Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1982, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1982, Blaðsíða 11
DV. ÞRIÐJUDAGUR 9. NOVEMBER1982 11 , SMASÖGUR ISPARIFÖ1UM íslenskar smásögir 1847-19742 Kristján Karísson va/di sögirnar Aimenna bókaféiagió 1982. Nýlega kom á markað annað bindi af úrvali íslenskra smásagna 1847— 1974 frá Almenna bókafélaginu, en fyrsta bindið kom út fyrr á þessu ári. Kristján Karlsson sér um útgáfuna og ritar auk þess formálsorð. Um þessa útgáfu má segja að fyrr hafi verið þörf en nú nauðsyn. Hún fylgir í kjölfar stóraukins áhuga á smásagnagerð hérlendis og kemur vafalaust mörgum sem vilja kynna sér sögulega þróun smásögunnar að góðu gagni. Auk þess bregður hún ljósi á verk sem legið hafa gleymd og grafin, nægir aö minna á sögur Stein- dórs Sigurðssonar. Það hefur lítið farið fyrir safnritum af þessu tagi. I svipinn man ég aðeins eftir þremur svo það er víst að knýjandi þörf var oröin á góðu smásagnaúrvali. Gróska í smásagnaritun Islensk smásagnagerð hefur vakn- að til nýs lífs á síðustu tveimur árum eða svo því þegar litið er til áratugar- ins þar á undan þá einkenndist hann af lognmollu og tíðindaleysi í heimi smásögunnar. Helst að Guðbergur Bergsson sýndi lit. Flestir höfundar einbeittu sér að gerð skáldsagna og fáir nýir komu fram á sjónarsviðið. Aö undanförnu hafa yngri höfundar hinsvegar eygt þá möguleika sem felast í smásögunni og er það vel, því hún getur verið áhrifaríkt og töfr- andi listform ef vel er að verki staðið. Hún býr yfir ótal möguleikum hvað byggingu snertir og sameinar ýmsa bestu kosti skáldsögu og ljóðs. En jafnframt krefst hún mikils aga af höfundinum, formskyns og stílvit- undar. Án þeirra verður hún ekki annað en litlaus sögukafli, lausa- fregn eða skrýtla sem ekkert skilur eftir sig og deyr að lestri loknum. Eins og fyrr segir hafa komið út fjölmörg verk að undanfömu sem gefa til kynna að nýtt líf sé að færast í íslenska smásagnagerö. Og þetta árið virðist ekkert lát ætla að verða þar á. Enn er þó of snemmt að fjöl- yrða um hvort blómaskeið sé í nánd, líkt því sem upphófst á 6ta áratug aldarinnar. Höfuðeinkenni flestra þessara verka er stefnuleysi og ein- hverskonar leit. Flestir höfundanna eiga í uppgjöri við ,,ný-raunsæið”, rita samfélagslegar ádeilur en reyna jafnframt að sprengja hið raunsæis- lega form. Háð og ýkjur hafa einna helst átt upp á pallborðið hjá þeim. Enn sem komiö er hefur þessi „upp- reisn” litlum árangri skilað. Stíl- brögðin, sem sótt eru til hinnar módemísku sögu, em oft á tíðum ekki annaö en fátæklegar tæknibrell- ur. Mörg verkin falla um sjálf sig, innantómar skrýtlur, þrælbundin augnablikinu, gegnsæ. Þau skortir dýpt og skírskotun sem skáldskapur þarf til að lifa og vaxa í meðvitund lesandans. Engu aö síður leikur h'till vafi á að íslensk smásaga er á leið upp úr öldudal. Sögur eftir Guðberg, Véstein Lúðvíksson og Þorstein Antonsson em órækur vitnisburður um ákveöin tímamót í smásagna- gerðinni. Við slík hvörf er mikill fengur að góðu úrvali