Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1982, Side 16
16
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MÁNUDAGUR 8. MARZ 1982.
5
Spurningin
Hvað finnst þór um
reyklausan dag?
Páll Bjarnason kennarl: tt einnverjir
hætta að reykja þennan dag þá er það,
til bóta. Því fleiri, því betra.
Halldór Sigmundsson skrifstofustjóri:
Prýðilegt, nauðsynleg. Hafa svona
daga sem oftast. i
Gunnar Jóhannsson nemi: Allt í lagi'
með hann. Ég reyki ekki, þetta skiptir
mig litlu.
Guðmundur Guðjónsson, starfar hjá
Slippfélaginu: Mér lizt vel á hann. Ég
reykti i fáein ár, mér fannst enginn
vandi að hætta.
Ingibjörg Axeisdóttir, starfar við fram-
leiðslu: Ljómandi gott. Ég er hætt aðj
reykja, það var mjög einfalt, bara að
slökkva í stubbnum. Nú er þetta allt
annað lif.
Lesendur Lesendur Lesendur
Vegna kjallaragreinar Haralds Blöndal um súrálsmálið:
Hvor heldur
áfram illindum?
Guðmundur R. J. Guðmundsson,
5406—5590, hringdi: Mér finnst
Alþýðubandalagið engan forgang
eiga á því að ræða um súrálsmálið,
eins og Haraldur Blöndal virðist
halda, sbr. kjaliaragrein hans í DV 3.
marz sl.. Þetta er mál sem varðar alla
þjóðina og alla flokka.
Sú furðulega hugmynd Haraldar,
að það sé „að halda áfram illindum
við Alusuisse,” ef nokkur maður
dirfist að ræða þetta mál, finnst mér
jafnframt vera algjör firra. Þegar
vandamál kemur upp á milli tveggja
samningsaðila, þá verða að koma til
samningsumræður, svo vandann
megi leysa. Mér er spurn, hvor haldi
áfram illindum, sá sem vill semja,
eða sá sem hunzar samninga?
Mergurinn málsins er, að töluverð-
ar fjárhæðir hafa verið hafðar af rík-
inu, skattalega séð. Finnst mér því
viðhorf og hegðun forráðamanna
Alusuissevera til háborinnar skamm-
ar, á heimsmælikvarða, og ekkert
annað sýna en sekt þeirra í súrálsmál-
inu.
Guðmundur R.J. Guðmundsson ræðir um Alverið og nýlega kjallaragrein
Haraldar Blöndal og scgin „Sú furðulega hugmynd Haraldar, að það sé „að
halda áfram illindum við Alusuisse,” ef nokkur maður dirfist að ræða þetta mál,
finnst mér jafnframt vera algjör firra.”
Sú hugmynd að þjóðnýta álverið
er ekki svo fjarri lagi að öllu leyti.
Þjóðnýta mætti svo sem 51%. Til
þess ætti þó varla að þurfa að gripa,
til þess að ráða ferðinni, heldur að-
eins að sýna meiri staðfestu og svo-
litla hörku.
Varðandi raforkuna væri ég sem
-sásemvill
semjaeða
sásem
hunzar
skattborgari samt miklu sáttari við að
borga með þeirri raforku, sem til .ál-
versins fer, eins og við gerum nú, ef
við ættum 51 % i fyrirtækinu. Eins og
komið er, borgum við með raforku
til fyrirtækis sem er i 100% eigu
erlendra aðila.
Ég er hræddur um að þar fari í súg-
inn stór hluti af þeim stórkostlega
ávinningi, sem Haraldur Blöndal
heldur að við höfum af þessu.
Haraldur líkir saman álverinu og
Sementsverksmiðju ríkisins. Sýnist
mér sú samlíking vera langsótt og lítt
réttlætanleg. í fyrsta lagi er álverið
mun stærra í sniðum. í öðru lagi þarf
álverið ekki að greiða aðflutnings-
gjöld af því efni, sem það þarf til
uppbyggingar, svo sem til nýbygg-
inga, viðhalds — og svo að segja dag-
legs reksturs, í flestum tilfellum.
Eru þessi atriði tilgreind í sam-
ningi,- sem gerður var milli Alusuisse
og rikisins, 1966. Þann samning er
hægt að fá hjá iðnaðarráðuneytinu,
hafi einhver áhuga á að kynna sér
hann.
Finnst mér allar umræður um súr-
álsmálið einkennast af flokkspólitík.
