Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1982, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1982, Blaðsíða 21
DV. LAUGARDAGUR14. AGOST1982. 21 akamál — Sérstæð sakamál — Sérstæð sakamál Lík Raymonds Duerr borið út úr húsinu. Joerler hafi ekki tekið á sig sökina /egna ástar á stúlkunni. „Ég mun þurrka út fjölskylduna" Stuttu síðar kom Carol Duerr í vitna- stúkuna til að bera fram vörn. Hún sagði við kviödóminn að Goerler hafi sagt við sig eftir að hafa myrt eigin- mann hennar: „Ef ég næst mun ég taka þig og Catherine með mér. Það væri bezt fyrir ykkur að halda fast við þá sögu sem ég hef sagt. Ef þið gerið það ekki mun ég þurrka út þaö sem eftir er af fjölskyldunni.” Carol sagði að Goerler hafi byrjað þessar hótanir þegar þau voru á leið til yfirheyrslu í þriðja sinn kvöldið 20. maí. Það byrjaði á þá leið að hann sagði: „Eg skaut Raymond,” sagði Carol í réttinum. „Eg sagöi þá: Þú hvaö? og þá endurtók hann þetta aftur.” Carol segist þá hafa oröiö svo skelkuð aö hún hafi snöggbremsað bílnum og síðan ekið að næsta bílastæði og stanzað. Hún sagðist hafa sagt við Goerler að þetta væri ekki rétti tíminn til að segja brandara. Þá hafi Catherine Sue sagt: „Þetta er enginn brandari. Hlustaðu á hvaöhann hefuraðsegja.” Carol sagðist þá hafa hlustaö á Goerler en varla vitað hvort hún ætti aö trúa honum eða ekki. Hún hafi spurt Catherine hvers vegna hún hafi ekki sagt lögreglunni þetta eða þá sér, en hún hafi þá svaraö aö hún hafi ekki þorað það. Carol sagði siðan með tárin í augunum að hún heföi einnig þagað um játningu Goerlers vegna þess að hún var í óvissu um öryggi foreldra sinna og tveggja dætra vegna hótunar- innar. ,dSg hafði nýverið misst eigin- mann minn, sem ég elskaði heitt. Eg vissi ekki hvort Goerler gæti fram- kvæmt hótun sína en ég tók enga áhættu með að láta þurrka fjölskyldu mína út,” sagði hún. Við réttarhöldin yfir Goerler bentu verjendur hans á það, að skjólstæð- ingur þeirra hafi sagzt hafa skotiö þriðja skotinu í þann mund sem Duerr var að standa upp, en líkskoðun hafi sannað að annað skotið hafi valdið dauða fórnarlambsins. Goerler sagðist hafa verið um metra frá fórnarlamb- inu þegar hann skaut öðru skotinu og að Duerr hafi andað í 15 mínútur áður en hann var skotinn í þriðja sinn. „Hvemig stendur á því að Goerler vissi ekki að fórnarlambið lézt þegar það féll við annað skotið?” spurðu verjendumir. „Ástæðan er sú að Goerler var ekki á staðnum og hann myrti ekki Duerr.” Verjendumir töldu aö Goerler væri að taka á sig sök ein- hvers og önnur kvennanna hlyti að bera ábyrgð á morðinu. Eiginkonan sek, að mati kviðdóms Á fimmtudegi þann 4. september komst kviðdómur að þeirri niðurstöðu að Carol Duerr væri sek um aðild að morði eiginmanns síns. Hún var dæmd í lífstíöarfangelsi. Klukkustund síðar komst annar kviðdómur að þeirri niðurstöðu að Dennis Goerler væri sekur um sama morð. Hann fékk einnig lífstíðar fangelsisdóm. Sam- kvæmt lögum Ohio-ríkis geta þau sótt um náðun eftir 15 ór. Réttarhöld yfir Catherine Sue Duerr hófust 14. september. Saksóknari benti Carol Duerr, kona hins myrta kemur út úr réttarsalnum. Hótaöi Goerler fjölskyldu hennar lífláti? réttinum á að hún hefði aðstoðað Goerler við að