Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1982, Side 20
20
DAGBLAÐ^Ð & VÍSIR. MÁNUDAGUR 8. MARZ 1982.
Svar fátæklinga við fjárhagsáætlun Reagans:
VONLEYSI0G UPPGJÖF
Móðir frá Ohio sagðist nýlega
vona að átta ára dóttir sín yrði kvik-
myndastjarna. Ekki vegna þess að
kvikmyndastjörnur séu dáðar af al-
menningi og lifi í vellystingum; nei,
hún sér einfaldlega enga aðra leið
fyrir dóttur sína út úr hörmungum
fátæktarinnar.
Einn vinur minn hérna sem er að
læra við Háskóla Kansas gerir ekki
ráð fyrir að ljúka námi sínu. Hann
fjármagnaði það fyrsta árið með því
að selja 5000 dollara stereó-græj-'
urnar sínar og þetta ár fær hann lán
frá alríkisstjórninni og foreidrum
sínum og einhvern pening fær hann
fyrir helgarvinnu í nálægri stór-
verzlun. „Næsta ár . . sagði hann
við mig nýlega og hristi höfuðið með
angistarsvip án þess að ijúka setning-
unni.
Eins og móðirin frá Ohio hafði
hann daginn áður heyrt eða lesið um
niðurskurðinn í fjárhagsáætlun
Bandaríkjaforseta. Fyrir hann og æ
fleiri Bandaríkjamenn nú er efna-
hagsástandið fer versnandi, er
áætlunin ekki bara tainaröð i
þykkum bæklingi heldur sent í vasa,
hiti í hús, matur í munn.
Biðraðir við
vinnumiðlanir
Næstum því einn af hverjum tíu
Bandaríkjamönnum sem vilja vinna
og geta það fær ekki vinnu. í sumum
bæjum er ein af hverjum fimm fjöl-
skyldum á framfæri ríkisins — fram-
færi sem nægir stundum fyrir
timburkofa, upphitun og dálitlum
mat — og stundum ekki.
Ráðamenn segja að ástandið sé að
kenna fimmtíu ára tímabiii vinstri-
stjórna í Washington. Og þeir segja
að þeir hafi ekki skorið niður styrki
til hinna fátæku, þeir hafi aðeins
skorið niður hina árlegu hækkun á
þessum styrkjum.
Fyrir gamalmenni sem hefur ekki
efni á að hita upp hanabjálkann sinn
er þessi staðhæfing grimmur
brandari.
Þeir sem standa í löngum bið-
röðum fyrir utan vinnumiðlunina
skilja ekki hvað Reagan forseti er að
fara þegar hann gefur í skyn að at-
vinnuleysingjarnir hljóti að vera hálf-
gerðir letingjar, þegar hann bendir á
Washington Post, stórblaðið, og
segir að i því séu 22 blaðsíður
auglýsingarnar mörg þúsund sem
flestar óska eftir faglærðu fólki, frá
skrifstofufólki til skurðlækna. Þeir
vita persónulega allt um auglýsing-
arnar sem lýsa eftir ófaglærðum
Verkamenn í bílaverksmiðjunum
fyrir norðan sameinaðir í sterkasta
verkalýðsfélaginu i Bandaríkjunum
eru tilneyddir að semja um kaup-
lækkanir. Valkostir þeirra eru upp-
niðurlægjandi og nirfilslega ávísun á
ríkissjóð.
Reagan vill
fðmir fyrir
hemaðarmáttinn
Reagan segir að nú þurfi Banda-
ríkjamenn að taka höndum saman og
auka afköstin. Hann segir að fyrir-
tæki verði að fjárfesta. Hann segir að
þjóðin verði að fóma sér til að hægt sé
byggja upp hernaðarmátt Bandaríkj-
anna. Hann segir að hann viti um
þjáningar almennings; hann hafi
sjálfur gengið í gegnum kreppuna
miklu á sínum fyrstu vinnuárum.
