Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1982, Page 34
42
DAGBLAÐIÐ & VtSIR. MÁNUDAGUR 8. MARZ 1982.
Stray Cats-Gonna Ball:
Rokkað af
festu og einurð
Quarterflash:
LÉTTROKKUÐ EN
BODAR FÁTT NÝTT
Tæpast hefur það farið framhjá
tónlistarunnendum að rykið hefur ær-
lega verið dustað af gamla rokkabillí-
inu svo nú glansar það út um borg og bí
á nýjan leik, Þetta nýja rokkabillí er
tvennakonar.Fyrst skal nefna það sem
er fyrirferðarmeira, flytjendur á borð
við Stebba hristing og Matchbox, sem
láta glensið og gamanið sitja í öndvegi
likt og HLH flokkurinn íslenzki hér um
árið. Hinn hópurinn tekur hlutverk sitt
alvarlegar, þeir flytjendur rokka af
festu og einurð, stunda einhverskonar
rokktrúboð og láta spaug og spé lönd
og leið. Hér má nefna Stray Cats og
Rockats.
Flækingskettirnir eru þrír og banda-
rfskir að þjóðerni. Þeir tóku saman
pjönkur sínar vestra þar sem fólk hafði
ekki nennu i sér til þess að veita tónlist
þeirra athygli og héldu til fyrirheitna
landsins, Bretlands, árið 1980. Strax og
fyrsta framleiðsla kattanna leit dagsins
ljós þurfti engum blöðum um það að
fletta að þeir höfðu öll tromp í hendi
sér. Lögin Runaway Boys, Rock This
Town og Stray Cat Strut náðu öll
miklum vinsældum og breiðskífan
fyrsta sömuleiðis. Kröftugt og fábrotið
rokk Flækingskattanna hrei( margan
manninn inn í sveiflu gamla tímans og á
Lundúnartorgum mátti snemma sjá
þriggja pottorma hljómsveitir slá upp
hljómleikum í anda Stray Cats: með
gítar, kontrabassa og einfalt trommu-
Stray Cats
sett — að viðbættu túberuðu brilljant-
ín - smurðu hári.
Áður en síðasta ár rann sitt skeið á
enda sendi Stray Cats frá sér aðra
breiðskifu, Gonna Ball, sem verður að
teljast mjög eðlilegt framhald af fyrri
skífunni. Rokkið er öllu kröftugra en
áður og áberandi drift í öllum hljóð-
færaleik. Á hinn bóginn eykur það á
fjölbreytni plötunnar að kunningjar
eru gengnir til þess að blása i saxafón
og ef grannt er hlustað má greina örfáa
tóna úr hljómborði. öll hljóðfærin eru
fábrotin sem fyrr og þess raunar getið á
plötuhulstri að aðeins ódýrustu hljóð-
færi hefðu verið notuð við plötugerð-
ina. Flest lögin eru eftir þá þremenn-
ingana, utan þrjú sem fengin eru til
láns. Tvö lög af plötunni hafa verið
gefin út á smáskifum „Little Miss
Prissy” og You Dont Believe It” en
gengi þeirra því miður ekki í samræmi
við gæðin. Of snemmt er raunar að spá
um síðara lagið. Þó Stray Cats rokki
hér af röskleika er það samt sem áður
eina rólega lag plötunnar sem mér
finnst bera af, Lonely Summer Nights
eftir söngvarann Brian Setzer, einhver
geðslegasta ballaða rokksins (og þó
víðarværi leitað!).
Sértu á þeim buxunum að rokka
dulítið i takt við gömlu rokkkempurnar
finnur þú ekki einlægari og heiðarlegri
flytjendur en Stray Cats. .gs„|
Harden my Heart sem er ágætisrokklag
og auðvelt að melta það. Annars er fátt
nýtt við músík Quarterflash, hún fetar í
fótspor frægra hljómsveita eins og
Eagles og Fleetwood Mac og minnir
óneitanlega á þessar ágætishljómsveit-
ir.
Á plötunni eru níu lög og er Rindy
Ross í aðalhlutverki í sjö laganna bæði
sem söngvari og saxófónleikari. Mætti
hvaða hljómsveit sem er vera stolt af að
hafa hana sem saxófónleikara, sýnir
hún það bezt í síðasta lagi plötunnar
Williams Avenue. í tveim laganna,
Critical Times og Cruisin with The
Deuce, er hún ekki með. Og þá dettur
allur kraftur úr hljómsveitinni og út-
koman er að mínu áliti léleg eftiröpun á
Eagles. En tvö lög af sjö eyðileggja
ekki plötuna því að restin er ágætis
rokk af Iéttari gerðinni.