finna skotfæri í morð- vopnið og að hún hafi einnig verið í fylgd með móður sinni þegar hún keypti gúmmíhanzka til að ekki fynd- ust púðuragnir á höndum hans. Þann 15. september var frásögn hennar lesin upp fyrir kviðdóminn, en þar lýsti hún viðræðum sínum og móöur hennar við Goerler, þar sem umræðuefnið var möguleikinn á að myrða stjúpfööur hennar. Hvorug þeirra mæðgnanna hafi þó beðið Goerler um að sjá um verknaðinn, en hann hafi hins vegar boðið sig s jálfur fram til starfans. Að sögn Catherine Sue átti Goerler skotvopn og þann 16. maí hafi hann farið til að kaupa skotfæri. Hún hafi farið með honum í margar verzlanir, en þá hafi þau ekki fundið rétta kúlu- stærð. Goerler hafi síðan einn keypt skotin daginn eftir. Næstu dagar hafi síöan farið i að skipuleggja morðið nákvæmlega meðhliösjón af daglegum venjum föður hennar. Á endanum hafi verið ákveðið að Goerler feldi sig í her- bergi á annarri hæð hússins og skyti Duerr þegar hann kæmi upp stigann. Catherine sagði aö Goerler hafi hringt til heimilis afa hennar og ömmu þar sem þær mæðgur voru staddar, meðan verknaðurinn var framinn og sagt að nú væri því lokiö. Síðan hafi þau öll þrjú farið aðOhio-ánni þar sem Goerler losaði sig við skotvopnið, ónotaðarkúlur og gúmmíhanzkana. Lét vonbrigðin bitna á stjúpdótturinni Catherine sagöi við yfirheyrslur að henni þætti mjög leitt að stjúpfaðir hennar væri látinn og að hún sæi mjög eftir því sem gerzt hefði. Þegar hún var spurð hvers vegna hún hafi tekið þátt í samsærinu svaraði hún að hann hefði komið mjög illa fram við hana. „Hann kom heim frá vinnu með öll þau vonbrigði sem hann hafði orðið fyrir og lét þau bitna á mér. Stundum var hann nærri búinn að öskra af mér höfuðið,” sagðihún. Saksóknari lagði ríka áherzlu á aö Catherine Sue ætti fulla aðild að morðinu. Hann benti kviðdómnum á að taka eftir því hvernig hún hefði notað orðið „við” í framburði sínum. Aðstoðarsaksóknarinn sagði: „Ef þessi stúlka hefði ekki þekkt Dennis Goerler þá hefði Carol Duerr ekki þekkt hann heldur og þá heföi Raymond Duerr verið enn á líf i. ” Seint sama kvöld, eftir sex klukku- stunda umfjöllun, komst kviðdómur sem skipaður var sjö konum og fimm karlmönnum að þeirri niðurstöðu að Catherine Duerr væri sek um aöild að morði stjúpföður síns. Dómarinn dæmdi hana umsvifalaust í lífstíðar- fangelsi. Lögmaður hennar sagði síðar í við- tali við fréttamenn. „Allt þetta mál var eitt samsæri. Þegar ég hugsa um að einhver skyldi hafa samúð með henni þó hugsa ég um Raymond Duerr. Enginn hafði samúö meö honum.” »érstæð sakamál — Sérstæð sakamál — Sérstæð sakarr HÚSBYGGJENDUR Að halda að ykkur hita er sérgrein okkar: Afgreiðum einangrunarplast á Stór-Reykjavíkursvæðið frá mánudegi til föstudags. Afhendum vöruna á bygging- ' arstað viðskiptamönnum að kostnaðarlausu. Hagkvæmt verð og greiðsluskilmálar við flestra hæfi. i Aðrar söluvörur: Glerull — Steinull — Múrhúðunarnet — Útloftunar- pappi — Þakpappi — Plastfolía — Álpappír — Spóna- plötur: venjulegar/rakaþolnar — Pípueinangrun: frauð- plast/glerull. BORGARPLAST Brír BorgarOesi sími 93-737011 Kvöidsimi og helgarslmi -93-—7355 Draumurinn SÍMI KIRKJUHVOLI. 22873

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.