Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1982, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1982, Side 2
DV. LAUGARDAGUR 14. ÁGUST 1982. þeir fréttu aö í nýja hótelinu ættu að vera þrjátíu og fjögur tveggja manna herbergi og umfang fyrir- tækisins eftir því. En stórhugur Hús- víkinga er orðlagður, enda þing- eyska loftið á sveimi allt í kring, og það hefur komið á daginn aö hótel- byggingin er sízt of stór fyrir þann mikla áningarstað ferðamanna sem Húsavík er orðin. En hvað er þaö viö Húsavík sem ferðamenn eru að sækj- ast eftir? Má ekki gleyma miðnætursólinni okkar ,,Ég býst viö að það sé nálægðin við ein mestu náttúruundur landsins,” segir Auður og heldur áfram: „Héöan er mjög stutt til margra fall- egra staða eins og þú bentir á hér að framan. Húsavík er líka nær eini staðurinn á leiöinni Akureyri — Austfirðir sem býður upp á verzlun og þjónustu í einhverjum mæli. Svo má ekki gleyma miðnætursólinni okkar sem við erum mjög stolt af. Við bjóöum f eröamönnum sem hótel- ið gista upp á ferðir út á Héðinshöföa sem er hér skammt frá bænum í því augnamiöi að sýna þeim mikilfeng- leik sólsetursins. Þar bjóðum við þeim upp á heimatilbúinn kokkteil sem við að sjálfsögðu nefnum „The Midnight Sun Cocktail”. Þessar ferðir hafa gefizt alveg ljómandi vel. Þeim sem áhuga hafa bjóðum við síðan út í Flatey eöa jafnvel á sjó- stöng hér í flóanum þegar vel viðrar. Allt hefur þetta gefið góða raun og aukiö á ánægju þeirra sem hjá okkur hafa dvalið.” Húsavík — the town of the mid- night sun — eins og staöurinn hefur veriö nefndur með réttu — sækja flestir þeir ferðamenn sem eiga leið um Norðurland. Og þeir hljóta að vera ófáir á sumri hverju. I nálægð bæjarins er enda aö finna marga feg- urstu reiti íslenzkrar náttúru. Nægir þar aö nefna Ásbyrgi, Hljóðakletta, Mývatn og Dimmuborgir og er þá raunar aðeins fátt eitt talið. Þaö sem setur svo einna mestan svip á sjálfan miðpunkt þessa alls — Húsavík — er vafalítið hótelbygging staðarins og sú starfsemi sem þar er innt af hendi. Miöaö viö íbúatölu bæj- arins má telja nær fullvíst að hótelið sé með því stærsta og veglegasta sem gerist hér á landi. Þáfékk ég stöðuhækkun Við náðum tali af hótelstjóranum á leiö okkar um bæinn í síðastliðinni viku. Auöur Gunnarsdóttir heitir hún og tók við starfinu um síðustu ára- mót. „Nei, ég er ekki Húsvíkingur. Eg er fædd og uppalin í Reykjavík og flutti hingað norður með fjölskyldu mína fyrir fimm árum. Þar tók ég við starfi á skrifstofu hótelsins og gegndi þvi þangaö til á aðventunni í fyrra. Þá fékk ég sem sagt stöðu- hækkun. Og auövitaö kann ég vel við starf hótelstjórans. Þó þetta sé óneit- anlega mikil vinna þá er hún bæði líf- leg og fjölbreytt, sem bætir álagið upp,” segir Auöurlétt í bragði. — Er nýtingin á hótelrýminu góö? „Hún mætti vissulega vera meiri. Þetta sumar hefur veriö óvenjulega h'tiö aö gera héma hjá okkur sem má eflaust heimfæra á flest hótel lands- ins. Þaö hafa verið miklar afpantan- ir og þá sérstaklega vegna erlendra hópa. Þar eð þessir þrír sumarmán- uðir hafa ávallt verið okkar aöalver- tíð kemur þessi lægð til með að hafa mjög slæm áhrif á rekstur hótelsins þegar á heildina er litið.” Stórhugur Húsvíkinga — Hótel Húsavík er um þessar mundirníu ára ' gamalt. Farið var að / huga að byggingu þess f fyrir tólf árum, eftir að gamla hótelið brann, en það stóð viö hlið kaupfélagsbygging- arinnar tíræðu niðri á sjávarkambin- i um. Mörgum þótti í of mikið / ráöizt er ! Viö misstum mikið ef hótelið starfaði ekki — Hvernig gengur svo að reka hótelnorðurílandi? „Það er að minnsta kosti ekki arð- bært að reka hótel sem starfar allt árið á landsbyggðinni. Ef vel gengur má segja að reksturinn sleppi svona nokkuð slysalaust fyrir hom. En það er heldur aldrei neitt umfram þaö. En Húsvíkingar misstu mikiö ef ekki starfaöi hótel hér í bænum. Það setur óneitanlega mikinn svip á stað- inn. Félagsheimili Húsavíkur er svo héma í einni álmu hússins. Það er raunar ekki rekið á vegum hótelsins sjálfs heldur ýmissa félagasamtaka og hefur komið sér ákaflega vel fyrir „Auðvitað kann ég vel við mig sem hótelstjóri hér á Húsavik. Þótt þetta sé óneitanlega mikil vinna þá er hún bæði lifleg og fjöl- breytt sem bætir álagið upp," segir Auður Gunn- arsdóttir meðal annars i viðtalinu, sem þú, lesandi góður, ert hér með byrjað- ur að glugga i! 99Ekki hhmpiA að þvíað reku hótel úti ú lundi99 — segír Auður Giuinarsdöttir uni hótelreksttir sinii á Húsavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.