Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1982, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1982, Page 19
DV. ÞRIÐJUDAGUR19. OKTOBER1982. 19 að húsið tók beint upp. Bamaskólahús Hnífsdælinéa í gær, er kennsla stóð yfir. Það er talið ganga krafta- verki næst, að ekki varð mann- tjón, er barnaskólahúsið í Hnífs daí'fauk af grunninum um 11- leytið í gærmorgun, en ekki er talið liklegt, að neittbarnanna. það hefði fokið líka, hefðu fáir I eða engir sloppið lífs af. Sjálft húsið tókst svo hátt á loft, aðl það bar við fjallsbrún, og faukl yfir mörg hús. Brak úr þvi fór I inn um þak á öðru húsi, ogj Urklippa úr Visi 28. febrúar 1953. Atburðurinn sem þarna er lýst leiddi til þess að skóli og kirkja sameinuðust undir einu þaki. ara. Þá væri hægt að nota kirkju- stofurnar sem samkomusal.” — Hefur skólinn ekkert bókasafn? „Nei, en það er útibú frá almenn- ingsbókasafninu hér í næsta ná- grenni.” — Hvað með íþróttaaðstöðu? „Það er íþróttasalur hér en hann er lítill. Leikfimi hefur verið kennd í fé- lagsheimilinu.” — Hvernig er tónmenntakennslu háttað? „Tónlistarskólinn hefur hér aðstöðu og eins hafa unglingar fengið inni til að spila borðtennis s vo að húsið er fullnýtt uppítopp.” — Félagslífið? „Það er mjög blómlegt. Undanfama vetur hefur hér veriö kennd leiklist. Ásthildur Þóröardóttir hefur kennt og sett upp leikrit að loknum þessum námskeiðum. Þetta hefur verið fastur tími á stundaskrá allra nemenda. Svo stendur skólafélagið fyrir diskótekum, þorrablóti, kvöldvökum, spilakvöldum og öðru slíku. Foreldrum er alltaf boðið á þessar skemmtanir og þeir nýta sér það vel. Ágóöinn rennur í ferðasjóð. Annað hvert ár fara 11 og 12 ára nemendur í 2ja til 3ja daga feröalag.” Þessi hundrað ára skólastofnun, Bamaskólinn Hnífsdal, hefur 6 fyrstu bekki grunnskólans. Þá halda krakk- amir á Isafjörð í leit að frekari mennt- un. Björg skólastjóri var loks spurö hvort hún ætti sér einhverja ósk um veglega gjöf skólanum til handa á merkum tímamótum. „Ja, það væri náttúrlega góð afmælisgjöf að fá loforð fyrir viðbygg- ingu.” JBH — Hvað em nemendur margir núna og hvemig hefur gengið að fá kenn- ara? „Nemendur eru um 50 og þeim f jölg- ar nokkuð vegna örrar uppbyggingar á staðnum. Og það hefur gengið alveg stórkostlega vel að fá kennara. Hér era 2 kennarar í fullu starfi og 1 stunda- kennari fyrir utan skólastjóra, handa- vinnu- og íþróttakennara. Föstu kenn- aramir eru allir með réttindi.” — En tækjabúnaðurinn, er hann viðunandi? „Það hefur verið gott samstarf bæði við skólane&id og bæjaryfirvöld að fá það sem við höfum beöiö um. Eg held að skólinn megi kallast vel búinn miðaöviðstærð.” — Einhverjar byggingafram- kvæmdir á döfinni? „Nei, en ég hef fullan áhuga á að farið verði að huga að því. Til dæmis að byggja 2—3 skólastofur, aöstöðu fyrir bókasafn og vinnuaöstöðu fyrir kenn- Þær voru að föndra með leir, þessar ungu stúlkur úr Hnifsdal. Frá vinstri: Anna Elín, Anna Sigríður, Gabríela og Guðrún. Jú, það er rétt til getið, Anna Sigríður og Gabríela era tvíburar. DV-myndir Bj.Bj. Sagnfræði- félagið Ingólfur endurreist — eftir 40 ára svefn Framhaldsstofnfundur félagsins Ingólfs verður haldinn í kvöld, þriðjudagskvöld, i Ámagarði við Suðurgötu, stofu 201. Hefst hann kl. 20.30 og allir áhugamenn um sagn- fræði boðnir velkomnir. Félagið Ingólfur var upphaflega stofnað árið 1934. Markmiö þess var að safna og gefa út hvers kyns sögu- legan fróöleik úr héraði því, sem Ingólfur nam upp úr 874, þ.e. Stór- Reykjavíkursvæðið og Suðurnes. Komu út tíu hefti undir nafninu Landnám Ingólfs. Safn til sögu þess. Þá kom stríðið og f élagiö lagðist í dá. Nú hafa áhugamenn um sagnfræði ákveðið að lífga félagið við og hefja útgáfu að nýju. Er Bjöm Þorsteins- son prófessor þar fremstur í flokkL Flytur hann erindi á fundinum um landnám Ingólfs, sem mun síðan birtast í greinahefti undir þessu nafni á vegum félagsins. Þar verða einnig greinar um Vatnsleysuhrepp á 19. öld, um verslunarlífið í Reykja- vík um 1870, vitamál á Suðurnesjum fram til 1900, félagið Ingólf á fyrra æviskeiði 1934—1942 og fleira. ihh. Hljómplata með samkór Selfoss Nýlega kom á markaðinn hljóm- plata með söng Samkórs Selfoss og ber hún nafnið „Þú bærinn minn ungi...” Stjórnandi kórsins er Björgvin Þ. Valdimarsson. Á plötunni era lög eftir stjórnand- ann, Björgvin Þ. Valdimarsson, Pálmar Þ. Eyjólfsson, Sigvalda Kaldalóns, Sigurð Ágústsson og Þór- arin Guðmundsson. Á plötunni era einnig þjóölög frá Ungverjalandi, Noregi, Katalóníu og þjóðlag í út- setningu Toivosaari. Píanóleikari með kórnum er Geirþrúður F. Bogadóttir en aðrir hljóðfæraleikarar era Gísli Helgason á flautu, Helgi Kristjánsson á gítar og Björgvin Þ. Valdimarsson á trompet. Einsöngvarar með kórnum eru SiguröurP. Bragason og Július Vifill Ingvarsson. Samkór Selfoss var stofnaður árið 1973 og var fyrsti stjórnandi hans Jónas Ingimundarson. Árið 1979 hélt kórinn í vel heppnaða tónleikaferö til Noregs. LONDON HELGARFERÐIR „ Verö fra kr. 5.563,- pr. mann í tveggja manna herbergi. FERÐASKRIFSTOFA. I&naöarhúsinu Hallveigarstigl. Slmar 28388 og 28580

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.