íslenskra smá- sagna frá liöinni tíö. Það eykur skiln- ing manna á því sem nú er að gerast og varpar ákveðnu ljósi á fmm- smíðar dagsins í dag. Fyrir það eiga Kristján Karlsson og Almenna bóka- félagið þakkir skildar. Stílsmátar og heimsskoðanir Formáli Kristjáns Karlssonar er býsna fróðlegur í marga staði. En það skal játað aö ég hefði kosið mun ýtarlegri formála með úttekt á stefn- um, samhengi og einstökum höfund- um. Utgefandi hefði átt að sjá sóma sinn í að gera slíkt yfirlit fyrst hann var á annað borð að skrifa formála. Engu að síður eru vangaveltur Kristjáns um margt athyglisverðar og tilraun hans til að skilgreina raunsæisstefnu í íslenskri smásagna- gerð umræðuverð. Kristján bendir réttilega á að raunsæisstefnan hefur haft forræði í íslenskri smásagnahst. Segja má að hún hafi lifaö með öllum höfunda- kynslóðum frá tíð Verðandimanna fram á þennan dag og myndi þannig samfellda heild. En hræddur er ég um að Kristján geri of htið úr „undantekningunum”. Hann álítur að höfuðeinkenni raunsæislegra smásagna á íslensku máli felist í ákveðnum stílsmáta eða tón sem sameiginlegur sé raunsæishöfund- um. Þessa hugmynd rökstyður hann því miður ekki nógu vel en kannski verður bætt úr því í 3ja bindi safns- ins. Eg held að taka verði tillit til margra samverkandi þátta við greiningu bókmennta í stefnur og strauma og stilhnn er ekki nema einn þeirra. Ef til vill skiptir lífssýn- in eða skoðunarhátturinn mestu máli þegar allt kemur til alls, því aö líkindum er hún sú uppspretta sem skáldiö eys úr í verkum sínum, ekki lifiö sjálft heldur skoðun þess á líf- inu. Vissulega eru heimsskoðun og stíll nátengd, hvorugt er til án hins, en stundum rís þversögn á milli þeirra sem gerir bókmennta- fræðingnum erfitt fyrir þegar til flokkunar kemur. Þá getur hann ekki miöað viö óljóst skilgreindan „einfaldleik” og „frábæran prédikunarstíl”. Oftar en ekki getur hugmyndalegur efniviður verks gengiö í berhögg við stílsmáta þess og þannig speglað höfund sem kominn er fram úr sjálfum sér. Eg vil sérstaklega nefna Sigurð Nordal sem dæmi um þetta. I lsta bindi Is- lenskra smásagna birtist saga eftir hann er nefnist Lognöldur. Þar kryfur Sigurður ákveðna þversögn í mannlífinusem lýsa má á þessa leið: Leið manns til sannarlegs lífs hggur um braut frjálsrar og hömlulausrar sköpunar sem á hinn bóginn hefur í för meö sér andlegt niðurbrot og eyðileggingu. Vilji maðurinn nýta mannlega möguleika sína til fulls — lifa lífinu lifandi — verður hann að tortíma sjálfum sér! Dauðinn er samkvæmt þessu samofinn lífinu — forsenda þess, inntak og afsprengi. Þannig lokar Sigurður öllum dyrum: lifsfirring mannsins er að hans dómi ekki afleiðing gallaðrar mannfélags- skipunar heldur óviðráðanleg örlög manneskjunnar. Hún er dæmd af því að hún er manneskja. Það er regin- munur á þessari sögu og raunsæis- legum smásögum sem ritaðar voru um sama leyti í upphafi aldarinnar. Samt sem áður er „stílsmátinn” nauðahkur. Sigurður Nordal ritaði í anda liðinnar tíðar, en hugmynda- heimur hans tilheyrði öðrum tíma. Ef stíllinn er maðurinn, eins og sagt er, þá hleypur Sigurður m.