Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1982, Page 15
„Hin neikvæða mannoskjuimynd kvanhatarans Luthers og þróunarkenning „hinnar beinu linu",
Darwinsisminn, eru kóronan á hinu kariiega sköpunarverki sem er heimur okkar tíma." — Myndin er al
Luther og nokkrum öörum siðbótarmönnum.
hlutverk aö réttlæta hina nýju fram-
leiðsluhætti og fordæma eldri, allt í
ljósi þeirrar heimssýnar er hin beina
lína fól í sér. I þessu ljósi má t.a.m.
skoöa dæmisögurnar um Esau og
Jakob og Kain og Abel m.m.
Eingyðistrúin var trú miöstýr-
ingar og harðstjórnar og þróunar,
sem byggöi á yfirráðum yfir öðrum.
Zaraþústra, spámaðurinn mikli frá
Persíu, var fulltrúi þeirrar tvíhyggju
(dualism) er verður til á þessu skeiði
og felur m.a. í sér að fyrirbæri
náttúrunnar eru klofin upp í
andstæður og eru ekki lengur skoöuð
sem órofa heild. Náttúrusýninni er
ekki lengur haldið saman af því
heildarsjónarmiði að allir hlutir séu
hver öðrum háðir; nú skapast
„stríðssjónarmiðið”, það verður
barátta andstæðra afla sem heldur
veröldinni gangandi. Niðurlæging
konunnar og þeirrar heimssýnar,
sem hún er fulltrúi fyrir, á sér einnig
hliðstæðu í hellenskri hámenningu á
tímabilinu 600—350 f. Kr. Á sama
hátt og konur Israelsríkis héldu hin-
ar hellensku konur dauöahaldi í
fomar goðsagnir og tignuöu
frjósemisparið Dionysos og Demeter
löngu eftir að karlar höfðu snúið við
þeim baki til að helga sig agaðri
hugarstarfsemi, landvinningum og
mannvígum.
Sjálfsdýrkun karla
I grisku goösögunni um Pandóru
er konan talin upphaf alls ills. (T og
W, s. 32). Hjá Hellenum er einnig að
finna þá tvíhyggju er einkenndi
Persa, en þó í miklu mun hreinrækt-
aðri mynd. Barátta Hellena við hið
illa var ekki barátta við náttúruöflin
heldur við allar hinar „óskynsam-
legu” óskir og girndir, sem innra
með manninum búa, þ.e. það sem við
í dag nefnum „hið ómeðvitaða”.
Þannig eru guöir Hellena hrein af-
steypa af manneskjuímynd þeirra,
þ.e. göfugir og glæsiiegir aö hluta til,
en gráðugar, heimskar og hnýsnar
fyllibyttur að hinu leytinu. Afleiðing-
ar kvenfyrirlitningarinnar voru að
hyggju T og W öðrum þræði sú
umfan smikla sjálfsdýrkun
(narcissism), sem tíðkaöist meðal
karla og sem varð þess valdandi að
ástir milli karla voru taldar æðsta
form ástar, hins vegar urðu lesbian-
ismi og kynsvall hið „rökrétta” and-
svar af hálfu kvenna. Grikkir og
Rómverjar lögðu grundvöllinn að
þeirri táknfræði, sem síðar varð
ráðandi um miðaldir og e.t.v. fram á
vora daga. Samkvæmt henni er
konan hin efnislega hliö tilverunnar;
hún er hold, sem á að fæða nýtt h'f og
elska. Karlinn er uppspretta sjálfs-
afneitunarinnar, andleg vera, dæmd
til að hata og myrða. Karl og kona
áttu ekkert sameiginlegt lengur.
„Básar"
I kjölfar endurreisnarinnar festist
tvíhyggjan í sessi og hin beina lína
verður hið ráðandi form í byggingar-
list og táknfræði, með Kópemikusi
festist hin vélræna heimsmynd í.
sessi og í galdraofsóknunum er
konunum, tákni fr jóseminnar og lífs-
ins, varpað á bál. Hin neikvæða
manneskjuímynd kvenhatarans
Luthers og þróunarkenning „hinnar
beinu línu” — Darwinisminn — eru
kórónan á hinu karllega sköpunar-
verki sem er heimur okkar tíma.
Þó þetta sé orðið langt mál hefur
hér verið stiklað á stóru. Ef við
drögum saman meginkenningar
Thorbjömsen og Windelöv í fáeinar
setningar mætti orða þær eitthvað á
þessa leið: Tungumál og þekking
manna hefur frá alda öðli verið hlaöin
..myndrænum táknum”, sem haft
hafa lykilþýðingu í heimsmynd
þeirra. Af þessum táknum má ráða
sitt hvað um hlutlæga stöðu svo og
afstöðuna til kynjanna a.m.k. á
síðari tímum. I öndverðu voru þessi
tákn sameiginleg fyrir karla og
konur enda enginn reginmunur á
hlutverkum kynjanna í hinum fomu
akuryrkjusamfélögum og heims-
myndin sameiginleg með kynjunum.
Með tilkomu borgar- og stríðssam-
félaga og þeirri tvíhyggju er hinum
nýju lífsháttum fylgdi verður
umtalsverð breyting á bæði þeim
táknum, sem menn nota, svo og
virðingarstöðu „kventákna” annars
vegar og karltákna” hins vegar.
Þannig varð t.a.m. sólin tákn hins
karllega, tunglið tákn hins kvenlega.
Hringurinn varð tákn hins kvenlega,
hinnar eilifu hringrásar, náttúmnn-
ar og getunnar til endursköpunar lífs
(móöurlífið)), meðan bein lína varð
tákn hins karllega, tákn rökfestu,
framþróunar og sigra (getnaöar-
limurinn?). —
I næstu grein munum við taka fyrir
kenningar um karlleg og kvenleg
gildi og skilyrði þessara gilda, eða
eiginleika, svo og möguleikana til að
komast út úr þeim „básum”, sem
kynjunum eru mafkaðir i nútíma
samfélagi.
Lárus Már Björnsson,
fil. kand.
Rafsuðuvélar og vír
Haukur og Ólafur
Ármúla 32 - Simi 37700.
DELMA
QUARTZ
Spáðu í DELMA quartz
þau eru í sérflokki.
Svissnesk
gæði.
Póstsendum.
Jón og Óskar
Laugavegi 70, sími 24910.
eru framleiddir i Japan af stærstu hogg-
deyfaverksmiðju í heimi og eru „orginal" í
flestum tegundum japanskra og Volvo bíla
Þeir henta einstaklega vel á vegum sem
okkar.
KYB vökva- og gas-höggdeyfar eru fyrir-
liggjandi í allflestar tegundir bíla á mjög
hagstæðu verði.
KYB höggdeyfar fást hjá öllum helstu
verkstæðum og varahlutaverslunum
landsins.
ALMENNA
VARAHLUTASALAN S.F.
Skeifunni 17. Reykjavík.
Símar 83240/41
KYB
HÖGGDEYFAR