Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1983, Blaðsíða 11
DV. FIMMTUDAGUR10. FEBROAR1983.
11
Ritari Alþjóda-
sambands leigj-
enda til íslands
Ritari Alþjóðasambands leigjenda
kemur til Islands um næstkomandi
helgi, í boði Leigjendasamtakanna og
Norræna hússins.
Auk þess að vera ritari Alþjóðasam-
bands leigjenda (International Union
of Tenants) er Svíinn Bjöm Eklund
yfirmaður upplýsingadeildar sænsku
leigjendasamtakanna, Hyres-
gástemas Riksförbund. Hann mun
dvelja hérlendis dagana 11. til 15.
febrúar.
Tilefni þess að Birni Eklund hefur
veriö boðiö til landsins er að
Leigjendasamtökin vilja efna til
umræðu um húsnæðisvandann og
vekja athygli á þeim möguleika að
bregðast við honum með skipulegri
aukningu á framboði leiguhúsnæðis.
Mun Bjöm Eklund skýra frá ástandi
þessara mála í öðmm löndum og svara
fyrirspumum á almennum fundi í
Norræna húsinu næstkomandi laugar-
dag, 12. febrúar klukkan tvö eftir
hádegi.
Samtökin líf og land:
EFNA TIL RÉTTARHALDA UM
JAFNAN ATKVÆÐISRÉTT
Það er manni
holltað
breyta til
— segir nýskipaður borgardómari
Sýslumaðurinn í Strandasýslu,
Hjördís Björk Hákonardóttir, hefur
verið skipaöur borgardómari í
Reykjavík frá og meö 1. júlí næst-
komandi.
„Eg hef nú verið sýslumaður hér í
Strandasýslu í þrjú ár” — sagði
Hjördís — „var skipuð um áramótin
1980. Þetta hefur verið mér mjög lær-
dómsríkur og skemmtilegur tími —
og vissulega verður margs að sakna;
bæði fólks og starfsins sem slíks.
Það er mjög áhugavert embætti að
vera sýslumaður, og ég mun einkum
sakna þess að geta ekki lengur sinnt
sveitarstjórnarhlið starfsins. — Því
miður var sýslumannsembættið það
umfangsmikið að ég gat ekki gert
eins mikiö á vettvangi sveitarstjórn-
armála og mig hefði langað til.
Annars er ég hlynnt því að fólk sé
ekki of lengi í sama opinbera starf-
inu. Þaö er manni hollt að breyta til.
Eg er skipuð borgardómari frá og
meö 1. júlí og það er embætti sem ég
hef lengi haft hug á. Þaö er ólíkt
sýslumannsembættinu að því leyti að
þar fæst maöur við hreina lögfræði.
Aö vísu er það talsvert átak að
flytja fjölskyldu á milli landshluta,
en maöur fær þó ævintýraþránni f ull-
nægt” — sagði Hjördís oghló.
-FG
Alþýdubandalagiö íVesturlandskjördæmi:
Tíu gefa kost
á sér í síðari
hluta forvals
Síðari umferð forvals Alþýðubanda-
lagsins í Vesturlandskjördæmi fer
fram helgina 18. til 19. febrúar, þar
sem raöað verður á lista vegna alþing-
iskosninga. Tíu hafa gefið kost á sér.
Þau eru Einar Karlsson, formaöur
Verkalýösfélags Stykkishólms,
Gunnar Gunnarsson skipstjóri, Olafs-
vík, Jóhann Arsælsson skipasmiður,
Akranesi, Jóhanna Leópoldsdóttir
verslunarstjóri, Vegamótum, Jóhann-
es Ragnarsson sjómaöur, Olafsvík,
Kristrún Oskarsdóttir sjómaður,
Stykkishólmi, Ragnar Elbergsson
hreppsnefndarmaður, Grundarfirði,
Ríkard Brynjólfsson kennari, Hvann-
eyri, Sigurður Helgason bóndi, Hraun-
holtum, og Skúli Alexandersson
alþingismaöur, Hellissandi.
-RR
„Annars er ég hlynnt því að fólk sé ekki of lengi í sama opinbera starfinu,” segir Hjördis Björk Hákonardóttir, ný-
skipaður borgardómari — og bráðum fyrrverandi sýslumaður. DV-mynd.
þeir sækja og verja málið.
Þeir eru Jón E. Ragnarsson, sem
verja mun ríkjandi meginviðhorf, og
Jón Steinar Gunnlaugsson, sem
sækja mun málið með tilliti til fulls
jöfnuðar atkvæðisréttar. Hvor þeirra
hefur rétt til að kalla þrjú vitni fyrir
réttinn, og hafa þeir tvær klukku-
stundir samtals til umráða.
Að loknum málflutningi verður
síðan lögð svohljóðandi spurning
fyrir tólf manna kviðdóm: „Telur
dómurinn að atkvæði allra kjósenda
skuli vega jafnt í alþingiskosningum,
án tillits til búsetu? ”
Kviðdómur þessi er valinn meö
aöstoð Reiknistofnunar Háskólans
og verður þar að finna fólk úr dreif-
býli jafnt sem þéttbýli. Skilyrði er,
að meðlimir dómsins hafi ekki fyrir-
fram mótaöa skoðun á máhnu.
Dómsforseti er dr. Gunnar G.
Schram. Fundurinn hefst klukkan
13.15 og er öllum opinn.
Samtökin hafa tvisvar sinnum
áður efnt til réttarhalda af þessu
tagi. Imars 1981 varframtíðReykja-
víkurflugvallar til meðferðar og í
október 1979 var viðfangsefniö
hvalveiðarlslendinga. -PÁ.
Stjóm landssamtakanna Lif og
land hefur ákveðið að efna til al-
menns fundar í Reykjavík næstkom-
andi sunnudag, hinn 13. febrúarl983,
þar sem almenningi gefst kostur á að
kynnast rökum meö og á móti jöfnun
atkvæðisréttar.
Form fundarins, sem haldinn
verður í Gamla bíói, er óvenjulegt,
því sett verða á svið réttarhöld.
Röksemdir veröa kynntar af tveim
hæstaréttarlögmönnum og munu
Nokkrir forráðamanna samtakanna Líf og land á fundi með blaðamönnum; talið frð vinstri: Hans Kristján
Árnason, Kristinn Ragnarsson, dr. Gunnar G. Schram, Sigurður Blöndal og dr. Sturia Friðriksson.
D V-m ynd Bjarnleifur.