Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1982, Síða 40
Hlutaskiptum á Alþingi að Ijúka:
Búrfellsvirkjun II sam-
hliöa virkjun Blöndu
—og kísilmálmverksmiðjan Iffguð við á ný
„Það er verið að skera þá síðustu
niður úr gálganum,” sagði einn
þeirra þingmanna, sem DV ræddi við
í morgun um stöðu hlutaskiptanna á
Alþingi, sem staðið hafa linnulaust
undanfarið. Stífla Blönduvirkjunar
verður byggð þannig að „hægt sé að
stækka lónið”, 140 megawatta
viðbót við Búrfellsvirkjun er bætt inn
í virkjanaröðina, og heimilað verður
að hefja urtdirbúning að kísilmálm-
verksmiðjufélagi á Reyðarfirði.
Steinullarmálið var hins vegar ennþá
í hnút.
Röðun næstu virkjana hefur nú
tekið þá stefnu, að samhliða 177 MW
Blönduvirkjun sem næstu stórvirkj-
un, verði ráð: t í ívöföldun Búrfells-
virkjunar og a” hennar aukið um 140
MW. Kemur sj framkvæmd í stað
viðbótar við Sigöldu- og Hrauneyja-
fossvirkjanir, en þegar liggja fyrir
ákvarðanir um miklar miðlunarfram-
kvæmdir á Þjórsársvæðinu með
Kvíslaveitu, stækkun Þórisvatns-
miðlunar og stíflugerð við Sultar-
tanga. Þá er ennfremur gert ráð fyrir
Fljótsdalsvirkjun samhliða, ef næg
orkusala til stóriðju liggur fyrir.
Lagafrumvarp um tvöföldun
Búrfellsvirkjunar verður liklega sýnt
á Alþingi í dag, en ekki er gert ráð
fyrir að það nái fram að ganga fyrr
en í haust, vegna tímaskorts á þing-
inu nú.
Þrátt fyrir mikinn ágreining um
kisilmálmverksmiðju á Reyðarfirði
mun nú verða veitt heimild til undir-
búnings að verksmiðjufélagi, en
leggja þarf málið á ný fyrir Alþingi til
endanlegrar afgreiðslu.
Upp úr þjarkinu um miðlunarstiflu
Blönduvirkjunar kemur svo loks eins
og fyrr segir, að hún verði byggð
þannig í upphafi að „hægt verði að
stækka lónið”. Þetta er nýtt orðalag,
en í því felst að virkjunaraðili,
væntanlega Landsvirkjun, fær
frjálsar hendur til þess að ákveða
tilhögun stíflugerðarinnar. Hins
vegar er ótvírætt ákvæði um að
„lónið verði ekki stækkað” úr 220
gígalítrum i 400, nema með samþykki
Alþingis. Það er því ljóst, að sam-
komulag sem náðst hafði milli
flestra þingmanna hefur orðið ofan
á, krafa Páls Péturssonar um að
stíflan verði í fyrstu aðeins byggð
fyrir 220 gígalítra lón hefur orðið
undir. HERB
Hann var kaldur í morgun þegar menn risu úr rekkju. Frost var í Reykjavík í nótt, þrátt
fyrir það að sumariO sé komiO samkvæmt almanakinu. Þessi velviljaöi lögreglumaður
aðstoðaðibíleiganda íReykjavík ímorgun, en bílhurðin var írosin aftur.
DV-myndS
r Fráeldhúsdagsumræðunumígærkvöld:
„Olafur Jóh. leitar að
ágreiningsmálum”
—sagði Svavar Gestsson — „Ekki skilyrði til almennra launa-
hækkana,” sögðu ráðherrar Framsóknar
Tollvörugeymslu-
innbrotið upplýst
Bræður tveir, úr Reykjavík, annar
tvítugur og hinn á 16. ári, hafa játað
að hafa brotizt inn í Tollvöru-
geymsluna í Reykjavík um síðustu jól.
