Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1982, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1982, Blaðsíða 9
DV. LAUGARDAGUR 2. OKTOBER1982. 9 muouuu uiuiiiouai uiit jjcoorn mundir. Sinfónían heimsótti lands- byggöina við frábærar undirtektir, ný hljómsveit er stofnuð, Fíl- harmónían kynnir vetrardagskrána, Operan verður með tvo söngleiki í gangi. Ungir, norrænir tónlistar- menn halda festival í Reykjavík, kammertónleikar og annarskonar hljóðfæraleikur, einsöngur og kór- söngur og nú síðast komst íslensk strengjahljómsveit í úrslit í alþjóð- legri tónlistarkeppni. Ekki er annaö hægt en aö dást aö hinu öfluga tónlistarlífi og þeirri grósku sem þar er á ferðinni. Það þarf stórhug og drjúgan skerf af áræði til að ráðast í stofnun nýrrar íslenskrar hljómsveitar eins og allt er í pottinn búið fyrir tónlistarmenn hér á landi. En móttökumar sem Is- lenska óperan fékk á síöasta vetri eru uppörvandi, og engin ástæða er tiiaðætla annaöenaðíslenskhljóm- sveit, sem bryddar upp á nýjungum með fjölbreytilegri dagskrá njóti stuðnings og aðsóknar. Á eigin ábyrgð Jafnvel fyrir þann, sem aldrei get- ur slegiö rétta nótu eða sungið hrein- an tón, veröur auðvelt og eftirsókn- arvert aö hrífast með þeirri tónlist- argrósku, sem hljómar um borg og byggð á komandi vikum og mánuö- um. Vera má að tónlistarmenn séu af- skiptir í fjárveitingum hins opin- bera. Þaö eru fleiri, hvort heldur það eru aðrar listgreinar, atvinnurekst- ur, íþróttir eða hverskonar áhuga- samtök, sem gagn gera í þjóðfélag- inu. En á móti geta listamennimir um frjálst höfuð strokið, þeir era ekki fjarstýrðir og plagaðir af fyrirmæl- um og opinberri liststefnu. Þeir geta brotist um og bylt sér, og þeir verða sjálfir virkir þátttakendur í efnis- vali, hljómleikahaldi og jafnvel miöasölu! Þeir bera sjálfir og einir ábyrgð og þurfa ekki að standa undir ööram kröfum en skyldum sínum við listina. Þetta kann að reynast erfitt, en það er heilbrigt og þaö hlýtur að vera heillandi og hvetjandi. Kempur í sjónvarpssal Það var gaman að sjónvarpsþætt- inum á þriðjudagskvöldið þegar kempurnar f jórar úr póiitik liöinna daga sátu fyrir svörum. Ingólfur Jónsson, Gylfi Þ. Gíslason, Eysteinn Jónsson og Lúövík Jósepsson hafa samanlagt á bak við sig um 150 ára þingsetu að sögn stjómandans. Þaö ser frjalsræðið í nyt áttu til að nýta tæknina. Þjóðin hafði þessa eiginleika og umfram allt áræði og áhuga til að sækja fram. Framtak og sjálfsbjargarviðleitni leystist úr læðingi, dugnaðurinn var þrotlaus. Jafnvel sósíalistinn Lúðvík Jóseps- son hjálpaöi einstaklingsframtakinu aö njóta sín. Togarabyltingin, sem hann getur vissulega hrósað sér af ásamt öðra, var reist á grundvelli sjálfeignarfyrirkomulagsins. Menn vildu togara, því að þeir sáu hagnað- arvonina, arðinn og ágóðann.ef þeim sjálfum gengi vel. Afkoman var und- ir þeim sjálfum komin. Og þannig hefur það veriö á flestum öðrum sviðum. Gæfa Islendinga, forsenda velmegunarinnar, er svigrúmið sem einstaklingamir hafa fengið til að ráða sínum málum, hvatinn að fram- förunum. öll él birtir upp um síðir Sömu lögmál gilda einnig í listinni. Það er áhugi einstaklingsins, gleöin yfir árangrinum og nautnin af eigin sköpun, sem vísar því unga fólki veg- inn, sem nú ræðst í stofnun íslenskr- ar hljómsveitar. Þetta á sér engar pólitískar rætur. Þetta er bara eðli Islendingsins, ómeðvitaður eigin- leiki, sem er blessunarlega rótgróinn í vitund okkar og athöfnum. Þaö er af þessum ástæðum, sem með góðri samvisku er hægt að taka undir bjartsýni þeirra fjórmenninga, sem fram komu í sjónvarpinu um daginn. Þaö árar illa í augnablikinu. At- vinnureksturinn er reyrður í fjötra. Ríkisforsjáin fer vaxandi. Fleiri og fleiri verða fangar ríkisrekins þræla- halds. En ef okkur tekst að brjótast út úr herkvínni, ef við bara fáum frið til að spreyta okkur, ef Islendingurinn fær að n'jóta sín, þá er engin hætta á ferðum. Þá koma betri tímar. Kannski eftir tvo áratugi eða svo á einhver stjómmálamaöur eftir að koma í sjónvarp og hæla þeirri ríkis- stjóm, sem nú situr. Hann getur þá í það minnsta sagt: Hún olli tímamót- um vegna þess að loksins þá opnuð- ust augu manna fyrir því, að sósíal- ismi var ekki