Það er erfitt að dæma um framtíð
Quarterflash því markaðurinn er yfir-
fullur af hljómsveitum sem flytja sams
konar tónlist, eða soft-rock, Beztu
lögin eru Hearten My Heart, Find
Another Fool og Williams Avenue. HK
Það eru ekki margir söngvarar í
hljómsveitum sem eru jafnframt saxó-
fónleikarar og sjálfsagt mjög sjaldgæft
að söngvarinn sé kvenmaður og jafn-
framt virkur og liðtækur saxófónleik-
ari. En það er einmitt þetta hlutverk
sem Rindy Ross hefur í sextettnum
Quarterflash og það sem meira er að
eftir að hafa hlustað nokkrum sinnum
á Quarterflash kemst maður að því að
hljómsveitin stendur og fellur með
henni.
Quarterflash hefur nýlega skotizt
upp á stjörnuhimininn með laginu
MíQbæJar
bakari
Handverksbakarí
Háaleitisbraut 58—bu
mi35280
imleiðum margar stærðir afkransakokum
kransakökukörfum ur hinum þekkta
3ENSE marsipanmassa. Etnntg lögum vi
jmatertur og marsipantertur eft.r óskum |
upanda. Geymið auglýsmguna. _
H. Briddo bakarameistan^
Depeche Mode—Speak & Spell:
PLÖTUR
Órómantískt tölvupopp
Tölvupoppið hefur tekið flesta með
trompi og i Bretlandi spretta upp marg-
ar gorkúlur á þessu sviði. Fyrir nokkru
gaf SPOR út plötuna Speak & Spell
með hljómsveitinni Depeche Mode
(depetse mód) og mun sú plata vera
fyrsta stóra afkvæmi hinna tvítugu
fjórmenninga sem hljómsveitina skipa.
Þeir heita: David Gahan (söngur),
Andrew John Fletcher, Martin Lee
Gore og Vince Clark (allir á
hljómborð). Sá síðastnefndi mun vera
aðallaga- og textahöfundur hljóm-
sveitarinnar. Það mun hafa verið fyrir
um ári síðan að Depeche Mode gaf út
sína fyrstu litlu plötu en þær urðu sam-
tals þrjár áður en Speak & Spell leit
dagsins Ijós. Tvær þeirra komust hátt á
brezka vinsældalista. Þegar Speak &
Spell kom loks út í nóvember síðastlið-
inn fór hún beint í 10. sæti eins vin-
sældalistans í Bretlandi. Og er þá kom-
inn tími til að snúa sér að umræddri
plötu.
Nýjasta nýtt í poppmúsik er nefnt
nýrómantík sem í raun er fáránleg
nafngift. Miklu mun frekar mætti kalla
fyrirbærið tölvupopp eða eitthvað í þá
veru. Tónlist þessi, en af boðberum
STYRKIR til háskólanáms í Kína
Stjórnvöld Alþýöulýðveldisins Kína bjóða fram tvo styrki handa íslendingum til háskóla-
náms í Kína háskólaárið 1982—83. Eru styrkirnir ætlaðir stúdentum til náms í bókmenntum,
sögu, heimspeki, raunvísindagreinum eða kandídötum til framhaldsnáms í kínversku.
Námsmenn I raunvísindum geta búist við að þurfa að gangasi undir sérstakt próf hérlendis í
stærðfræði, cfnafræði og eðlisfræði. — Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 6. apríl nk. Umsóknareyðublöð fást I ráðuneytinu.
MenntamálaráðunoytiÖ,
4. mars 1982.
SMÁAUGLÝSINGÍ
ATHUGH)!
