Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1982, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1982, Qupperneq 10
10 DV.MIÐVIKUDAGUR27. OKTOBER1982. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Stjórn Schliiters sloppin yfir erfiðasta hjallann til að byrja með Setíð undir umræðum i danska þjóðþinginu um spamaðarráðstafanir hægri stjórnarinnar. MaOurinn sem situr aftastur er Mogens Glistrup, en jtað var einmitt með stuðningi hans og Framfaraflokksins, sem minnihiutastjórn Schiuters náði samþykki fyrir efnahagsstefnu sinni. Fyrsta hægri stjórnin, sem sest hef- ur að völdum í Danmörku í áttatíu og eitt ár, hefur undir forsæti Poul Schliiters komið frumvarpi sínu um efnahagsráðstafanir í gegnum þingið og unnið þannig fyrstu orrustuna en á ennþá langt í land með aö vinna stríöið. Það virðist að minnsta kosti vera samdóma álit allra leiðandi stjórn- málamanna, atvinnurekenda, verka- lýösforingja og hagfræöinga í viðtölum í dönskum fjölmiðlum að undanfömu. Þeir segja að samsteypustjóm Schliiters eins og svo margar aðrar ríkisstjómir í Vestur-Evrópu, standi nú á kross- götum í sparnaðaráætlunum sínum. Atvinnuleysisvandamáliö, niður- skurður opinberra útgjalda og hrikaleg söfnun erlendra skulda er sá þríhöfða þurs, sem fjögurra flokka stjórn Schliiters á við að glíma, og sveiflar hún þó ekki þyngra sverði en sextíu og sex þing- sætum í danska þjóðþinginu, þar sem 179 fulltrúar hafa setu. Fyrir viku samþykkti þjóðþingið meö níutíu atkvæöum gegn áttatíu og fimm nokkur veigamestu ákvæðin í spamaðarfrumvarpi nýju stjómarinnar, sem fólu í sér takmarkanir á launahækkunum og niðurskurð á opinbemm útgjöldum. En fréttaskýrendur em allir á einu máli um aö úrslitin hafi ekki ráðist þar. Þeir telja að framtíðaráætlanir stjórnarinnar standi eöa falli meö niöurstöðum þeirra viöræðna, sem hófust viö verkalýðsfélögin í síðustu viku um stefnuna í launamálum. Þær verða þó ekki meö neinni fljóta- skriftinni, því að flestir ætla að viöræðurnar kunni að teygjast alla leið fram í marslok á næsta ári. Hnífurinn stendur þar í kúnni sem em vísitölubætumaráalmennlaun, og rétt eins og hér á Islandi eru þær dönskum launþegasamtökum það sama og hin heilaga kýr á Indlandi. Það er litið á vísitölubætumar sem einu vörn launþegans í verðbólgunni, lykilinn að sanngjarnri tekju- skiptingu velferöarþjóðfélagsins. „Viö verðum aö tryggja að rauntekjur félaga okkar minnki ekki. Um það verðum við að standa vörð,” segir Knud Christensen, for- maður landssamtaka danskra verkalýðsfélaga. Danskir hagfræöingar hafa komist að sömu niðurstöðu og íslenskir efnahagsspekúlantar inn að hið sjálfvirka vísitölukerfi sé eins og olía á verðbólgubálið. Verðbólgan í Danmörku er áætluð 7,5% á þessu ári, en það er yfirlýst stefna Schliiters og fneðráöhen-a hans að koma henni niöur í 5,5% í lok næsta árs. Einhvem veginn hafa danskir ráðamenn ekki vogað sér að grípa til sömu úrræða og íslenskir að hag- ræöa til vísitölugrundvellinum. Hvort þeim stendur stuggur af viöbrögöum kjósenda eða finnst þaö of skammgóöur vermir, skal ósagt látið. Sigur Schliiters og minnihluta- stjórnar hans í atkvæðagreiðslu þingsins um efnahagsgerðimar kom mönnum mjög á óvart. Forveri hans, Anker Jörgensen og minnihluta- stjórn hans féll einmitt á frumvarpi, sem fól í sér ekki ólikar ráöstafanir. Velta menn því mikið fyrir sér hvemig Schliiter gat'heppnast það sem Jörgensen megnaði ekki að koma fram. Enda telja menn heldur ekki séö fyrir endann á því hvort Schliiter tekst þaö. „Forsenda þess að stjórnin haldi velli er aö þingið samþykki einnig það sem eftir er að koma fram af ráðstöfunum okkar í efnahagsmál- unum,” segir Henning Christopher- sen