Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1982, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1982, Blaðsíða 21
DV. MIÐVIKUDAGUR27. DV. MIDVDCUDAGUR 27. OKTOBER1982, íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Wilkins kjálkabrotnaði íþróttir íþróttir íþróttir „Spánverjar ekki eins grófir i Teitur Þórðarsson — hefur tekið fram skotskóna. Peter áfram hjá Val V-Þjóðverjinu Claus Peter, sem þjálfaði Vals- menu sl. sumar, mun verða áfram í herbúðum Hlíðarendaliðsins næsta sumar. Peter er 31 árs — menntaður knattspyrnu- þjálfari. Hólmbert Friðjónsson verður áfram með KR- ingum og allt bendir nú til að Yori Sedov verði áfram þjálfari Víkings. ^ -SOS Janusfékk áttaþjálf- aratilboð Miklar líkur eru á því að Janus Guðlaugsson, landsliðsmaður i knatt- spyrnu, gerist þjálfari og leikmaður með FH næsta sumar. Þegar ljóst var að Janus færi ekki aftur tU V-Þýskalands tU að leika með Fortuna Köln höfðu átta knattspyrnufélög samband við hann og buðu honum þjálfara- starf. -SOS Æfinga- gallamir týndust Strákamir í 21 árs landsliðinu, sem leika gegn Spánverjum i Badajoz, verða ekkí í æfingagöUum utan yfir keppnisbúninga sina. Astæðan fyrir þvi er ekki að hitinn sé svo mikUl við landamæri Portúgal, heldur að taskan með æfingagöUunum týndist á leið liðsins frá íslandi tU Spánar. -klp Norðurlöndin krefjast skaðabóta vegna HM Frá Kjartani L. Pálssyni — f réttamanni DV i Malaga: — Forráðamenn knatt- spyrausambandsins á Norður- löndum fóra fram á það á fundi hjá UEFA — Knattspyrnusam- bandi Evrópu í gærmorgun, að fá skaðabætur vegna heims- meistarakeppninnar i knatt- spyrau, sem fór fram á Spáni í sumar. EUert B. Schram, for- maður KSÍ, sat fundinn fyrir hönd Íslands. Forráðamenn Norðurlanda sögöu að dræm aðsókn að knatt- spymuieikjum á Norðurlönd- um ætti rætur að rekja tU HM á Spáni og bentu á aö knatt- spymuvertíðin hefði staðiö yfir á Norðurlöndum þegar keppnin fór fram. Það heföi orðið tU þess aö aðsóknin að leikjum hefði oröið lélegri en mörg und- anfarin ár þar sem sjónvarpað hefði verið beint frá keppninni. Forráðamennirnir bentu á að fjölgun liða í HM úr 16 í 24 hefði þýtt fleiri leiki og þar af leið- andi hefði keppnin staðið leng- ur yfir heldur en áður. Norðurlöndin lögðu fram til- lögu þess efnis að þau fengju fjárstuðning frá UEFA og Framarar ráku Douglas 2 í„mjólkurkeppninni" ÍJrslit í síöari leikjunum í 2. umferö enska mjólkurbikarsins (deildabikars- ins áÖur) í gær uröu þessi. Birmingham-Shrewsbury 4—1 (Bírmingham vann samanlagt 5—2). Blackpool-Northampton 1—1 eftir framleng- ingu. Blackpool vann 3—2 samanlagt. Bournemouth-Man. Utd. 2—2 (Man. Utd. vann 4—2) Brighton-Tottenham 0—1 (Tottenham vann 2-1) Cambridge-Barnsley 1—3 (Bamsley vann 5— 2)Cardiff-Arsenal 1—3 (Arsenal vann 5—2) Charlton-Luton 2—0 (Luton vann 3—2) Coventry-Fulham 0—0 eftir framlengingu. Jafnt 2—2. Coventry vann á útimörkum. C. Palace-Peterbro 2—1 (Palace vann 4—1) Liverpool-lpswich 2—0 (Liverpool vann 4—1) Middlesbro-Bumley 1—1 (Bumley vann 4—3) Notts County-Aston Villa 1—0 (Notts C, vann 3-1) Oldham-Gillingham 1—0 (Gillingham vann 2—1) Preston-Norwich 1—2 (Norwich vann 4—2). QPR-Rotherham 0—0 (Rotherham vann 2—1) Sheff. Utd.-Grimsby 5—1 (Sheff. Utd. vann 8-4) Sheff. Wed.