Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1982, Síða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1982, Síða 37
DV. ÞRIÐJUDAGUR19. OKTOBER1982. 37 DÆGRADVÖL DÆGRADVOL DÆGRADVÖL Nei, hvad sjáum vid ekki. Óþekkti kafbáturinn í Svíþjóð kominn upp á yfirborðið og það í Sundlauginni í Laugardal. Og hann reyndist þá ís- lenskur eftir allt saman. Ekki er annað að sjá en áhöfnin láti glenslega eftir erfiða daga. Skipherrann segir enda: „Ég var með þetta allt á hreinu drengir og túrinn gekk vel. ” Sigríður á leið inn í anddyri Sundlaugarinnar í Laugardal. „Pabbi (Ólafur Haraldsson í Fálkanum) fór með okkur systurnar klukkan sex á morgnana í gömlu laugarnar. Þar sem þær opnuðu ekki svo snemma fékk hann lykilinn að þeim lánaðan hjá þeim brœðrum Jóni og Ólafi Pálssonum. Þetta var gríðarlega stór koparlykill sem ég man alltaf eftir. ” . . .og komin að einum heitu pottanna. Sigríður er ótrúlega vel á sig komin af 71 árs gamalli konu að vera. Kannski engin furða, því hún syndir minnst þúsund metra á degi hverjum og hér á árum áður var það nokkru meira. „Heitu pottamir era hreint meistaraverk” það er Sigríður E. Ólafsdóttir, eða „brúna konan” í laugunum, sem svomælir Ragnar Halldórsson á skrifstofu sinni hjá íslenska Álfélaginu i Straumsvík. „Sundið er mjög hressandi og maður vaknar vel við að fara í sund á morgnana. ” Hann segir jafnframt að þeir morgunmenn í laugunum séu ákaflega vanafastir. DV-mynd: Sigurður Þorri. Sundið er mjög hressandi — segir Ragnar Halldórsson forstjóri sem er fastagestur f laugunum , jSundið er m jög hressandi og maður vaknar vel við að fara í sund á morgnanasagði Ragnar Halldórsson er við ræddum við hann um dægra- dvölina, okkar, sundið. Ragnar er einmitt einn áf þeim sem sækja sund- laugarnar reglulega. „Ég hef farið í sund á morgnana í ein fjórtán eða fimmtán ár en kemst þó ekki alltaf, eins og gengur. Reyndar er ég ekki mikill sundmaður en syndi þó um hundrað metra í hvert skipti. Þá er farið í heitu pottana og að lokum í kalda sturtu,” sagði Ragnar ennfremur. En Ragnar er ekki einn um það að sækja laugamar á morgnana því þeir eru f jölmargir fastagestirnir sem eru mættir á slaginu tuttugu mínútur yfir sjö. „Jú, þetta er alltaf sama fólkið sem mætir. Þarna eru menn eins og Ottó Michelsen, Böðvar Kvaran og Torfi Jónsson, svo ég nefni nokkra,” sagði Ragnar og bætti síðan við: „Og menn eru mjög vanafastir. Yfirleitt er beðiö um sömu skápana, menn fara í sömu sturtumar og sitja svo á sama stað í heitu pottunum, þar sem rabbaö ersaman.” Ragnar sagði að sér þætti galli hve sundlaugarnar í Laugardalnum voru opnaðar seint á morgnana. Hann teldi of seint að opna þær klukkan tutt- ugu mínútur yfir sjö því þetta gerði það að verkum að margir ættu þess ekki kost að sækja þessar annars góðu laugar áður en farið væri í vinnuna á morgnana. Viö höfðum mælt okkur mót fyrir ut- an heimili hennar á Njálsgötunni kortér yfir fimm einn eftirmiðdaginn fyrir stuttu. Er ég kom á Njálsgötuna stóð hún fyrir utan heimili sitt með sunddótið. Hún var á leið í laugarnar í Laugardalnum, þangað sem hún hefur svo oft farið á undanfömum áratugum. Hún settist upp í bílinn hjá mér og viö ókum af stað í Laugardalinn og auðvit- að tókum við tal saman. Konan sem ég er að ræða um heitir Sigríður E. Olafs- dóttir. Hún er öllum laugargestum kunn sem brúna konan sem er svo oft í laugunum. „Ævintýrið byrjaöi í Gömlu laugun- um,” sagði Sigríður á leið okkar inn eftir. „Pabbi fór þá með okkur syst- urnar klukkan sex á morgnana í gömlu laugarnar. Þar sem þær opnuðu ekki svo snemma fékk hann lykilinn að þeim lánaða hjá þeim bræðrum Jóni og Olafi Pálssonum. Eg man alltaf eft- ir lyklinum, því þetta var gríðarlega stór koparlykill,” sagði Sigríður enn- fremur. Þetta var þegar Sigríður var tíu ára og á þessum árum lærði hún sund hjá þeirri mætu konu Ingibjörgu Brands- dóttur. „Ég hef síðan alltaf verið mikil sund- og íþróttakona. Var í dýfingum og hlaut einu sinni viðurkenningu í þeim,” sagði Sigríður og bætti síðan við að Iþróttaráð Reykjavíkurborgar hefði viðurkennt sig árið 1980 fyrir iðk- uníþrótta. Sigríður býr sem fyrr segir á Njáls- götunni og á hverjum degi gengur hún þaðan í laugarnar. „Er um hálftíma hvora leið og það skiptir mig engu máli hvernig viðrar,” segir hún. En hvernig í ósköpunum skyldi hún fara að þvi að vera alltaf jafnbrún og raun ber vitni? ,,Fyrst og fremst er það erfð. Ég er fædd nokkuö dökk en með því að vera mikiö úti við og í sólbaði tekst mér aö halda mér brúnni. Eg er ekki í ljósum og ég fer ekki til sólarlanda, þannig að þetta er fengið með því að vera mikiö úti við allt árið um kring hér á landi.” Eg spurði hana næst aö því hvað það væri við sundið og allar sundferðirnar sem væri svona eftirsóknarvert. „Laugarferðirnar eru andleg og líkamleg dásemd og maður hressist og endurnýjast við að synda. Og ég held aö enginn myndi gera neitt betra við frítíma sinn en hressa sig viö og fara í laugarnar. Og laugin hér í Laugardaln- um er einstök og það er ekki síst að þakka frábæru starfsfólki sem er ein- staklega vingjamlegt. Heitu pottarnir eru til dæmis hreint meistaraverk, furðulega góðir.” Andlitin þekkjast Sigríður sagði aðspurð að hún kæmi oftast í laugarnar um og upp úr hádeg- inu og eyddi dr júgri stund í laugunum. Hún kvaöst þekkja mjög marga þó hún vissi ekki nöfnin á sundgestunum. „En andlitin þekkjast,” eins og hún sagði. Við vorum nú komin í laugamar og Sigríður var greinilega komin á kær- kominn stað. Fólk nikkaði til hennar í dyragættinni um leið og hún birtist. Hún fékk lykilinn að skápnum og eftir að hún var komin út að heita pottinum og Bjamleifur var búinn að mynda hana kvaddi ég hana með virktum. Konuna sem mig hefur alltaf langað til að vita hvers vegna væri svona brún, þegar ég hef skroppið í laugamar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.