Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1983, Blaðsíða 21
20
DV. FIMMTUDAGUR10. FEBROAR1983.
DV. FIMMTUDAGUR10. FEBRUAR1983.
21
og Júdó-gallar
1 vörtitteiiriSm
Inqölf/ é/kar//onor
Klapparstíg 44,
sími 11783.
fþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
Hflmar Bjömsson, landsliðsþjálfari.
Þorbergur finnur
til þreytu í hendi
— kemur í Ijós í næstu viku hvort hann verður tilbúinn
i slaginn í B-keppninni
— Það er of fljótt að segja til um
hvort Þorbergur Aðalsteinsson verði
tilbúinn fyrir B-keppnina í Hoflandi.
Hann hefur æft með okkur að undan-
förau en fundið tfl þreytu í hendinni.
Það mun koma í ljós í næstu viku hvort
hann nær að yfirstiga meiðslin, sagði
Hilmar Björnsson, landsliðsþjálfari í.
handknattleik, en landsliðið æfir nú
einu sinni á dag — tvo tima í senn, fyrir
B-keppnina í handknattleik, sem hefst
í Hollandi 25. febrúar. Eins og kunnugt
er leika íslendingar fyrsta leik sinn
gegn Spánverjum í Breda.
Landsliðið æfir einu sinni á dag
þangað til 22. febrúar aö það heldur til
Mútur og svindl
íUngverjalandi
„Ferencvaros vann ungverska
meistaratitilinn í knattspyrnu fyrir
tveimur árum að mestu með því að
úrslit í leikjum voru ráðin fyrirfram.
Mótherjunum mútað,” sagði einn af
leikmönnum liðsins, Robert Koch, i
viðtali i vikublaðinu Magyar If jusag.
Það er málgagn ung-kommúnista í
Ungverjalandi, segir í fréttum frá
Vínarborg í gær. Blaðið er nú þar til
sölu.
Meðal þeirra leikja sem Feren-
cvaros vann þannig var leikurinn við
Ujpest Dosza, félag sem lögreglan í
Ungverjalandi stjórnar. Þar leika
„lögreglumenn”, eftir því sem
Robert Koch segir. I sjónvarps-
viðtali í Ungverjalandi kom for-
maður Ferencvaros, Laszlo Kiss,
fram og sagði að Ferencvaros hefði
ekki peninga til að múta leikmönn-
um.
Þá var skýrt frá því í einu dag-
blaða Ungverjalands í síðustu viku
aö 26 menn hefðu verið ákærðir fyrir
aö hafa grætt á getraunasvindli í
ungversku getraununum, sem ríkið
rekur. -hsim.
LINDA LAUS UR
KEPPNISBANNINU
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, frétta-
manni DV í Svíþjóð.
Frjálsíþróttakonan kunna, Linda
Haglund, losnaði úr 18 mánaða
keppnisbanni í gær og hyggur á stóra
hluti í framtíðinni. Hún var dæmd í
bannið fyrir að bafa neytt örvandi
lyfja eins og frægt var á sínum tima.
Linda sagðist þá ekkert hafa vitað um
það. Tók Iyf, sem hinn finnski þjálfari
hennar lét hana hafa, í þeirri trú að
það væru vítamíntöflur.
Linda Haglund hefur æft mjög vel
allan timann sem hún var i keppnis-
banninu undir stjóra þjálfara, sem
áður þjálfaði meðal annars Don
Quarrie, Jamaica, einn besta sprett-
hiaupara, sem uppi hefur verið.
Þjálfarinn hefur lagt mikla áherslu á
200 m hjá Lindu en stúlkan er mjög
spretthörð. Varð Evrópumeistari 1976 í
Miinchen í 60 metra hlaupi. GAJ/hsím.
Hilmar ferðast með
danska landsliðinu
— þegar hann „njósnar” um spánska landsliðið í Danmörku
Spánverjar — mótherjar tslendinga í B-
keppninni í handknattleik, eru nú á leiðinni
til Danmerkur þar sem þeir verða í æfinga-
búðum í ellefu daga, eins og hefur komið
Tíu marka sigur
Svía á Frökkum
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, fréttamanni DV
í Svíþjóð.
Svíar og Frakkar, sem taka þátt í B-
keppni heimsmeistarakeppninnar í hand-
knattleik, sem hefst í Hollandi 25. þessa
mánaðar, léku landsleik í Sviþjóð í fyrra-
kvöld. Svíar sigruðu með miklum mun, 33—
23, og hefði sá sigur getað orðið mun stærri.
Sænska liðið skoraði fimm fyrstu mörkin í
leiknum, 5—0, og staðan í hálfleik var 18—7
fyrir Svía. Claes Hellgren, Heim í Gauta-
borg, átti stórleik í sænska markinu í hálf-
leiknum. Varði alls 17 skot.
