Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1982, Síða 35
DV. ÞRIÐJUDAGUR19. OKTOBER1982.
35
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Þorgeir Ástvaldsson hefur nýveriö
gefiö út sína fyrstu sólóplötu. Nefnist
hún Á puttanum. Þorgeir þarf vita-
skuld ekki aö kynna, en blaðamaður
DV skundaöi á fund hans og forvitnað-
ist umplötuna.
— Þú ert einn á ferö aö þessu sinni,
Þorgeir.
,,Já, ég er einn á ferö í þeim skilningi
að ég er lagasmiður og söngvari aö
hluta til á plötunni. Þetta tækifæri
barst upp í hendumar á mér og ég sló
til. Einfaldlega vegna þess að maður
er búinn aö vasast í þessu síöan í gagn-
fræðaskóla. Eg hef oft verið í því aö
kynna tónlist annarra og því þá ekki að
gera eitthvað s jálfur! ”
— Ogertuánægöurmeðútkomuna?
„Eg er mjög ánægður með útkom-
una. Samstarfið hjá okkur var mjög
gott. Sérstaklega samvinnan við texta-
höfundinn, Bjartmar Guðlaugsson.
Textar eru oft höfuðverkur á plötum af
þessu tagi, en þegar upp er staðið er
maður ánægður með að hvert lag á
plötunni hefur einhverja meiningu,
sem tengist kannski fyrst og fremst
mér persónulega. Ekkert lag varð til
við píanógarminn heima, án þess að
eitthvert „tema” væri haft í huga.
Yfirbragðið á plötunni er auðvitað létt,
en ég held að það megi finna eitthvað
aðeins dýpra á henni líka. Margir af
textunum urðu ekki endanlega til fyrr
en í stúdíóinu, þannig að texta-
höfundurinn vann ekkert síður við upp-
tökurnaren ég.”
— Af hverju kallarðu plötuna Á
puttanum?
„Það lætur náttúrlega létt í eyrum.
Kannski er líka sjálfslýsing fólgin í
þessu. Eg er búinn að vera á puttanum
í bransanum í mörg ár og hef tekist á
við ýmis verkefni. Eg hef starfaö með
mörgum, flestum í stuttan tíma, en svo
hefur leiðir skilið. Hver og einn má
finna út úr því hvort titillinn þýðir
ÞEIR SEM SÁU
UM FRÉTTIR AF
SCANDINAVIA
TODAY
Islensku dagblöðin fylgdust grannt
með opnun Norrænu menningar-
kynningarinnar og för forseta Is-
lands til Bandaríkjanna. Ekki var
laust við aö fréttamenn og fréttarit-
arar íslenskra f jölmiöla hefðu nóg að
gera, enda landinn sólginn í nýjustu
fréttir af forseta sínum á erlendri
grund og kynningu á íslenskri og
norrænni menningu vestanhafs.
Myndin hér fyrir ofan var tekin í,
Seattle og sýnir nokkra þeirra sem
öfluðu okkur fréttanna. Þau eru frá
vinstri: Olafur Magnússon, sem tók
myndir fyrir Morgunblaðið, og
fréttaritari sama blaös í Bandaríkj-
unum, Anna Bjamadóttir. Viö hlið
hennar er bílstjóri sem keyrði þau í
Seattle og lengst til vinstri Guðlaug-
ur Tryggvi Karlsson sem tók myndir
og aflaði frétta fyrir Dagblaðið og
Vísi og Tímann.
ás.
puttaferðalag sem varir einn dag eða
heila mannsævi. Eins er uppbygging
plötunnar eins og puttaferðalag. Þau
eru hvert öðru ólík, bæði hvað varðar
laglínu og texta. En útsetningar og
handbragð hljóðfæraleikaranna sjá
fyrir heildarsvip plötunnar.”
— Umhvaðfjallatextamir?
„Það er komiö inn á húsbyggingar
ungs fólks, þama er grinsaga um
líkamsræktaræöið, jafnréttismál ber á
góma (þar þráttum við Diddú), fata-
tískan fær sinn skammt.
Nú, svo spáir Shady Owens fyrir mér
i einu lagi, þarna má finna óö til hins
«C
Þorgeir Ástvaldsson eri fyrsta
skiptieinn á ferð a nýju plötunni
Á puttanum .
íslenska bilstjóra, þú kannast við
hann, það er þessi með malbikaöa
hjartað. Og ekki má gleyma gorti um
gömlu góðu dagana en um það sér
Halldór Kristinsson, gamall vinur sem
lék með mér í unglingahljómsveitinni
Tempó í gamla daga og síðar með
Þremurápalli.”
— Hverjirleikameöþéráplötunni?
„Diddú, Ellen Kristjánsdóttir, Helga
Möiler, Halldór Kristinsson og Shady
Owens syngja, auk mín. Við Gunnar
Þórðarson útsettum tónlistina og ýms-
ir íslenskir og erlendir hljóðfæraleik-
arar koma við sögu, t.d. L'ouis Jardin.”
— Ætlar þú aö halda áfram á sömu
braut?
„Mig langar til að fikta áfram við
þetta og þá í öðrum dúrum og mollum,
enda kann ég best við þetta á puttan-
um. En ef ég held áf ram verður tónlist-
in öðruvísi.”
— Fylgir þúplötunnieitthvaðeftir?
„Eg hef í hyggju að koma fram einn
og með hljómsveitum, og þá vonandi
bæði í Reykjavík og úti á landi.”
ás.
Nýi blaðamaðurinn
á Vestfirska fréttablaðinu
Sigurjón Valdimarsson er maöur
nefndur og hóf sá störf sem blaöa-
maöur við Vestfirska fréttablaðið um
síðustu mánaðamót. Blaðamenn DV
rákust inn á skrifstofu hans á dögunum
og hittu vel á því þar sat hann, bros-
andi út aö eyrum, með sitt fyrsta ein-
tak í höndunum. Sagðist ætla að geyma
það og láihonum hver sem vill.
Sigurjón er ekki ókunnugur blaða-
heiminum því hann starfaði í 2 ár á
Vísi og leysti í sumar af á Tímanum.
Þann 1. september hætti hann þar og
fór á fjöll, eins og hann sjálfur sagði.
Komið hefur til tals að gefa út verk um
nútíma göngur og verður Sigurjón rit-
stjóri þess. Hann fór því í tvennar
göngur í haust og hyggur á fleiri enda
fannst manninum gaman í meira lagi.
Loks má nefna að kappinn var einn
af stofnendum hestamannablaðsins
Eiðfaxa, og fyrsti ritstjóri þess, og
sveitarstjóri á Suðureyri.
Vestfirska fréttablaðið var stofnað í
nóvember 1975 og hefur þróast úr 4ra
siöna blaöi sem kom út mánaöarlega í
að vera vikublað, allt að 8 síður.
Áhersla er lögð á fréttir og greinar um
menn og málefni. Upplag blaðsins er
1800 eintök, um það bil 1 blað á hver ja 6
íbúa á norðanverðum Vestfjörðum. Þó
verður að geta þess að ekki aðeins
heimafólk kaupir blaöiö, mörgum
burtfluttum úr fjórðungnum færir það
vikulegar fréttir úr heimabyggöunum.
Blaðið er selt í póstáskrift út um allt
land. JBH.
Sigurjón Valdimarsson með sitt
fyrsta eintak af Vestfirska frétta-
blaðinu. DV-mynd: