Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1982, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1982, Page 36
36 DV. ÞRIÐJUDAGUR19. OKTOBER1982. DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL NÚ FÖRUM V® í SUND ÞVÍ ÞAÐ LÉTTIR LUND Góöan daginn, lesendur góðir. Dægradvölin í dag byggist á því að halda sér á floti. Við ætlum með ykkur í sund því þaö eru nefnilega svo margir sem segja að það létti lund. Við munum kafa djúpt ofan í laugina, því máltækið segir jú aö þeir gusi mest sem grynnst vaða. Sundið er hjá mörgum svo stór hluti af lífinu að menn segjast fyrst ætla í sund en síðan snúa sér aö áhugamálunum. Og sundið spyr ekki um aldur. Það er stundaö af ungum sem gömlum, háum sem lágum, mjóum sem breiðum. Og hver kannast ekki við fjölskyld- una sem fer í sund á sunnudags- morgnum. Steikin er elduð á laugar- Það kraumar í þér í heitu pottunum! Það fór heldur betur um þá í Laugar- dalslauginni þegar við Bjarnleifur Bjamleifsson ljósmyndari birtumst í karlasturtunum í fullum herklæðum. klyfjaðir myndavélum og skriffærum. En þegar þeir uppgötvuöu að við vor- um aðeins á leið út á sundlaugarbakk- ann létti þeim stórum. Maður veit aldrei hvað hefði gerst ef Bjamleifur hefði smellt nokkrum af. Þegar út á sundlaugarbakkann kom blasti við okkur ákaflega hressilegt fólk. Margir vora í heitu pottunum skrafandi saman um helstu dægurmál- in og það er greinilegt að þar eru mörg mál hitamál og alveg ljóst að upp úr getur soðið ef ekki er talað gætilega. Þá var fólk sífellt að stinga sér til sunds eða koma upp úr lauginni, hálf- skjálfandi, og auðvitað var farið beint í heitu pottana. Ah. . . ahuú. . . uu... hvað þeir eru notalegir. Og hann Bjaraleifur hafði ekki við að heilsa mannskapnum. Virtist þekkja hvem kjaft, eins og þaö er orðað. En við skulum sjá hvaða augum mynda- vél Bjarnleifs leit nokkra sundlaugar- gesti. Halldór Sigurdsson, Grétar Eiríksson og Haraldur A. Sigurdsson, þrír fastagestir i laugunum, og svo sannarlega gedþekkir menn. Grétar vinnur hjá Hitaveitu Reykjavíkur og hann sagðist hafa vatnið nokkuð heitt í dag eins og hann orðaði það. Og þeir voru sammála því að það vœri alveg dásamlegt að koma í laugarnar eftir vinnu. „Erum stífir fyrir” „Verst að þú ert hættur þingmennsk- unni, Halldór, því nú værirðu öruggur um sæti,” var sagt ísmeygilegri röddu er við gengum fram á þrjá heiðurs- menn er sátu á bekk við einn heitu pottanna. Það var Grétar Eiríksson, tæknifræðingur hjá Hitaveitu Reykja- víkur, sem mælti þessi orð. Og þarna var hann að tala við félaga sinn, Hall- dór Sigurðsson fyrrverandi ráðherra, en þeir sátu þama afslappaðir og kímnir ásamt Haraldi Sigurðssyni fyrrverandi bókaverði á Landsbóka- safninu. „Það er alveg dásamlegt að koma eftir vinnu í laugarnar,” sagði Halldór Sund Texti: Jón G. Hauksson Myndir: Bjarnleifur Bjamleifsson og bætti við að menn væru endur- nærðir eftir sundsprett og setu í heitu pottunum. „Annars erum viö heppnir að hafa hann Grétar hér með okkur,” skaut Haraldur inn í, ”enda ræður hann hita- stiginu héma,” sagði þá Halldór, kank- víslega. Grétar gat þá ekki annað en brosaö og sagði við þá hlæjandi: „Já, og ég hef þaðnokkuð heitt í dag.” Er ég spurði þá að því hvort þeir væru svonefndir fastagestir svöruöu þeir því játandi. „Við erum svona klukkutima í senn. Þetta er góð af- slöppun og ákaflega huggulegt að vera héma, auk þess sem góður félags- skapurfæstúrþessu,”sagðiHalldór. ' En hvað ef menn mæta ekki? „Maöur finnur fljótt fyrir því enda er skrokkurinn eitthvaö ööruvísi, ef ekki er mætt til að liðka sig. Við erum kannski líka svolítiö stífir fyrir,” sagði Halldór