Sænski landsliðsþjálfarinn var viss um að
lið hans mundi slaka á í síðari hálfleiknum,
eftir þessa góðu byrjun. Hann vill hafa Hell-
gren í stuði í Hollandi og var því ekkert aö
brjóta niður sjálfstraust hans. Lét Hellgren
ekki leika í síðari hálfleiknum. Það kom líka
í ljós að Svíar slökuðu á. Vömin mjög slök í
síðari hálfleiknum og sænska liöið fékk þá á
sig sextán mörk.
Bjöm Jilsen var yfirburðamaður í sænska
liðinu. Skoraöi 12 mörk. Claes Ribendahl,
eini leikmaður sænska liðsins sem ekki Ieik-
ur í 1. deildinni, stóö einnig vel fyrir sínu.
Skoraöi sjö mörk. Þá vakti línumaöurinn
Carlén mikla athygli og skoraði sex sinnum.
GAJ/hsím
fram í DV. Spánverjar leika m.a. tvo lands-
leikf gegn Dönum á Jótlandi um næstu helgi
og síðan æfingaleiki gegn dönskum félagslið-
um.
Eins og DV hefur sagt frá fer Hilmar
Björnsson, landsliðsþjálfari Islands, til Dan-
merkur til aö fylgjast með landsleikjunum
og kemur síðan með myndbandaupptökur af
leikjunum, sem Danir taka upp fyrir Islend-
inga. Hilmar kemur einnig með upptökur af
leikjum Dana og Svisslendinga, sem fóru
fram í Sviss um sl. helgi. Svisslendingar
leika í sama riðli og Islendingar í Hollandi.
Leif Mikkelsen, landsliðsþjálfari Dana,
hefur gefið Hilmari margar góðar upplýs-
ingar um mótherja Islands. Danir hafa boð-
ið Hilmari að vera samferða landsliði þeirra
frá Kaupmannahöfn til Jótlands og munu
þeir Hilmar og Leif örugglega skiptast á
skoðunum og ræða saman um Spánverja —
styrk þeirra og veikleika. Hilmar á því aö
koma heim til Islands reynslunni ríkari.
-SOS
Tony Woodcock, Arsenal.
Hollands. Bjarni Guðmundsson og
Siguröur Sveinsson, sem leika með
Nettelstedt, eru komnir til landsins til
að taka þátt í lokaundirbúningnum.
Hilmar sagði að allir leikmenn ís-
lenska landsliösins sem hann hefur
valið fyrir Hollandsferðina gangi heilir
til skógar — aðeins smávægileg
meiðsli hafði skotið upp kollinum.
Nú síðustu daga hefur landsliðiö ver-
ið aö æfa upp ýmsar leikaöferðir en í
næstu viku verður meira um æfinga-
leiki. Þá mun landsliöið t.d. leika gegn
úrvalsliöi íþróttafréttamanna í Laug-
ardalshöllinni 17. febrúar og er leikur-
inn liður í skemmtikvöldi HSI. -SOS
Flóahlaup á
laugardag
Hið árlega Flóahlaup Ungmennafé-
lagsins Samhygðar í Áraessýslu verð-
ur háð laugardaginn 12. febrúar næst-
komandi. Hefst það klukkan 14 frá
Vorsabæjarhóli í Gaulverjabæjar-
hreppi. Víðavangshlaup þetta er öllum
opið. -KMU
Þorbergur Aðalsteinsson.
Snilldarleikur Wood-
cock og sigur Arsenal
— vann Leeds 2-1 í ensku bikarkeppninni og leikur
\ í Middlesbrough í 5. umferð
Enski landsliðsmiðherjinn, Tony
Woodcock, sýndi snilldartakta þegar
Arsenal sigraði Leeds 2—1 á Highbury
í gærkvöld í ensku bikarkeppninni. Það
var þriðji leikur liðanna. Þau höfðu
áður gert jafntefli 1—1 bæði á High-
bury og Elland Road. Leikurinn var úr
4. umferð og í þeirri fimmtu á Arsenal
útileik—í Middlesbrough.
Ekkert mark var skorað í fyrri hálf-
leiknum á Highbury í gærkvöld en á 54.
mín. skoraði Woodcock. Fékk sendingu
frá Graham Rix inn í vítateig Leeds,
sneri sér snöggt og sendi knöttinn í
markhornið hjá John Lucic, mark-
verði Leeds.
Leedstókstað jafna á 70. mín. Terry
Connor skoraöi eftir að Pat Jennings,
markvörður Arsenal, hafði varið skot
frá Arthur Graham. Knötturinn lenti í
þverslánni og það fyrir fætur Terry
Connor. Næstu mínútur sótti Leeds
mjög en tókst ekki að skora. Á 82. mín.
