Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1982, Síða 35
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 8. MARZ 1982.
43
Sandkorn Sandkorn Sandkorn
ínnheimtustjórinn
öfundaði Blöð-
bankann af að-
ferðinni
Lengi hefur það verið um-
ræðuefni manna á meðal
hvaða óskynsamleg tregðu-
lögmái valdi þvi að viss gjöld
eru ekki fyrir löngu orðin nef-
skattar. Þar má til nefna af-
notagjald af útvarpi og sjón-
varpi, sem þá jafnframt ætti
ekki að leggja á ellilifeyris- og
örorkubótaþega. Fleiri gjöld
mætti til nefna.
Hófleg en oft kostnaðar-
söm tilmæli til gjaldenda eru
skiljanleg en stundum sorg-
lega tilgangslaus. Nýlegur
innheimtustjóri útvarps og
sjónvarps, Theódór Georgs-
son lögmaður, fetar í fótspor
sinna fyrirrennara. Hann er
sagður einn þeirra sem gefa
reglulega blóð.
Þeirra erinda var hann i
Blóðbankanum skömmu eftir
að hann tók við hinu nýja
starfi. Horfði hann, eins og
fleiri, með aðdáun og athygli
á þegar hinn venjulegi hálf-
pottur var dreginn upp i þar
til gert hylki með Ijúfu hand-
bragði fallegrar stúlku.
,,Ég fann ekki fyrir þessu,”
sagði innheimtustjórinn.
„Þér ættuð nú heldur betur
heima á skrifstofunni hjá
okkur.” Áður en stúlkunni
gafst færi á þvi að spyrja
hann hinnar sjálfsögðuspurn-
ingar svaraði innheimtustjór-
inn: „Ég vinn hjá innheimtu
útvarpsins.”
Stærsta Ifkams-
rækt fslands I
Köpavogi
Stærsta og einhver full-
komnasta likamsræktarstöð
landsins, sumir segja norðan
Alpafjalla, verður opnuð inn-
an tiðar i Kópavogi. Framtak-
ið gengur fyrir afgangsorku
Árna Hróbjartssonar sem'
rekið hefur póstverzluninav
Heimaval.
í þessu skyni hefur Árni
keypt 940 fermetra hæð i
Kaupgarði hf. sem Ólafur
Torfason veitir forstöðu.
Með samtökum allra Kópa-
vogsbúa, undir öruggri en
hávaðalausri forystu Ásgeirs
Jóhannessonar, forstjóra
Innkaupastofnunar ríkisins,
og ýmissa fleiri ris nú, eins og
af sjálfu sér, dvalar- og
hjúkrunarheimili aldraðra f
Kópavogi.
Mörgum þykir sem Kópa-
vogur hafi verið lengi i mót-
un. Þar eru þó um þessar
mundir að gerast markverðir
hlutir.
Snavs pá
ffippen
Sjónvarpsleikrit Davíðs
Oddssonar, Kusk á hvít-
flibbanum, var sýnt i danska
sjónvarpinu á fimmtudags-
kvöldið. Snavs pá flippen
kölluðu Danir leikritið.
Ekki höfum við enn frétt
af undirtektum við sýningu
leikritsins en það var sýnt á
bezta tíma, eða klukkan
21.30. Næst á dagskrá eftir
kuskinu var leikur Dana og
Vestur-Þjóðverja í heims-
meistarakeppninni í hand-
bolta og ekki hefur það dregið
úr fjölda þeirra er horfðu á
Snavs pá flippen.
Ekki alveg sami
tilgangur með
hlaupunum
Fastagestur á þekktu veit-
ingahúsi í Reykjavik pantaði
eilt sinn kálfakótilettur sem
matseðillinn bauð upp á. Eftir
drengilega tilaun til að ná sér I
hæfilegan bita og tyggja hann
gafst hann upp. Kallaði hann
á þjóninn og kvartaði. Þjón-
inn kallaði á kokkinn. Kom
hann að vörmu spori. Kvaðst
gesturinn hafa borðað þarna
árum saman og sjaldan lent í
öðru eins hrágúmmíi.
„Og svo leyfið þið ykkur
að kalla þetta helvfti kálfa-
kótilettur,” sagði gesturinr
heitur í hamsi.
„Ég kann nú fyrir mér i
kjötvinnslu og matargerð,”
sagði kokkurinn, ,,og ég full-
vissa yður um að það er ekki
meira en svona mánuður frá
því þessi kótiletta hljóp í
kringum belju af úrvals
kyni.”
„Það getur verið,” sagði
gesturinn, „en ég fullvissa
yður um að það hefur ekki
verið til þess að sjúga hana.”
