Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1982, Síða 1
RITSTJÓRN SÍMI 86611 • AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA SÍMI 27022
238. TBL. — 72. og 8. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTOBER 1982.
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR
Helmingur hinna ákveðnu
styður Sjálfstæðisflokk
—óákveðnum fjölgar—A Iþýöuflokkur tapar
Rúmur helmingur þeirra sem
tóku afstööu lýsti yfir fylgi við
Sjálfstæðisflokkinn í skoðana-
könnun um fylgi flokkanna sem
DV gerði fyrir rúmri viku. En
margir tóku ekki afstöðu. Hinum
óákveðnu fjölgaði frá könnun
DV í febrúar úr 32,5% af heild-
inni í 41,3%. A móti fækkaði
þeim sem ekki vilja svara spurn-
ingu um flokka úr 14% í 10,5%.
Könnunin sýnir að óvissa er mik-
il í pólitíkinni um þessar mundir
og mikið starf framundan fyrir
stjórnmálamenn að safna um
sig fylgi áöur en tU kosninga
kemur.
Af heildinni sögðust 25% nú
styðja Sjálfstæðisflokkinn, 11%
Framsóknarflokkinn, 7%
Alþýðubandalagið og 5,2%
Alþýðuflokkinn. Ef aðeins eru
teknir þeir sem tóku afstöðu hef-
ur Sjálfstæðisflokkurinn því
fylgi 51,9% Framsókn 22,8%,
Alþýðubandalag 14,5% og
Alþýöuflokkur 10,7%. Frá síð-
ustu könnun í febrúar hefur þvi
dregið úr fylgi Alþýðuflokks en
hinir hafa bætt við sig. -HH.
—s/á nánar á bls. 4-5 og viötöl
ábaksíðu
Blárefur skotinn
við Kleifarvatn
„Mér finnst það vera áhyggjuefni ef
þessi dýr fara að sleppa úr búunum.
Þetta er það sem við Islendingar höf-
um baríst gegn i langan tima og þaö er
þvi hart ef refirnir ganga lausir.”
Þessi orð mælti Þorvaldur Jóhannes-
son, en hann skaut bláref i Krýsuvík
við Kleifarvatn er hann var þar á ferö
á laugardaginn.
„Eg skaut hann með haglabyssu og
virtist hann vera mjög gæfur. Ég hæfði
hann ekki nógu vel í fyrsta skipti en
hann drapst við það næsta,” sagði Þor-
valdur ennfremur.
Hann taldi vist að refurinn hefði
sloppiö úr refabúinu í Krýsuvík, en
hann var ómerktur. Aðspurður kvaðst
Þorvaldur ætla að stoppa dýrið upp
enda er það mjög tignarlegt og feldur
þess fallegur með afbrigðum. Dýrið
var rúmlega tíu kíló aö þyngd.
—GSG
Þorvaldur Jóhannesson meö blárefinn sem hann skaut við Kleifarvatn á laugardag-
inn. DIf—mynd: Einar Ólason.
Kona slasaöist talsvert er hún varð fyrir bil á Hverfisgötunni um hádegisbil-
ið i gœrdag. Konan var á leið yfir Hverfisgötuna i átt að Smiðjustig er bill
sem ók upp Hverfisgötuna lentiá henni. Að sögn lögreglunnar kvaðst öku-
maðurinn ekki hafa sóð konuna fyrr en of seint en hann náði þó að draga
nokkuð úr ferðinni áður en konan varð fyrir bilnum. Konan var flutt á slysa-
deild Borgarspítalans. DV-mynd S.
Hitaveita Ákureyrar:
Greiðir húseigend-
um tæringartjónið
Stjórn Hitaveitu Akureyrar hefur
samþykkt að bæta húseigendum í Gler-
árhverfi það tjón sem rekja má til tær-
ingar af völdum súrefnis á veitukerf-
inu í sumar, en frá þeim skemmdum
hefur áður verið greint í DV. Þetta
kom fram í samtali DV viö Hákon
Hákonarson, stjórnarformann Hita-
veitunnar.ígær.
Hákon taldi eðlilegast aö hlutlausir
aöilar yrðu fengnir til að meta þær
skemmdir sem orðið hafi hjá hverjum
og einum húseiganda. Síðan greiði
Hitaveitan bætur samkvæmt því mati
fyrir þaö tjón sem þegar hefur orðið og
kemur til með að verða af völdum
áðurnefndra orsaka. Ekki hafa veríð
ákveðin tímamörkí því sambandi. -GS