Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1982, Síða 30
30
DV. MIÐVIKUDAGUR27. OKTOBER1982.
Andlát
Fanney Annasdóttir lést 19. október.
Hún var fædd í Bolungarvík 14. júlí
1910. Foreldrar hennar voru Lilja
Torfadóttir og Annas Sveinsson. Hún
var kornung tekin í fóstur af móöur-
systur sinni, Ingibjörgu Torfadóttur,
og manni hennar, Finnboga Jasoni
Jónssyni. Eftirlifandi maður
Fanneyjar er Guömundur Sölvi
Ásgeirsson. Þeim varð 8 bama auðið
og eru 6 þeirra á lífi. Otför Fanneyjar
verður gerð frá Flateyrarkirkju í dag
kl. 15.
Hún fæddist 11. desember 1904 aö
Selbóli viö önundarfjörð. Hún giftist
Indriða Jónssyni, en hann lést árið
1975. Þeim varð ekki barna auðið en
ólu upp bróöurson Indriða. Gyöa
starfaöi á Hótel Sögu frá opnun
hótelsins til ársins 1980. Otför hennar
veröur gerö frá Fossvogskirkju í dag
kl. 15.
Theodór Theodórsson lést 19. október.
Hann fæddist á Brávöllum á Stokks-
eyri 2. júní 1910. Theodór lauk námi í
mótasmíði og starfaði alla tíö við þá
iön, fyrst hjá Vélsmiðjunni Hamri og
síðan hjá Járnsteypunni hf. Eftirlif-
andi kona Theodórs er Aðalheiður Ona
Sigurbjömsdóttir. Þeim varð 6 barna
auðið. Otför Theodórs verður gerð frá
Neskirkju í dag kl. 13.30.
Guðmunda Sigríður Jónsdóttir,
Þingseli 10 Reykjavík, andaðist í
Borgarspítalanum mánudaginn 25.
október.
Gudrun Albertsson, Bögehöj 48
Hellerup, andaðist 18. okt. sl Jarðar-
förin hefur farið fram.
Helga Sigurðardóttir fráHraunsásilést
í Borgarspítalanum 26. október.
Snæbjöm Einarsson, fyrrv. kennari
frá Raufarhöfn, Hjallabraut 21
Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá
Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 29.
október kl. 13.30.
Þorsteinn Steinsson frá
Vestmannaeyjum, Vesturbrún 16,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju fimmtudaginn 28. október kl.
13.30.
Hjálmtýr Hjálmtýsson verður jarð-
sunginn frá Bústaðakirkju fimmtu-
daginn 28. október kl. 15.
Kjartan Bjamason, fyrrverandi spari-
sjóðsstjóri frá Siglufirði, andaðist að
heimili sínu, Stóragerði 20, mánudag-
inn25. október.
Sesselja Jónasdóttir Petersen andaðist
í Svíþjóð 22. október. Jarðaö verður í
kyrrþey.
Rannveig Sigfúsdóttir, Elliheimilinu
Grund, lést í Landakotsspítaia mánu-
daginn 25. október.
Tilkynningar
B.P.W. Klúbburinn
í Reykjavík
heldur fund í Leifsbúð, Hótel Loftleiöum,
þriðjudaginn 2. nóvember kl. 20.30. Rædd
verða félagsmál og önnur mál. Ema Am-
grímsdóttir sagnfræðingur talar um hug-
myndir um mannkynbætur á Islandi. Gestir
velkomnir.
B.P.W. Klúbburinn.
I gærkvöldi_______í gærkvöldi________ í gærkvöldi
Á PUTTANUM í BÚÐARDAL
Dagskrá rikisfjöímiðlanna í gær-
kvöldi var aö mörgu leyti ágæt. Sá
þáttur er ég beiö þó spenntastur eftÍTj
var bókmenntaþátturinn Oní kjölinn,
sem var í hljóövarpinu og við hlust-
endur þurftum að slökkva á rétt fyrir
miðnætti vegna þess að honum var
þá lokiö.
I þessum þætti var varpað fram
þeirri spumingu hvort dægurlaga-
textar væru eintómt rusl? Og eftir
því sem fram kom í gærkvöldi sýnd-
ist sitt hver jum í þeim efnum.
