Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1982, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1982, Blaðsíða 32
32 DV. ÞRIÐJUDAGUR 9. NOVEMBER1982 ALDRAÐIR FLYTJAINYTT HUS A NESINU: „Miklu betra en i Reykjavík” —segir einn íbúaí eiginíbúð „Reykjavíkurborg hefur gert tóma vitleysu meö því aö byggja tómar leiguíbúöir fyrir aldraöa. Þetta er miklu betra form, að fá aö kaupa sjálfur ef maður vill og getur en fá síðan leigt ef ekki er hægt aö kaupa. Aö vera aö greiöa niður leigu fyrir fólk er auövitaö s jálfsagt þegar þaö á ekkert. En viö sem eitthvað eigum viljum fá aö borga fyrir okkur sjálf sagöi Ásgeir M. Ásgeirsson, sem er líklega betur þekktur sem Ásgeir í Sjóbúöinni. Við ræddum aöeins viö Ásgeir þegar hann var aö flytja í nýju íbúð- ina sína á Seltjamarnesi. Ibúðin er í húsinu númer 5—7 viö Melabraut. Það er hús eingöngu ætlaö öldruöum. En ólíkt því kerfi sem í gildi er í Reykjavík og Ásgeir vitnaöi í áöan eru íbúöimar í húsinu ýmist seldar eða leigöar, ekki allar leigöar. Alls eru 16 íbúðir í húsinu fyrir utan húsvarðaríbúð. Þegar viö litum inn var flutt í 11 þeirra. Fjórar af íbúðunum 16 em í leigu, hinar keyptu .þeir sem í þeim búa. Þrjár stæröir eru af íbúðum þarna, 95 fermetra, 70 fermetra og 56 fermetra. I framtíð- inni er ætlunin að taka upp hvers konar þjónustu viö íbúana. Seltjamarnesbær réöst í byggingu hússins af miklum myndarbrag. Bærinn og ýmis líknarfélög borguöu allan kostnaö viö sameign, þar á meöal lyftu. Ibúarnir greiddu aöeins fyrir sjálfar íbúöirnar. Er verö þeirra töluvert lægra en á almennum markaöi. Húsiö er á tveim hæöum og bæöi lyfta og stigi milli hæða. Þegar viö litum inn var lyftan þó ekki komin í gagnið enda veröur húsið ekki tekið formlega í notkun fyrr en eftir hálfan mánuö. Kristín er ein af þeim sem leigja íbúðirnar sínar. Hún kvaöst ekki vita ennþá hverju munaði á leigukjörum því ekki væri búiö aö taka endanlega ákvöröun um það hjá bænum hversu há leigan yröi. Katrín bjó áöur á Lambastaöa- brautinni og breyttist því lítið hjá henni viö aö flytja. Hún heldur áfram sínum nágrönnum og vinum í hverf- inu., ,Þaö eina sem ég sé aö er að hér er fremur lítið um verslanir nálægt húsinu. Hérna uppi á homi er lítil búö sem fæst í þaö allra nauösynleg- asta, eins og mjólk og brauð. En stærri verslun vantar,” sagöiKatrin. Flúðupopp- hávaða og vldeo Viö knúðum því næst dyra hjá Kolbeini Björnssyni og Guðmundu Halldórsdóttur. Þau voru búin að vera í húsinu í þrjár vikur. Höföu selt íbúð sína til aö kaupa þessa og orðiö aö fara út áöur en hún var fullfrágengin. Viö spurðum hvemig þeim Ukaöi nýja íbúöin. „Það er ekki hægt aö segja um strax,” sagöi Guðmunda. „Þaö er ennþá veriö aö ljúka viö þetta hérna frammi og á meðan hlustum viö á sinfóníu bora, saga oghamra”. Þau Kolbeinn og Guömunda fengu eina af stærstu íbúöunum. Áöur höföu þau átt aðra, svipaða að stærð. Ég spurði hvers vegna þau heföu þá verið aö flytja. „Viö geröum þaö til þess aö komast í rólegra umhverfi. Þar sem ekki eru \ideo og popptónlist glymj- andi fram á nótt. Það er mikið vanda- mál í tví- eöa þríbýlishúsum eins og því sem við bjuggum í þegar ein fjölskylda fær sér video og hefur það í gangi til 2 og3ánóttinni.” Alveg