-Bristol City 1—1 eftir framleng- ingu (0—1) Sheff. Wed. vann 3—2 samanlagt. SouthamptonColchester 4—2 (Southampton vann 4—2) Swansea-Bristol Rov 3—0 (Swansea vann 3— 1) Watford-Bolton 2—1 eftir framlengingu, 0—1. Watford vann 4—2. West Ham-Stoke 2—1 (West Ham vann 3—2) Víkingur vann KR Víkingur sigraði KR 17-12 i 1. deild kvenna i handknatt- leiknum í Laugardalshöllinni i gærkvöld. Á mánudag sigraði IR Fram 16—11. Staðan er nú þannig: 3 3 0 0 53—32 6 4 3 0 1 65-47 6 4 3 0 1 64-47 6 5 2 1 2 66-68 5 3 2 0 1 52—42 4 4 2 0 2 46-48 4 4 0 1 3 38-60 1 5 0 0 5 56-96 0 FH IR Valur Víkingur Fram KR Haukar Þór, Ak. Simonsen löglegur Forráðamenn Bareclona koma tll London á morgun til að ganga frá sölunni á AUan Simousen til Charlton, þannig að danski lcikmaðurinn getur leikið með Lundúualiðínu á laugardaginn. — „AUar deUur cru leystar,” sagði Kcn Craggs, framkvsmdastjóri Charlton, í gærkvöldi eftir að Mark Hulyer, formaður félagsins, kom frá Barcelona i gærkvöldi. -SOS. FIFA. Forráðamenn UEFA og FIFA tóku ekki illa í þessa beiðni Noröurlanda og verður málið rætt nánar á fundi hjá samböndunum innan skamms. Ellert B. Schram, sem var á fundinum í Ziirich, hélt beint frá Sviss til Spánar og kom hingað til Costa del Sol seint í gærkvöldi. -klp/-SOS Frá Kjartani L. Pálssyni — frétta- manni DV á Costa del Sol: — Leikurinn gegn Spánverjum verður að sjálfsögðu mjög erfiður, en ekki þó eins erfiður og leikurinn gegn írum í Dublin þar sem Spánverjar eru ekki eins grófir og írar þótt þeir leiki fast, sagði Marteinn Geirsson, landsliðsfyrirliði Íslands, eftir að landsliðið kom af æfingu á La Rosaleda-Ieikveilinum í Malaga í gær- kvöldi. Marteinn, sem leikur sinn 67.1ands- leik, sagði aö Spánverjar léku öðru vísi heldur en Irar. — Þeir eru ekki í eltingaleik við menn út um allan völl heldur gefa eftir svæði og bíða svo færis að ná knettinum og bruna snöggt fram í sókn. Við fáum því okkar svæöi á vell- inum og við erum með leikmenn sem geta haldið knettinum. Þaö hefði þó verið gott að hafa Ásgeir Sigurvinsson, Pétur Ormslev og Janus Guðlaugsson og miðjunni — reynda og yfirvegaða leikmenn, og Lárus Guðmundsson í sókninni. Það þýðir þó ekkert að ræða um það — þeir gátu ekki leikið, sagði Marteinn. — La Rosaleda-völlurinn er einn sá besti sem ég hef komið á — grasteppið er rennislétt og glæsUegt, enda er vöU- urinn sá besti á Spáni. Marteinn sagði að þaö yrði mun betra að leika gegn Spánverjum heldur „Gullperlan” í sviðsljósinu Frá Kjartani L. Pálssyni — frétta- manni DV í Malaga: — Það hefur verið mikið skrifaö um landsleik Spánverja og íslendinga sem fer fram hér í Malaga í kvöld. Sagt hefur verið frá að íslendingar séu án f jögurra sterkra at- vinnumanna — Ásgeirs Sigurvinsson- ar, Péturs Ormslevs, Janusar Guð- laugssonar og Lárusar Guðmundsson- ar. Amór Guðjohnsen hjá Lokeren, sem er kaUaður „Perla de Oro”, eða „GuU- perlan” hefur verið í sviðsljósinu og einnig Pétur Pétursson, en Spánverjar kaUa þá glókoUana frá tslandi. Ragnar kemur heim frá Spáni með uppkast af atvinnumannasamningi við CS Brugge Ragnar Margeirsson landsUðs- miðherji í knattspyrau kemur með landsliðinu tU íslands, eftir leik 21 árs liðsins í Badajoz á Spáni. Eins og DV hefur sagt frá þá hefur CS Brugge boðið honum atvinnu- mannasamning eftir aö hann skoraði þrjú mörk með varaliöi félagsins gegn