Flestir í þættinum vom þó sam-
mála því að dægurlagatextar væm í
framför. ,,0f væmnir, of einfaldir,
ekki nógu háfleygir,” sagöi einn um
textana. Þá fannst öðrum einstakir
textahöfundar vera „gaga” eins og
hann oröaöi þaö. Minnst var á hve
textahöfundar em yfirleitt ungir að
ámm. Pönktextar eru vitleysa, en
diskóið er kætandi, kom fram hjá
einum. Notaðu húmorinn til aö koma
alvörunni til skila var ráð eins til
textahöfunda dægurlaga. Og þá
mátti heyra hjá einni að pönkið væri
of mikið garg og þeir Bjöggi, Pálmi
og Maggi væru með textana í væmn-
asta lagi.
Annars get ég tæplega skrifað
þessar línur því ég er á leiðinni. Já, á
leiðinni heim í Búðardal. Kunninsi-
arnir segja mér að þar verði partí.
Ég er alltaf veikur fyrir þeim. Senni-
legast kemst ég þó ekki nógu
snemma því rútan fer svo seint af
stað vestur. Kunningjamir hafa þó
bent á puttana og sérstaklega einn
þeirra. Fara á puttanum, já. Reynd-
ar segja stelpumar í Búðardal að ég
sé best geymdur í Sigöldu, en ég veit
ekkiafhverju.
Já, við I gærkvöldi leggjum ekki of
þungan dóm á textana. Teljum aö ef
hlustendur dægurlaga „grípi text-
ana”, rauli með og láti þá kæta sig,
þá séu þeir bara lala og kannski eilít-
ið skárri. Jæja þátturinn er búinn og
við kveðjum með því að setja „Nínu
ogGeira”áfóninn.
Jón G. Hauksson.
Sundfélagið Ægir
Aðalfundur sundfélagsins Ægis veröur hald-
inn laugardaginn 6. nóvember 1982 í Þrótt-
heimum viö Holtaveg og hefst kl. 14.30.
Stjórnin
Kvikmyndaklúbbur
Alliance Francaise
Miövikudaginn 27. október og fimmtudaginn
28. október veröur sýnd í Regnboganum (sal-
ur E á annarri hæð) kl. 20.30 myndin: Kýrin
og fanginn (La Vache et le Prisonnier) meö
hinum fræga gamanleikara Femandel og
kúnni Margréti í aðalhlutverkum. Allar
myndir í „K.A.F” eru með enskum skýringa-
texta. Félagsskírteini Alliance Francaise
kostar 100 kr. (gildir fyrir eitt ár) og veitir
réttindi til aö taka þátt í allri starfsemi
Alliance Francaise (bókasafn, fyrirlestrar,
kvikmyndaklúbbur). Ennfremur veitir þaö
rétt til afsláttar af aðgöngumiöum að öllum
skemmtidagskrám sem menningardeild
Franska sendiráösins mun sjá um að skipu-
leggja (leiksýningum, tónleikum, myndlistar-
sýningmn, og „franskri kvikmyndaviku”).
Nánari upplýsingar í síma 23870 eöa 17621/22.
Námskeið
Húsmæðraskólinn Osk á Isafirði hóf starf-
semi sína 20. sept. síðastliðinn með löngum
námskeiðum í verklegum greinum, fata-
saumi, vefnaði og matreiðslu. Munu þessi
námskeið halda áfram til jóla. Einnig eru
styttri námskeið í bótasaumi, hnýtingum og
myndvefnaði. Oll eru þessu námskeið fullset-
in og fer kennsla fram á kvöldin. Skóiinn hef-
ur nú fengið leirbrennsluofn og er verið að
koma honum fyrir. Þegar því er lokið verða
auglýst námskeið i leirmunagerð og
Hátíðarguðsþjónusta
í Hallgrímskirkju
Hátiðarguðsþjónusta verður í Hallgríms-
kirkju i kvöld, 27. okt., á 308. ártíð Hallgrims
Péturssonar. Svo sem venja er til verður
messuformið meö svipuðum hætti og tíökaðist
á dögum sr. Hallgríms. Sálmvers úr Passíu-
sálmunum verða sungin við messuna. Dóm-
prófasturinn í Reykjavík, sr. Olafur Skúlason,
prédikar, sóknarprestarnir sr. Ragnar Fjalar
Lárusson og sr. Karl Sigurbjömsson þjóna
fyrir altari, kirkjukórinn og nýstofnaður mót-
ettukór Hallgrímskirkju syngja við guðsþjón-
ustuna, orgelleikari er Hörður Askelsson.