yndislegt Þegar viö vorum aö koma upp aö húsinu hittum viö Katrínu Kristjáns- dóttur, einn íbúanna. Hún hefur búið þama í rúma viku. Viö spuröum hvernig henni fyndist. „Þetta er alveg yndislegt,” sagöi hún. ,,Ég var í tveggja herbergja íbúö og fæ núna stóra og fallega einstaklingsíbúð. Það er frábær þjónusta að eiga þess kost.” Meðþeimbýrsonurþeirra semer sjúklingur. Það var því ekki síður áríö- andi fyrir hann en þau aö komast í ró- legra umhverfi. Þau hafa búiö við Melabrautina í mörg ár. Bjuggu áöur á 53 og nú á 5. „Þaö þarf bara aö strika út þrjá”, sagðiGuömunda. Með íbúðina vom þau bæði mjög ánægö. Sérlega hrósaöi Guömunda eldhúsinu sem hún kvaö vera sérlega Katrín Kristjónsdóttir fyrlr utan nýja húsið. Allur frágangur umhverfís það er til mikifíar fyrirmyndar. Ekkert rusl eins og oft fylgir nýbygging- um, meira að segja búið aðþekja balann fyrir framan húsið torfum. þægilegt til aö vinna í. Þar er búr inn af og öllu komið fyrir þannig aö sem minnst fyrirhöfn sé við eldamennsk- una. Ætla að klára á hátfum mánuði Viö ákváöum að líta aöeins upp á efri hæðina. A leiöinni hittum viö hóp af smiðum sem voru aö leggja síð- ustu hönd á handriöiö i stiganum. Þeir voru spuröir hvort mikiö væri eftir. „Nei, við ætlum aö klára þetta á hálfummánuði,” sagöieinnþeirra. Þegar ölium frágangi í sameign er lokiö vantar íbúana aöeins eitt sem á þeirra aldri getur veriö lífsnauðsyn. Það eru símar. En sem stendur em ekki til neinar línur til aö tengja við húsiö. Lenti á uppáhalds- tölunni sinni Aö síðustu litum viö svo inn hjá Ásgeiri M. Ásgeirssyni, sem vitnaö var í í upphafi þessarar greinar. Hann býr í millistærðinni af íbúðun- um. „Þetta er alveg prýðileg íbúð. Héðan er líka stutt aö fara á Heilsu- Það er vandaverk að saga handriðið svo rótthom myndist. Enda vandar hann sig ákafíega. Kolbeinn og Guðmunda i ibúðinni sinni. Hún er rúmgóð og hlýleg og þau mjög ánœgð með hana. gæslustöðina þurfi maður þess og stutt í sundlaug, sem er langt komin. Frágangur allur er hér mjög góður, til dæmis upphitaðar allar gangstétt- irviðhúsið.” Ásgeir hefur búiö á Seltjarnames- inu í 30 til 40 ár með hvíldum eins og hann oröaði þaö. Síðast bjó hann á Vesturgötunni í Reykjavík. „Þar var ég í 130 fermetra íbúö en fer núna í 70. Þeir vildu reyndar láta mig hafa einstaklingsíbúð. En ég er vanur því aö hafa kojuna sér og vildi hafa þaö þannig áfram. Og ég hætti ekki fyrr en ég fékk þaö. Eg er líka svo heppinn aö fá að búa í húsi númer 7. Sjö er uppáhaldstalan mín ég hefði veriö alveg ómöguleg- ur ef átt heföi aö taka hana af mér. Auk þess var ég svo heppinn aö fá íbúö hérna á efri hæöinni þaðan sem er miklu betra útsýni en niðri. Stundum er hægt að veröa svona mikiö heppinn í einu,” sagöi Ásgeir. Hann var einn af stofnendum Sam- taka aldraöra sem nú hyggja á hús- byggingu í svipuðu formi og þama á Seltjarnamesi. En Ásgeir sagðist alveg hafa misst trúna á því aö þær íbúðir yröu nokkum timann eins ódýrar og góöar og þær sem á Mela- brautinni eru. -DS Ásgeir var sórlega ánægður með útsýnið út um gluggann hjá sár. Hann hefur i mörg ár alltaf horft út á sjóinn en horfir nú inn yfír bæinn. ID V-myndir Bj. Bj.)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.