Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1982, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1982, Page 6
6 DV. ÞRIÐJUDAGUR 9. NOVEMBER1982 Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Hér er eitt sýnishorn af takkasíma í hinni nýju söludeild Pósts og síma. Þessi tegund er til í sex lltum og kostar tskið kr. 2.361. Takkasímar í tveimur litum — hjá Radíóbúðinni „Viö höfum flutt inn eina tegund af símtækjum, sem er fáanlegt í tveimur litum. Þetta er afar vinsæll H Þessi sími er af gerðinni U.S. tron, fæst í versluninni Rafeindatækni og kostar krónur 1.230. smásími sem kostar 1.180 kr.,” sagði Siguröur Guðmundsson sölumaður hjá Radíóbúöinni. Einnig kom fram hjá Sigurði að í bígerð væri að flytja inn fleiri tegundir á næstunni. Ársábyrgö er á símtækjum sem seld eru í Radíóbúöinni og viðgeröar- þjónusta. -ÞG. Tækið með skifunni aftar á myndinni kostar kr. 1.019 en það fremra, takka- tækið, kostar kr. 2.291. Báðar tegundir eru fáanlegar í sex litum. Verslunin Rafeindatækni meö 200geröir af skrautsímum „Mest seldi síminn hjá okkur í dag er lítill bandarískur takkasími sem geymir síðasta númerið sem hringt er í,” sagði Jón Sen í versluninni Rafeindatækni. Síminn kostar 1.230 krónur og er hann látinn liggja eða festur á vegghengi sem kostar 365 krónur. Þessi tegund er fáanleg í f jórum litum. Þá eru þaö símar fyrir smáfyrir- tæki sem hafa að geyma klukku, dagatal og sjö mismunandi vekjara- minni til aö minna mann á að fara á fund eða annað. Síminn reiknar öll verslunardæmi, telur hverja sek- úndu sem símtólið er í notkun og kostar þessi takkasími kr. 6.669. Sim- inn er beinhvítur, ljósaborðiö grænt, en þar sést númerið sem hringt er í. Sagðist Jón einnig vera með um 200 tegundir af skrautsímum. Þeir eru fáanlegir úr viði, kopar, postulíni, leðri og alla vega efnum. Á þeim eru gylltir málmfletir úr 18 karata gulli. Þeir eru á verðinu ffá 2.500 í 20.000krónur. „Viö erum að sjálfsögðu meö eins árs ábyrgð á öiium símunum og einnig er hægt að treysta á að fá varahluti í símana fimm ár fram í tímann,” sagði Jón Sen aö lokum. -RR. Símakerfi sem er hannað fyrlr stór og smá fyrlrtæki og er fáanlcgt í tveimur stærðum. Kerfi fyrir tvær bæjarlínur og sex talfæri kostar kr. 55.000 (þá eru línurnar ekki innif aidar eða önnur talf æri). cortso MIKK) ÚRVAL SÍMTÆKJA HJÁ SIMCO Lítill takkasimi með minni á siðasta númer. Radióbúðin selur hann og kost- ar tækið kr. 1180. „Við erum með um fimmtán tegundir símtækja, auk þess veljara og símsvara,” sagði Hrafn Sturluson simsmiöur hjá fyrirtækinu Simco sf. þegar spurst var fyrir um úrval sím- tækja á þeim bæ. Eftir breytingu á reglugerð um innflutning símtækja hafa nokkur fyrirtæki hafið innflutning á tækjum og er f yrirtækið Simco eitt þeirra. „Það var talað um frjálsan inn- flutning á simtækjum i kjölfar breytinga á reglugerðum en þetta frjálsræði er aðeins lítiöskráargat sem var opnað,” sagöi Hrafn ennfremur. „Við vonum nú að frjáls- ræðiö verði meira innan skamms og dyrnar opnaðar alveg. O!' *æki sem við flytjum inn þuria aö fara i gegnum nálarauga Pósts og síma. Hjá þeim fer fram prófun á tækjum sem viö flytjum inn og þeir gefa sér forsendur fyrir prófunum. Eg veit ekki til að neinn staðall sé tii, sem er til grundvallar. Manni finnst að þessi prófun ætti að vera í höndum ein- hvers annars aðila en Pósts og síma. Símtækin sem Simco sf. flytur inn eru meöal annars frá Japan, Þýska- landi og Bandaríkjunum. Allar innflutningsskýrslur fyrirtækisins þurfa að fara til undirskriftar hjá Pósti og sima og taldi Hrafn Sturlu- son að þetta mál væri ákaflega þungt í vöfum innan kerfisins. öll tæki sem við seljum eru meö ársábyrgð og að sjálfsögðu erum við með alla viðgerðaþjónustu,” sagði Hrafn sím- smiður. -þq Smásímtækl eru mjög vinsæl, líkt og hvíta tæklð lengst tll hægri á myndinni, það kostar um 1800 kr. Takkasíminn lengst tU vinstri kostar kr. 1700 og marmarasímtækið kostar 3000 kr. Takkasímlnn er með minni á síðastvalda númerið. Fyrir miðri myndinni er hátalarasimi meö fimmtíu númera minni og kostar hann kr. 7.512. Þetta er sýnishorn af símtækjaúrvali hjá Simco sf. Pósturogsími: Neytendaþjónusta á einum stað „Með rekstri Söludeildarinnar hefur veriö bætt úr allri aðstöðu sím- notenda til vals og kaupa á nýjum símtækjum,” sagði Þorgeir Isfeld Jónsson, verslunarstjóri söludeildar Pósts og síma, er blm. spuröist fyrir um nýja verslun í Landssímahúsinu við Austurvöll. ..Hér er einnig veitt öll ráögjöf og aðstoö vegna flutnings símtækja, sem sagt neytendaþjónusta Pósts og síma á einumstað.” Sérstök sýningartæki af hverrí gerö eru tengd í versluninni svo unnt sé að reyna tækin og finna út hvaö best hentar hverjum og einum. Á staönum liggja einnig frammi lit- prentuð blöð með upplýsingum um eiginleika og lita val hvers tækis. öll símtæki í söludeild Pósts og síma eru viðurkennd og þjónustuö af starfsmönnum stofnunarínnar. Stofnunin hefur hins vegar ekki að- stöðu til þess að annast viðhaid þeirra tækja sem ekki eru seld af stofnuninni. -ÞG.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.