Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1982, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1982, Blaðsíða 33
DV. ÞRIÐJUDAGUR 9. NOVEMBER1982 33 Sandkorn Sandkorn Sandkorn Sigtfírðingur í efsta sæti hjá krötum á Norðurlandi vestra Jón Sæmundur Sigurjóns- son, hagfræftingur i heilbrigð- is- og tryggingamáiaráftu- neytinu, verftur efstur á lista Alþýftuflokksins á Norftnr- landi vestra. Framboftsfrest- ur til prófkjörs rann át um mánaðamótin og reyndist Jón Sæmundur sá eini sem tfl- kynnti sig í 1. sætift. Bollaleggingar voru um aft Þorsteinn Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Stein- uUarfélagsins á Sauftárkróki, myndi sækjast eftir 1. sætinu. Af því varft ekki, sökum anna við steinuUarmálin, að þvi er Sandkorni er sagt. Ekki er útUokaft að Þorsteinn skipi annaðsætilistans. Jón Sæmundur Sigurjóns- son er ættaður frá Sigiufirði. Faftir hans er Sigurjón Sæmundsson, prentsmiðju- stjóri og áftur bæjarstjóri á Siglufirfti. Fjörutíu útlendir tónlistarkennarar Ótrúlegur fjöldi erlendra tónUstarkennara kennir við tónUstarskóIa landsins. Sam- kvæmt upplýsingum Jóns Hlöðvers Áskelssonar I menntamólaráftuneytinu, eru útlendingamir um fjörutiu talsins, dreifftir um land aUt. ' Lætur nærri aft tíundí hver tónUstarkennari i landinu sé útlendingur. Ástæðan er skortur á islenskum kennur- um. Um helmingur útlending- anna kennir vift skóla á Norður- og Austurlandi, þar af kenna sex á Akureyri. Nokkrir útlendinganna á Reykjavikursvæftinu ero einnig hljóðfæraleikarar með Sinfóniuhljómsveitinni. Starfsmenn Seðlabanka vara fólk við Vegna Sandkoras i gær um Seðlabankann og ríkisskulda- bréfin haffti Jén Friftsteins- son, starfsmaður bankans, samband við umsjónarmann dálksins. Jón vUdi leiftrétta það sem sagt var að Seftla- bankinn varafti fólk ekki við þegar það kæmi meft bréfin til innlausnar og langt væri frá gjalddaga. „Vift reynum aft benda fólki á þetta. Við látum það vita aft þaft geti fengift hærra verft fyrir bréfin annars staftar,” sagfti Jón Friðsteinsson. Pottlok á sund- laug Þeir á Akureyri eru nú aft spá í að breifta yfir útisund- laugina. Er talift aft meft því megi draga verolega úr orku- notkun. ! blaðinu Degi er sagt að yfirbreiöslan kosti hátt f milljón en útreikningar sýndu aft hún gæti borgaft sig upp á tveimur til þremur ár- um. Yfirbreiðslan yrftl á kefll, jafnbreiðu sundlaug- inni. Hún yrfti sett á og tekin af lauginni með vélarafli. Ráðamenn fleiri sveitar- félaga ættu að hugleifta hvort svona pottlok gæti ekkl komift að gagni hjá þeim. Reyndar þykjumst vift vita til þess aft einhver sveitarfélög hafi sparað orku meft þessum hætti í nokkur ár. Sigmar B. Hauksson með næturútvarp í vetur (Jtvarpið ráftgerir nú aft senda út dagskrá á nóttunni, elnu sinnl í viku í vctur, eins og gert var I sumar. Eins og menn muna var Stefán Jón Hafstein með næturútvarpið. t ráði er aft Sigmar B. Hauks- son verfti með það í vetur. í sumar var næturútvarpift aðfaranótt sunnudags en i vetur er ætlunin að þaft verfti aftfaranótt laugardags, til klukkan þrjú. Stofnendur Manhattan lýstir gjaldþrota Ungu menniroir tveir, sem fyrir ári settu á stofn veitingastaðinn Manhattan i Kópavogi, hafa nú báðir verift lýstir gjaldþrota. Birtist yfir- lýsing