Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1982, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1982, Síða 16
16 DV. ÞRIÐJUDAGUR19. OKTOBER1982. Spurningin Hvernig líkar þór nýja morgunútvarpið? Ingunn Benediktsdóttir kennari: Eg hef nú bara ekki fylgst mikið með því, heyrði þó aðeins í morgun. Mér finnst gott að leyfa fólki að segja sina skoðun. Þetta er líka öllu frjálsara en var. Sólveig Guðmundsdóttir, húsmóðir og aðstoðarstúlka á barnaheimili: Eg held bara aö ég hafi ekki heyrt mikið í útvarpi. Þaö sem ég hef heyrt af þættinum er gott. Leikfimin er mjög góð. Hún er ólík því sem var og það hlýtur að hafa verið erfitt fyrir nýja manneskju aö taka viö. Þóra Stefánsdóttir húsmóðir: Eg fylgist ákaflega lítið með því. Samt er nú það fyrsta sem maöur gerir á morgnana aö kveikja á útvarpinu. Og’ þetta er allt annað og betra en var. Morgunleikfimin er alveg sérstök, verulega góð. Gottfreð Árnason viðskiptafræðingur: Mér finnst margt ágætt í því. En fréttamenn verða að reyna að ná fram skoðunum beggja aðila á málum. Eg vona bara að stjómendur morgunút- varpsins reyni það. Ástvaldur Stefánsson málari: Mér finnst þátturinn bara góður, fjörlegur og skemmtilegur. Ég hlusta á hann á leiðinni í vinnuna. Það er sjálfsagt að breyta til annaö slagið, breytingar eru til bóta. Jón Kristjánsson pensjónisti: Það er ágætt, ég fylgist með því frá 7. Það er úr nógu að velja. Mér finnst hafa verið skipt vel yfir. Morgunleikfimina hefði ég viljað hafa svipaða og var, mér finnst þetta eiginlega ekki morgunleik- fimi. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Líkan að f yrirhuguðu útvarpshúsi. HVERNIG UTVARPS- STðD VIL ÉG? Þórhallur Már Sigmundsson skrifar: 1. Utvarpsstöð, sem rekin er af aðilum sem bæði hafa þekkingu og áhuga á starfseminni. 2. Utvarpsstöð, sem tekur fullt tillit til óska og þarfa sem flestra hlustenda sem veita eigendum og starfsfólki stöðvarinnar aðhald í sem flestu er varðar starfsemina. 3. Utvarpsstöð, sem hefur þaö að leiðarljósi að létta mönnum stundir frekar en að ausa yfir hlustendur úr hyldjúpum menningarbrunnum til að fylla upp í einhvem menningar- legankvóta. 4. Utvarpsstöð, sem fylgist með tækni- legum nýjungum hjá þeim sem lengst hafa náö (t.d. Bandarikin og Japan) og sem reynir að bjóða hlustendum upp á það besta á því sviði á hverjum tíma. 5. Utvarpsstöð, sem býður hlustendum sínum ekki upp á útslitnar og tæknilega ónýtar plötur, enda verði notuð bestu fáanleg hreinsitæki til viðhalds á plötusafni stöðvarinnar. 6. Að þeir sem koma fram í slíkri stöð tali skýra og fallega íslensku og hafi brennandi áhuga á starfi sínu og leggi allan sinn metnað í það að gera sitt besta, enda verði ekki um neinar pólitískar æviráðningar að ræða. 7. Að ekki sé um að ræða klukkutíma langan upplestur á auglýsingum og að þær verði settar fram á smekklegan hátt, svo aö þær veröi bæði auglýsendum og stöðinni til sóma og hlustendum ekki til ama. 8. Að stöðin ráði sjálf sínum útsendingartíma og að auglýsendur og útvarpsstöð komi sér saman um auglýsingagjald, óháð afskiptum hins opinbera. 