ö.o. framúr sjálfum sér. Á 6ta áratugn- um tóku módemistamir við þar sem Sigurði sleppti og þeir megnuðu að f ella stílinn að heimsmynd sinni. Togstreita tveggja hefða Ég held aö greina megi togstreitu tveggja heimsmynda innan íslenskr- ar smásögu frá upphafi og eiga þær upptök sín í öndverðu viðhorfi til mannlífsins og stöðu manneskjunnar gagnvart sjálfri sér, þjóðfélagi og tilveru. Þessar heimsmyndir þykir hentugt að kalla raunsæi eða real- isma og módernisma þegar þær birt- ast í bókmenntum. Raunsæismenn túlka aö jafnaöi manneskjuna sem félags- eða siðferðisvem og kryfja tengsl einstaklings og umhverfis. Módemistar setja hinsvegar hina einkaiegu tilvistarreynslu á oddinn. I verkum þeirra er einkum f jallaö um ýmis sam-mannleg vandamál og þýðingu þess aö vera til sem mann- eskja. Félagslegar eða siðferðisleg- ar ástæöur skipta þá ekki höfuðmáli eins og reahsta. Þetta er mjög gróf greining; ekki má t.d. hta fram hjá því aö margar hneigðir eru uppi inn- an beggja stefna. Það er til dæmis varla hægt að finna ólíkari höfunda en Gest Pálsson og Einar Kvaran, og Gestur sjálfur klofnar í tvo ílíka höf- unda. Þegar htið er yfir æviverk; hans. Þrátt fyrir þetta einkennist ís- lensk smásaga að mínum dómi af togstreitu tveggja hefða frá upphafi til dagsins í dag — og raunsæið hefur ahs ekki haft yfirhöndina alla tíð. Eg held að nefna mætti tímabilið frá því um aldamót fram til 1920 skeið fmm- módernisma. Þá er raunsæiö að vísu í fullum blóma en nýstariegir höf- undar koma fram, svo sem Einar Benediktsson, Jónas Guðlaugsson og Bókmenntir Matthías Viðar Sæmundsson Siguröur Nordal. Hver meö sínum hætti brjóta þeir í bága við raunsæis- hefðina þótt stílvitundin sé í flestum tilvikum þaöan komin. Og módern- ismi var vissulega ráðandi stefna í íslenskri smásagnagerð um tveggja áratuga bil eftir seinni heimsstyrj- öld, þ.e. frá 1950 til 1970. Vera má að slíkt skeið sé að upphefjast á nýjan leik nú þegar „nýraunsæið” er í andarslitrunum. Þessi tímabilaskipting er vissu- lega mjög gróf og sett fram með fyrirvara og endurteknum fyrir- vara. Enn eru rannsóknir á sögu ís- lenskrar smásögu svo stutt á veg komnar aö allar staöhæfingar orka tvímælis. Smælki um smælingja Kristján bendir réttilega á að ís- lenska smásagan hefur verið fábrot- in „og stuðzt um of við tvær sjálf- virkar persónugerðir: yfirmenn og undirgefna í ýmsum myndum: eldri gagnvart yngri kynslóð, fulloröna andspænis börnum, menn í um- gengni við dýr. „(viii). lslensk smásaga hefur verið „smælingja- saga” frá upphafi. Þetta er ekkert séríslenskt fyrirbrigði og ef til vill er gildi smásögunnar ekki síst fólgið í þessu efnisvali. Formiö virðist sér- lega hentugt til að lýsa lífi og hugar- heimi þeirra sem minna mega sín á einhvernhátt. Irska sagnaskáldiö Frank O’Connor skrifaði eitt sinn að útlag- inn væri heimilisfastur i smásög- unni. Áð hans dómi felur smásagan i sér djúpstæöa vitund um mannlegan einmanaleik. Þessa hugmynd