um slikt frá skiptaráft- nnda í Lögbirtingablaftinu síðastliðinn föstudag. Báftir tefldu mennirnir djarft. Þeir lögftu eigur sinar aft veði, bíla og íbúðir. Nú hafa þeir misst allt. Veitinga- bransinn er þvi ekki rakin gullnáma. í Afríku „Áf hverju horfirftu svona á mig ? spurði ferftamafturinn, sem staddur var lengst inni í frumskógum svörtnstu Af- ríku, einkennlsklæddan negra. „Ég er frá matvælaeftirlit- inu,” var svarift. Umsjón: KristjánMár Unnarsson. Kvikmyndir Kvikmyndir Austurbæjarbíó — Rödd dauðans: Enn einn geðveikur morðingi Austurbœjarbtó: Rödd dauflans (Eyes Of A Stranger). Stjóm: Ken Wiederhom. Handrit: Mark Jackson, Eric L. Blooms. Tónlist: Richard Einhorn. AflalhKitverk: Lauron Tewes, Jennifer Jason Leigh, John DiSanti, Peter DuPre, Gwen Lewis. Framleiðandi: Ronald Zorra. Kvikmyndaframleiöendur hafa oftar en ekki brugöiö á þaö ráö aft búa til mynd um geöveikan morft- ingja og afbrigðilegar kenndir þeirra gagnvart kven- mönnum.Flestar þessara mynda byggja upp á sama lögmálinu: spennu sem umlukin er einu eöa fleiri morðum, og því betra sem hryllingurinn er meiri sem iiggur að baki hverju morfti. Þaö er svo vanalega einhver meöaljón utan úr bæ, sem tekur að skoöa þennan hrotta í réttu samhengi og eftir vissar vangaveltur kemst hann aö því hver ólánsmaðurinn er. Þaö sem eftir lifir af söguþræðinum er svo jafnan varið í eltingaleik milli góða og vonda mannsins — og sjaldnast er að spyrja að leikslokum. Sumar þeirra kvikmynda sem unnar eru út frá þessari beinagrind geta reynst ágæt afþreying. Þetta eru samt vanalega ekki neinar við- hafnarmyndir, svona sæmilegir þrillerar eins og sumir nefna þessar afurðir. Rödd dauðans er sæmilegur þriller sem nákvæmlega er byggður upp samkvæmt þvi lögmáli sem tæpt var á hér að framan. Nokkur morð hafa verið framin í bæ nokkrum í Florida. Þegar þriðja likið finnst fer bæjarbúum ekki að lítast á blikuna, eins og eðlilegt má teljast. Fréttaþulur nokkur á sjónvarps- stöð, hún Jane, heitir á fólk aö láta lögregluna vita um alia grunsam- lega menn sem vart verði við. Allir verði aö sameinast um átak til aö uppræta ófögnuöinn. Næsta fórnarlamb morðing jans er frammistööustúlka á veitingahúsi, Debbí aö nafni, sem fær dularfulla hringingu þegar hún er nýkomin heim úr vinnu. Debbí hefur að vísu látið lögregluna vita að hún hafi fengið ruddahringingu og lögreglan lofar að athuga málið daginn eftir enda hringi nú margar konur eftir sjónvarpsþáttinn. Um kvöldift fær Debbí svo heim- sókn af hálfu Jeffs vinar síns, en henni virðist engin hlif í því. Með búrhníf heimilisins að vopni af- greiðir moröinginn bara Jeff fyrst en snýr sér svo aö frammistöðu- stúlkunnL Jane stendur vaxandi stuggur af morðunum enda f jölgar þeim si og æ, án þess að lögreglan fái við nokkuð ráðið. Hún ræðir máliö viö vin sinn, David. En hann virðist lítinn áhuga sýna. Jane er hins vegar athugul, og þegar hún sér Stanley nokkum Herbert, sem býr í sama fjölbýlis- húsi og hún, hafa fataskipti í bíla- geymslunni áður en hann fer upp í íbúð sína finnst henni þaö háttalag meira en lítið f uröulegt. David vinur hennar tekur þetta ekki hátíölega frekar en fyrri daginn, en Jane heldur áfram að rannsaka hagi Stanleys — og gengur loks í að safna gögnum