ennfremur. Við kvöddum þá félaga og það var greinilegt að hvíldin í laugunum reyn- ist þeim góö. Sannarlega geðþekkir félagar er sátu þarna hressir á bekkn- um. deginum og afgangamir síðan snæddir eftir sunnudagssundsprett- inn. Og oft má heyra krakkana segja, þegar leitað er að sunddótinu: „Mamma,hvar erskýlanmín,hvar er sundbolurinn minn?” Nú, auö- vitað þar sem þið settuð þetta síðast. „Já, en við erum búin að leita alls staðar og finnum það ekki. Alveg makalaust hvað dótiö okkar er ekki á þeim stað, sem það á að vera á, einmitt þegar við erum að verða of sein í laugina.” Krakkar mínir, andiði rólega, emð þið búin að kíkja út á snúrur eða þannig sko. „Já, alveg rétt.” Síðan er þeyst af stað með kútinn og korkinn og allt hitt sunddótið vafið inn í handklæðin. En hvað um það, við í Dægradvöl- inni kíkjum á sundlaugarbakkana í Laugardalslauginni og spjöllum þar við nokkm gesti. Þá verður rætt við Ragnar Halldórsson, forstjóra Islenska álfélagsins, en hann er fastagestur í sundlaugunum í Laugardal og hún Sigriður E. Olafs- dóttir verður tekin tali, en hún hefur í mörg ár vakið athygli fýrir það hve brún hún er. Og sumir segja líka að hún sé alltaf í lauginni. Jæja, við stingum okkur þá í laugina. Sundið er geysivinsæl dægra- dvöl, sem þúsundir stunda. Og það er hjá mörgum svo stór hluti af lif- inu að menn segjast fyrst ætla í sund en síðan snúa sér að áhuga- málunum. Sundið spyr heldur ekki um aldur. Það er stundað af ungum sem gömlum, háum sem lágum, mjóum sem breiðum. Og hafir þú gaman af tölum, þá viljum við segja þér að um 1,3 milljónir manna sóttu sundstaðina i Reykjavik á siðasta ári. Það er sæmilegur fjöldi — ekki satt? Þœr eru búnar að afgreiða marga lyklana þœr Svafa Tryggvadóttir og Vigdis Sigurðardóttir i gegnum tíðina. Og þeer hafa alltaf, eða svo til, fengið þá aftur, enda eru lyklarnir vel geymdir á lœrum sundgesta. Lykillinn er leið- in að lukkunni „Get ég fengið skáp í kjallaran- um.” Þeir em margir laugargestim- ir sem ávarpa þær stöllur, Svöfu Tryggvadóttur og Vigdísi Sigurðar- dóttur, með þessum orðum. Og stundum er einnig beðið um skýlu og handklæði Þegar þú hefur síðan fengið lykil- inn að skápnumertu á leið í lukkuna. Fötin komin í skápinn, þvottur undir heitri sturtu og þá skjálfandi beint í heita pottinn eða út í laug. Og auðvit- að ertu allan tímann meö lykillinn á lærinu, enda færðu hann aðeins lánaðan hjá þeim Svöfu og Vigdisi, ekki keyptan. Já, þaö skiptir miklu máli að viðmótið sé hið eina sanna þegar komið er i laugarnar. Sagan segir líka að starfsfólkiö eigimarga vinina ámeðalsundgesta. „ Við mœðgurnar förum oft í sund og ég tel það sérlega góða dœgra- dvöl, ” sagði Jóhanna Ólafsdóttir og hélt utan um dótturina, Emilíu Eiríksdóttur. „Dóttirin pantar sundtíma” „Við mæðgumar fömm mjög oft í sund og ég tel þaö sérlega góöa dægra- dvöl,” sagði Jóhanna Olafsdóttir er við Bjamleifur kölluðum til þeirra út í laug og spurðum þær um sund sem dægradvöl. „Þaö kemur oft fyrir að dóttirin pantar sundtíma áður en ég fer í vinn- una á morgnana og við skreppum þá seinni partinn,” segir Jóhanna enn- fremur. Hún sagði að þær byggju rétt hjá Laugardalslauginni og því væri stutt að skreppa að'fá sér sundsprett. „Ætli ég syndi ekki svona tvö hundmð metra í hvert sinn,” svaraði Jóhanna er við spuröum hana hve marga metra hún synti þegar hún færi í laugamar. En hvort er farið beint út í eða í heitu pottana áður? „Mér finnst nú betra aö fara beint út í laug, enda er maður máttlausari í sundinu ef farið er fyrst í heitu pottana,” sagði Jóhanna Olafs- dóttir aölokum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.