Slík sjónarmið eiga að víkja fyrir
þjóðarhagsmunum. Ættu þeir, sem
eru við völd, að taka saman höndum,
sýna dug sinn og koma þessu máli i
þöfn hið snarasta.
SVO VIRÐIST SEM SUM
BÖRN EIGIHVERGIHEIMA
hvar eruð þið, foreldrar þessara barna?
4017—4125 hringdi:
Nú er nóg komið af því góða. Ég var
að enda við að lesa að nú væri verið að
opna eina höllina — og það kvik-
myndahöll.
Er nú ekki bráðum nóg komið af
þessum skemmtanahöllum? Eiga að-
standendur þessara staða ekki börn?
Hvernig væri að þetta fólk og foreldrar
almennt slepptu eigin skemmtun svona
eitt kvöld og litu í kring um sig; spáðu í
það hvar börn þeirra eru um kvöld,
nætur og daga.
Svo virðist sem sum þessara barna
eigi hvergi heima. Hefur ykkur foreldr-
unum hugkvæmzt, að það kann að
vera ykkar barn, sem gengur um og
betlar mat. eða betlar peninga?
Hvar eruð þið, foreldrar þessara
barna? Takið ykkur á.
<■-------------------------m.
„Hefur ykkur foreldrum hugkvæmzt,
að það kann að vera ykkar barn, sem
gengur um og betlar mat, eða betlar
peninga?” spyr4017—4125.
SJÁLFSAKVÖRDUNARVALD SEÐLA-
BANKANS ÓEÐULEGT 0G ÓÆSKILEGT!
Helgi Hákon Jónsson, viðskipta-
fræðingur, skrifar:
Ég get ekki orða bundizt við lestur
orða, er höfð eru eftir Birni Tryggva-
syni, um óheilbrigða auglýsingastarf-
semi Fjárfestingafélagsins.
Að aðstoðarbankastjóri
Seðlabankans skuli geta haldið því
fram, að því er virðist i alvöru, að
umboðsaðili milli kaupenda og
seljenda „búi til markaðinn sjálfir”
finnst mér heldur betur bera vott um
að sá kasti grjótinu sem í glerhúsinu
býr. Flestir aðrir hljóta að sjá að
framboð og eftirspurn hlýtur að ráða
þarna ferðinni.
Það er hins vegar einn aðili í jtessu
þjóðfélagi sem hefur að mínu mati
(og vonandi fleiri) óeðlilegt og óæski-
legt sjálfsákvörðunarvald um vexti
og stjórn peningamarkaðarins, en
það er Seðiabanki tsiands.
Einmitt nú hefur það gerzt að þessi
aðili yfirbýður hinn svonefnda frjálsa
markað með því að bjóða fjármagns-
eigendum 3 1/2% vexti auk verð-
tryggingar, á sama tíma og sami aðili
setur öðrum hámark um 2 1/2%
vexti á sömu lánum. Það er ótrúlegt
að Seðlabankinn hafi ekki séð það
fyrir að slíkt yfirboð hlyti að koma
niður á eigendum eldri bréfa.Jafnvel
Björn Tryggvason hlyti, held ég, sem
kaupandi að velja það sem hagstæð-
araer.
Talandi um 80 kr. fyrir hverjar 100
þá hlýtur fjárþörf seljanda að ráða
því hvort hann lætur bréfin eða ekki,
en ekki ímynduð drottnunaraðstaða
Fjárfestingafélagsins.
Hitt er svo annað mál að traust
kaupanda á ríkistryggðum skulda-
bréfum er eftir því sem ég kemst
næst því miður langt frá því að vera
100%. Elztu bréfin eru með ákvæð-
um um framtalsfrelsi, sem með laga-
boði hefur verið afnumið. M.ö.o.,
kaupendur gera skriflegan samning
við íslenzka ríkið, sem síðan er breytt
með einhliða aðgerð skuldara! Þá er
og hinn almenni þegn í stöðugum
ótta við einokunaraðstöðu stjórn-
valda til áhrifa og krukks í vísitölur,
og það ekki að ástæðulausu, heldur
biturri reynslu.
Það er leitt til þess að vita að ann-
ars jafnágætur drengur og Björn
Tryggvason skuli verða svo samofinn
drottnunarvaldi hins opinbera að
hann sjái valdi sinu ógnað af þeim
votti frjáls markaðar er enn leynist
hjá okkur, þrátt fyrir jötungreipar
Seðlabanka og ríkisvalds.