um hann. Þá loks verður David að viöurkenna að grunsemdir hennar séu ekki út í bláinn. Rödd dauöans er sem fyrr segir sæmilegur þriller. Hún skilur svo sem ekkert eftir sig enda er hún byggð upp á svipuðu þema og hundruð annarra kvikmynda hafa gert á fyrri tímum. En fyrir þá sem hafa yndi af að skoða framferði geð- veikra morðingja stendur þessi hrotti fyrir sínu. —Sigmundur Erair Rúnarsson. Kvikmyndir Kvikmyndir Nýjar bækur Nýjar bækur Mánasilfur fjórfla bindi komifi út Ot er komið á vegum IÐUNNAR fjóröa bindi ritsafnsins Mánasilfurs, en það er úrval úr íslenskum endur- minningum og sjálfsævisögum. Gils Guðmundsson valdi efnið og sá um útgáfuna. — I þessu bindi eru þættir eftir 32 höfunda og eru þar með höfundar sem efni eiga í Mánasilfri orðnir 118 talsins. Fyrirhugað er að af þessu ritsafni komi út eitt bindi í viðbót. — Líkt og í fyrri bindum er hér að finna þætti frá ýmsum tímum. Elsti kaflinn er úr Pislarsögu Jóns Magnús- sonar, en yngsti höfundurinn er Jón Oskar. Níu höfundar eru á lífi. Efni bindisins er kynnt svo á kápubaki: „Hér er leitt fram á sjónarsviöið fólk úr ýmsum stéttum: bændur, sjómenn, húsfreyjur, prestar, læknar, fræði- menn, listamenn. Hér segir meðal annars frá bernskudögum í sveit og kaupstað, mannraunum, svaðilförum og sálarháska og fyrstu sporum á háUi listamannsbraut. — Mánasilfur er skuggsjá íslensks mannlifs fyrri tíðar, ritverk sem jafnt ungir sem aldnir munu lesa sér til óblandinnar ánasgju.” — Mánasilfur, fjórða bindi,, er 280 blaösíður að stærð. Oddi prentaði. Barist til sigurs eftir Jan Terlouw IÐUNN hefur gefið út nýja sögu eftir hollenska höfundinn Jan Terlouw. Nefnist hún Barist tU sigurs. Þetta er fimmta bók höfundarins sem út kemur á íslensku. Karl Agúst Ulfsson þýddi. — Jan Terlouw er hoUenskur, eöUs- fræðingur að mennt. Hann hefur getið sér mikinn orðstír fyrir barna- og ungl- ingabækur sinar, en af þeim hafa áður komið út hér Stríðsvetur, I föðurleit, Fárviðri og Dulmálsbréfið. Barist tU sigurs er ein sú bók hans sem mesta viðurkenningu hefur hlotið. Fyrir hana fékk höfundur hoUensku unglingabóka- verðlaunin, austurrísk verölaun og loks viðurkenningu í samkeppni evrópskra barna- og unglingabóka. Bók þessi er í ævintýrastU. Segir hún frá konungsríkinu Katóríu sem verið hefur konungslaust í sautján ár og átt við ýmsar hrellingar að stríða. Þá kemur sautján ára piltur, Starkaöur aö nafni, tU ráðherranna og spyr hvaö hann þurfi að gera tU þess að veröa konungur. Þeir leggja fyrir hann sjö þrautir og segir sagan frá því hvemig honum tekst í viöureigninni við þær hremmingar sem íbúar Katóríu eru þjáðir af. Barist tU sigurs er 159 blaösiður. Prentverk Akraness prentaði. Reiöhjól blinda mannsins SúrreaUstahópurinn MEDOSA hefur gefið út bókina Reiðhjól blinda manns- ins eftir Sjón en þetta er hans fimmta bók. Fyrri bækur eru t.d. Hvernig elsk- ar maður hendur (í samvinnu við Matthías Magnússon) og Birgitta. Reiðhjól blinda mannsins hefur 29 ljóð á bögglaberanum og þrjár myndir eftir enska súrrealistann Tony Pusey. Inngangsljóö bókarinnar er eftir Matthías Magnússon en kápumynd geröi Alfreð Flóki. Bókin er 40 síður prentuö með rauðu og svörtu á gráan pappír í Letri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.