Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1982, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1982, Blaðsíða 21
20 DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982. NYLON VIND GALLAR Rauðir og bláir Ný sending komin j^k. St. 2-3-4 kr. 220.- St. 6-8-10 kr. 228.- St. 12-14-16 kr. 238.- VERZLUNIN VAL Strandgötu 34, Hafnaríirði sími52070 Góð matarkaup pr. kg. Kindahakk 29.90 Folaldahakk 33.00 Saltkjötshakk 45.00 Lambahakk 45.00 IMautahakk 85.00 Nautahakk 10 kg 79.00 Kálfahakk 56.00 Svínahakk 83.00 Lambakarbónaði 52.00 Kálfakótdcttur 42.00 Nautahamborgarar 7 kr. stykkið Amcrísku pizzurnar verð frá 56.00 kr pakkinn. ■ugatæk 2, simi 86511. Si jum fyrir gluggum ogi gt jnum járnbenta steinst Fullkomnasta tsakni 1 er hagkvæmasta lausnin. Förum hvert á lartd sem er. Demantssogun SKS©@ Ólafur Kr. Sigurösson hf. Suöurfandsbraut 6 - siml 83499 íþróttir DAGBLADIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 30. APRlL 1982. íþróttir íþróttir íþróttir 54 villur gefnar í körfuknattleik: Flautukonsert — og Egypti tróð upp með einleik á f lautu þegar Ungverjar unnu íslendinga 114:90 Guðrún Ingólfsdóttir — sést hér I metkasti sinu I gær. DV-mynd: Sveinn. Guðrún rauf 15 m múrinn — og setti glæsilegt íslandsmet í kúluvarpi í gær FrjAIsiþróttakonan snjalla Guðrún Ingólfsdóttir úr KR lætur ekki að sér hæða. Guðrún, sem setti íslandsmet i kringlukasti á miðvikudagskvöldið, er hún kastaði 52.24 m, bætti um betur ú Laugardalsvellinum i rigningu og roki i gær og gerði sér lítið fyrir og setti Islandsmet i kúluvarpi — kastaði kúlunni 15.11 m í fyrsta kasti sinu. Gamla metið, sem Guðrún átti sjálf, var 14.21 m. Guðrún kastaði alls fjórum sinnum iengra en gamla metið var — fyrst 15.11, síðan 14.36, 14.80 og 14.77 ir.,en eitt kast hennar var ógilt. Það er greinilegt á öllu, að Guðrún mun verða í miklum metaham i sumar og mun hún stór- bæta met sin í kringlukasti og kúlu- varpi. __________________-sos Sigur hjá Valsmönnum Valsmenn náðu að tryggja sér sigur (2—0) yfir Ármenningum i Reykjavikurmótinu i knattspyrnu i gærkvöldi. Njáll Eiðsson og Magni Pétursson skoruðu mörkin. Frá Kjartani L. Pálssyni — frétta- manni DV á EM i körfuknattleik i Edinborg: — Egypr.ki dómarinn eyði- lagði þennan leik, með flautukonsert. Það var eins og að vera á tónleikum, þar sem einleikur á flautu var leikinn. Við misstum algjörlega taktinn og ég hef aldrei kynn/t þvi, að dæmdar væru 23 villur á eitt lið — i fyrri hálfleik i körfuknattleik, sagði Matyas Ranky, þjálfari ungverska liðsins, eftir að Ungverjar höfðu unnið sigur (114:90) yfir íslendingum i fjörugum leik. — Leikmenn íslenzka liðsins voru ákveðnir og grimmir og ég átti ekki von á því, að þeir skoruöu 90 stig gegn okkur, sagöi Ranky. Það er óhætt að segja að dómararnir hafi leikiö stærsta hlutverkið í leiknum, en þeir voru frá Austurríki og Egypta- landi. Þeir flautuðu á allar snertingar í fyrri hálfleik, sem sést bezt á því, að Ungverjar voru komnir meö 23 villur í fyrri hálfleiknum og íslendingar 