Villikettir á Sel-
fossi
Suðurland skýrir frá því að
villiketlir hafi verið til um-
ræðu á bæjarstjórnarfundi á
Selfossi. Meðal gagna sem
lögð voru fram um þetla mál
varskýrsla fra lögreglu.
I henni kom meðal annars
fram að villikettir væru ekki
„mjög fjölmennir" á Sel-
fossi.
i i
jBragi Sigurðsson
Kvikmyndir Kvikmyndir
Kirkjuráð fagnar f rumvarpi um samstarf snef nd:
Tarzan og Jane i vatninu (sem er eins og á pöstkorti|,horta hvort á annað og
væmnin skin úr báðum andlitum. Rétt eins og öll myndin er.
Gamla bíó—Tarzan:
SU HALUERIS-
LEGASTA...
Gamla bló: Tarzan
Leikstjórí: John Derak
Handrit: Tom Rowe og Gary Gtxidord — byggt
á persónum í sögum Edgars Rice Burroughs
Tónlist: Perry Botkin
Kvikmyndun: John Dorek
Framleiöandi: Bo Derek á vegum Svengali
Productions
Aðalhlutverk: Bo Derek, Richard Harris, John
Phillip Law og Miles O Keefe.
Einhverjum varð að orði yfir miðri
Tarzan — myndinni: „Gvöð, hvað
þetta er hallærislegt,” en þá leit Jane
(Bo Derek) ástaraugum til vöðva-
búntsins Tarzan og bað hann að fara
ekki frá sér. Þessi setning eins bió-
gestsins í Gamla bíói lýsir í fáum orð-
um þessari mynd John Dereks. í
atriðum þar sem líklegast hefur verið
ætlazt til að viðkvæmir áhorfendur
felldu tár varð allsherjarhlátur í bíó-
inu. Myndin er heldur ekkert venju-
lega væmin — hún er hræðileg.
Það er augljóst hvert John Derek
stefndi með myndatökunni — að
auglýsa eiginkonu sína (fyrrverandi).
Falleg kona í fallegu umhverfi. Hún
leikur sér í fjörunni, veltir sér í sand-
inum og hleypur í fallega hvíta kjóln-
um sínum út í sjóinn og kemur svo
rennvot upp aftur þannig að kjóllinn
klessist að líkamanum. (Kannast ein-
hver við lýsingarnar).
Þessi mynd þeirra hjóna hefur
orðið til þess að þau moka inn
peningum. Aðsóknin hefur verið
vægast sagt mjög góð víða um heim.
En hvers vegna? Hvað er það sem
fólk sækir í? Að sjá fallega konu og
fallega karlmenn baða sig í vatni?
Annað er varla boðið upp á. Leikur
inn er ömulegur og Bo Derek ætti
heldur að halda sig við sitt fyrra hlut-
verk i sýningarbransanum.
Þó að myndin sé á köflum mjög
falleg, þá er í henni vaðið úr einu í
annað, þannig að áhorfandinn veit
nánast ekkert hvar hann er staddur.
Ekki bæta úr skák allar þær klipping-
ar sem gerðar hafa verið á myndinni.
Þær eru svo illa unnar að jafnvel fólk
eins og ég, sem venjulega pæli ekki í
tæknivinnu kvikmynda, get ekki
komizt hjá að sjá hvar klippt hefur
verið.
Ekki veit ég hvað á að rekja sögu-
þráð þessarar myndar. Það er í einu
og öllu reynt að stæla gömlu Tarzan-
myndirnar en þó ekki. Jane kemur
ein síns liðs til Afríku árið 1910
(ártalið hefur líklega gleymzt í mynd-
inni, því hún er eins og tekin í dag) og
leitar föður síns sem hún finnur auð-
vitað. Karlinn pabbi hennar er með
leiðangur sem ætlar sér að finna
merkilegan stað — nefnilega legstað
filanna. Jane heldur með föður sín-
um og fylgdarliði í leit að staðnum en
áður en komið er að honum koma
þau að „innhafinu mikla”, sem er
grænblátt og fagurt eins og á póst
kortum. Þarna veltir* dóttirin sér
drjúgan hluta myndarinnar eða þang-
að til Tarzan sjálfur birtist.
Jane sér að Tarzan er ekki api, eins
og faðir hennar hafði sagt henni,
heldur fallegur ungur maður og hún
verður strax ástfangin af honum.
Tarzan verður hræddur við hana er
hún hleypir af skoti og hypjar sig. En
örlögin ráða því að skömmu síðar
kemur hann henni til hjálpar á hættu-
legri stundu og sjáum við þá að
minnsta kosti tíu mínútna buslugang
í jvatninu.