fyrir landann. Þá loks sáu menn af slæmri reynslu aö ein- staklingurinn er ekki til fyrir ríkið, heldur ríkið fyrir einstaklinginn. Þannig verður einnig hægt að tala vel um núverandi stjórn, þótt það reynist erfitt í dag. Öll él birtir upp um síðir. Ellert B. Schram. segir sína sögu — og er mikil saga. Þeir komu líka kunnuglega fyrir sjónir, hver í sínum gamla stíl, Ingólfur höfðinglegur, Gylfi fínpúss- aður, Eysteinn rökfastur og Lúðvík málglaöur. Enda þótt þeir gerðu sér far um elskulegheit og kurteisi, var enn grannt á pólitikinni og mála- fylgjunni, og ekki var það verra þótt ofurlítið karlagrobb fylgdi með. Gallinn var sá, að spurningarnar voru greinilega fyrirfram samdar og svörin sömuleiðis. Þetta urðu því meira ræður heldur en rabb. Það verður að skrifast á reikning stjóm- andans en ekki viðmælenda hans. Ekki var annað að heyra en við Is- lendingar höfum búið við góðar ríkis- stjómir allt frá 1934. Besta stjórn Eysteins var frá ’34 til ’38. Ingólfur hældi stjórninni ’53 til ’56 og báðir hældu þeir Gylfi viðreisnarstjóminni ’59 til 71. Lúövík átti erfitt með að gera upp á milli ríkisstjómanna ’56 til ’58 annarsvegar og 71 til 74 hins- vegar. Ástæðan fyrir því að þeir kappam- ir nefndu enga stjórn á áratugnum ’40 til ’50 er einfaldlega sú, að enginn þeirra átti sæti í ríkisstjóm á þeim tíma. Annars hefðu þær stjómir sjálfsagt fylgt með í upptalningunni. Að minnsta kosti hefur löngum verið kyrjaður lofsöngur um nýsköpunar- stjómina. Og svo era Islendingar að kvarta undan lélegri landstjóm! Aldrei ánægðir með nokkra ríkisstjóm. Hví- líktvanþakklæti! Sannleikurinn er auðvitað sá, aö flestar ríkisstjórnir láta eitthvað gott af sér leiða. Þær koma einhver ju í verk, sem lifir og er munaö. Það gilda sömu lögmál í pólitikinni sem annars staðar, að hið illa gleymist en hið góöa geymist. Það er líka eins gott. Móta íslandssöguna Við tökum eftir því í minningar- og afmælisgreinum að þar hafa menn af eðlilegum ástæðum tilhneigingu til Laugardags- pistill Ellert B. Schram ritstjóri skrifar að minnast þess og rifja upp, sem viðkomandi hefur vel gert. Hitt er látið liggja í þagnargildi, enda ekki annaðviðhæfi. Annars er það synd að vita til þess, hversu margir hverfa héðan af sjón- arsviðinu, án þess að saga þeirra og reynsla sé nokkurs staðar skráð. Sér- staklega á þetta við um þá einstakl- inga, sem munaö hafa tímana tvenna, kempur sem unnið hafa hörðum höndum, alið upp böm og bura og mótað hafa Islandssöguna hver á sínum stað og með sínum hætti. Dr. Benjamín Eiríksson gerði þetta að umtalsefni í ágætri blaða- grein i sumar. Tilefnið var frásögn aldins sjósóknara, Sigurðar Rós- mundssonar. Bátasjómaöur fyrir vestan 25 vertíðir, ellefti í röö tuttugu systkina. Hann fær hálfan dálk i blaðinu. Hans saga er keimlík ævi margra þeirra, sem nú era óðum að kveðja. Ingólfur Jónsson minnti á það í áður- nefndum sjónvarpsþætti, að ekki er lengra síðan en í upphafi fjórða ára- tugarins, að rafvæðing var ófullkom- in og víðast hvar engin. Vegir ólagðir eða ófærir, símalaust að mestu. Ey- steinn kom á þing um það bil sem út- varpið hóf göngu sína, Lúövík hóf sína þingsetu þegar landhelgin var 4 mílur. Allt hefur þetta breyst til batnað- ar. En það er ekki aðeins aö stjórn- málakempumar geti rifjað upp hlut sinn í þeim breytingum sem orðið hafa. Fólkið í landinu, eldri kynslóð- in, þekkti aðra öld, liðna tíma ein- angranar og allsleysis. Lifskjara- byltingin er undraverð á ekki lengri tíma, en það afsakar ekki það tóm- læti, sem við sýnum þeirri kynslóð, sem skóp hana, og það réttlætir ekki það vanþakklæti, sem við temjum okkur yfirfengnumhlut. Sósíalistinn hjálpaði til Eldri kynslóðin skóp byltinguna í iífskjörum og tæknivæðingu. En hvemig var það gert? Ekki skal gert lítið út þeim stjómmálamönnum, sem settu lög og mótuðu stefnur. Stjórnvöld höfðu forystu í landhelgis- baráttunni, viðreisnarstjómin jók á frjálsræði, alþingismenn beittu sér fyrir virkjunum. En allt heföi þetta verið unnið fyrir gýg, ef ekki hefði verið vilji og þrek hjá þjóöinni sjálfri til að ýta togurunum úr vör, vit til að Allt er undir einstakling’n - umkomið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.