Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1982, Síða 11
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MÁNUDAGUR 8. MARZ 1982.
11
VIÐTALIÐ:
*
Nýtt útibú Landsbankans opnað í ágúst í M jóddinni:
„AFGRQDSLUHÆTTIR
MUN PERSÓNULEGRT’
— segirBjarni
Magnússon sem
ráðinn hef ur
verið
útibússtjóri
„Afgreiðsluhættir í þessum nýja
banka verða mun persónulegri og að
ýmsu leyti breyttir frá því sem hefur
verið,” sagði Bjarni Magnússon, úti-
bússtjóri Landsbankans nýja, sem nú
er að rísa í Mjóddinni í Breiðholti.
„Útibúið mun taka til starfa í ágúst i
sumar,” sagði Bjarni ennfremur.
,,í útibúinu verður veitt alhliða
bankaþjónusta, s.s. innlána-, útlána-
og gjaldeyrisþjónusta. Viðskiptavinir
geta gengið óhindrað að ákveðnum
borðum starfsmanna, setzt þar niður
og þegið ráðgjöf um fjármál sín og við-
skipti, hvers eðlis sem þau eru,” sagði
Bjarni.
Þess má geta að slíkt hefur ekki áður
verið reynt hér á landi, en er algengt í
bönkum erlendis. „Landsbankahúsið
nýja er 685 fermetrar. Bankinn er
ætlaður sem þjónustubanki Breiðhylt-
inga, en í framtíðinni þegar nýja hrað-
brautin verður komin í gagnið er búizt
við að bankinn þjórti jafnt Reykvík-
ingum, Kópavogsbúum, Garðbæingum
og Hafnfirðingum,” sagði Bjarni.
„Bankinn mun bjóða viðskipta-
vinum sinum upp á sérstök öryggis-
geymsluherbergi sem verða í kjallara
hússins, auk hefðbundinna geymslu-
hófa fyrir þá sem vilja koma verðmæt-
um munum í geymslu um tiltekinn
tíma, t.d. meðan á ferðalagi stendur.
fNyja Landsbankahúsið er um 685 fermetrar og verða ýmsar nýjungar þar í sambandi
við afgreiðsiu.
Bjarni Magnússon hefur
veitt Múlaútibúi Lands-
bankans forstöðu í tiu ár,
entekurnú viðnýjaúti-
búinu sem staðsett verður
i Mjóddinni.
DV-mynd S
Þá má geta þess að í afgreiðslusal úti-
búsins verða Flugleiðir með söluskrif-
stofu og geta viðskiptavinir þá keypt
bæði farseðil og gjaldeyri í sömu ferð-
inni.
Útibússtjóri hefur, eins og áður er
getið, verið ráðinn Bjarni Magnússon,
en hann hefur sl. tíu ár veitt Múlaútibúi
Landsbankans forstöðu.
-ELA.
SPARIÐ
tugþúsundir
Endurryðvörn
á 2ja ára frcsti
RYÐVÖRN SF.
Smiðshöfða 1
Sími30945
Sparið
þúndir króna
með mótor- og
hjólastillingu
einu sinni á ári
VBÍLA
/?&S
Irna
BÍLASKOÐUN
&STILLING
S 13-10 0
L
Hátúni 2 A.
Algjör nýjung frá SUBARU
Highroof Van: Fjórhjóladrifinn
6 manna bill - Bensínnotkun 61. pr. 100 km
Verð kr. 95.500.-
Highroof Delivery Van - Sendibill
Fjórhjóladrifinn - Burðargeta 1/2 tonn
Bensinnotkun 6 1. pr. 100 km. Farangurs-
rými: Lengd. 1.66m., Br. 1.22 m.,
Hæð 1.43 m.
Verð kr. 77.000.-
Sýningarbíll á staönum
(Gengi 5.3. ’82)
HIGH ROOF DELIVERY
DRIVE
HIGH ROOF VAN HIGH ROOF DELIVERY VAN
INGVAR HELGASON
Vonarlaridi v Sogaveg - Simi 33560