17. Bæöi liöin voru komin með „Bonus” eftir 12 min. leik og síðustu 8 mín. af hálfleiknum var leikinn algjör göngu- bolti, enda tóku þær heilar 30 mín. Leikmenn liðanna skiptust á að ganga á milli karfanna tilaötakavítaskot. „Nú er nóg komið" Það var greinilegt að eftirlitsdómar- inn i leiknum var ekki ánægöur með þessa þróun á leiknum, því að hann fór inn í búningsklefa dómaranna í hálfleik og sagði aö það væri nóg komið af því góða. Dómararnir yrðu að hætta flautukonsertinum, til að leiknum myndi ljúka, þannig að liöin gætu verið með fullskipuö lið inn á, eða 5 leik- menn. Sú hætta blasti við í leikhléi, að flest allir leikmennirnir I leiknum yrðu að yfirgefa völlinn með 5 villur. Það er þó ekki hægt að segja að dómararnir hafi dæmt illa — þeir voru bara of grimmir á smávægilegar snert- ingar leikmanna. Fjörugur og góður leikur Dómararnir slökuðu á í seinni hálf- ieik og varð ieikurinn þá mjög opinn og skemmtilegur — og var hraðinn mikill. Ungverjar byrjuðu leikinn vel — komust yfir 35:16, en Islendingum tókst að minnka muninn í 60:47 fyrir leikhlé. Ungverjar voru svo sterkari í seinni hálfleik — hittu mun betur en íslendingar. Þeir unnu síðan örugglega 114:90. Sjö af leikmönnum Ungvejra eruyfir2m. Torfi Magnússon var bezti leik- maður íslands og þá var Guðsteinn Ingimarsson góður. Þá var gaman að fylgjast með hinum smávaxna miðherja — Viðari Vignissyni í viðureign hans við hina stóru Ungverja. Kristbjörn stóð sig m jög vel Kristbjörn Albertsson, formaflur KKÍ, dæmdi leik Skotlands og Egyptalands hér I Edinborg I gærkvöldi og skilaði hann hlutverki sinu vd. Skotar unnu leikinn 86:74. -Idp- Leikurinn í tölum Alls voru dæmdar 54 villur í leikn- um, sem jaðrar við heimsmet. Ungverjar fengu 32 og fslendingar 22. Skotnýting fslands var aðeins 35%- 30 af 84 skotum rötuðu ofan í körfuna. Ungverjar voru með 520/o nýtingu — 46 skot hittu ofan í körfuna af 87. ísland fékk 41 víti — hitt úr 30, eða 73% nýting. Ungverjar voru með 81% nýtingu — hittu úr 22 vítaskotum af 27. Ungverjar tóku 36 vamarfráköst og 18 sóknarfráköst. íslendingar tóku 22 varnarfráköst og 13 sóknarfráköst. Símon Óiafsson var þar drýgstur — hirti 8 varnarfráköst og þrjú í sókn. Þeir sem skoruðu stig ísiands voru (skotnýting innan sviga: Torfi 18/8 (45.4%), Valur Ingimundarson 17/3 (38.8%), Símon 16/8 (26,6%), Ríkharður Hrafnkelsson 16/2 (36,8%), Viðar 7, Axel 6, Guðsteinn 4, Kristján 4 og Jón Kr. Gíslason 2. -klp-/-SOS Frá Kjartani L Pálssyni íEdinborg EM-keppnin í körfuknattleik Aganef nd UEFA kemur saman í dag: 0 Torfi Magnússon — átti góðan leik gegn Ungvcrjum. DV-mynd: Friðþjófur. Anderlecht vill nýjan leik gegn Aston Villa — vegna ólátanna í Brussel þar sem þurfti að stöðva leik liðanna í 10 mín. Frá Kjartani L. Pálssyni — frétta- manni DV I Skotlandi. — Ég hef ekki trú á þvi, að við verðum látnir blæða fyrír það, sem áhangendur okkar gerðu í Brussel, sagfli Tony Barton, fram- kvæmdastjóri Aston Villa i viötali viö enska blaðið Daily Mirror. Hann átti þá vifl