Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1982, Side 12
DV. LAUGARDAGUR14. ÁGUST1982
Myndir í keppnina um Sumarmynd DV 1982
eru teknar aö berast og dómnefndinni er vandi á
höndum þegar velja skal myndir til birtingar.
Hér í opnunni getur aö líta fyrstu sumar-
myndirnar. Sumarmyndakeppni DV stendur út
ágústmánuð en skilafrestur síðustu mynda er til'
10. september.
Allir lesendur DV geta tekið þátt í keppninni
og eiga þar með möguleika á að vinna glæsileg
verðlaun. Keppninni er skipt í tvo flokka, lit-
myndir og svarthvítar myndir. Þrenn verðlaun
eru veitt í hvorum flokki. Þau eru hin sömu í
báðum flokkum, Olympus myndavélar frá
verzluninni Gevafoto.
Fyrstu verðlaun í hvorum flokki eru Olympus
OM 10 myndavélar. Þessi myndavél þykir nett
og meðfærileg en er ja&iframt fullkomin
myndavél fyrir atvinnumenn. Önnur verðlaun í
báðum flokkum keppninnar er Olympus XA
myndavélar og þau þriðju Olympus XA 2
myndavélar. Þessar gerðir Olýmpus mynda-
véla eru gerðar fyrir 35 mm filmu eins og
Olympus OM 10 vélin. Olympus XA og XA2 eru
ákaflega einfaldar í notkun en vegna filmu-
stærðar og tæknilegra eiginleika vélanna verða
myndgæðin mjög mikil.
Þátttakendum í Sumarmyndakeppni DV 1982
er heimilt að senda fleiri en eina mynd í keppn-
ina. Allar myndir skulu merktar meö nafni og
heimilisfangi höfundar á bakhlið hverrar mynd-
ar. Myndirnar skulu sendar ritstjóm DV, Síðu-
múla 12—14, 105 Reykjavík, merktar „Sumar-
mynd”. Aríöandi er að hverri sendingu fylgi frí-
merkt umslag með utanáskrift til sendanda, svo
hægt verði að endursenda allar myndirnar.
1 dómnefnd sumarmyndakeppninnar sitja þrír
valinkunnir menn, þeir Gunnar V. Andrésson
ljósmyndari DV, Gunnar Kvaran listfræðingur
og myndlistargagnrýnandi DV og Ragnar Th.
Sigurðsson ljósmyndari Vikunnar. Nefndin
hefur þegar valið myndir til birtingar og mun að
lokum velja beztu myndina.
Sumarmyndefnin eru ákaflega mismunandi
eins og sjá má hér í opnunni. Hugmyndaríkan
ljósmyndara skortir aldrei myndefni og þessi
staðreynd er ein þeirra sem gera ljósmyndun
heillandi. Myndarleg verðlaun ættu að vera
mönnum hvatning til sumarmyndatöku. Nú er
um að gera að hefja þátttöku í Sumarmynda-
keppni DV 1982 og senda blaöinu skemmtileg-
ustu mynd sumarsins.
allir lesendur geta tekid þált í keppninni um
Sumarmynd DV 1982
■■■ v,: S!%v*yá'i ■■
Þessi fa/lega mynd frá sjávarsiðunni hefur ekki hlotið nafn. Ef til vill verður hún ævintýralegri fyrir bragðið. Höfundurinn
er Jóhann Jónsson.
■ 1
Geitin þarf ekki að hafa mikið fyrir Ufinu þegar grasið hefur
verið reytt ofan í hana. Þessi mynd er nafnlaus en höfundur
hennar er Þuriður Hjörleifsdóttir.
Sumir eru óhressir á morgnana en það verður ekki sagt um litlu stúikuna með sóleyjavöndinn
heyrnartækin. Myndin af þessari kankvisu stelpu heitir Góðan daginn og er eftir Jóhann Jónsson.
Allir þurfa samastað i tilverunni og þessi litli ungi hefur fundið dágott skjól.
Höfundur myndarinnar, Ævar Guðmundsson, kallar hana ,,/ skjóli Carlsberg
veldisins
Að i Markarfljótsfarvegi á Fjallabaksleið syðri heitir þessi sumarmynd eftir Bergstein Gizurarson. Eins og sjá má er
upplagt að stunda Ijósmyndun samhliða hestamennsku.
tlngviði og sumarsól