Borgarstjórinn í Reykjavík, Davíð Oddsson,
flytur ávarp til kirkjugesta í messulok.
Þá verður boðuð stofnun listvinafélags
kirkjunnar en hlutverk þess verður að efla
tónlist og aðrar listgreinar við kirkjuna. Leit-
að verður eftir styrktarfélögum til að standa
straum af kostnaði sem af starfseminni leiðir.
Sú nýbreytni hefir verið tekrn upp að flytja
náttsöng hvert miðvikudagskvöld en í tengsl-
postulinsmálningu. Einnig er ætlunin að
halda seinna í vetur námskeiö í leðurvinnu.
Eftir áramót byrjar fimm mánaða hús-
stjórnamámskeið með heimavist. Þar verða
kenndar allar hefðbundnar hússtjórnarskóla-
greinar og lýkur því með prófum. Nemendur
víðsvegar af landinu sækja þetta námskeið
enda góður undirbúningur fyrir störf á hótel-
um og í mötuneytum auk þess að vera mjög
hagkvæm menntun fyrir verðandi húsmæður.
Skólastjóri Húsmæðraskólans á tsafirði er
Þorbjörg Bjamadóttir.
Frá Kaupfélagi
Skagfirðinga
Slátrun sauðf jár hjá Kaupfélagi Skagfirðinga
laukmiðvikudaginn 20. október.
Alls var slátrað 54.178 kindum, 47.898 dilk-
um og 6.280 fullorðnum kindum. Er það 6.102
dilkum færra en 1981 en aftur á móti 386 full-
orðnum kindum fleira. Meðalþungi dilka nú
varð 13,965 kg, en var í fyrra 13,604 kg. Heild-
armagn innlagðs kjöts nam 820 tonnum á móti
rúinum 873 tonnum 1981.
Þyngsta dilkinn átti að þessu sinni, svo sem
oft áður, Leifur bóndi Þórarinsson í Keldudal,
34,9 kg.
Eins og fram kemur af ofangrendum tölum
er samdráttur í bústofni hér um slóðir og kem-
ur þaö fram í færri innlögðum dilkum vegna
stofnfækkunar haustið 1981, sem og mikilli
slátrun fulloröins fjár. Geta ber þó þess að
frjósemi ánna mun hafa verið verulega miklu
mrnni nú vegna lélegra heyja og eindæma
slæms veðurfars sl. haust sem leiddi til þess
að fé kom í verra ásigkomulagi á hús en búast
má við í meðalári.
Slátrun stórgripa hefst þegar að lokinni
sauðfjárslátrun en ekki liggur enn fyrir
hversu umfangsmikil hún verður.
um við hann er jafnan flutningur listar: tón-
verk, ljóðo.fl. Þess má geta í þessu sambandi
að 10. nóv. nk. verður svonefnt „Liljukvöld” í
kirkjunni, er Lilja Eystems Asgrímssonar
verður flutt með aðstoð innlendra og erlendra'
listamanna.
Smíði kirkjunnar miðar nokkuð áfram. Um
þessar mundir er verið að steypa hvelfingar
hennar en þaö er mikið og kostnaðarsamt
verk. Brátt hillir undir það að kirkjan verði
fokheld en skortur á fjármagni hamlar hrað-
ari gangi í kirkjusmíðinni.
Tekið verður á móti gjöfum til kirkjunnar
við guðsþjónustuna svo sem venja er á þess-
um degi. Þakkir skulu fluttar fyrir gjafir sem
boristhafa.
(Frétt frá Hallgrímskirkju)
Hallgrímskirkja — opið
hús fyrir aldraða
Opið hús fyrir aldraða verður á morgun,
fimmtudaginn 28. október, kl. 15.00. Gestur —
Hermann Ragnar Stefánsson. Kaffiveitingar.
