Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1983, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1983, Blaðsíða 5
DV. MIÐVIKUDAGUR 2. MARS1983. 5 Norðurland vestra: Funda til að hindra klofning Framsóknar Fulltrúar hinna tveggja stríöandi fylkinga framsóknarmanna í Húna- vatnssýslum hittust á óformlegum fundi á Hótel Blönduósi í fyrrakvöld, mánudagskvöld. Tilgangurinn var aö kanna hvort grundvöllur væri fyrir samkomulagi. Sjö manns hittust á hótelinu. Fjórir þeirra tilheyra fylkingu svo- kallaðra göngumanna. Frumkvæði aö sáttafundinum haföi Jón Jónsson, framkvæmdastjóri Rækjuvinnsl- unnar á Skagaströnd. „Við vorum aö skoöa hvcr/iig landiö liggur. Auövitaö er þaö manni efst i huga aö reyna að ná góöu samkomulagi. En þetta var bara kunningjaspjall. Orö eru tii alls fyrst. Svo er eftir aö sjá hvort eitt- hvaö kemur út úr fundinum. Menn ætla að hugsa málið og skoöa sinn hug,” sagöi Jón Jónsson í samtali viö DV. ,,Ég var nú ekki sjálfur á fundinum. En eftir því sem mér hefur veriö sagt þá var þreifað á hugsanlegu samkomulagi, „hvort þaö væri hægt aö sameinast,” sagöi GrímurGíslasoná Blönduósi. ,,En ég held aö þaö megi segja aö það stefni ennþá aö tveimur framboðum hjá framsóknar- mönnum,” sagöiGrímur. -KMU. „Svakalegar skattahækkan- ir á atvinnubflstjóra” — Atvinnubflstjórar á Akureyri óhressir með auknar skattaálögur samhliða minnkandi atvinnu „Þetta eru svakalegar skattahækk- anir á okkur atvinnubílstjóra sem koma eins og köld vatnsgusa yfir mann samhliöa minnkandi atvinnu. Mér þætti fróölegt aö vita hvaöa forsendur liggja aö baki,” sagöi Kristján Grant, sendiferðabílstjóri á Akiu-eyri, í sam- tali viö DV. Kristján sagöi aö þungaskattur af litlum disil sendiferöabifreiöum, sem ekki eru með mæli, hækkaöi á þessu ári um rúm 100%, úr 9.800 kr. í 20500. Þar viö ætti aö bætast króna f yrir hvert kíló bifreiðarinnar, samkvæmt lagafrum- varpi sem nú lægi fyrir Alþingi. „Þessar skattaálögur raska okkar rekstrarafkomu, þannig að vonlaust verður að endurnýja bílana eins og eölilegt væri,” sagöi Kristján. „Við höfum beðið um skýringar á þessum hækkunum en engin svör fengið. Þar við bætist samdráttur í verkefnum okkar. Ég get nefnt sem dæmi aö þaö er ekki óalgengt að viö bíðum 4—5 tíma eftir „túr” sem ef til vill gefur ekki nema 150 kr. Annað atriöi vil ég nefna sem mér finnst einnig ósanngjamt. Það er varö- andi fyrirtæki sem eiga sendiferðabif- reiöir til eigin nota. Þau borga 40% lægri skatt heldur en þeir sem hafa atvinnu af slíkum bílum. Þó nota fyrir- tækin þessa bíla til aö veita sömu þjón- ustu og við bjóðum upp á — sem viðskiptavinurinn greiöir nær undan- tekningalaust,” sagöi Kristján Grant. Það kom ennfremur fram í samtal- inu viö Kristján aö atvinnubílstjórar á Akureyri hafa hugsaö sér að mótmæla þessum skattaálögum kröftuglega og sömu sögu mun vera aö segja um atvinnubílstjóraumalltland. -GS 11 milljon krónagap í fjárhags- áætlun Akureyrar Enn vefst fyrir bæjarráöi Akur- eyrar aö ná saman endum á fjár- hagsáætlun bæjarins fyrir yfirstand- andi ár. Áætlunin átti að koma fyrir til fyrri umræöu á bæjarstjórnar- fundi nk. þriðjudag en í gær var ákveðiö aö f resta f undinum um viku. Eins og sagt var frá í DV fengu stjómendur deilda og stofnana bæjarins fjárhagsáætlanir sinar endursendar frá bæjarráöi meö þeim fyrirmælum aö skera útgjöldin niöur um 10%. Árangurinn varö tæp 2%, samkvæmt heimildum DV en vonir standa til að embættismenn- imir geti bætt um betur. Jafnframt veröa bæjarfulltrúar aö taka stefnu- markandi ákvarðanir um niöurskurö útgjalda eilegar hækka verulega nýjar lántökur. Það er matsatriði hve margar milljónir króna vantar til aö ná endum fjárhagsáætlunarinnar saman. Talan 11 milljónir króna hefur heyrst nefhd og þeirri hug- mynd mun hafa veriö hreyft í bæjar- ráöi aö sú upphæö veröi tekin aö láni. Ekki mun vera samstaða um það í ráðinu. „Þaö er sárgrætilegt aö sjá hversu litiö veröur eftir af tekjum bæjarins til nýframkvæmda þegar reksturinn er búinn aö taka sinn hluta af kök- unni," sagöi einn þeirra Læjarráös- manna sem DV ræddi við. Hann gat þess jafnframt aö það geröi stöðuna. enn erfiöari að á sL ári heföi verið eytt 10 milljónum króna af fram- kvæmdafé þessa árs. Þaö hefði m.a. veriö gert til aö halda uppi atvinnu fyrir byggingariönaðarmenn. -GS/Akureyri. ★ ★NIASÝNING ★ ★ AÐ SMIÐJUVEGI 4 KÓPAVOGI Opið alla virka daga frá kl. 9—19 Opið laugardag frá kl. 10—18 Opið sunnudag frá kl. 13—18 A A A A FIAT RITMO FIAT PAIMDA FIAT127 Special FIAT125 P Allir þeir * bílar frá Fiat sem eiga Y það sam- eiginlegt y að vera V ódýrir, sparneytnir, ► liprir og r þægilegir. Komið og sjáið hinn stórkostlega EAGLE 4x4 og kynnið ykkur verðið. Skoðið þennan fjölhæfa lúxusbíl sem sameinar jeppann og ameríska fólksbílinn. Bíll sem alla dreymir um. Nú er tækifærið að kynna sér bílinn, hæfileika hans og útlit, verðið og greiðsluskil- málana. SYNINGARBÍLAR Á STAÐNUM n American Motors i r Framdrifinn - Ítalskur - Aflmikill -Traustur EGILL VILHJÁLMSSON HF. IDAVIÐ SIGURÐSSON HF.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.