Stærðk: 40—46 Veröáöurkr. 225,75 Núkr. 125,75 SÉRTILBOÐ - SÉRTILBOÐ ^ Skóverzlun Þórðar Péturssonar Kirkjustræti 8 v/Austurvöll. Sími 14181 e?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.