átti Woodcock frábæra sendingu á Rix,
sem skoraði sigurmark Arsenal.
Fimmta umferðin verður háð 19.
febrúar og leikimir eru:
Aston Villa — Watford
Cambridge—Sheff. Wed.
Crystal Palace—Bumley
Derby County—Man. Utd.
Everton—Tottenham
Liverpool—Brighton
Middlesbrough—Arsenal
Norwich—Ipswich
Þá var einn leikur í 3. umferð skosku
bikarkeppninnar í gærkvöld. Kil-
mamock tapaði á heimavelli fyrir
Partich Thistle 0—1. -hsím.
Aðgerðin á
hnémeiðslum
Lalla heppn-
aðist vel
hann útskrifast af sjúkrahúsi í dag og má byrja
að æfa í næstu vjku
Lárus Guðmundsson, landsliðsmið-
herji í knattspyrau, sem leikur með
Waterschei í Belgíu, kom af spítala í
gær eftir stutta legu þar. Eins og DV
sagði frá þá meiddist Lárus í leik gegn
Lierse á sunnudaginn — hneig niður í
byrjun seinni hálfleiks og var borinn af
leikvelli. Það var ljóst að Lárus var
með rifinn liðþófa og var í fyrstu haldið
að bann yrði frá keppni í f jórar vikur.
Lárus fór í aðgerð á spítala á þriðju-
dagsmorguninn. Boruð vom með sér-
stökum borum f jögur göt inn í hné hans
og liðþófinn speglaöur. Þá kom fram
að rifan á liðþófanum var langsum en
ekki þversum, en ef hún hefði verið það
hefðu meiðslin verið alvarlegri. Lið-
þófinn var síðan sogaöur til og um-
búðir settar á hnéð. Ráðlagt var að
Lárus yrði á spítalanum til föstudags
Auðveldur
sigur Hauka
— vann ÍR 30-24
íbikarkeppninni
Haukar sigruðu 1. deildarlið ÍR
örugglega i bikarkeppni HSÍ í íþrótta-
húsinu í Hafnarfirði í gærkvöld. Loka-
tölur 30—24 og var aldrei vafi á því
hvort liðið færi með sigur af hólmi.
Flest mörk Hauka skoruðu Hörður Sig-
marsson 6 og Ingimar Haraldsson 5. t
liði ÍR var Björa Björasson markhæst-
ur með 9 mörk.
hsim
Húsavíkur-pilturinn
vakti mesta athygli
—á bikarmóti skíðasambandsins íBláf jöllum
Árai Grétar Áraason frá Húsavík
vakti mikla athygli á bikarmóti skiða-
sambandsins í Bláfjöflum um síðustu
helgi. Hann sigraði með yfirburðum í
svigi pilta 15—16 ára og telja sérfræð-
ingar að þar sé mikið efni á ferðinni.
Ekki afls fyrir löngu sigraði Árai Grét-
ar í svigkeppni fullorðinna á Ákureyri.
Á mótinu kom fram að greinileg
framför er hjá unglingunum og breidd
að aukast mikið. Keppendur voru víðs
vegar að af landinu, að Siglfirðingum
og Olafsfirðingum frátöldum. Þeir
komust ekki tfl mótsins vegna ófærðar.
Fresta varö stórsvigskeppni á laugar-
dag en keppt í sviginu á sunnudag.
Helstu úrslit urðu þessi:
Stúlkur 13—14 ára
1. Snædis Ulriksdóttir, Rvík. 90,19
2. Anna Ivarsdóttir, Ak. 91,52
3. Eria Bjömsdóttir, Ak. 93,10
4. Gúnda Vigfúsdóttir, UlA 93,16
Pfltar 13—14ára
1. Bjöm Gíslason, Ak.
2. Heimir Valsson, Ak.
3. Birkir Sveinsson, UlA
4. Sigurður Bjamas., Húsav.
Stúlkur 15—16 ára
1. Tinna Traustad., Ak.
2. Guðrún Kristjánsd., Ak.
92,79
96,05
98,44
98,87
124,13
124,51
3. Guðrún Magnúsd., Ak. 125,60
109,39
Piltar 15—16 ára
1. Ámi G. Árnason, Húsav.
2. Rúnar Kristjánss., Ak.
3. Þór Omar Jónss., Rvík.
4. Guöjón Olafss., Isaf.
113,46
113,85
115,71
-hsim
Blak kvenna:
Þróttur með traust
tak á bikarnum
Stúlkumar í Þrótti eru nú komnar
með traust tak á íslandsmeistara-
bikarnum í blaki. Eftir 3—2 sigur
þeirra í fyrrakvöld á aðalkeppinautun-
um, ÍS-stúlkunum, þarf mikið að
gerast til að þær glopri bikarnum úr
höndum sér.
