Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1982, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1982, Blaðsíða 22
22 DV. LAUGARDAGUR 2. OKTOBER1982. RITARI Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir aö ráða ritara. Starfið er fólgið í vélritun og almennum skrifstofustörfum. Umsóknir ásamt upplýsirfgum um menntun, aldur og fyrri störf sendist starfsmannast jóra. Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegí 118 105 Reykjavik. HLJÓÐFÆRAVERSLUN Starfsmaður óskast í hljóðfæraverslun eftir hádegi. IMauðsynlegt að viðkomandi hafi bilpróf ásamt ein- hverri þekkingu á hljóðfærum og verslunarrekstri. Tilboð sendist auglýsingadeild DV, Þverholti 11, fyrir 8. okt. merkt: „Hljóðfæraverslun 00". Húsbyggjendur Önnumst alla jarövinnu t.d.: almenna fyllingu í plön eða grunna, uppgröft og fjarlægjum efni, röralagnir og sprengi- vinnu. Sköffum allar tegundir af fyllingarefni. Gerum föst til- boð ef óskað er. Leitið upplýsinga um verð hjá okkur. JVJ hf. Sími 54016 og 50997. kwwwwwwwwwwwwwwwwxwwwwww:-: Til sölu bílaverkstæði í fullum rekstri meö áhöldum. Verkstæðið er í leiguhúsnæöi. Tilboö leggist inn á auglýsingadeild DV fyrir 8. okt. merkt „BÍLAVERKSTÆÐI”. wwvwwwwwwvwvwwvvvvvvvvvvwvví: Staða bökasafnsf ræðings við Þjónustumiðstöð bókasafna er laus til umsóknar. Hálft starf kemur til greina. Ennfremur óskast skrifstofumaður í heilt starf. Reynsla í meðferð tollskjala og annarra innflutningsgagna æskileg. Umsóknir sendist formanni stjórnar ÞB, Þórdísi Þorvalds- dóttur, Stigahlíö 48,105 Reykjavík, fyrir 10. október. Fulltrúi Rafmagnsveitur ríkisins óska að ráða fulltrúa í innkaupadeild til að annast innlend innkaup fyrir vinnuflokka og rafveitu- stjóra. Umsóknir er tilgreini menntun, aldur og fyrri störf sendist starfsmannastjóra fyrir 16. október nk. Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi 118, 105 Reykjavik. Útboð Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfarandi: RARIK— 82044.132 kV Suðurlína, forsteyptar undirstöður, svæði 0. 1 verkinu felst framleiðsla á forsteyptum undirstöðum og stagfestum ásamt flutningi á þeim til birgðastöðva. Fjöldi eininga er 875, magn steypu 420 m3 og járna 44 tonn. Verkið er hluti af byggingu 132 kV línu frá tengivirki við Hóla í Hornafirði að tengivirki í Sigöldu. Verki skal ljúka 1. apríl 1983. Opnunardagur: Mánudagur 18. október 1982kl. 14:00. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, fyrir opnunartíma og verða þau opnuð að viðstödd- um þeim bjóðendum er þess óska. Utboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með mánudeginum 4. október 1982 og kosta kr. 200,- hvert eintak. Reykjavík 30. september 1982 RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS B1JUMTIL ÓPERU — íslenska óperan frumflytur barnaóperu eftir Benjamín Brttten Nú um helgina verður bamaóperan Búum til óperu eftir Benjamín Britten frumsýnd í íslensku óperunni. Tveir hópar söngvara skiptast á að flytja verkið og verða af þeim sökum tvær frumsýningar, sú fyrri í dag og sú síð- ari á morgun, sunnudag. Jón Stefánsson er hljómsveitar- stjóri, Þórhildur Þorleifsdóttir er leik- stjóri, Jón Þórisson er höfundur sviðs- myndar, Dóra Einarsdóttir gerði bún- inga og Guðný Helgadóttir er sviðs- stjóri. Verkið hefst á því að hópur fólks, bæði söngvarar, hljóðfæraleikarar og nokkrír krakkar, er saman kominn í Is- lensku óperunni og ákveður að færa upp óperu. Hver fær sitt verkefni við smíði óperunnar. Síöan er púsluspilinu raðað saman og óperan tilbúin; Litli sótarinn. Áður en flutningur óperunnar hefst eru áhorfendum kennd nokkur lög úr verkinu svo þeir geti tekið undir. Sagan gerist á ensku sveitasetri um aldamótin 1800. Söguhetjan Bjartur er átta ára. Faðir hans hefur orðið fyrir