Hafa bræðurnir áður komizt í kast við
rannsóknarlögregluna.
í innbrotinu i Tollvörugeymsluna
var rofið gat á útvegg og svo brotizt
inn í geymslu fjögurra fyrirtækja.
Þaðan var stolið allmiklu af raftækjum
til heimilisnota og hljómflutnings-
tækjum, verðmæti að upphæð tugum
þúsunda króna. Teki?t hefur að hafa
upp á nær öllu þýfinu. -KÞ':
Allharðurárekstur
á Skaganum
Allharður árekstur varð á Akranesi i
gærkvöld þegar tvær bifreiðir skullu
saman á mótum Kirkjugerðis og
Merkigerðis þar í bæ. Bifreiðarnar eru
óökufærar eftir en litil sem engin slys
urðu á mönnum.
Hér voru á ferðinni fólksbílar, Fíat
og Cortina, og svo virðist sem orsök
slyssins sé sú að önnur bifreiðin hafi
ekki virt biðskyldu. -KÞ.
Stórhríð og
stórviðri fyrir
norðan í morgun
Ekki virðist sumarið alveg komið
enn, það urðu þeir Akureyrarmenn
varir við í morgun þegar þeir vöknuðu
og litu út um gluggana hjá sér. Þá var
stórhrið og skyggni um 500 metrar,
alveg eins og um hávetur væri. Hálka
var því á götum Akureyrar, enda 6
stiga frost, þar í bæ á tíunda tímanum í
morgun.
Sömu sögu var að segja frá Húsa-
vík, þar var norðanstórviðri og stórhrið
og töluvert frost. -KÞ.
RÍfi
Hamrasvanur
aflahæstur
Nítján bátar hafa lagt upp í Rifi í
vetur. Afli er mjög svipaður og í fyrra.
Þrír aflahæstu bátarnir 24. apríl sl.
voru Hamrasvanur með 693 tonn,
Rifnes með 658 tonn og Saxhamar með
627 tonn. Afli var þokkalegur fram að
páskastoppinu, en eftir það sáralítill
sem enginn. -Hafsteinn, Hellissandi.
Eskifjörður:
Góðurafli
Eskifjarðartogararnir hafa fiskað
nokkuð vel frá áramótum. Til a jrílloka
hefur aflamagn togarans Hól naness
SU 1 verið 1372 tonn. B úttóverðmæti
aflans var 6.2 millj. kr. og fór tog-
arinn 11 veiðiferðir. Meðalverð á kílói
var 4,55 kr. Hásetahluturinn með
orlofi var 111,291 kr.
Togarinn Hólmatindur SU 220
fiskaði 1168 tonn á þessu tímabili og
var brúttóverðmæti aflans í 11
veiðiferðum 5.5 milljónir og meðalverð
á kíló 4.68 kr. Hásetahluturinn með
orlofi var94.194 kr.
-Regína/Eskifirði.
„Ólafur Jóhannesson hefur lagt sig
fram um að finna ágreiningsmál í ríkis-
stjóninni,” sagði Svavar Gestsson ráð-
herra í eldhúsdagsumræðunum í gær-
kvöld. Að öðru leyti en því hefði
stjórnarsamstarfið gengið vel.
Ingvar Gislason ráðherra sagði að
skilyrði til almennra launahækkana
væru ekki fyrir hendi. Flokksbróðir
hans, Steingrímur Hermannsson ráð-
herra, sagði einnig að grunnkaups-
hækkanir að einhverju marki væru úti-
lokaðar.
Steingrímur sagði að sjávarútvegs-
ráðuneytið mundi næstu daga gefa út
stórum hertar reglur um kaup á fiski-
skipum.
Gunnar Thoroddsen forsætisráð-
herra sagði að nú væri rætt um nýja
viðmiðun fyrir vísitölu, sem tæki tillit
til félagslegrar þjónustu og yrði betri
mælikvarði á lífskjör en núgildandi
vísitölukerfi. Á íslandi einu landa hefði
ekki komið til atvinnuleysis. Þótt blik-
ur væru á lofti og brugðið gæti til
beggja vona, væru kveinstafir og grát-
kórar ástæðulausir.