ólætin sem brutust út i leik Aston Villa gegn Anderiecht í Brussel, þegar stöflva þurfti leikinn i 10 min., eftir ólæti áhangenda Aston Villa, sem ruddust út á völl, börflu á belgiskum lögreglumönnum og áhangendum Anderlecht. Aganefnd UEFA kemur saman I Zurich í dag og verður þá málið tekið fyrir og er reiknað með að Aston Villa fái sekt og heimaleikjabann í Evrópu- keppni. Forráðamenn Anderlecht hafa krafizt þess, að leikurinn verði leikinn upp að nýju, vegna þess atviks, að þegar einn af leikmönnum Anderlecht var kominn í gott mark- tækifæri, kom einn áhangandi Aston Villa þeysandi inn á völlinn — út i markteig Aston Villa og hafði hann truflandi áhrif á leikmann Anderlecht. Forráöamenn Anderlecht kröfðust þessfyrst aðAston Villa yrði ekki látið leika úrslitaleikinn gegn Bayern Mtinchen í Rotterdam 26. maí, en síöan hafa þeir óskað eftir því að seinni leikur Anderlecht og Aston Villa verði leikinn upp að nýju. -klp-/-SOS Jon var ekki með Jón Sigurðsson, fyrirliði íslenzka landsliflsins gat ekki leikið með gegn Ungverjum, þar sem hann meíddist í bald gegn Austurriki, eins og DV hefur sagt frá. Það er þvi óhætt að segja að hvert áfallið á fætur öðru hafi dunifl á islenzka liðinu, þvi aö Jónas Jóhannes- son meiddlst fyrir keppnina f Edinborg — i Hollandi. -kip- 29 íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Webster í lands- lið íslands Hann hef ur sótt um íslen^kan ríkisborgararétt. — Mikill styrkur að fá Webster í lið okkar, segir Einar Bollason 9 FIBA tók vegabréf Bandarikjamannanna sem leika í Edinborg til athugunar Frá Kjartani L. Pálssyni — fréttamanni DV i Edinborg. „Þafl væri mikill styrkur fyrir okkur að hafa Bandarikjamanninn Dakarsta Webster i herbúðum okkar. Þar mefl fengjum við hávaxinn leikmann I staflinn fyrir Pétur Guðmundsson, sagði Einar Bollason, landsliðsþjálfari i körfuknattleik. Webster, sem hefur leikið með KR, SkaUagrími I Borgarnesi og nú með Haukum, er kvæntur isienzkri stúlku og hefnr hann sótt um islenzkan ríkisborgararétt. — Eftir að hafa kynnzt keppninni hér í Edinborg hefðum við hæglega getað notað þá Webster og Stu Johnson hjá KR, eins og írar, Austurríkismenn og Skotar, sem eru með Bandarík jamenn í sinum liðum, en þeir Bandaríkjamenn eru bæði með bandarísk vegabréf og einnig með vegabréf frá þeim löndum, sem þeir ieika fyrir, þannig að þeir ganga með tvð vegabréf á sér, sagði Einar. „Mikiö vandamál" Kristbjörn Albertsson, formaður KKÍ, sagði að það væri nú þegar orðið mikið vandamál i Evróptí, hve margir Bandaríkjamenn væru farnir að leika með landsliðum í Evrópu, en þeir væru allir með tvöföld vegabréf. T.d. lékjusexBandaríkjamenn í enskalands- liðinu og Svíar gætu hæglega stillt upp liði eingöngu skipuöu Bandaríkja- mönnum. — Til að koma í veg fyrir þá þróun að landsliðin væru nær eingöngu skipuö Bandaríkjamönnum, yrði að fara að taka hart á vegabréfum, þannig að hiö eina og sanna vegabréf yrði látið gilda,” sagðiKristlbjörn. Það skeði hér í gær að fulltrúar alþjóða