Molenbeek. Ragnar kemur með í pokahominu uppkast af samningi við félagiö, sem hann mun sýna for- ráðamönnum Knattspyrnufélags Keflavíkur, sem þurfa aö léggja blessun sína yfir að Ragnar fari tU CS Brugge. Ragnar getur eflaust sett pressu á belgíska félagið þar sem Glasgow Rangers eru einnig á höttunum eftir honum. -SOS. Getur pumpað upp bolta Max Merkcl, knattspyniu- þjálfarinn góökunni í V- Þýskalandi, sem þykir urðhákur mikill, sagði í viðtali við v-þýskt blað um helgina að það kæmi honum ekkert á óvart að hann þyrfti að slá upp tjuldum sinum hjá ein- hverju tiðanna í „Bundesligunni” fyrir ára- mót. Markcl scgir að samansafn af lclegum þjálfurum sé í „Bundesligunni”, t.d. hafi Horst Köppel hjá Bielefcld ekki hundsvit á knattspyrnu. Það eina sem hann geti sé að pumpa upp fótbolta og það géri hann skammlaust. Köppel hcfur þó náð góðum árangrí mcð Biclcfeld að und- anföruu. -Axcl/-SOS. — þegar United gerði jafntefli við Boumemouth 2 Ray Wilkins, fyrirliði Manchester United og enska landsliðsins, varð fyrir því óhappi í gærkvöldi að kjálka- brotna í leik gegn Bouraemouth í ensku deildarbikarkeppninni. WUkins var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa lent í samstuði við Phil BrignuU, vara- arleikmann Bouraemouth, á 12. mín. seinni hálfleiksins. Hann mun verða frá keppni í fimm til sex vikur. Leiknum lauk með jafntefli, 2—2, en United vann fyrri leikinn, 2—0. Það voru þeir Amold Muhren og Steve CoppeU sem skoruðu mörk Uösins. David Webb, framkvæmdastjóri Boumemouth og fyrrum leikmaður Chelsea, lék með liði sínu. Fyrsti kapp- leikur hans í tvö ár. • Liverpool vann sannfærandi sigur yfir Ipswich á Anfield Road með mörk- um frá Ronnie Whelan og Mark Lawrenson. • Tottenham lagði Bcighton að veUi, 1—0. Blökkumaðurinn Garth Crooks skoraöi markið — hans eUefta mark á keppnistímabilinu Peter Ward lék að nýju með Brighton eftir að hafa leikiö með Forest og í Bandaríkjunum — kom þaðan tU Brighton. • Notts County lagði Aston Villa að velh' — 1—0. Þetta er fimmti sigur County yfir ViUa í síðustu sex leikjum Uðanna. Varnarleikmaðurinn David Hunt skoraöi markið. • Bob Latchford, fyrrum landsUðs- miðherji Englands, skoraði sina aðra þrennu á keppnistimabUinu þegar Swansea lagði 3. deUdarliðið Bristol Rovers að velU — 3—0. • Malcolm AUison sá Middlesbrough gera jafntefU, 1—1, við Bumley, sem vann samanlagt, 4—3. Ray Hankin skoraði fyrir „Boro”, en Brian Law jafnaði Burnley. Brian HamUtan hjá „Boro” var rekinn af leikveUi þegar 9 mín. voru tU leiksloka. • Bobby Robson, landsUðseinvaldur Englands, sá Paul Goddard leUca mjög vel með West Ham á Upton Park gegn Stoke þar sem „Hammers” vann, 2—1. Goddard skoraði laglegt mark og Skot- inn ungi , Sandy Clarke, bætti öðru marki við eftir fyrirgjöf Goddards. • Alan Sunderland og Tony Woodcock skoruöu mörk þegar Arsenal vann Carditt, 3—1, á Ninia Park. — segir Marteinn Geirsson, fyrirliöi íslenska landsliðsins, sem leikur í Malaga í dag „Við munum fara rólega af stað” — sagði Guðni Kjartansson, þjálfari 21 árs landsliðsins, sem mætir Spánverjum í Badajoz — Helgi Bentsson mun taka stöðu Siguröar Grétarssonar i 21 árs lands- liðinu sem leikur gegn Spánverjum í Badajoz í kvöld. Sigurður er með landsliðinu í Malaga. Guðni Kjartans- son, þjálfari 21 árs liðsins, sagði að