Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1982, Blaðsíða 18
18
DV. ÞRIÐJUDAGUR19. OKTOBER1982.
í Bamaskólanum í Hnífsdal:
...Þari að ryðja skóla-
stofur fyrir jaróar-
farir og messur
Hressir kennarar: Bryndís Friögeirsdóttir (hún er rokkari aö aukastarfi, tromm-
ari hjá Sokkabandinu), Björg Baldursdóttir skólastjóri og Ingibjörg Þorleifsdótt-
ir. 1 öðrum enda skólastofunnar er pípuorgel en altari í hinum. Þegar kennt er er
rennihurðum einfaldlega skotið fyrir þá nauðsynjahiuti í messuhaldinu.
hkuv
msuv
Vikan óskar eftir sölubörnum til að
selja Vikuna í eftirtöldum hverfum:
i Breiðholt
i Fossvogur
> Vesturbær
1 Se/t/arnarnes
Kópavogur (vesturbær)
Hafnarijörður
Heimar
Kleppsholt
Ath. Blaðið er keyrt heim tilykkar. Uppl. gefnar á afgr. Vikunnar, sími
27022.
S'IMI 27022 - VIKAN AFGREIÐSLA
vniuv
nsuf
Tíðindamenn DV áttu leið um Vest-
firði daga tvo fyrir stuttu. Eftir að hafa
flengst um Isafjörð og Súðavík lá leiðin
til Bolungarvíkur, höfuðvígis íslenska
einkaframtaksins. Þótti hæfa að halda
jöfnuði við Isaf jörð sem nú hefur mál-
ast samvinnuhreyfingarlitum.
Þama á milli bæjanna er lítið þorp
sem tilheyrir Isafjarðarkaupstaö eins
og flestir vita, Hnifsdalur. Taisverðar
deilur voru um það á sinni tíð hvort
sameiningin væri æskileg en hún varö
og munu flestir allánægðir með það. Þó
heyrast alltaf raddir, einkum eldra
fólks, sem prisa fyrri tíma þegar
Hnífsdalur stóð einn og sér i striti
heimsins og treysti á eigið ágæti ein-
vörðungu.
Ekki þótti annaö fært en gera stuttan
stans og leita uppi viðfangsefni fyrir
hungraðar ritvélar og lesþyrstan lýð.
— Þá bar að tvær ungar stúlkur sem
kváðust vera á leiðinni í skólann. Þó að
við hefðum skimað nokkuö um þorpiö
varð skólahús aldrei fyrir okkur. En
þetta bjargaðist allt, við buöum
stúikunum að sitja í og þær visuðu veg-
inn inn í þrönga götu og að húsi sem á
engan hátt Iíkist skólahúsi. Ofán á því
trónar nefnilega kross. Á flestum
stöðum eru kirkjur þar undir en ekki
skólahús. Inn fórum viö samt og
spurðum eftir skólastjóra. Hann var
ekki við en kom fljótlega. Og það kom í
ljós að við vorum þarna á réttum tíma.
I ár er 100. starfsár Bamaskólans í
Hnífsdal. Við spurðum skólastjórann,
Björgu Baldursdóttur, hvort ekki ætti
að halda eitthvað upp á þetta.
„Við beindum þeim tilmælum til for-
eldra við skólasetninguna að gamlir
nemendur skólans rif juðu upp eitthvað
skemmtilegt frá liðinni tíð og kæmu
því á framfæri hérna. Svo höfum við
líklega skemmtun einhvem tíma í
mars.”
— Hvemig eiginlega stendur á
þessum krossi uppi á skólahúsinu ?
Árið 1953 fauk gamla skólahúsiö
sem var timburhús á steyptum grunni.
Það stóð þá héma rétt fyrir neðan.
Húsið fauk í heilu lagi og bömin sátu
eftir á grunninum. Tætlur úr húsinu
fóru vítt og breitt og um öll tún voru að
finnast bækur og blöð lengi á eftir. Slys
urðu merkilega litil á fólki.
Þegar þetta gerðist vantaði kirkju á
staðnum og hafði þannig staðið lengi.
Það var ákveðið að skella þessu saman
og byggja hús sem þ jónaði tvenns kon-
ar tilgangi, væri bæði skólahús og
kirkja. Húsið var svo byggt upp á met-
tíma.”
— Hvemigersvoaðkennaíkirkju?
„Þetta setur manni dálitlar skorður í
skólastarfinu. Það þarf til dæmis að
ryðja skólahúsið og gefa fri ef messur
em eða jarðarfarir á virkum dögum.”