Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1982, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1982, Blaðsíða 12
12 DV. ÞRIÐJUDAGUR 9. NOVEMBER1982 “TST DAGBLAÐIÐ-VÍSIR Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stiórnarformaflur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖROUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoöarritstjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKARMAGNÚSSON i Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. I Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 86611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI 11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 86611. Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA 12. Prentun: I ÁRVAKUR HF., SKEIFUNNI 19. j Áskriftarverð á mánuði 130 kr. Verð í lausasölu 10 kr. Helgarblað 12 kr. i l —“^——— i i Brauðið og bókmenntirnar | Brauögerö og brauðneyzla hafa gerbreytzt hér á landi á | fáum árum. Til viðbótar viö svokölluð vísitölubrauö er ; kominn f jöldi áður óþekktra brauða, sem renna út eins og heitar lummur, þótt þau séu dýrari. Brauðneyzlan hefur færzt úr sigtuðum hvítahveitis- ; brauðum í heilkornsbrauö af ýmsu tagi. Þannig hefur brauðbyltingin stuðlað að hollara mataræði. Mega bakar- ar því vera stoltir af sínum hlut, sinni fagmennsku. Brauöbyltingin varð ekki vegna tilskipunar að ofan. Hún óx af sjálfu sér í samskiptum bakara og neytenda. Markaðurinn fyrir ný og betri brauð var til. Bakarar þekktu sinn vitjunartíma og hafa náð að stækka markað- i inn ört. Nú er svo komiö, aö brauögerö á íslandi skarar fram úr ; brauðgerð frændanna á Norðurlöndum. Aðeins Þjóðverj- ar eru enn fremri, enda stendur brauðmarkaður þar á aldagömlum merg, en er hér nýr af nálinni. Vel menntaðir fagmenn og vel upplýstur almenningur eiga samleið á ýmsum fleiri sviðum. Annað augljóst dæmi um byltingu í víxlverkun framleiöenda og notenda eru veitingahúsin, sem hafa gerbreytzt á jafnskömmum tíma og bakaríin. Fyrir fimm árum voru íslenzk veitingahús stöðnuð í gamalli, danskri matargerð. Síðan er eins og hvirfilvind- ur hafi farið um kokkastéttina. Saman fer faglegt stolt, tilraunagirni og virðing fyrir hráefnum og hollustu. Þannig eru dæmi þess, að heilar starfsstéttir hafi umturnast á fáum árum. Þær hafa rifið sig upp úr hefð- bundnum doða, ruðzt framhjá vísitölubrauðum og verð- lagseftirliti. Fagmenn hafa breytzt úr embættismönnum í athafnamenn og listamenn. Eldra dæmi um slíkan markað, gagnkvæman skilning framleiðenda og notenda, er íslenzk myndlist. Hún hefur ekki magnazt fyrir velvilja hins opinbera, því að það hef- ur ekki haft ráð á að halda til jafns við hið opinbera á Norðurlöndum. Það er fólkið í landinu, sem hefur keypt málverk á frjálsum markaði. Þessi sala er svo mögnuð, að ótrúlegur fjöldi listamanna hefur um langt skeið getað lifað af verk- um sínum, auk allra hinna, sem hafa af þeim hlutatekjur. Eitt elzta dæmið eru bókmenntirnar, sem blómstra áratug eftir áratug, þótt fámennið geri skilyrðin hér á landi óvenjulega erfið, nánast óyfirstíganlega erfið. Hér er hreinlega jarðvegur fyrir kraftmiklar bókmenntir. Eftir þessi handahlaup leiðarans úr bakstri í bók- menntir er kannski ekki úr vegi að taka dæmi úr enn ann- arri átt. Það er tölvubyltingin, sem virðist renna greiðar inn í okkar þjóðfélag en við sjáum dæmi um annars staðar. Risið hafa mörg smáfyrirtæki, þar sem ferskir