Ferðafélag íslands
Dagsferðir sunnudaginn 31. okt.
Kl. 13 — Sýlingarfell — Hagafell —
Grindavik.
Sýlingarfell (206 m) og Hagafell (158 m) eru
austan Grindavíkurvegarins gegnt Þorbirni.
Verð kr. 180.00. Farið frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin. Farmiðar við bil. Ath.:
Ferðafélagið notar sjálft sæluhús sitt í Þórs-
mörk um næstu helgi (30. okt.—31. okt.).
Frá Sjálfsbjörg
Reykjavík og nágrenni
Akveðið hefur verið að endurvekja taflkiúbb
félagsins. Verður 1. æfing nk. fimmtudag kl.
19.30 að Hátúni 12. 1. hæö. Þá verður fyrir-
komulag skákstarfsins rætt og er áhugafólk
því hvatt til að mæta.
Frá Rangæingafélaginu
í Reykjavík
Rangæingafélagið í Reykjavík heldur kaffi-
samsæti fyrir eldri Rangæinga og aðra gesti
sunnudaginn 31. okt. nk. að lokinni guðsþjón-
ustu í Bústaðakirkju, sem hefst kl. 14.00. Sr.
Olafur Skúlason dómprófastur prédikar.
Námskeið um húsnæðismál
29. og 30. október 1982.
Dagskrá: Föstudagur 29.10 kl. 20.00. Setning:
Jón Agnar Eggertsson. Kl. 20.15. Undir-
búningur íbúðabygginga. (Reglugerðir, lóða-
mál o.fl.). Oli Jón Gunnarsson byggingafull-
trúi. Fyrirspurnir og umræður.
Laugardagur 30.10 kl. 10.00. Lán frá lífeyris-
sjóðum og þátttaka lífeyrissjóða í húsnæðis-
málum. Hrafn Magnússon framkvæmdastjóri
SAL. Lán og fyrirgreiðsla frá Sparisjóði
Mýrasýslu vegna íbúðabygginga. rriojon
Sveinbjörnsson sparisjóðsstjóri. Fyrirspum-
ir og umræður.
Kl. 12.00 Matarhlé. Kl. 13.30. Húsnæöisstofnun
ríkisins, verkamannabústaðir og félagsleg
lausn húsnæðismála. Olafur Jónsson for-
maður stjórnar Húsnæðisstofnunar rikisins.
Fyrirspumir og umræður. Kl. 15.30 Kaffihlé.
Kl. 16.00—17.00 Umræður og námskeiðsslit.
Námsskeiðsstaður: Snorrabúð Gunnlaugs-
götu 1. Borgamesi. Umsjón og stjóm: Bjami
Skarphéðinsson, formaður Borgarfjarðar-
deildar Neytendasamtakanna. Námskeiðið er
undirbúið og skipulagt í samvinnu við
Menningar- og fræöslusamband alþýðu —
MFA.
Þátttaka tilkynnist á skrifstofu Verkalýðsfé-
lags Borgamess, sími 7185 fyrir 26. okt. 1982.
Ollum er heimil þátttaka.
Áttavitanámskeið fyrir ferða-
menn
Eins og undanfarin 16 ár gengst Hjálparsveit
skáta í Reykjavík fyrir námskeiöi í meðferð
áttavita og landabréfa fyrir ferðamenn. Á
námskeiðinu verða einnig veittar upplýsingar
um ferðafatnaö og ferðabúnað almennt.
Námskeiðið stendur tvö kvöld, miðviku-
daginn 27. október og fimmtudaginn 28.
október nk. Fyrra kvöldið er meðferö áttavita
og landabréfa kennd og notkunin æfð innan-
dyra. Síðara kvöldið er veitt tilsögn í ferða-
búnaði og síðan fariö í stutta verklega æfingu
rétt út fyrir bæinn. Þátttakendum verður ekið
til og frá æfingasvæðinu í bifreiðum H.S.S.R.