Samvizku minnar vegna ráðlegg ég
öllum að eyða ekki peningum í þessa
dæmalausu vitleysu — nema auðvit-
að ef einhver vill eyða peningunum
sínum í að horfa á Bo Derek baða sig
— í fötum. Þeir sem sluppu vel frá
þessari mynd (en þeir eru fáir) voru
aparnir, sem voru fyrirtak. Þökk sé
þeim.
Elín Albertsdóltir
Kvikmyndir Kvikmyndir
Alþingis og þjóðkirkjunnar
Vegna framkominnar tillögu um
samstarfsnefnd Alþingis og
þjóðkirkju á aðalfundi kirkjuráðs
samþykkti kirkjuráð eftirfarandi
ályktun: Nú stendur yfir allsherjar
endurskoðun á kirkjulöggjöfinni,
væntir ráðið þess að frumvarp til laga
um samstarfsnefnd Alþingis þjóð-
kirkjunnar geti sem fyrst orðið að
lögum. í kirkjuráði sitja nú auk
biskups: Vilhjálmur Hjálmarsson,
Mjóafirði, Gunnlaugur Finnsson,
Hvilft í önundarfirði, sr. Sigurður
Guðmundsson á Grenjaðarstað og sr.
Eiríkur Eiríksson fyrrum prófastur á
Þingvöllum. Kirkjuráðsmenn hafa
farið austur í Skálholt og kynnt sér
starfið á staðnum og i skólanum. Þeir
hafa rætt við ýmsa starfsmenn í
kirkjulegu starfi, enda er aðalverk-
efni fundarins að veita fé úr kristin-
sjóði til slíks starfs. Nýtt kirkjuþing
verður kjörið í sumar og kýs það síð-
an nýtt kirkjuráð sem er fram-
kvæmdaaðili kirkjuþings.
H.G.G.
Kirkjuráð er hér að Ijalla um tillögu d.. Ármanns Snævarr að nýjum frumvörpum
um sóknargjöld, kirkjuþing, kirkjusóknir, kirkjulega þjónustu, sóknarkirkju og
kirkjubyggingar. Talið ffá vinstri: Dr. Ármann Snævarr, sr. Eirikur Eiriksson, sr.
Magnús Guðjónsson biskupsritari, herra Pétur Sigurgeirsson biskup, sr. Sigurður
Guðmundsson, Vilhjálmur Hjáimarsson, Gunnlaugur Finnsson og sr. Þorbergur
Kristjánsson formaður Prestafélags lslands.
Stór stund fyrir jassunnendur í kvöld:
Joe Newmanmeðtónleika áBroadway
Hingað til lands er kominn trompet-
leikarinn Joe Newman og mun hann
halda hér nokkra tónleika auk þess sem
hann verður með kennslu í skóla F.Í.H.
Fyrstu tónleikarnir verða á Broadway í
kvöld það sem Newman leikur með
tríói Kristjáns Magnússonar. Einnig
kemur fram kvartett Krístjáns Magnús-
sonar og Big Band ’81 undir stjórn
Björns R. Einarssonar.
Þá er stefnt að því að Joe Newman
haldi tónleika á Akureyri. Það er Jazz-
vakning sem stendur að komunni og
mun Newman leika á klúbbkvöldi
vakningarinnar.
Joe Newman er meðlimur í Count
Basie Big Bandinu. Hann er ættaður
frá New Orleans, þar sem hann fæddist
árið 1922. Newman vakti fyrst athygli
með skólahljómsveit Alabama State
Teachers Collage, sem stjórnuð var af
Lionel Hampton.
Árið 1943 gekk hann i Big Band
Count Basies. Þá hefur hann leikið
með ýmsum hljómsveitum og má þar
nefna t.d., JC Heard og Illionois
Jacquet. Joe Newman hefur farið
hljómleikaferð um Skandinaviu með
eigin hljómsveit, skipuð meðlimum úr
Basie Bandinu.
Fjölda hljómplatna hefur hann leikið
inná með mörgum þekktum jassleikur-
um. Má nefna menn eins og Milt
Jackson, Zoot Sims, Buck Clayton,
Tony Scott og að sjálfsögðu með
Count Basie.
Joe Newman hefur einu sinni áður
komið til íslands þar sem hann lék við
opnun Hótels Loftleiða. -ELA
Joe Newman Lh. á myndinnl ásamt þeim Friðrik Theodórssyni (i miðið) og I. J.
Johnson.
XEROX’
Leiðandi merki í Ijósritun