mætti rökstyðja með mörgum dæmum úr íslenskum smásögum. Frá fyrstu tíð hafa þær fjallaö um athvarfsleysi manneskjunnar í samfélagi og til- veru. Söguhetjur þeirra eru mjög oft einfarar á reiki um öngstræti og skuggaborgir — hundeltir og ein- angraðir. Raunsæismenn 19du aldar og sporgöngumenn þeirra leituöu fanga í lífi sveitaöreiga sem harð- neskjulegt og fordómafullt umhverfi dæmdi til ástlauss lífs og útlegðar. Módemistar okkar aldar lýsa gjarn- an utangarðsmönnum í borg, ein- angruöum einstaklingum í framandi veröld. Allar þessar sögupersónur eiga það sameiginlegt að vera í ein- hverskonar andófi við umhverfi sitt. Utlegð þeirra á sér ýmist félagslegar eða tilvistarlegar orsakir en van- mátturinn og klofningurinn tengja þærsaman. Af framansögðu er ljóst að finna má ýmsar stefnur í lýsingu smæl- ingjans. Þótt hún hafi orðið næsta sjálfvirk hjá raunsæishöfundum er um þó nokkra fjölbreytni að ræða. Góðir höfundar hafa ávallt getað bætt nýjum dráttum í lýsingu þessar- ar „manngerðar”. Sá á kvölina sem á völina I þetta bindi Islenskra smásagna hefur Kristján Karlsson valið verk eftir höfunda sem sendu frá sér frumsmíðar á timabilinu 1910 til 1940. Ekki er hægt að segja annað en val sagna hafi tekist stórslysalaust enda útgefandi löngu kunnur smekk- maður á bókmenntir. Hann kemur á framfæri ýmsum af perlum bók- mennta okkar, t.d. Siggu-Gunnu eftir Þóri Bergsson, Hégóma eftir Halldór Stefánsson, Fyrirgefningu eftir Stefán Jónsson, Föður og syni eftir Guðmund Daníelsson og Snjó í apríl eftir Olaf Jóhann Sigurðsson. Einnig má nefna sögur eftir Jakob Thorar- ensen, Davíð Þorvaldsson, Guðmund Hagalin, Indriða Indriðason, Hjört Halldórsson, Sigurð Helgason, Sig- urð Róbertsson og Steindór Sigurðs- son. Þær standa fyrir sínu og vel það. Vafalaust mætti fjasa endalaust um aö þessi eða hin sagan sé betri en akkúrat þær sem lentu i náðinni hjá útgefanda, en það er þarfleysa ef ekki vitleysa. Það verður að virða kvölina þess sem á völina og i þetta sinn hefur hlutskipti hans ekki verið auðvelt. Þakkarverðast þykir mér að hann hefur dregið fram í dagsljós- ið lítt þekktar sögur eftir nær gleymda höfunda. Einmitt það ætti að vera hlutverk safnrita af þessu tagi. Aðfinnslur Eigi að síður langar mig til aö drepa á ýmislegt sem mér þykir að- finnsluvert við val og niöurskipan sagnanna. Mér er hulin ráögáta út frá hverju Kristján gengur viö niður- röðun sagnanna. I fyrsta bindinu er t.a.m. saga eftir Sigurð Nordal sem kom út árið 1919 eða níu árum síðar en Sigga-Gunna Þóris Bergssonar sem birtist í 2ru bindinu. Sömuleiðis er saga eftir Kristínu Sigfúsdóttur í lta bindi þótt sögusafn hennar, Sögur úr sveitum, komi ekki út fyrr en 1925. Fyrst Kristján miðar ekki skipting- una við nein tímamót eða straum- breytingar í smásagnagerðinni hefði veriö eðlilegast að hann léti rétta tímaröð ráða. Ekki eru allar sögumar sömu happadrættimir. Kristján birtir fremur ómerka sögu eftir nafna sinn Albertsson, Marcel vegabónda, sem þar að auki er á mörkum þess að geta yfirleitt