Geir Hallgrímsson(S) sagði að Al-
þýðubandalagið hefði ráðið ferðinni í
lands- og borgarmálum i fjögur
„glötuð” ár. Atvinnu væri haldið uppi
með erlendu lánsfé. Þjóðin væri komin
í vitahring erlendra lána.
Karvel Pálmason (A) sagði að
offjölgun fiskiskipa leiddi til þess að
tekjur sjómanna ykjust ekki í krónu-
tölu í ár, meðan verðbólgan væri 40—
50%.
Friðjón Þórðarson ráðherra sagði
að varla yrði mikið gert nema andæfa
og verjast áföllum, meðan svo hart
væri í heimi. En ekki væri ástæða til að
fyllast bölsýni.
-HH
frfálst, úháð dagblað
FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982.
Minnkun Blöndu-
virkjunar:
16-18%
hækkun á
rafmagni
„Ef Blönduvirkjun verður miðuð við
220 gígalítra en ekki 400 gígalítra þá
verður kostnaðaraukning á hverja orku
einingu sem virkjunin framleiðir. Raf-
orkuverðið yrði því liklega 16—18%
hærra vegna þess að framleiðslugeta
virkjunarinnar minnkar,” sagði
Guðjón Guðmundsson rekstrarstjóri
Rafmagnsveitna ríkisins en þingflokk-
ur Framsóknarflokksins samþykkti
fyrir skömmu ályktun um Blöndu sem
sumir skilja sem kröfu um að virkjunin
verði minnkuð í 220 gigalítra. í samn-
ingum sem undirritaðir hafa verið við
hreppana fimm er hins vegar gert ráð
fyrir að lónið verði 400 gígalítrar ef raf-
orkuþörfin krefur og samkvæmt um-
mælum iðnaðarráðherra í DV í fyrra-
dag breytir samþykkt framsóknar-
manna engu þar um. -GB.
Breyting á toltareglum:
Bflar lækka um
6-14 prósent
'
: S
Á vegum fjármálaráðuneytisins
hefur nú verið gefin út ný reglugerð um
innflutningsgjöld af bifreiðum og aðrar
eldri jafnframt felldar niður.
Samkvæmt þessum nýju reglum
lækkar sérstakt innflutningsgjald nú úr
35—50% í 5—30% af öðrum ökutækj-
um en litlum sparneytnum bilum. Af
þeim er gjaldið alveg fellt niður.
Verður gjaldið miðað við stærð
sprengirýmis eða eigin þyngd og sú tala
látin ráða sfem er innflytjandanum hag-
stæðari. Mun þetta þýða um 6—14%
verðlækkun á bifreiðum og hjólum.
Jafnframt hefur verið fellt niður
24% vörugjald á ýmsum tækjum og
varahlutum til iðnaðar, i því skyni að
bæta samkeppnisaðstöðu innlendra
iðnfyrirtækja. -JB
;
ag
DV-bíó
Sjóaragrin heitir myndin í DV-
bíóinu á sunnudaginn. Þetta ergaman-
mynd i lit en ekki með íslenzkum texta.
Myndin er að vanda sýnd í Regnbog-
anum kl. 13.
DagblaðiðogVísir
DV kemur ekki út á morgun, laug-
ardaginn 1. maí. Næsta blað kemur út
mánudaginn 3. maí. Smáauglýsinga-
deildin er opin í dag til kl. 22, en lokuð
á morgun, laugardag. Opið verður á
sunnudag 2. maí kl. 18—22. Smáaug-
lýsingadeildin er í Þverholti 11, sími
27022.
LOKI
Með tilliti til þróunar
ísienzkra fíugmála er það
Ijóst að það er mesta ógæfa
Freddie Laker að vera ekki
framsóknarmaður.
I