körfuknattleikssambandsins, FIBA, tóku vegabréfin af þeim Banda- ríkjamönnum, sem leika hér — þrír með Skotum, tveir með Austurrikis- mönnum og einn með írum, til að kanna þau nánar. Bandaríkjamaðurinn sem leikur með írum var t.d. með bandariskt vegabréf, en siðan var hann 0 Dakarsta Webster. aðeins með útfyilt skjal, sem skráð var á, aö hann færi fæddur íri. Það skjai verður nú athugað í herbúðum FIBA. Það er vitað að atvinnumennska í körfuknattleik er orðin útbreidd í Evrópu og í Evrópu leika margir at- vinnumenn, þótt FIBA viðurkenni aðeins atvinnumennsku í Banda- ríkjunum og á Filippseyjum. Körfuknattleiksmenn annarra þjóða eru aðeins áhugamenn — eftir reglum FIBA — sem verður að fara að endur- skoða. -klp/-SOS. Mike England sendir Englendingum tóninn Frá Kjartani L. Pálssyni fréttamanni DV í Skotlandi. — Mike England, landsliðsein- vaidur Wales, sendi Englendingum heldur betur tóninn eftir landsleik Wales og Englands i Cardiff. — „Enska landsliðið leikur sömu leiðinlegu knattspyrnuna og undan- farin ár og er liðið þafl slakt, að það verður sent heim frá Spáni með fyrstu ferð,” sagði England m.a. í sjónvarps- viðtali. England sagði að Englendingar ættu ekki möguleika gegn Frökkum og Tékkum, ef þeir héldu áfram á þessari braut. „Þurfum margt að laga" Ron Greenwood sagði í blaðaviðtali við Daily Mirror í gær að það væri margt rétt sem Mike England hefði sagt, þótt hann hefði stundum tekið of stórt upp í sig. — Við erum ekki enn byrjaðir á lokaundirbúningi okkar fyrir HM vegna þess hve þétt er leikið í Englandi og það verður ekki fyrr en eftir 15. maí að við getum fariö að taka á hlutunum af fullri alvöru. — Við þurfum margt að laga og slípa fyrir HM-keppnina og til þess munum við nota landsleiki gegn Hollendingum, Finnum, Skotum og islendingum, sagði Greenwood. -klp-/-SOS. ísland með eina kvenmanninn Það hefur vakið mikla athygli hér I EM i Edinborg að íslendingar eru eina þátttöku- þjóðin, sem er með kvenmann i herbúðum sínum. Stúlkan sem hér er um að ræða er Svanhvit Sigurðardóttir, sjúkraþjálfari íslenzka landsliðsins, en hún hefur verífl sjúkraþjálfari lands- liðsins í tvö ár. -klp- Mike England. Gautaborg—Hamborg 5. maí: Fólk beið í bið- röðum alla nóttina — til að ná í miða á leikinn og uppselt varð á nokkrum klukkustundum Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, frétta- manni DVI Sviþjóð. Þegar er uppselt á fyrri leik IFK Gautaborgar og Hamburger SV i úrslltnm UEFA-keppninnar I knatt- spyrnn. Leikurinn verður 5. mai á Ullivi-leikvanginum I Gautaborg. Þ6 sjónvarpað verði beint frá leikn- um seldust allir aðgöngumiðarnir, rúmlega 50 þúsund, upp á örfáum klukkustundum, þegar forsalan hófst á þriðjudag. Fólk beið fyrir utan völlinn alla nóttina i biðröðum. Gautaborgar-liðið lék sinn fyrsta leik í Allsvenskan á mánudag. Sigraði þá Braga á heimavelli 1—0 en það gæti orðið dýrkeyptur sigur. Helzti leikmaður liðsins, miðherjinn Torbjörn Nilsson meiddist. Skallaði saman við mótherja og var borinn af velli. Saumuð mörg spor í höfuð