fjármálaráðherra. Hann sagöi fréttamönnum að hann teldi aö stjóminni mundi takast að ná samþykki þingsins, þegar fjárlaga- frumvarpiö kemur til lokaafgreiðslu í heild sinni 15. desember. Jens Thorsen, forseti félags danskra atvinnurekenda, tók í sama streng, þegar hann var spurður af fréttamönnum hvort hann teldi nýju stjórnina verða langlífa eða skammlífa. — „Hún stendur að vísu á veikum grunni, en ég held hún muni ekki eiga í teljandi erfiðleikum fram til áramóta úr þessu,” sagöi Thorsen. Hagfræöingar hafa látið i ljós það álit að efnahagsaðgerðirnar þurfi fjögur til fimm ár til þess að skila einhverjum árangri, en þeir spá því aö á svo löngum tíma mundi at- vinnuleysiö aukast úr 10% upp í 12%. Kjörtímabilið rennur út í desember 1985, en margir em efins í að minni- hlutastjórn Schliiters verði sætt svo lengi á þessari stefnu. Þá þykir ekkert annað koma til greina en nýjar kosningar til þess aö láta kjós- endur sjálfa skera úr um fylgi efna- hagsstefnunnar hjá þjóðinni. Sér- fræðingar telja lágmark þurfa tvö ár til þess að sjá hvað efnahagsstefnan kannaðleiðaaf sér. Sósíaldemókratar Jörgensens segjast í gmndvallaratriðum geta verið sammála stjóm Schliiters um leiðir til lausnar efnahagsvand- euium, en ekki þeim ráðstöfunum sem lagöar hafa verið fram, eins og þær eru í smáatriðum, og ekki heldur tímanum sem valinn hefur verið til aögerðanna. Auöheyrilega vilja þeir þó þæfa voðina, þar til fyrir liggja niðurstöður af viöræðunum. lan Paisley, öfgapredikarinn og stjórnmálamaðurinn HANN KALLAR SIG RÖDD ULSTERS — og varar við „djöf uls spilverki pápistanna og landráðamanna” Það er krökkt af líf vörðum um pré- dikarann, Ian Paisley, hvar sem hann kemur fram og hefur upp raust sína, sem hann sjálfur segir að sé rödd einnar milljónar mótmælenda N-Irlands. Nærvera lífvarðanna er stöðug á- minning um aö það er lífshættulegt að vera framarlega í eldlínu stjóm- málanna á N-Irlandi, þar sem yfir tvö þúsund manns hafa verið drepnir í þrettán ára skálmöld og hjaðningarvígum kaþólskra og mót- mælenda. Paisley hefur jafnan verið uppsig- að viö lifvörsluna þótt hann veigri sér hins vegar ekki við að hóa saman tugþúsund manna einkaher til þess að þjálfa vopnaburð og búa undir hugsanlega borgarastyrjöld, ef svíkja á Ulster í hendur útsendara páfans í Dublin”, eins og hann sjálf- ur orðar það. Og enn síður líkar hon- um að þurfa að aka um í brynvarinni bifreið með skotheldu gleri í rúðu stað. En hann þekkir af eigin reynslu og nokkrum banatilræðum á síöustu árum að hann á óvini nóga. Þaö við- gengst engin hálfvelgja í kringum öfgaprestinn Paisley. Hann er annaöhvort dáður eða hataöur. Aðdáendum sínum er hann sending himni frá, bjargvættur mót- mælenda, sverð þeirra og skjöldur gegn uppivöðslu hinna „pápísku djöfla” og sameiningu við Irska lýðveldið í suðri. Andstæðingum sínum er hann stórhættulegur of- stækismaöur, rödd aftan úr forn- eskju, sem vill ríghalda í drottnun mótmælenda og Breta yfir langþjáð- um og kúguðum minnihluta þjóðar- innar, hálfri milljón kaþólskra manna. I hans augum voru kosningamar fyrir viku til nýs heimaþings á N-Ir- landi og endurreisnar heimastjómar í Belfast ekkert annað er tækifæri til þess að sýna að hann væri óumdeild- ur leiðtogi mótmælenda. Og það vantaði ekki að hann vann nógu auðveldan sigur í eigin kjör- dæmi, eitt þeirra 78 þingsæta, sem lýðveldissameiningarflokkur hans fékk úr kosningunum. En það gerði einnig aðalkeppinautur hans um for- ingjaskikkju mótmælenda, James Molyneaux, formaður hins gamla sameiningarflokks unionista, eins og þeir hafa alltaf verið kallaöir. En það var Molyneaux sem var á forsíðu írsku blaðanna, því að tvíveg- is var honum sýnt tilræöi í