það væri mikill hugur í strákunum og þeir væru ákveðnir að gera sitt besta — ná betri leik heldur en gegn HoUendingum i Keflavik á dögunum þar sem HoUend- ingar voru heppnir að ná jafntefli 1—1. — Við vitum ekkert um styrkleika spánska liðsins og munum því byrja rólega — þreyfa okkur áfram, sagði Guðni. Guðni stjórnaði léttri æfingu í gær- morgun og í gærkvöldi æfði landsliðiö á keppnisveUinum í Badajoz, sem er heimavöUur 2. deUdarliðs borgarinnar og tekur 18.000 áhorfendur. — Það er gaman aö vera kominn aft- ur í slaginn, sagði Guðni Kjartansson, sem þjálfaði islenska landsliðið með mjög góðum árangri 1980 og 1981. Islenska 21 árs liöið sem leikur gegn Spánverjum er þannig skipað: Markvörður: ögmundur Kristinsson, Víkingi Bakverðir: Hafþór Svein jónsson, Fram Omar Rafnsson, BreiðabUki Miðverðir: Olafur Björnsson, BreiðabUki Erlingur Kristjánsson, KA MiðvaUarspUarar: Jón Gunnar Bergs, Val Ragnar Margeirsson, Keflavík Aðalsteinn Aðalsteinsson, VUcingi Sigurjón Kristjánsson, BreiðabUki Sóknarmenn: OU Þór Magnússon, Keflavík Helgi Bentsson, BreiðabUki Þetta er sama lið og lék gegn Hol- landi í KeflavUc nema Helgi kemur inn fyrir Sigurð Grétarsson. -SOS Val Brazy kemur á ný „Ég veit að strákarair í liðinu hafa ekki verið ánægðir með Douglas Knitzinger og það er rétt að við höfum ákveðið að láta hann fara,” sagði stjórnarformaður hjá körfuknattleiks- deUd Fram í samtaU við DV í gær- kvöldi. Framarar hafa tekið þá ákvörðun að reka Bandarikjamanninn Douglas Knitzinger sem leikið hefur með liöinu það sem af er keppnistímabiUnu í vetur. Sem kunnugt er hafa Framarar ekki hlotið stig í þeim þremur leUcjum sem þeir hafa þegar leikið í úrvals- deUdinni og útUtiö er ekki bjart hjá Uðinu. Val Brazy, sem lék með Fram í fyrra, mun koma til landsins á Okkar maður r a föstudaginn og leika með Fram það sem eftir er keppnistímabilsins. „Það er rétt að ég hafði samband við Brazy í gær og hann var strax fús tU að koma og raunar æstur í það. Hann hafði áður lýst því yfir við okkur að hann langaði mjög til aö leika með Fram í vetur,” sagði stjómarmaðurinn ennfremur. Flestir körfuknattleUcsunnendur muna eftir Val Brazy frá því í fyrra. Hann er afburðasnjaU leUcmaöur, var í fyrra kosinn besti leikmaður Islands- mótsins og kom það fáum á óvart. Er alveg óhætt að fuUyrða að endurkoma Val Brazy er öllum aödáendum körfuknattleiks fagnaðarefni og verður gaman að sjá hann í bláa búningnum á ný um næstu helgi og mun hann þá leika sinn fyrsta leik með Fram í vetur gegn IR. iR-mgar hafa ekki enn hlotið stig í deUdinni og verður fróðlegt að sjá hvort endur- koma Brazy mun verða þess valdandi að Fram hljóti sín fyrstu stig. -SK. kemur til landsins á f östudag og mun leika með Fram f körfunni í vetur II.ta >Val Brazy Douglas Knitzinger Spáni Fram féll niður á plan ÍR-inga Fram byrjaði mjög vel i 1. deildarlciknum I handknattleiknum við ÍR í Laugardalshöll í gærkvöld. Skoraði í hverju upphlaupi framan af og eftir 15 mín. var staðan orðin 9—2 fyrir Fram. En svo féll Fram-liðið niöur á sama plan og ÍR. Lcikurinn var miklu líkari æfingu tveggja heldur litlausra liða en kappleik. Litlu meiri munur í leikslok. Fram sigraði 25—16 eftir 14—6 í hálfleik. Mörk tR í leiknum skoruðu Björn Björnsson 5, Guðjón Martcinsson 5/1, Þórarinn Tyrfingsson 