hans, auk þess sem hann fékk heUahristing. Svíar vona þó að hann verði til i slaginn við þýzkaliðið 5. maí. GAJ/hsím. 3m$£ Gunnar. Deilda- keppni — í badminton Deildakeppnin i b&dminton verður um helgina. Keppt i 1. og 2. deild. t 1. deild eru þrjú lið frá TBR, tvö lið frá KR og eitt frá ÍA. t 2. deild eru lið Vals, Vikings, Gerplu og D-lið TBR. Keppnin hefst kl. 10 á laugardagsmorgun og stendur til 17 þann dag. Á sunnudag kl. 10 og lýkur kl. 15 með verðlaunaafhendingu. Gunnaráfram hjá Stjörnunni Gunnar Einarsson, landsliðsmaðurinn kunni, i FH hér á árum áður, var f fyrrakvöld endurráðinn þjálfarí Stjörnunnar i Garðabæ. Hann mun einnig leika með liðinu næsta keppnistímabil. Undir stjórn Gunnars vann Stjarnan sér sæti i 1. deild i vor. í fyrsta skipti í sögu félagsins.hsím. Nýtt íþróttahús við Igrasvöllinn á ísafirði Frá Val Jónatanssyni, fréttamanni DV á Ísafirði: Knattspyrnuvöllurinn á isafirði, þ.e.a.s. grasvöll- urinn ft Torfunesi, verður tilbúinn til notkunar i endaðan mai, miðað við ástand vallarins i dag. Að sögn iþróttafulltrúans, Björns Helgasonar, hefur völiurinn komið mjög vel undan snjó eftir veturinn. Tekið verður i notkun nýtt og glæsilegt iþrótta- vallarhús við völlinn, unnifl er af miklum krafti þessa dagana til að koma þvi í gagnið sem fyrst. Stefnt er að þvi að þessu verki verðí lokiö um miöjan júní. Mikill áhugi er nú á knattspyrnunni á ísafirði því nú verður lið þeirra ís- firðinga f 1. deild f fyrsta sinn i 20 ár og ætla þeir sér stóra hluti i 1. deild- inni í sumar. tt.b1 * ' ■_* ' :. |UV. ívwx Ricky B.'uch. STAÐAN Staflan er nú þessi í Evrópukeppninni i körfuknattleik í Edinborg, eftir þá leiki sem búnir eru: Austurriki-ísland Ungverjaland-Egyptaland Skotland-írland Ungverjaland-island Skotland-Egyptaland Austurríki-Írland Ungverjaland Austurriki Skotland Egyptaland trland ísland 91:77 94:84 54:43 114:90 86:74 69:58 220 211:177 4 2 2 0 160:135 4 220 140:117 4 20? n 202 101:123 0 2 0 2 167:205 0 Bruch ætlar sér stóra hluti — kastaði kringlunni 62.64 m Frá Gunnlaugi A. Jóns- syni, fréttamanni DV i Sviþjóð. Sænsld krafta- jötunninn Rick Bruch tók þátt í sinni fyrstu kringlukastskeppni i Hálsingborg á miðviku- dag, eftir langt hlé. Um 1970 var Ricky einn fræg- asti kringlukastari heims og heimsmethafi. Hann náði prýðilegum árangri á mótinu í Hálsingborg. Kastaði 62,64 metra. Sagðist þó ekki vera neitt farinn að æfa tækni, heffli aðeins byggt upp skrokkinn. Ætlar sér stóra hluti i framtíðinni. -GAJ. Fyrsta opna golfmótið — verður á Strandarvelli á Rangárvöllum Fyrsta opsa golfmótið I á árinu fer fram á Strand- | arvelli á F's*jgárvöllum á morgun og verfla leiknar 18 holur með og án for- gjafar. Þetta er 30 ára af- mælismót Golfklúbbs i Hellu. f tilefni mótsins, verður tekinn í gagnið nýr golfskáli, en staðið hefur yfir bygging á honum frá sl. sumri. Golfklúbburinn hefur tryggt sér land undir 18 holu völl og er áformað að hefja framkvæmdir við stækkun vallarins i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.