Námskeiðið verður haldið í húsnæði hjálpar-
sveitarinnar í kjallara Ármúlaskóla, Ármúla
10—12, og hefst kl. 20.00 bæði kvöldin. Þátt-
tökugjald er kr. 100.
Nánari upplýsingar er að fá i Skátabúöinni,
Snorrabraut 60, sími 12045. Þar liggur einnig
frammi þátttökulisti fyrir þá sem ætla að
taka þátt i námskeiöinu.
Á þetta námskeið eru allir velkomnir sem
áhuga hafa á að læra notkun áttavita og
landabréfa eða vilja hressa upp á og bæta við
kunnáttu sína.
Er athygli vélsleðamanna, skíðagöngumanna
og annarra feröamanna sem ferðast um fjöll
og firnindi sérstaklega vakin á þessu nám-
skeiöi.
Hjálparsveit skáta í Reykjavík.
Kvennadeild Slysavarna-
félags íslands
í Reykjavík býður öllum félagskonum 65 ára
og eldri til kaffidrykkju laugardaginn 30.
október kl. 15 í húsi S.V.F.I. á Grandagarði.
Verið allarhjartanlega velkomnar. Stjómin.
25 ára afmæli
Austfirðingafélags
Suðurnesja
verður haldið í Festi, Grindavík laugardaginn
30. okt. nk. og hefst með borðhaldi (kaffi-
hlaðborð) kl. 19. Dansað á eftir.Miðaverð 210
kr. Rútuferð frá B.S.l. og Keflavík. Miðasala
og nánari upplýsingar í s. 33325 í Reykjavík
(Sonja), 7428 Sandgerði (Guömundur)
Rammagerð Grindavíkur 8410 (Eyjólfur) og
Versl. Femína Keflavík (Birna). Miðar ósk-
ast sóttir í síðasta lagi miðvikudaginn 27. okt.
Stjórnin.
Ályktun
Stjórn Félags ungra jafnaðarmanna í Reykja-
vík fagnar því, að loks skuii fara fram virkt
starf í stjórnarskrárnefnd, en harmar um leið
þá leynd sem hvílt hef ur yfir störfum nefndar-
innar. Eðlilegt hlýtur að teljast að umræður
um slíkt stórmál, sem stjórnarskrárbreyting-
ar eru, fari fram fyrir opnum tjöldum og al-
menningi gefist kostur á að hafa áhrif á
stefnumótun. Jafnframt skorar FUJ á
alþingismenn að leiðrétta vægi atkvæða á
milli kjördæma án þess að fjölga þingmönn-
um. Þeir eru þegar nægilega margir til að
sinna störfum Alþingis og fjölgun þeirra eyk-
ur aðeins á skrifræðisbákn, sem nú þegar er
ofþungtívöfum.
Ármann Kr. Einarsson
Nýjar bækur
Nýlega er komin út á norsku ömmu-
stelpa eftir Ármann Kr. Einarsson í
þýöingu Asbjörns Hildremyr. I norsku
útgáfunni heitir bókin Jerjta som ville
bli Höjtalar.
Á kápusíðu segir meðal annars að
sagan sé skemmtileg og lifandi og bók-
in hafi fengiö verðlaun Fræðsluráðs
Reykjavíkur sem besta bamabók árs-
ins 1977.
Teikningar Þóru Sigurðardóttur í
ömmustelpu prýða einnig hina norsku
útgáfu.
Jenta som vUle bli höjtalar er 105
blaðsíður að stærð og gefin út hjá
Norsk Barneblads Forlag með styrk úr
Norræna þýðingarsjóðnum.
NÝ ÞJÖNUSTA
PLÖSTUM VINNUTEIKNINGAR,
verklýsingar, vottorð, ^43$:
MATSEÐLA, VÉRÐLISTA,
KENNSLULEIÐBEININGAR,
TILBOÐ, BLAÐAURKLIPPUR,
VIÐURKENNINGARSKJÖL. UÓSRITUNAR-
FRUMRIT OG MARGT FLEIRA.
STÆRÐ ALLT AÐ 45x60 CM.
OPIÐ KL. 9-12 OG 13-18.
k: ' LÆKJARGOTU 2. NYJA-BIOHOSINU « 22680