En hann segir ekki hvers vegna
verkamaður í Detroit þarf að sam-
þykkja kaupskerðingu á meðan kaup
ráöamanna í Hvíta húsinu eru
hækkuð hér um bil sautján prósent.
Hann segir ekki hvers vegna fátæk,
einstæð móðir fær annaðhvort
matarmiða eðá styrk til að hita upp
kofann sinn, en ekki hvort tveggja.
Hann segir ekki hvers vegna ungt
fólk sem vill fara í skóla til að búa sig
undir hin flóknu störf framtíðarinnar
er gert það ókleift vegna niður-
skurðar í nemendalánum.
Ronald Reagan hefur ekki valdið
kreppunni sem nú ríkir hér. Hann er
allur af vilja gerður til að leysa hana.
En hann vili gera það með ráðum
hægrisinnaðra kreddumanna sem
hefur klæjað í fingurgómana eftir
tækifæri til að sannreyna línuritin
sín.
Það er kannski virðingarvert að
hann hefur staðfastlega ákveðið að
gefa jiessum mönnum tíma til að sýna
hvað þeir geta. En hann hefur gefið
þeim rangan tíma. Hagkerfi frjáls-
hyggjunnar þarf svigrúm til að sanna
gildi sitt.
Móðirin frá Ohio hefur ekkert
svigrúm. Hún getur bara látið sig
dreyma um framtið dótturinnar i
Hollywood, maðan hún veltir fyrir
sér hvort hún eigi nóg fyrir graut á
morgun.
Þórir Guömundsson,
Kansas.
eingöngu með auglýsingum um at-
vinnutækifæri.
Biðraðavesalingarnir vita allt um
blaðsíðurnar 22. Þeir vita líka um
verkamönnum, þjónustufólki og
næturvörðum. Þeir vita að aðrir voru
fyrri til og að þeirra sjálfra bíður enn
einn dagur í biðröð.
sagnir eða kaupskerðing. Margir
beirra hafa þegar fengið að kynnast
atvinnuleysi; hinir sem enn eru vinn-
andi hafa lítinn áhuga á að sækja um
Svar Reagans við kreppunni f Bandarikjunum er að minnka aðstoðina við nauðstadda.
DV-mynd Þ6. G.
Maöur 6 fíoti í sjónum fyrir utan Laugarnestanga. Hann er í
fíotbúningi sem heldurmjög veihha.
im.
■
Hin árlega björgunaræfing nemenda
á lokastigum Stýrimannaskólans var
haldinn á Laugarnestanga og sjónum
þar fyrir utan sl. mánudag. Æfð var
notkun fluglínutækja og björgun
manna úr sjó.
Um 25 nemendur tóku þátt í æfing-
unni undir stjórn Ásgríms Björnssonar
hjá Slysavarnafélagi íslands. Björgun-
arbátur Slysavarnafélagsins, Gísli
Johnsen var notaður við æfinguna.
Þeir sem dregnir voru í land í björg-
unarstól og eins þeir sem dregnir voru
upp úr ísköldum sjónum, voru allir i
sérstökum flotbúningi. Búningur þessi
hefur reynzt mjög vel og þegar sannað
gildi sitt. Menn i honum haldast þurrir
auk þess sem búningurinn heldur mjög
vel hita. Hafa Norðmenn lögleitt bún-
ing þennan í öll skip og báta sem ekki'
hafa lokaða björgunarbáta um borð.
Flotbúningurinn kom sér einkar vel
þegar norsk-grænlenzki rækjutogarinn'
Sermelik fórst við Vestfirði sl. vetur.
Þá bjargaðist öll áhöfn skipsins fyrir
utan skipstjórann sem var sá eini sem
ekki náði að komast i búninginn. Lézt
skipstjórinn vegna kulda. -KMU.
Verkamenn óskast
til starfa strax. Uppl. hjá verkstjóra, Haraldi
Jónssyni (ekki í síma).
Hringbraut 121.
BJÖrgun með fíuglínu undirbúin.
(DV-myndir Inga Egilsdóttir)