menn finna upp nýjungar, þróa þær og koma í framleiðslu. Að verki er ungt fólk, laust úr viðjum vanans. Það berst til sigurs, að mestu án aðstoðar hins opinbera. Tölvukynslóðin hefur ekki þegið þetta vegarnesti í skólunum, sem enn búa við sárustu fátækt á þessu sviði. Við sjáum það bezt af, að tölvuskólar í einkaeigu hafa sprottið eins og gorkúlur á þessu ári. tslendingar stefna óðfluga að þrælkun tölvunnar sem hornsteins að atvinnulífinu. Það er enn eitt dæmið um, að gegnum erfiðleika okkar skín innri kraftur fagmennsku, sem á sér hljómgrunn og mun flytja okkur langt fram eftir vegi. Þrjár meginástæður liggja til þess aö umræðan um álmáliö hefur haft tilhneigingu til að fjarlægjast fremur en nálægjast kjama þess máls. Fyrsta ástæöan er sú, að talsverður fjöldi íslendinga byggir lifsafkomu sína á því aö álverið haldi áfram rekstri sínum í Straumsvík, þrátt fyrir langvarandi taprekstur. önnur ástæðan er sú að mörg þekktustu fyrirtæki landsmanna eru og hafa verið um iangan tíma rekin með bullandi tapi. Tapreksturinn á ál- verinufylgir þannig fremur reglunni en undantekningunni á Islandi. Þriðja ástæðan er sú, að flestir virðast enn halda að álverið sé íslenskt fyrirtæki, þó að það sé bara á bréfsefninu. Islenska álfélagiö er algerlega í eigu svissneska ál- félagsins og lýtur í flestum atriðum erlendum réttarfarsreglum um starfsemi hlutaf élaga. Hver eru þá aðalatriðin — ABC — í álmálinu? Islenska álfélagið er dótturfyrirtæki svissneska ál- félagsins, Swiss Aluminium, sem er hlutafélag á erlendum fjármagns- markaði með tugi þúsunda hluta- bréfaeigenda. Iflutaféð gegnir lykilhlutverki í fjármögnuninni í Swiss aluminium líkt og i flestum stórfyrirtækjum á Vesturlöndum. Hátt skrifaö hlutafé eykur lánstraust BirgirBjöm Sigurjónsson fyrirtækisins í bönkum og leiðin til að hækka verðmæti hlutabréfa er sú að fyrirtæki beri góðan ávöxt. Fyrirtæki með langvarandi halla- rekstur eiga örðugt með aö afla lána í lánastofnunum og traust þeirra meðal fjármagnseigenda dvín og hverfur um síðir. Þá blasir við hrun viðkomandi fyrirtækis. Swiss- Aiuminium hefur borið góða arðsemi á undangengnum árum, en Islenska álfélagið hefur verið rekið meö bullandi tapi. Þaö getur verið, að for- stj. ÍSAL hafi tekist að læða þeirri hugsun inn hjá íslenskri alþýðu, að það sé af góðvild Svisslendinganna að álverið sé enn gangandi. En það er fjarri sanni. Arðsemiskröfur hlutafjáreigendanna sjá til þess að stjómendur svissneska fyrirtækisins verða að leggja niður verksmiðjur sem ekki geta orðið arðbærar í lang- an tíma. Og í iánsfjárkreppu eins og nú ríkir verða raunar allar einingar slíkra fyrirtækia aö leiða til ávinn- ings, jafnvel einnig i skammtíma samhengi. Það er í þessu ljósi sem okkur ber að skoöa afkomu ISAL. Við megum ganga út frá því sem staöreynd, að ISAL hefur leitt til meiri ávinnings en kostnaöar fyrir móðurfyrirtækið — annars hefði það verið lagt niður fyrir löngu. Hvernig gerist þetta? I framhaldi af þessu hljótum við að spyrja okkur, hvemig getur ÍSAL hafa skilað ávinningi umfram kostnað til svissnesku eigendanna á sama tíma og ÍSAL er rekið ár eftir ár með miklu bókhaldslegu tapi. Það er vert að geta þess, að á þessum Á hverju hausti er deilt um gæði kartaflna. Neytendur kvarta sáran yfir lélegum kartöflum en fram- leiðendur telja aö þeir vandi til fram- leiðslunnar eins og kostur er. Undan- farnar vikur hefur þessi , Jíartöflu- hrina” staðið yfir. Einn framleiðandi komst svo skemmtilega að orði í kjallaragrein í DV nýlega ,,að við framleiðendur emm svo óheppnir að fjölmiðiamaður bænda er formaður nefndarinnar”. Þar á hann við samstarfsnefnd um kartöflumat o.fl. Ennfremur er bent á það í umræddri grein, að þar sem „fjölmiðlamaöur- inn” fengi hluta launa sinna frá kart- öflubændum þá ætti hann frekar að þegja en tala um kartöflur eða aðra þá hluti sem hann hefði ekkert vit á. Sérstaklega virðist það fara í skapið á greinarhöfundi aö „fjölmiðla- maðurinn” skuli hafa samþykkt að lélegar eða skemmdar kartöflur væru ekki markaðsvara. Margt af því sem minnst er á í þessari kjallaragrein er þess eðlis, og þannig sett fram, að það þarf þó nokkurt hugmyndaflug til að geta áttað sig á hvað greinarhöf undur meinar. Þar sem undirritaður hefur verið sakaður um f jandskap við kartöflu- bændur og að vinna beinlínis á móti þeirra hagsmunum þá sé ég mér ekki annaö fært en að gera nokkra grein fyrir afstöðu minni til kartöflu- ræktar og þeim markmiðum sem „samstarfsnefndin” hefur sett sér. Góðar eða slæmar kartöflur! Þaö skiptir ekki máli hvað margir skrifa í blöðin og halda þvi fram að ekkert sé athugavert við gæði kart- Kjallarinn AgnarGuðnason aflna. Neytendur sjá aðeins það sem þeim er boðið og eitt er víst að mikið er kvartað undan lélegum kartöflum um þessar mundir og þannig hefur það verið undanfamar vikur. Kartöflurnar eru fyrst og fremst út- Utsljótar. Þær eru yfirleitt bragð- góðar. Þó hafa fundist kartöflur sem skemmst hafa af frosti og einnig er nokkuð um þurrrotnun í kartöflum. Kartöflubændur tína úr sýktar eöa frosnar kartöflur áður en þeir senda þær á markaðinn. Þetta gera örugg- lega allir framleiðendur eftir bestu getu og trúmennsku. Enginn maður er fullkominn. Þess vegna er ekki hægt að útiloka að sýkt kartafla geti fundist í neytendaumbúðum. Það eru. þrír aðilar sem fara yfir kartöflurn- ar áður en þær eru sendar í verslan- ir. Það er framleiðandinn, næst kemur matsmaður og síðasti liður- inn er fólkið sem vinnur við pökkun- ina. Þetta kerfi getur brugðist. Hugsanlega hafa kartöflur frosið fyrir upptöku. Frostskemmdir koma ekki fram fyrr en framleiðandinn hefur sent kartöflurnar frá sér. Matsmaöur garðávaxta verður ekki heldur var við frostskemmdimar í þeim sýnum sem hann kannar. Eftir einn dag eða svo hjá smásalanum getur verulegur hluti kartaflnanna hafa linast upp sökum frostskemmd- anna. Síðan gæti komið votrotnun í þær og kartöflumar ekki lengur mannamatur. Þannig slys geta átt sér stað og hafa átt sér stað. Það er ekki ásetningur framleiðandans eöa Grænmetisverslunarinnar að setja skemmdar kartöflur á markaöinn. Meðferð kartaflna Kartöflur sem teknar em upp með stórvirkum vélum em sjaldan eða aldrei með algjörlega ósködduöu hýði. Með réttri stillingu véla er hægt aö draga úr þessum skemmdum. Því miður verða kartöflubændur oft að taka upp kartöflur í kuldatíð. Þegar kalt er em kartöflumar miklu við- kvæmari fyrir öllu hnjaski en þegar hlýtt er í veðri. Framleiðandi, sem hefur tiltölulega litla kartöflurækt miðað við mannskap og vélakost, getur betur stjórnað upptökutíma en sá sem er með mikla framleiöslu og lítinn mannskap. Þetta vita allir. Þaö eru því meiri líkur á að sá, sem er með t.d. 10 ha undir kartöflum, en sá meö 1 ha, lendi í vandræðum með Jónas Kristjánsson 0 i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.