Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1982, Side 36
NÝJA
AGFAFILMAN
ÓTRÚLEGA SKÖRP
OG NÆM FYRIR LITUM
ÓDÝRARI FILMA SEM
FÆST ALLS STAÐAR
86611
AUGLÝSINGAR
SÍÐUMÚLA 33
SMÁAUGLÝSINGAR
SKRIFSTOFA
AFGREIÐSLA
ÞVERHOLTI 11
RITSTJÓRN
SÍOUMÚLA 12—14
27022
LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1982.
Næsta fyrirtæki í orkuf rekum
iðnaði á Eyjafjarðarsvæðinu?
Öll rök hníga að því, að mati bæjarráðs Akureyrar
Bæjarráö Akureyrar hefur sam-
þykkt, samkvæmt tillögu Sigurðar J.
Sigurðssonar og Gunnars Ragnars,
að leita eftir viðræöum viö iðnaðar-
ráðherra um orkufrekan iðnað á
Eyjafjarðarsvæöinu. Jafnframt eru
önnur sveitarfélög á Eyjafjarðar-
svæðinu hvött tU að gera sÚkt hiö
sama i tillögu bæjarráös sem kemur
til umfjöllunar i bæjarstjórn á
þriðjudag.
Bæjarráð Akureyrar hefur einnig
samþykkt svar viö spurningum frá
samstarísnefnd um iðnþróun á Eyja-
fjarðarsvæðinu. Þar kemur m.a.
fram, aö bæjarráö Akureyrar „telur
öll rök hníga aö þvi” að næsta fyrir-
tæki i orkufrekum iðnaöi hérlendis
verði á Eyjafjarðarsvæðinu. I fram-
haldi af því hvetur bæjarráð stjóm-
völd til aö hraða nauðsynlegum
rannsóknum á svæðinu. Niðurstöður
þeirra rannsókna veröi slöan lagðar
til grundvallar þegar ákvörðun um
shkan iðnað verður tekin, jafnframt
því sem samráð verði haft við íbúa á
svæöinu.
-GS/Akureyri.
Morfíih
stuldur úr
gúmbát
Brotist var inn í loðnuskipiö Sanda-
fell GK 82 þar sem það lá við bryggju í
Hafnarfiröi aðfaranótt fimmtudagsins
síöastliöins og stoliö þaðan morfíni.
Innbrotið uppgötvaöist um miöjan
dag á fimmtudag. Hafði verið rist á
gúmbát skipsins og hann eyðilagöur.
Sex morfínhylkjum úr honum var stol-
ið og matarbirgðum dreift hér og þar.
Enginn hefur verið handtekinn
vegna þessa máls sem er nú í rannsókn
hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins.
-GH.
Aftanákeyrsla
íKópavogi
Hörö aftanákeyrsla varð á Hafnar-
fjarðarveginum við Vogatungu í Kópa-
vogi rétt fyrir klukkan sex í gærdag.
Ökumaður annars bílsins var fluttur á
slysadeild Borgarspítalans nokkuð
slasaður.
Báöir bílarnir óku eftir Hafnar-
fjarðarveginum úr suðri. Á móts við
Vogatunguna, þar sem ekið er inn í
Kópavoginn, lenti annar bílanna,
Mazda-bíll, aftan á sendiferðabíl og
var áreksturinn geysilega harður.
ökumaður Mazdabílsins var fluttur á
slysadeild, talsvert slasaður. öku-
mann sendiferðabílsins sakaði ekki.
Mazdan er mjög illa farin en minna
sést á sendibílnum. -JGH.
Þegar
sekúndur
skipta máli
I dag munu þúsund sölumenn skáta
fara út á götumar og selja bókina Þeg-
ar sekúndur skipta máli, fyrsta hjálp í
umferðinni. I inngangi bókarinnar seg-
ir: „Fyrstu mínúturnar eftir bílslys
geta skipt sköpum fyrir slasaða. Þess
vegna skiptir miklu máli að þeir sem
fyrstir koma á slysstað viti hvað gera
skal. Enginn veit hvenær hann kemur á
slysstaö og þess vegna er nauðsynlegt
að hafa aflað sér þekkingar á skyndi-
hjálp. Þessi litla bók getur hjálpað þér
og þínum aö öölast grunnþekkingu á
skyndihjálp.” í bókinni, sem kostar
eitt hundrað krónur, er að finna grund-
vallarreglur skyndihjálpar og hvaða
hjálpargögn telst nauðsynlegt að hafa
við höndina viö aðstoð hinna slösuðu.
-EG.
Þrír fossar Eimskipafélagsins í Sundahöfn í gær. Fjærst er Áiafoss en
nær Lagarfoss og Dettifoss. Búast má við að landfestar verði leystar á
næstunni. UV-mynd: GVA.
Sáttatillaga ífarmannadeilunni:
SAMNINGANEFNDIR
UNDIRRITUÐU
Sáttasemjari lagöi í gær fram
sáttatUlögu í deilu farmanna og
skipafélaganna og undirrituðusamn-
inganefndir hana um hádegisbil.
Farmenn munu haida fund í dag þar
sem ákveöiö verður hvort verkfaU-
inu verði aflétt og er búist viö að svo
verði. Þegar er hafin lestun nokk-
urra kaupskipa og má ætla að nokk-
ur þeirra leggi úr höfn um helgina.
Atkvæðagreiösla farmanna um
sáttatiUöguna mun taka hálfan mán-
uö.
-ÖEF.
Flugstjóri sovésku
— neitar allri samvinnu
við yfirvöld í Lúxemborg
Frá Valgeiri Sigurðssyni, frétta-
ritara DV í Lúxemborg:
Flugstjóri sovésku þotunnar, sem
fórst í Lúxemborg á miðvikudags-
kvöld, hefur nú verið fangelsaöur.
Ákváöu yfirvöld í Lúxemborg aö
grípa til þessa ráðs þar sem flug-
stjórinn neitar allri samvinnu og
neitar að ræða um slysið.
Strangur lögregluvörður hefur
verið settur um sjúkrahúsið sem
aðstoðarflugmaðurinn liggur á.
Aðstoðarflugmaðurinn neitar einnig
að tjá sig nokkuð um flugslysið.
Flugvélstjóri þotunnar er einnig í
höndum lögreglu. Hann slapp
ómeiddur úr slysinu eins og flug-
stjórinn. Vélstjórinn er hins vegar
sagður samvinnuþýðari við yfirvöld.
Illa hefur gengið að afla upplýs-
inga frá stjórnvöldum í Moskvu.
Sovéska sendiráðiö þegir þunnu
hljóði. Meðal annars þurftu ættingj-
ar farþega aö bíða hátt í sólarhring
eftir upplýsingum frá sovéska flug-
félaginu.
Orðrómur er á kreiki um að far-
þegaþotan hafi verið búin njósna-
tækjum til notkunar á flugi yfir
Vestur-Evrópu. Ýtir sú staðreynd
undir orðróminn um aö Sovétmenn
hafi mótmælt harðlega er Banda-
ríkjamenn frá NATO-stöðvum í
Vestur-Þýskalandi’ hugöust skoða
flakið.
-KMU.
Fri slysstað. Slökkviliðsmaður sprautar á flugstjórnarklefa sovásku
þotunnar. Orðrómur er á kreiki um að þotan hafi verið búin njósna-
tækjum. DV-mynd: Valgeir Sigurðsson.
LOKI
Rússinn ættí að hafa
samanburð þegar honum
verður stungið inn þegar
heim kemur.
þotunnar í fangelsi