kosningunum, þótt báðir séu þeir raunar á „listanum” sem INLA, rót- tækur hry ðjuverkaflokkur kaþólskra marxista, heldur yfir þá sem þeir helst vilja feiga. Molyneaux slapp heill á húfi frá banatilræðum þessum mest fyrir tilviljanir og einhverja ófyrirsynju. Sverðið er að visu aðeins notað vlð ákveðnar seremoniur, en i höndum PalsJeys erþað táknrænt fyrir þá lausn sem hann og fyigis- menn hans sjá heista á N-íriands- vandamálinu. Paisley, sem stofnaði sjálfur eigin mótmælendasöfnuð, hefur aldrei gert neinn mun á stjómmálum og trúarbrögðum. Hann kallar eftir stuðningi við „Guð og Ulster” og nýtur góðrar áheyrnar í rótgrónustu byggðum mótmælenda, eins og Ballymena og víðar. Meöal áhang- enda hans eru menn sem álíta aö Norður-Irland sé síðasta vígi réttrar trúar mótmælenda, sem trúa því í einlægni, að komist kaþólskir menn til áhrifa verði guðspjöllunum stung- ið of£m í skúffu og pápísk djöfladýrk- un innleidd. Þeir vitna í Paisley sjálfan og telja valið standa á milli myrkravaldsins annars vegar og Guðs ljóssins hins vegar. Ballymena er heimabær Paisleys og þar þarf hann engra lífvarða með. Síðasta dag fyrir kjördag kom hann þar fram eins og fagnandi sigurveg- ari í broddi fylkingar kröfugöngu einnar sem endaði í útifundi. Slíkar kröfugöngur á Irlandi hafa margar verið í gegnum tíðina. Meö lúðra- blæstri og undir einkennislitum Oraníumanna, sem minnast Vil- hjálms frá Oraníu sem bjargvættar, fara þessar göngur fram með háværu söngli og köllum. Margar þessar kröfugöngur hafa endað í ein- hverju hverfi kaþólskra, með limlest- ingum, grjótkasti og íkveikjum, eftir að predikarar á borð við Paisley hafa æst upp múginn í heilögu hatri til hinna pápisku djölfa, eins og þeim er tamast að kalla hina kaþólsku við slík tækifæri. „Sú orrusta sem viö eigum nú fyrir höndum verður sú minnisstæðasta þeirra allra,” þrumaði Paisley yfir útifundinum í Ballymena og undir- tektaröskrin koma loftinu til að titra. Slíkár samlíkingar úr máli hemaðarsinna finnast í nær annarri hverri máisgrein í ræðum Paisleys og hans nóta. Það hefur alltaf veriö heilagt stríö, orrustur og barátta fyrir Ulster, hina bresku hátign, fyrir almættið og svo framvegis. Paisley átti fyrir rétt til setu á breska þinginu í Westminster en hann lítur á „Stormont”, heimaþing- ið á N-Irlandi, sem hinn raunveru- lega veldisvettvang, ef Bretar skyldu gefast upp á að stjóma nýlendunni og endurreisa heimastjóm Norður- Ira. Það er yfirlýst stefna James Priors, Irlandsmálaráðherra Thatcherstjórnarinnar, að endur- reisa „Stormont” og heimastjóm, svo fremi sem mótmælendur og kaþólikkar fást til þess að deila völdunum og vinna saman aö stjórn landsins. Sú hugmynd er Paisleysinnum guðlasti næst og föðurlandssvikum. Þeim finnst það jafngilda því að Noröur-Irland verði sameinaö Irska lýðveldinu. Þeir vilja í staðinn endurreisn „Stormont” í sinni gömlu mynd, þar sem einfaldur meirihluti var látinn ráða. Það mundi auðvitað tákna áframhaldandi yfirráð mót- mælenda. Það meirihlutavald og yfirráð þóttu mótmælendur misnota til þess aö undiroka hina 550 þúsund íbúa landsins og varð til þess að breska stjómin leysti heimaþingið upp 1972 eftir að geisað höfðu í eitt ár óeirðir og hryðjuverk Irska lýðveldishersins (IRA), sem hafði óánægju kaþólikka fyrir byríseglin. Urslit kosninganna í síðustu viku sýndu hvílíkt vonleysi hefur búið um sig meðal landsmanna sjáifra, sem eygja hvergi nokkurs staðar frið- sama lausn á vandanum. öfgaöflun- um hefur vaxið fylgi síðan kosið var síðast á N-Irlandi. Atkvæðamagn Paisleysinna hefur aukist til muna og svo varð einnig raunin um Sinn Fein, stjórnmálaflokk lýðveldissinna (IRA).

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.