Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1982, Síða 37
DV. ÞRIÐJUDAGUR 9. NOVEMBER1982
37
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
Áhuginn
frekar
dræmur”
Foreldra- og kennarafélag
Breiöholtsskóla er yngsta félagiö
sinnar tegundar, sto&iað 27.
september síðastliöinn. Formaöur
þess er Sveinn Fjeldsted jám-
iðnaöarmaður. Sveinn og kona hans,
Ingibjörg Kristjánsdóttir, eiga einn
son í skólanum, Guömund 7 ára
gamlan. Þau eiga einnig uppkomna
dóttur og son sem bæði fengu kennslu
viðþennanskóia.
„Þaö er miður að þetta félag
skyldi ekki vera stofnað fyrr,” segir
Sveinn, því að ég er sannfærður um
að bæðí skóltnn, foreldrar og
nemendur væru betur á vegi stödd ef
við hefðum eldra félag. Ég tel að
Bakka-hverfiö sé best skipulagða
hverfið í Reykjavík, það er byggt
kringum alla þá þjónustu sem
nauðsynlegust er, nema hvað læknis-
þjónustanerekkiennkomin tilokk-
ar. Foreldrafélagið er nauösynlegur
þáttur í því að bæta þetta hverfi og
fegra, þaö er til dæmis á dagskrá hjá
okkur að fá foreldra og nemendur til
þess að gróðursetja í holtinu milli
Breiðholts 1 og 3. Það er hlutverk
félagsins. að opna skólann meira
fyrir foreldrum og veita honum
stuðning á ýmsa vegu. Eg get nefnt
skólasundlaugina til dæmis, búnings-
aðstaöan hefur frá upphafi verið í
gjörsamlega óviöunandi ástandi og
þama bíöur foreldrafélagsins mikið
verkefni, að þrýsta á stjómvöld um
úrbætur.”
— Hvernig eru undirtektir
kennara og foreldra?
„Samstarfið við kennara hefur
gefið mjög góða raun það sem af er
og ég get ekki annað en verið bjart-
sýnn á framtíöina. Áhuginn er enn
frekar dræmur meðal foreldranna í
hverfinu en ég vona að það rætist úr
því. Félagið er ungt, þaö er margt
sem þarf að gera og það er alltaf þörf
fyrir dugandi hendur,” sagði Sveinn
Fjeldsted.
Sveinn Fjoldstod, Ingibjörg Krístjánsdó ttir og sonurínn Guðmundur,
sem ekki list meir en svo 6 foreldrafólögin.
„Mér líst ekki á
foreldrafélagið”
„Nei, mér líst ekkert á þetta for-
eldrafélag,” sagði Guðmundur
Fjeldsted, sonur Sveins og Ingibjarg-
ar. „Ég var látinn fara að sofa þegar
þau fóru á fund. Kannski á þetta
félag eftir að gera eitthvert gagn, en
égheldþóvarla.”
— Ertu sæmilega sáttur viö
skólann?
„Já, leikfimi og teikning eru
skemmtilegustu fögin, þar næst
reikningur. Hann Jóhannes Atlason
kennir leikfimi og hann er mjög
góður.”
— Hefuröu nokkum tíma
skrópað?
„Stundum væri nú gott að fá að
sofa rækilega út en ég hef bara einu
sinni fengið skróp. Þannig var aö
kennarinn hafði sagt okkur að tón-
mennt félli niður en þegar til kom
mætti kennarinn í tónmennt og fimm
nemendur sem höfðu tekið illa eftir
en við hinir fengum skróp. Ég er nú
ekki sérlega ánægður með svona
lagað en yfirleitt er ég nokkuð sáttur
við þennan skóla,” sagði Guðmundur
Fjeldsted.
Guðmundur Regnarsson og dóttir hans Unnur Ása, 12 ára gömul. Hún
stundar nám við öskjuhlíðarskóla en hór er hún að prófa leiktækin sem
foreldra- og kennarafólagið kom upp á skólalóðinni.
Gott fólk —
gott skipulag
Friminútur i öskjuhlíðarskóla.
að skipulagi lóðarinnar í stóram
dráttum en smáatriöin hafa síðan
komiö í samráði viö foreldra,
kennara og nemendur. Við erum
reyndar ekki hálfnuö enn með það
sem við ætlum að gera en þessar
aðgerðir hafa orðið til stórra bóta,
eins og allir mega sjá. ”
— Era foreldrar sáttir við stunda-
skrána?
„Þaö er samfelldur skólatimi hér
svo það er engin ástæða til þess að
foreldrar séu að skipta sér af stunda-
skránni. Skólinn er tvísetinn,
byggingin alltof lítil, en ég verð að
segja þaö að mér finnst aödáunar-
vert hvað skólastjóri og kennarar
hafa náð góðu skipulagi þrátt fyrir
þrengslin.”
Öskjuhlíðarskóli í Reykjavík er
sérskóli fyrir þroskaheft böm.
Kennd eru sömu fög og í öðram
skólum en námshraðinn er minni og
markið sett ívið lægra. Nemendur
era á aldrinum 7—18 ára. Formaður
foreldra- og kennarafélagsins er
Guðmundur Ragnarsson viðskipta-
fræðingur.
..Stærsta verkefni félagsins er að
reka „Sumardvöl” fyrir
nemendurna, sagði Guðmundur. „I
sumar vorum við með Hafralækjar-
skóla í Aðaldal á leigu í 9 vikur. Ég
vil leggja sérstaka áherslu á að þetta
félag nær til foreldra, kennara og
allra sem við skólann starfa. Til
dæmis hafa ræstingakonumar staðið
fyrir kökubasar á hverju vori, gefiö
til hans kökur og alla vinnu, en á-
góðinn rennur svo til skóla-
starfsins.”
„Það er alveg sérstakt starfsliö
þarna,” segir Dúfa Einarsdóttir
kona Guðmundar, „og ég held að það
geti hreinlega ekki unnið annað en
gott fólk við svona stofnun því að
aðrir myndu ekki nenna því. Það
gefur auga leið að það er svo margt
sem reynir á þolinmæðina.”
„Nú, það komu upp hugmyndir
um að það væri verðugt verkefni
fyrir félagið að flikka upp á skóla-
lóðina því sýnt var að ekki myndi
ríkisvaldið leggja okkur lið. Við
höfum til dæmis aflað okkur fjár-
muna til framkvæmda með
happdrætti. Auður Sveinsdóttir
landslagsarkitekt lagði fram tillögur
Kári Arnórsson, skóiastjóri
Fossvogsskóla.