siysi og vegna fátæktar verður hann aö selja Bjart í henduraar á sótarameist- aranum Surti og Klunna syni hans. Þeir ætla sér að nota hinn smávaxna Bjart til að hreinsa þrönga reykháfa. Sviðið er baraaherbergið á sveita- setrinu. Sótararnir neyða Bjart upp í reykháfinn. Begga ráðskona skipar þeim fyrir verkum. Á heimilinu er einnig Rúna barafóstra sem aumkar Bjart. Börain á heimilinu, Silja, Glói og Soffia, eru í feluleik með frænd- systkinum sínum, Nonna, Hildi og Tinnu en þau eru í heimsókn. Allt í einu heyra þau neyðaróp úr reykháfnum og tekst þeim að bjarga Bjarti. Þau láta Bjart leggja sótuga slóð út um gluggann og fela hann síðan. Sótar- arair og Begga uppgötva hvarf Bjarts og hlaupa út til að leita hans. Á meðan er sótið þvegið af Bjarti. Morguninn eftir er Bjartur falinn í ferðatösku og borinn út úr húsinu af garðyrkjumönn- unum Alfreð og Tom. Bjarti hefur verið bjargað. Sem fyrr sagði munu tveir hópar skiptast á að flytja óperuna. Hlutverka- skipan verður eftirfarandi: Surtur: John Speight og Árai Sighvatsson. Klunni: Stefán Guðmundsson og Sig- urður Bragason. Begga: Anna Júlíana Sveinsdóttir og Elísabet Waage. Rúna: Elísabct Erlingsdóttir og Signý Sæmundsdóttir. Með hlutverk litla sótarans, Bjarts, fara þeir Gísli Guðmundsson og Gunnar Freyr Áraason. Eitt baraanna í verkinu er Silja, 16 ára, og syngur hún sópranaríu. Með þetta hlutverk fara þær Ásrún Davíðsdóttir og Marta Halldórsdóttir. Marta er aðeins 15 ára og má vænta mikils af henni. Krakkarair sem syngja í óperunni eru Araar Helgi Kristjánsson, Stein- unn Þórhallsdóttir, Ragnheiður Þór- hallsdóttir, Ólafur Einar Rúnarsson og Guðbjörg Ingólfsdóttir, Halldór Öra Ólafsson, Hrafnhildur Björasdóttir, Sólveig Áraadóttir, Halldór Ólafsson, Steinunn Ólina Þorsteinsdóttir og Þor- björa Rúnarsson. Um daginn voru blaðamenn DV við- staddir æfingu á Búum til óperu. Þetta var fyrsta æfingin i búningum og spenningurinn að vonum mikill, sér- staklega í baraaskaranum. Við tókum nokkra söngvara tali sem voru að syngja sitt fyrsta einsöngshlutverk á óperusviði. -gb. „Er ad æfa tvær og hálf a óperu” — segfr Þérhildur Þorlelfsdóttfr leikstjórf Búum til óperu er annað verkið sem Þórhildur Þorleifsdóttir leikstýrir hjá Islensku óperunni. Um þessar mundir er hún einnig önnum kafin við æfingar á þriðju óperunni, Töfraflautunni, sem ætlunin er að frumsýna innan tíðar. DV tók Þórhildi tali í æfingahléi: „Eg er frekar aö æfa tvær og hálfa óperu en bara tvær,” sagði Þórhildur, „því að í Búum til óperu eru tveir hópar sem munu skipast á og verða tvær frumsýningar, í dag og á morgun. Verkið er annars tvíþætt. í fyrsta hlutanum eru söngvarar, krakkar og hljóðfæraleikarar saman komnir í Is- lensku óperunni og gegnir hver sínu rétta nafni. Þessi hópur ætlar sér að semja og færa upp óperu. Síðan skipta þau með sér verkefnum og hef ja starf-. ið. Innan tíðar kemst mynd á verkið og óperan þeirra, Litli sótarinn, er til- búin. Hún er svo flutt í seinni hlutan- um. Fyrsti hlutinn er til þess gerður að venja áheyrendur við söngvana og sýna út á hvað þetta géngur allt saman. Upphaflega textann við óperuna samdi Eric Crozier. I seinni útgáfum á verkinu hefur textinn við fyrri hlutann verið felldur niður því höfundar töldu hann úreltan. Því er beint til flytjenda að semja nýjan fyrri hluta. Tómas Guðmundsson skáld þýddi á sínum tíma textann við allt verkið. I okkar flutningi er texti hans alveg lát- inn haldast í seinni hlutanum en ég hef staðfært fyrri hlutann,” sagði Þórhild- ur Þorleifsdóttir. Þrir aðstandendur sýningarinnar: Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri, Jón Þórisson höfundur leikmyndar og Dóra Einarsdóttir búningateiknari. DV-mynd: GVA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.