Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1982, Síða 5
DV. ÞRIÐJUDAGUR19. OKTOBER1982.
5
Skoðanakönnun DV umfylgi flokkanna:
Sjálfstæðisflokkurinn
hefur um 50 af hundraði
Lúxus heimilistæki
HAUSTT1LBOÐ
Ummæli fólks íkönnuninni:
„Menny ekki flokka”
„Þaö er bara einn maöur sem ég
kýs og hann er sjálfstæðismaður,”
sagði kona á Akranesi, þegar hún
svaraði spumingunni í skoðanakönn-
uninni. Margir, sem sögðust styðja
Sjálfstæðisflokkinn, tóku fram, að
þeir væru „með Gunnari” eða „á
móti Gunnari”. Þeir, sem lýstu
stuðningi við ákveðinn flokk, voru
fáorðir um hvers vegna þeir gerðu
það. Þeir sem voru óákveðnir voru
miklu fúsari til að gefa skýringar.
„Eg kýs þá sem lofa mestu, get því
ekkert sagt um það hvað ég kýs í
dag,” sagði kíminn bóndi á Suður-
landi. „Það er ómögulegt að segja til
um hvað maður kysi i dag. Það fer
eftir því, hvaða valkostir yrðu,”
sagði karl á Norðurlandi vestra. „Ég
get ekki sagt til um hvaða flokk ég
kysi í dag. Það fer eftir ýmsu, til
dæmis hvaða menn eru í framboöi,”
sagði kona á Norðurlandi vestra.
„Eg kýs aldrei til Alþingis,” sagði
kona á Norðurlandi eystra.
„Eg kýs bara eftir því, hvaða
menn eru í framboði, engan sér-
stakan flokk,” sagði kona úti á landi.
„Það er ákaflega erfitt að svara
þessari spumingu sem stendur. Allt
er svo óvíst. Þó mundi ég hugsanlega
kjósa kvennaframboð, ef það bæri
fram þokkalegan lista,” sagði kona í
Reykjavík. (Aðrir nefndu ekki
kvennaframboð). „Eg mundi kjósa
skátahreyfinguna eða hjúkrunár-
konur. Þessir aðilar era alveg eins
líklegir til að gera eitthvað
marktækt,” sagði karl í Reykjavfk.
„Þaö er sami rassinn undir öllum
flokkum,” sagði kona á höfuðborgar-
svæðinu. ”Eg er annars á móti
flokkakosningum til Alþingis. Eg vil
kjósa menn, ekki flokka,” sagðikona
í Reykjavík. -HH.
kjördæmaskipaninni, gæfi þetta fylgis-
hlutfall Sjálfstæöisflokknum 31
þingmann. Framsókn fengi þá 15,
Alþýðubandalagið 8 og Alþýðuflokk-
urinn 6. Breytingin frá skoðanakönn-
uninni í febrúar er þá að Alþýöuflokkur
tapaöi tveimur þingmönnum en Sjálf-
stæðisflokkur og Framsókn ynnu einn
hvor.
Um samanburð við fyrri kannanir á
kjörtímabilinu og úrslit þingkosn-
inganna í desember 1979 vísast annars
til meðfylgjandi taflna og línurits.
Urtakið í skoðanakönnuninni vora
600 manns. Þar af var helmingur á
höfðuborgarsvæðinu og helmingur af
hvora kyni. Spurt var: Hvaða flokk
mundir þú kjósa, ef þingkosningar
færu fram í dag? -HH.
—þeirra sem taka af stöðu—óákveðnum fjölgar — Alþýðuf lokkur tapar
Fyrir litlu heimilin, meðan birgðir endast
Elektro Helios
Kæliskápur KG161
Úrvals kæliskápur fyrir lítil
heimili eöa sumarhús.
Mjög lítil straumnotkun.
132 lítra 15 lítra frystihólf.
Mál: Breidd 55 cm. Hæö:
85 cm. Dýpt 60 cm.
Kr. 5.845.-
Elektro Helios
uppþvottavélin DB 40
Tekur Iftið pláss, getur staöiö
á borði. Tekur fullan borö-
búnaö fyrir 4. Einstaklega
fljótvirk og lágvær. Vélin
getur veriö laustengd viö
krana. Mál: breidd 46 cm.
Hæö: 47 cm. Dýpt 53 cm
Kr. 7.455.-
EINAR FARESTVEIT & CO. HF
B«rgstaöastra»ti 10 A Sími 16995
Um helmingur þeirra lanasmanna,
sem taka afstöðu, styður Sjálfstæðis-
flokkinn samkvæmt skoðanakönnun
sem DV gerði fyrir rúmri viku. Þetta
er nokkuð svipað hlutfall og var í
síöustu skoðanakönnunum. En undir-
strika verður að mikill hluti lands-
manna er óákveðinn um afstöðu til
flokkanna. Hinum óákveðnu hefur
f jölgað frá fyrri könnun DV í febrúar
síðastiiðnum en þeim hefur fækkað
sem ekki vildu svara spumingunni í
könnuninni.
I könnuninni nú sögðust 41,3 af
hundraði vera óákveðnir um hvaöa
flokk þeir mundu kjósa ef þingkosn-
ingar færu fram nú. Oákveðnir í könn-
uninni í febrúar voru 32,5 af hundraði
af heildinni. Á móti fækkar þeim sem
ekki vilja svara úr 14 af hundraði í 10,5
afhundraði.
Af heildinni segjast 25 af hundraði
mundu kjósa Sjálfstæðisflokkinn.
Framsókn nýtur fylgis 11 af hundraði,
Alþýðubandalagið 7 af hundraöi og
Alþýðuflokkur 5,2 af hundraði.
Ef við tökum aðeins þá, sem taka
afstöðu, fær Sjálfstæöisflokkurinn
51,9% í þessari könnun (hafði 50,2% í
könnunífebrúar).
Framsókn fæp 22,8 af hundraði
(22,7%). Alþýöubandalagið fær 14,5 af
hundraði (13,4%). Alþýðuflokkurinn
fær 10,7 af hundraði (13,7%). Alþýðu-
flokkurinn tapar því frá síðustu
könnun en þá hafði hann nokkuð veriö
að hjarna við frá könnunum á fyrra
ári.
Þegar litið er á það fylgi, sem Sjálf-
stæöisflokkurinn fær i slíkum könn-
unum, skiptir miklu að þar era bæði
stjómarandstæðingar og stjórnar-
sinnar saman komnir undir einum
hatti. Enginn veit, hvernig það fylgi
gæti skilað sér í þingkosningum. Slíkt
færi eftir því, hvemig gengi að
sameina þetta lið á f ramboðslistum.
Ef við skiptum þingsætum í hlutfalli
viö fylgi flokkanna en gerðum ráð f yrir
að Framsókn græddi einn mann á
C'i
rs
HJOLBAROAHUSIÐ h f
SKEIFAN 11 (við hliðirta á bílasölunni Braut) SÍMI 31550.
Vorum að fá MJÖG ÓDÝRA radial vetrarhjólbarða. Gerið
verðsamanburð — Mikið úrval af dekkjum — nýjum og sól-
uðum.
GÓÐ
INNIAÐSTAOA
OPIÐ
ALLA DAGA