Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1982, Blaðsíða 35
DV. MIÐVIKUDAGUR17. NOVEMBER1982.
35
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Frá Val Jónatanssyni, fréttarit-
ara DV á tsafirði:
Danska varðskipiö Hvidbjörnen
kom til Isafjaröar sl. mánudag í
bæjarheimsókn og var í þrjá daga.
Skipiö hefur ekki komið til Isafjarðar
fyrr en varöskipiö Ingolf kom til Isa-
fjaröar fyrir sjö árum.
Hvidbjörnen hefur skrásetningar-
númeriö F 348 og er eitt af f jórum
varöskipum Dana. Skipiö er smíðað í
Arhus og sjósett 23. nóvember 1961,
það er 72 metra langt, 11,62 á breidd
og er 1778 brúttólestir að' stærö. I
skipinu eru f jórar 1600 hestafla vélar
og ganghraði 19 mílur og einnig er
þyrla um borð. 72 manna áhöfn getur
verið á skipinu en 35 voru í áhöfn nú.
Skipiö er sérstaklega styrkt til
siglinga í ís.
Skipstjórinn Jespesen kvaö þá
hafa verið viö gæslustörf við Vestur-
Grænland og færu þeir aftur þangaö
og veröa þar fram í miðjan janúar.
Uthaldiö hjá þeim er þetta 3—4
mánuðir í senn. 4 skip eru i gæslu-
störfum á vegum danska rikisins,
tvö eru við Grænland, eitt viö
Færeyjar og eitt i höfn. Störf þeirra
eru ósköp álíka og störf íslensku
varðskipanna, einnig er læknir um
borð og rúm fyrir sex sjúklinga.
Tilgangurinn með komu skipsins
til Isafjarðar var að gefa áhöfninni
fríogtakavistir.
Skipstjórinn bauö bæjarstjórn Isa-
fjarðar og helstu forráðamönnum
bæjarins til skips og voru þar veittar
veglegar veitingar, einnig var boðið
til hádegisverðar og skipst á g jöfum.
Bæjarstjómin bauð áhöfninni í
skoðunarferð um bæinn, skoðað var
byggðasafnið, frystihús og fleira.
Jespesen skipstjóri hefur verið með
þetta sk^) í tæp tvö ár. Umboðs-
maður fyrir Dani á Isafiröi er frú
RutTryggvason.
-V.J. ísafirði.
Móttaka vegna komu skipsins. Frá
vinstri: Magnús Reynir Guðmunds-
son, vara-bæjarstjóri, kona hans
Guðrún Gunnarsdóttir, Jespesen,
skipstjóri, Nieisson I. stýrimaður,
Rut Tryggvason, konsúll, Þorvaldur
K. Þorsteinsson bæjarfógeti og
eiginkona hans, Magdalena
Thoroddsen.
DV-myndir: Valur Jónatansson.
Hvidbjörnen i Ísafjarðarhöfn.
Danskt
varðskip
heimsækir
ísafjörð
Forseti islands var meðal gesta á opnun Frönaku kvíkmyndavikunnar. Við hlið hennar er Madame Legendre
franska sendiherrafrúin, en fyrir framan þær eru Þráinn Bertelsson kvikmyndaleikstjóri og Gunnar Gunnars-
son rithöfundur. Vinstra megin við þær eru Bjöm Tryggvason aðstoðar-seðlabankastjóri og Rajehart,
tékkneski verslunarfulltrúinn.
Frá opnun Frönsku
kvikmyndavikunnar
Franska kvikmyndavikan hófst
síöastliðinn laugardag. Sendiherra
Frakklands á Islandi, Louis Legendre,
ávarpaði gesti á frumsýningu fyrstu
myndarinnar og setti kvikmynda-
vikuna. Fyrsta myndin sem frumsýnd
var heitir „Moliére eða líf heiðariegs
manns” sem Ariane Mnouchkine leik-
stýrði. Alls eru sýndar sjö nýlegar
franskar kvikmyndir á hátíðinni, þar á
meöal kvikmyndin Surtur
(Anthracite) en leikstjóri og handrits-
höfundur myndarinnar, Edouard Nier-
mans, er gestur kvikmyndavikunnar.
Svo skemmtilega vill til að Niermans
er vel kunnugur Islandi, hefur komið
hingaö nokkrum sinnum og dvalið hér
um skeið. Þess má geta að leikstjóri
Moliére, Ariane Mnouchkine, er
öldungis ekki með öllu ókunnug
Islendingum því Sigurður Pálsson
Edouard Niarmans, gestur kvikmyndavikunnar, ásamt þeim Erni Snorra-
syni sálfræðingi og Sigurði Pálssyni skáldi og leikstjóra og Hrafni
Gunnlaugssyni kvikmyndaleikstjóra.
DV-myndir: GVA.
skáld og leikstjóri nam leikhúsfræði í
París, meðal annars undir handleiðslu
hennar.
Að lokinni frumsýningu fyrstu
myndarinnar, Moliére (fyrri hluta),
var haldið hanastéisboö í húsa-
kynnum Regnbogans en um kvöldið
hélt franska sendiráðið kvöldverðar-
boð og voru þar m.a. sérstaklega
boðnir Edouard Niermans og íslenskir
kvikmyndaleikstjórar.
-ás.