Leikur ÍS og Þróttar stóð í 105
mínútur. Þróttar-stúlkuraar unnu
fyrstu hrinu naumlega 15—13. ÍS-stúlk-
urnar unnu næstu tvær, 15—9 og 15—10.
Þróttur jafnaði leikinn 2—2 með 15—9
sigri i fjórðu hrinu og vann svo þá
fimmtu, einnig 15—9.
Staðan hjá stúlkunum er nú þessi:
Þróttur 12 12 0 36-10 24
ÍS
Breiðablik
KA
Víkingur
13 10 3 35—10 20
10 4 6 6-19 8
8 17 3-21 2
11 0 11 3—33 0
-KMU.
Benson stjóri
Man. City
John Benson, sem var aðstoðar-
maður John Bond hjá Man.City, var í
gær ráðinn framkvæmdastjóri félags-
ins. Hann hefur sinnt þvi starfí frá þvi
Bond hætti i síðustu vlku.
en hann fær að fara heim í dag.
Þegar umbúðirnar voru teknar af í
gær var bólgan horfin úr hnénu. Að-
geröin heppnaðist vonum framan, því
að um tíma leit út fyrir að hann þyrfti
að gangast undir uppskurö og yrði frá
keppni í f jórar vikur. Það var kunnur
læknir, sem hefur sérmenntað sig í að-
gerðum á hnjám knattspyrnumanna,
sem sá um aðgerðina á Lárusi. Lækn-
irinn tilkynnti Lárusi aö hann gæti far-
ið að æfa eftir fimm daga, þannig að
Lárus verður fljótlega kominn á fulla
ferð — hrellandi markverði í Belgíu.
-SOS
Lárus Guðmundsson — missir að öllum likindum aðeins einn leik hjá Waterschei.
Keppni heimsbikarsins í alpagreinum:
Svisslendingurinn
náði forustu á ný
Svisslendingurinn Peter Luescher
náði aftur forustu í stigakeppni heims-
bikarsins i alpagreinum þegar hann
sigraði í super-stórsvigi, nýju grein-
Jens þjálfar
Valsmenn
— átta 3. deildarlið eru enn þjálfaralaus
Jens Einarsson, markvörður KR-
liðsins i handknattleik, hefur verið ráð-
inn þjálfari nýliða Vals frá Reyðarfirði
í 3. defldarkeppninni i knattspyrau.
Jens er ekki óþekktur á Austfjörðum
því að undanfarin ár hefur hann leikið
með Súlunni á Stöðvarf irði.
Flest félögin í Norð-Austurlandsriðli
3. deildar hafa ráðið þjálfara. Ölafur
Sigurvinsson verður áfram með
Huginn, Róbert Agnarsson, miðvöröur
úr Víkingi, verður meö HSÞ-b, Árai
Stefánsson verður áfram með Tinda-
stól, Þorleifur M. Friðjónsson þjálfar
Magna, Jóhannes Bárðarson, miðvörð-
ur Islandsmeistara Víkings, þjálfar
Þrótt frá Neskaupstað. Sindri frá
Homafirði og Austri frá Eskifiröi hafa
ekkiráðið þjálfara.
Aðeins þrjú félög í Suð-Vesturlands-
riöli 3. deildar hafa ráðið þjálfara.
Sigurlás Þorleifsson, markaskorari
frá Vestmannaeyjum, þjálfar Selfoss,
Eggert Jóhannesson þjálfar IK og
Kjartan Másson verður þjálfari
Grindavíkur, Armann, Skallagrímur,
Víkingur frá Olafsvík, Snæfell og HV
hafaennekkiráðiöþjálfara. -SOS
inni í heimsbikamum, í Garmisch-
Partenkirchen í Vestur-Þýskalandi í
gær. Pirmin Zurbriggen, Sviss, varð
annar i gær. Ingemar Stenmark i ell-
efta sæti en Mahre-tvíburarair kepptu
ekki. Segjast ekki ætla að keppa i þess-
ari grein.
Peter Luescher hefur nú 160 stig.
Phfl Mahre er annar með 145 stig og
Zurbriggen þriðji með 138 stig. Sten-
mark er í fimmta sæti með 107 stig.
108 keppendur tóku þátt í super-stór-
sviginu í gær. Sigur Luescher er hinn
þriðji í þessari grein í heimsbikar-
keppninni. Hann sigraði í bruni sl.
laugardag og virðist hafa möguleika á
því að verða handhafi heimsbikarsins í
vor með sama áframhaldi.
hsim
Jens Einarsson.