Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1983, Blaðsíða 14
14
DV. FIMMTUDAGUR10. FEBRUAR1983.
BREIÐHOLTI
SIMI76225
Fersk blóm daglega.
MIKLATORGI
SÍMI 22822
IGOÐIR
i
NOTAÐIR
El
1 BÍLAR:
^jMercedes Benz 300 dísil 1980, góður
QJ bíll.
EJ Honda Accord 1979, 4-dyra.
® Datsun dísil 1980, góður bíll.
Lancer 1600 GSR 1982 ek. 9.000 km.
1H1W
EIM
01'
Eí
rö= kiiasala
GUÐMUNDAP
0j Bergþórugötu 3 — Reykjavik
|‘. Símar 19032 — 20070
(a[3@@@[a[a[a[a[a@@[a[a(a@[a[a[H[a[a[a(á(a@[a@[a[3[a(a[a@(a@@[3(a[a[ag
01
Mercedes Benz 2501979, óvenju glœsi- QJ
legurbíll. El
Simca 1100 special 1977, í toppstandi. El
Mazda 929 limited 1982, ek. 10.000 km. gj
Mazda 6261982, ek. 4.000 km.
Volvo 244 1981, sjálfsk.
Volvo 2441977, góðkjör. El
Wagoneer 1976. Qy
Lada 1200 1980, sérstaklega hagstætt QJ
verð. BJ
VANTAR:
Passat1978.
Bl
i
i
EJ
EJ
Ei
i
01
Bl
E1
01
Síaukinsala
sannar öryggi
þjónustunnar.
Bifreiðaeigendur
ENDURRYÐVÖRN, Þ.E. Á UNDIRVAGN, HURÐIR OG HLIÐAR:
Kostar m/sk. Í ábyrgð Ekki ábyrgð
Austin Mini 1360 1570
BMW300 Typ. 1690 2060
Chevrolet Nova 2120 2580
Citroen GS 2050 2530
Datsun Cherry 1690 2120
Datsun 280 C 2100 2560
Ford Escort 1840 2210
PANTIÐ TÍMA. 1 tss
Ryóvarnarskálinn sigtúnis J Sími 19400
KVENSTIGVEL
Yfirvídd
Teg: 5—210/67.
Litur: svart leður.
Verð kr. 1.793,-
Teg: 402
Litur: svart leður.
Verðkr. 1.495,-
PÓSTSENDUM
Opið laugardaga
kl. 10—12.
Laugavegi 60 Sími 21270J
Hugleiðingar í tilefni af 30 ára af mæli Kópavogshælis:
HVAÐA GJAFIR GEFA
RÁÐAMENNIRNIR?
Tólfta desember síöastliöinn kom
svohljóöandi f rétt í sjónvarpinu:
„Um þessar mundir eru liöin 30 ár
frá því að Kópavogshæli tók til starfa
og lengi vel var Kópavogshæli eina
ríkisstofnunin sem vistaði vangefið
fólk.
Þar eru nú 177 vistmenn og í frétt
frá Kópavogshæli segir aö aðbúnað-
ur vistmanna stofnunarinnar sé í
flestum tilvikum lakari en eðlilegt
megi teljast, t.d. þurfi rúmlega
helmingur vistmanna að búa í 3,4, og
5 manna herbergjum.
Sjúklingar á Kópavogshæli eru á
öllum aldri og þangað hafa komið
einstaklingar sem aðrar stofnanir
hafa ekki getað haft. I fréttinni segir
að miöað við umönnunarþörf vist-
manna sé starfsfólk of fátt og þess
vegna sé í fæstum tilvikum hægt að
veita vistmönnum einstaklings-
bundna umönnun og þjálfun. A þessu
ári hefur það gerst að starfsmönnum
hefur fækkað vegna aukins aðhalds í
ríkisrekstrinum. Þá segir ennfremur
að treglega hafi gengið að fá auknar
fjárveitingar til starfseminnar, en á
sama tíma sé ríkið að taka að sér
rekstur nýrra stofnana á þessu sviði
sem undantekningalaust séu reknar
af meira örlæti en Kópavogshæli og
ráðamenn um f járveitingar svari því
til að fjárveitingar til nýrra stofnana
takmarki meðal annars möguleika á
að auka fjárveitingar til Kópavogs-
hælis.”
Hvergi var þess getið að þessara
tímamóta yrði minnst á einn eða
annan hátt. I fréttinni kemur hins-
vegar skýrt fram hvaða afmælisgjaf-
ir ráðamenn þjóðarinnar hafa
hugsað sér að færa hælinu: Svo
mikla skerðingu á fjárveitingum til
stofnunarinnar að starfsfólk veröi
áfram of fátt, miðað við umönnunar-
þörf vistmanna. Utkoman er svo sú
að i fæstum tilvikum er hægt að veita
vistmönnum einstaklingsumönnun
ogþjálfun.