3, Einir Valdimarsson T, Atli Þorvaldsson 1 og Tryggvi Gunnarsson 1/1. Mörk Fram skoruðu Gunnar Gunnarsson 6/2, Egill Jóhannesson 4, Erlendur Davíðsson 4, Hermann Björnsson 3, Björn Eiríksson 3, Jón Árni Rúnarsson, Viðar Birgisson, Sigurður Svavarsson, Hinrík Ölafsson og Brynjar Stefánsson eitt hver. Dómarar Jón Hermannsson og Ólafur Steingrimsson. Fram fékk tvö víti, ÍR þrjú. Guðjón Marteinsson skaut framhjá úr einu. Enginn rekinn af velli. -hsím. Jóhanues Atlason landsliðsþjálfari og strákamir hans verða í sviðs- ljósinu á La Rosa- leda-leikvellinum íMalaga. en t.d. landsliðum frá Bretlandseyjum, sem hugsa eingöngu um hamagang og „fæting”. — Pressan er nokkur á okkur, en ég held þó að hún sé meiri á leikmönnum Spánverja því að allir heimta stórsigur þeirra á okkur. Þeir eru með unga leikmenn sem hafa ekki mikla reynslu og því getur farið svo að þeir guggni undan pressunni sem er á þeim, sagði Marteinn. Allir klárir í slaginn — Jóhannes Atlason landsliðsþjálf- ari hefur valiö lið sitt sem leikur gegn Spánverjum. Hann sagði að allir leik- menn íslenska liösins væru vel undir- búnir, þótt þaö væri langt síðan aö sumir þeirra hefðu leikið kappleik. Byrjunarlið Islands er þannig: Þor- steinn Bjarnason, öm Oskarsson, Marteinn Geirsson, Sævar Jónsson, Viöar Halldórsson, Amór Guðjohnsen, Atli Eðvaldsson, Árni Sveinsson, Omar Torfason, Siguröur Grétarsson og PéturPétursson. -klp-/-SOS Erlendur Davíðsson átti góðan leik með Fram í gærkvöldi gegn IR. Hér er hann í þann veginn að hleypa af og skora eitt af mörkum sinum í leiknum. DV-mynd Friðþjófur. Teitur kominn á markalistann „Ég skoraði fyrsta mark mitt í 1. deildinni frönsku á þessu leiktimabili þegar Lens sigraði Metz, 4—2, á heimavelli, enda er þetta fyrsti leik- urinn með Lens sem ég hef eitthvað fengið að vera með. Lék siðustu 40 min- úturaar og markið, sem ég skoraði var mjög þýðingarmikið fyrir Lens,” sagði Teitur Þórðarson þegar DV ræddi við hann í gærkvöldi rétt eftir leikinn viö Metz. Staðan í hálfleik var 1—1. Lens náði forustu í leiknum með marki Alain Tirloit en Metz jafnaöi. Komst síöan yfir, 2—1, í byrjun siöari hálfleiksins. Þá var Teitur sendur inn sem vara- maöur og jafnaði í 2—2 á 57. mín. Eftir þaö átti Lens alveg leikinn og fékk tækifæri til aö skora nokkur mörk. Skoraði tvö. Fyrst Vercruyse, síðan Daníel Xuereb og góður sigur var í höfn. „Ég er ánægður með minn hlut í þessum leik og vona ég fái að vera í byrjunarliðinu í næsta leik gegn Auxerre á heimavelli. Eg verð ekki ánægöur ef ég fæ þaö ekki því forráða- menn Lens neituðu mér um leyfi í Evrópuleikinn við Spán vegna þess að ég ætti að vera í liðinu,” sagði Teitur. Nantes vann heppnissigur á Auxerre, 1—0, á heimavelli og hefur forustu í 1. deild með 19 stig. Bordeaux sigraöi Toulouse og er ásamt Lens i 2.-3. sæti með 17 stig. Nancy tapaði óvænt heima fyrir Sochaux, 1—3. Þá vann St. Étienne Rouen, 1—0. • Karl Þórðarsson og félagar hans náðu jafntefli 1—1 á Korsíku gegn Bastia. París St. Germain vann Strass- bourg, 4—3, Bresta vann Lyon, 2—1, Mulhouse vann Lille, 1—0, og Monaco vann öruggan sigur yfir Tours, 3—0. -hsím. — og fara fram á fjárstuðning frá UEFA og FIFA vegna dræmrar aðsóknar á knattspyrnuleikjum á Norðurlöndum í sumar i i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.