9. Að stöðin sé í nánum tengslum við hlustendur (t.d. með opnum síma- iínum og skoðanakönnunum) og að þulir séu svo frjálslegir í framkomu að maður hafi ekki á tilfinningunni að þeir séu sífeilt að ávarpa hátiðar- samkomur. Lesendur góðir! Nú hef ég sett fram nokkur atriöi um hvemig útvarpsstöð ég vil og spyr þig að lokum. Hvemig útvarpsstöð vilt þú? Fjárhagur bæjarstjómarinnar á Neskaupstað: Heimili sem fengi lánað fyrir mjólkinni Pétur Óskarsson húsasmiður, Norð- firði, hringdi: Eg hlustaði á Loga Kristjánsson, bæjarstjóra í Neskaupstað, í fréttavið- tali í útvarpinu snemma í síðustu viku. Það snerist um slæma afkomu bæjar- félaga á landinu. Hann taldi að loðnubresturinn væri ein aðalorsökin fyrir fjárhagsvandan- um. Eg vil'mótmæla þessu. Um loðnu- brestinn var vitað fyrir ári síðan. Samt var ráðist í miklar framkvæmdir á Neskaupstað, bæði við gatnagerð og byggingu fjölbrautaskólans. Þama var farið allt of geyst og hefði verið vit- urlegra að draga úr framkvæmdum þegar fyrirsjáanlegt var að tekjur yröu engar af loönunni. Við stjóm bæjarfélags verður, eins og við stjóm heimilis, að laga útgjöldin eftir tekjunum. Það þætti léleg hús- móðir sem þyrfti að fá lánaö fyrir mjólkinni frá degi til dags. Ekki er hægt endalaust að gera út á lán, það þekki ég sjálfur af reynslunni. Eins vil ég mótmæla því að fjárhag- ur Neskaupstaðar sé nokkurn hlut betri en annarra sveitarfélaga. Ég tel mig hafa öruggar heimildir fyrir því að bæjarsjóöur sé stórskuldugur, bæði Spurt vegna verkfalls: frá degi til dagsþætti illastjómað við Kaupfélagiö Fram og aðra. Og um síöustu mánaöamót gat bæjarsjóður ekki greitt út laun fyrr en 5. eða 6. októ- ber. Að afsaka skuldirnar með loönu- bresti finnst mér hins vegar einkenn- andi fyrir alþýðubandalagsmenn. Þeir gera allt út á lán og eitthvað væntan- legt og kenna síðan náttúruöflunum um þegar illa fer. Um menntun og ábyrgö mjólkurfræðinga Sigríður Ólafsdóttir, 7651-7665, hringdi: Mér er, eins og mörgum, heitt í hamsi vegna verkfalls mjóikurfræð- inga. Mig iangar að biðja ykkur að fá svör við eftirfarandi spumingum: 1. Hvaöa menntun þurfa mjólkurfræð- ingar að hafa hér á Islandi? 2. Við hvaöa vinnu starfa þeir í mjólkurbúum? 3. Hvaða ábyrgð bera þeir gagnvart neytendum? 4. Hve margir mjólkurfræðingar starfa á íslandi? Lesendur Innan við hundrað Það em áreiöanlega margir fleiri en Sigríður sem gjarnan vildu spyrja hins sama. DV hafði samband við for- mann Mjólkurfræðingafélags íslands, Guðmund Sigurgeirsson, Mjólkurbúi Flóamanna, og fékk eftirfarandi svör: 1. Fjögurra ára iðnnám. Þrjú ár í verklegu í mjólkurbúum hér heima og síðan tæpt ár í bóklegu erlendis, oft Danmörku. Margir taka síðan framhaldsnám einn vetur erlendis, en þaö þarf ekki til þess að öölast réttindi. 2. Sjá um framleiðslu á hvers kyns mjólkurvörum. 3. Að koma viðkvæmri neysluvöru óskemmdri í hendur kaupenda. 4. Áttatíutilníutíu. Mjólkurfræðingar við ostagerð í Mjólkurbúi Flóamanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.