15—20 áraftur
í tímann
Þarna er beinlínis verið að stuöla
aö því að starfsemi hælisins hverfi
15—20 ár aftur í tímann, þegar hælið
var meira geymslustofnun en með-
ferðarstofnun.
A síðustu 15 árum hafa miklar
framfarir orðið á Kópavogshæli, til
starfa hafa komið margir færir sér-
fræðingar og sérmenntað starfsfólk.
Stöðugildum hefur fjölgað og
Þjálfunarskóli ríkisins tekið til
starfa með mörgum góðum og
hæfum kennurum.
Allt þetta starfsfólk,sem lagt hefur
hart að sér til að koma vistmönnum
til þess þroska er þeir geta náð, þarf
Birgir Guðmundsson
, "1 ■ * ..1
nú að horfa upp á hnignun í allri
starfsemi hælisins vegna þess að nú
er boöaö aðhald í ríkisrekstrinum.
Og eins og venjulega bitnar það mest
á þeim sem ekki geta borið hönd
fyrirhöfuðsér.
Sem formaöur Foreldra- og vina-
félags Kópavogshælis nú um nokkur
ár hef ég haft tækifæri til að kynnast
innri starfsemi hælisins. Hefur það
verið mér lærdómsríkt og veitt mér
mikla ánægju að sjá hve fómfúst
starfsfólkið er og ósérhlifið. Þaö er
ekki að telja vinnustundimar ef það
getur gert vistfólkinu lífið léttara og
ánægjulegra.
Af þessum ástæöum er það enn
dapurlegra hvemig embættismenn
og fjárveitingavald hafa hunsaö
kröfur sérfræðinga hælisins um
fleira starfsfólk og aukið fjármagn
til aö hægt verði að koma vistmönn-
um til aukins þroska og sjálfsbjarg-
ar, en það hlýtur alltaf að verða það
takmark sem við stefnum að.
„Deildu og drottnaðu"
Eitt atriöi vildi ég sérstaklega
minnast á af þeim, sem fram komu í
fréttinni, að rúmlega helmingur vist-
manna býr í 3, 4 og 5 manna her-
bergjum sem auðvitað hefur í för
með sér stóraukna erfiöleika við alla
umönnun og meðferð vistmanna.
Ákveðið var að bæta úr þessu
ástandi og skyldi ein deild hælisins
tekin fyrir í fyrstu. Þærframkvæmd-
ir hafa nú staðið yfir í 18 mánuði og
er umrædd deild nú rétt tilbúin undir
tréverk og málningu sem kallaö er.
Ekki sér fyrir endann á þessum
framkvæmdum vegna fjárskorts!
Ef slíkar endurbætur á úreltu hús-
næði hælisins eiga allar að taka svo
langan tíma er langt í að þessi vandi
verðileystur.
En af hverju stafar þessi fjár-
skortur? Meðal annars af því, sem
skýrt kom fram í umræddri frétt,
nefnilega,að„.. .ráðamenn um fjár-
veitingar svari því til að fjárveit-
ingar til nýrra stofnana takmarki
meðal annars möguleika á að auka
f járveitingar til Kópavogshælis.”
Þetta þýðir að ef félagasamtök eða
sveitarfélög stofna til nýrra stofnana
úti á landsbyggöinni, sem er bæði
þarft framtak og lofsvert á allan
hátt, þá megum við í staðinn búast
við samdrætti í starfsemi Kópavogs-
hælis.
Ef þetta er stefnan verðum viö
velunnarar Kópavogshælis aö láta í
okkur heyra svo að fjárveitingar-
valdið komist ekki upp með slíkt
athæfi. Allir sem að málefnum
þroskaheftra vinna, hvar sem er á
landinu, verða líka að gæta sín á
þeirri „deildu og drottnaöu-stefnu”
sem í þessu felst frá hendi stjórn-
valda.
A þessum tímamótum er ekki
annaö hægt en að þakka þeim
hjónum, Birni Gestssyni og Ragn-
hildi Ingibergsdóttur, er veitt hafa
hælinu forstöðu nú í nær þrjá ára-
tugi, fyrir allt það er þau hafa gert
fyrir skjólstæðinga okkar og þær úr-
lausnir er þau hafa veitt mörgum
foreldrum er til þeirra hafa leitað í
erfiöleikum sínum, þrátt fyrir þann
þrönga stakk sem hælinu hefur verið
búinn af st jórnvöldum.
Góðir velunnarar Kópavogshælis,
munið eftir fjársöfnun Foreldra- og
vinafélags Kópavogshælis vegna
sundlaugarbyggingar við hælið.
(Póstgíróreikningur er nr. 72700—8.)
Birgir Guðmundsson,
formaður Foreldra- og
vinafél. Kópavogshælis.
A „Útkoman er svo sú aö í fæstum tilvikum
^ er hægt aö veita vistmönnum ein-
staklingsumönnun og þjálfun.”