talist smásaga. Ekki botnaégíþvívali. Danskurinn í sókn Eg sætti mig ekki við fjarveru Jónasar Guðlaugssonar þrátt fyrir útlistanir útgefanda í formála. Þær fá alls ekki staðist aö ég best fæ séð. En gefumhonum oröiö: „Islenzk smásaga er saga sem er skrifuð á íslensku jafnvel af erlend- um manni. Sömuleiðis verður saga að kallast íslenzk þó aö hún hafi upp- haflega verið skrifuð á erlendu máli, ef höfundurinn er íslenzkur og hefir þýtt hana sjálfur. Þannig eru sögur Kristmanns Guðmundssonar sem hann skrifaði á norsku en þýddi meö eigin hendi á íslenzku orðnar ís- lenzkar sögur. Á hinn bóginn eru sögur Jónasar Guðlaugssonar sem hann samdi á dönsku og annar maður þýddi á íslenzku ekki ís- lenzkarsögur”. (vii) Æ,Æ, mikið þykir mér nú Jónas vera íslenskari en Kristmann. Og reyndar setur þessi kenning okkur, sem höfum til dæmis áhuga á verkum Gunnars Gunnarssonar, í nokkurn vanda. Við verðum að horf- ast i augu við það að Svartfugl sé is- lenskt verk en Ströndin ekki, aö Sælir eru einfaldir séu íslenskir að kyni en Fóstbræður ekki, sömuleiöis að Viki- vakaþýðing Halldórs Laxness hafi ruglað okkur í ríminu og við verið að flækjast með danskt verk þar til karli datt að lokum í hug að snara hugverkinu á elliárum. Erfitt verður hlutskipti þess volaða manns sem þarf að staðsetja Gunnar í bók- menntasögunni. Má vera að þetta þyki útúrsnúningar einir en minna mánúgagngera. Kristján rökstyður reyndar kenn- ingu sína á eftirf arandi hátt: „Hvorki uppruni höfundar né efni sögu segir til um þjóðemi hennar, . heldur máliö eöa öllu heldur sam- band höfundar og máls”. (vii) Vissulega, en „samband höfundar og máls” er ofiö mörgum þáttum og birtist ekki einvörðungu í vali mál- tákna; stíllinn er maðurinn sjálfur hefur réttilega verið sagt og rithöf- undur skiptir ekki um þjóðerni þótt hann riti á erlenda tungu. Eg minnist á þetta vegna þess aö Jónas Guðlaugsson (1887—1916) er nokkuð merkilegt fyrirbæri meðal ís- lenskra smásagnahöfunda. Andrúmsloftið í sögum hans er mjög frábrugöið verkum raunsæismanna. Hann fjallar ekki um togstreitu manns og samfélags heldur einstakl- inginn andspænis dulkynjaðri, fram- andi og yfirþyrmandi náttúru. Ef til | vill hefur hann einn íslenskra I smásagnahöfunda ritað smásögur i anda rómantískrar dulúöar. En jafn- framt er að finna sprota aö ,,módem” hugsun í verkum hans. Hann lýsir þversögnum sem kljúfa mannvistina og túlkar lífsvandann sem af þeim sprettur. Umfjöllun hans er þó rómantísk þar sem hann varpar, dularblæju yfir rökleysum- ar. Að mínum dómi verður að minnsta kosti ekki fram hjá Jónasi gengiö þegar meta skal þróun módemisma í íslenskum bókmennt- um. Lokaorð Hér að framan hef ég tæpt á ýmsum athugaefnum sem lestur 2rs bindis af íslenskum smásögum 1847—1974 vakti hjá mér. Eg vil enn á ný ítreka þákkir til Almenna bóka- félagsins og Kristjáns Karlssonar fyrir framtakiö. Verkið er að mínu viti bitastætt og umtalsverður skerfur til íslenskra bókmennta samtiöarinnar. MVS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.