ER ENGIN SMÁ-A UGL ÝSING
Opiö alla virka daga frá kl. 9—22
^ Laugardaga fri kl. 9—14
Sunnudaga frákl. 14—22
Smáauglýsingadeild—Þverholti 11 -Sími27022
hennar mætti nefna frumkvöðulinn
Gary Numan, Human League, OMD
og Landscape, á næsta lítið skylt við
rómantík að neinu marki. Kalt, einfalt
tölvupopp, að vísu melódískt, getur
aldrei verið kennt við rómantík. En
kannski má finna örlítinn keim af
rómantíkinni sé mið eingöngu tekið af
pönkinu og nýbylgjunni sem tölvu-
poppið hefur leyst af hólmi sem
ríkjandi tónlistarstefna í Bretlandi;
flaggskipi poppsins. Og á sama hátt er
erfitt að finna rómantískan flöt á text-
um „nýrómantíkurinnar” umfram það
sem loðað hefur við poppið á undan-
förnum tveimur áratugum. En nóg um
það.
Hljómlist Depeche Mode er
dæmigert tölvupopp og minnir einna
helzt á OMD og Landscape. Þau þrjú
lög sem hljómsveitin hafði áður sent
frá sér á litlum skífum eru einnig á
Speak & Spell en þau heita Dreaming
Of Me, New Life og Just Can’t Get
Enough og verða þessi þrjú að teljast
með betri lögum plötunnar. En auk
þessara þriggja er þar að finna átta
önnur lög. Það fer víst ekki á milli mála
að Depeche Mode er með betri tölvu-
poppurum sem fram hafa komið en þó
er eins og þeir eigi eftir að marka sér
bás innan hinnar nýju línu. Lögin á
plötunni eru glettilega lík en þar er
kannski einhæfum útsetningum um að
kenna. öll eru lögin I mjög ákveðnum
danstakti sem enn frekar verður til þess
að þau renna saman. í heild er Speak &
Spell ágætis tölvupoppsplata en langt í
frá að vera meistaraverk á neinn máta.
-TT.
ATH.: Opifl alla virka daga frá kl. 9-18,
sunnudaga fró kl. 13—17.
Þafl oru moiri möguloikar á afl bfllinn
soljist hjá okkur.
Borgartúni 24
Sími 13630 og 19514
Bílasala Bílaleiga
BMW 518, ok. 66 þús. km...................
Galant 1600....................................1979
Volvo 244 DL, ok. 28 þús. km...................1980
Malibu station í sórflokki,....................1979
Saab 900 GLS, ok. 30 þús., sjálfsk.............1979
Chovrolot Impala, ok. 80 þús. Tvoir oig., toppbfll,
Honda Accord, ok. 2 þús., sjálfsk..............1981
Mazda 626 2000,2 dyra, ok. 29 þús..............1980
Galant 1600 GL, okinn 20 þús. km.
Toyota Corolla station,.........................1979
Saab 99 GL 4 d. ...............................1978
Colt GL 1200,5 dyra............................1981
BMW 520 I ok. 4 þús............................1982
Mazda 929,4 dyra sjálfsk. ok. 12 þús. _.... . .. 1981
MHsubishi pick-up 4x4 L200
BMW 316,2 dyra, nýtt lakk......................1977
Mazda 323 station, sjáKskipt, ok. 19 þús.......1900
Honda Accord....................................1979
Daihatsu Charado, ok. 16. þús..................1900
Ford Fiosta ok. 15 þús. km.....................1979
Toyota Corolla ok. 4 þús. km...................1981
Volvo 245 GL, okinn 4 þús. km..................1980
BMW 528 ok. 110 þús. km........................1976
Plymouth Volarc 4 d. ok. 38 þús. km............1978
Rango Rovor.....................................1978
VÖRUBÍLAR:
Volvo F87 m/2,5 tonna krana IHifl okinn........1978
Volvo F88, ok. 270 þús. km......................1969
Höfum kaupondur áfl Bonz 22—24 msnna árg. 79—'80
og Volvo oða Scania '74—76,6 hjóla.
Einnig vantar allar gcrðir vörubfla og vinnuvéla á skrá.
Stór og bjartur sýningarsalur, malbikað útisvæði.
Mikið úrval af nýicgum scndibflum á skrá,
árg. '79, '80, '81. ’ í
Árg.: ■ 101 / Vorö:... i is.OOOj
. 1979 95.000
. 1980 140.000
. 1979 160.000
. 1979 155.000
. 1976 99.000
160.000
. 1980 110.000
1980 105.000
85.000
. 1978 97.000 !
. 1981 95.000
. 1982 220.000
. 1981 130.000
1982 127.000
95.000
95.000
. 1979 100.000
. 1900 79.0001
. 1979 85.000 >
. 1981 115.000!
185.0001
145.000
125.000
230.000 >
. 1978 370.000
.1969 180.000