Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1983, Side 7
DV. MIÐVHÍUDAGUR 2. MARS1983.
7
Neytendur Neytendur Neytendur . Neytendur
Eftir því sem fjarsýnisglerið er stærra um sig, því þykkari eru brúnir þess.
Ástæðan sést hér á myndinni, innra strikið er lítið gler, það ytra stórt.
Orkueyðsla
á Kópaskeri
skemmast. I tísku undanfarin ár hafa
verið stór og fyrirferðarmikil gler-
augu. Það er eitthvað aö byrja að
breytast en vilji barnið endilega fá stór
gleraugu kemur upp vandamál. Stór
gler eru þung og því þurfa um-
gerðirnar aö sitja enn betur á nefi og
eyrum.
Plast eða gler
Velja þarf einnig hvort nota á
plast„gler” eða venjulegt gler. Plast
rispast meira en er léttara og gleraug-
un renna því síður fram á nefið. Plastið
getur brotnað, rétt eins og glerið, en
þaö hrekkur yfirleitt ekki alveg í sund-
ur. Þegarumeraðræðagleraugufyrir
mjög fjarsýna eru kostir glers og
plasts nokkum veginn þeb- sömu. En í
flestum tilfellum öðrum er plastið
betra og þegar um þykk gleraugu f yrir
nærsýna er að ræöa eru kostir plasts-
ins umfram gleriö ótvíræðir.
Rétt lag á spöngum er mjög mikil-
vægt. Gleraugun hvíla aö stórum hluta
á eyrum bamanna. Spöngin þarf því að
vera hæfilega löng (mikilvægt er aö
fylgjast með því þegar barnið stækkar
að skipt sé nógu oft um spangir þannig
að þær meiði barnið ekki) . Best er ef
spöngin fylgir lagi eyrans í hálfhring.
Þá tolla gleraugun vel í leik, jafnvel
þótt barnið standi á höfði.
Spangir sem aðeins liggja ofan á eyr-
unum henta þó betur ef bamið notar
gleraugun ekki öllum stundiun. Þá er
þægilegra aö taka þau af sér og setja á
sig.Ef mikil ferð er á bömum sem nota
slík gleraugu getur þó verið nauðsyn-
legt að setja teygju í spangarenda og
aftur fyrir hnakkann.
Hreinsun
gleraugna
Foreldrarnir virðast taka það mun
nær sér en börnin ef gleraugu þeirra
síðamefndu em óhrein. Það er ótrúlegt
hvað böm virðast geta notað skítug
gleraugu með ágætum árangri. En oft
hafa þau gefist upp á því að vera meö
gleraugun einungis af því að þau hafa
ekki haldið þeim nógu hreinum til þess
að þau kæmu að fullum notum. Regn-
dropar og móða, sem sest á gleraugun,
eru líka sífelld uppspretta óánægju.
En jafnvel lítil börn geta haldið gler-
augum sinum hreinum ef þeim eru
kenndar góðar aöferöir í upphafi. Gott
er til dæmis að hafa hangandi á vissum
stað á heimilinu mjúkan klút til gler-
augnahreinsunar eingöngu. Þetta má
til dæmis vera gamalt og mjúkt upp-
þurrkunarstykki. Ef gleraugun þarfn-
ast þvotta má hafa inni á baðherbergi
litla plastskál sem hægt er aö þvo gler-
augun í. Ef bömin ná upp eða foreldr-
amir hjálpa þeim er líka ágætt að
skola þau í heitu vatni undir kranan-
um.
Þegar gleraugun eru tekin af er um
að gera að leggja þau rétt frá sér,
brjóta þau saman um lamirnar og
leggja þau á spangimar en ekki glerin.
Gætið þess að skekkja þau ekki.
Reikna þarf með að skipta þurfi um
gleraugu bama á aldrinum 3—6 ára ár-
lega. Ekki bara vegna þess að sjónin
breytist heldur ekki síöur vegna slits.
Þetta getur verið mikill útgjaldaliður á
heimili þar sem mörg börn nota gler-
augu. En einhvern veginn hefur það
aldrei komist inn á reikninga sjúkra-
samlaga eða Tryggingastofnunar að
greiða hluta af þessum mikla kostnaði.
Foreldramir bera hann því einir.
Raddir
neytenda:
G.Ö. skrifar frá Kópaskeri:
Ágæta neytendasíða.
Eg hef að undanförnu fylgst með því
þegar birt hefur verið á síðunni saman-
tekt á orkueyðslu til húsahitunar og
ljósa. Þar hefur ýmislegt athyglisvert
komiö fram og má greinilega lengi upp
telja en aldrei fæst sama útkoman í
peningum. En nú finnst mér vanta í
Efni
sem
stöðv-
ar
hrotur
Franskur vísindamaður, dr. Pierre
Gros, hefur nú fundiö upp efni sem
hann fullyrðir að komi í veg fyrir að
menn hrjóti. Efnið sem fæst orðið i
nokkrum löndum heims er selt á úða-
brúsum. Því er úðað tvisvar til þrisvar
í hvora nös áður en farið er að sofa á
kvöldin og andardrátturinn verður
hljóður eins og andvari.
Gros heldur því fram að það sem
geri það að verkum að menn hrjóta sé
það að nefgöngin þomi upp. Með þvíað
sprauta í þau blöndu af saltvatni sem
inniheldur sérstök efni, sem viðhalda
raka slímhúðarinnar, megi hins vegar
koma í veg fyrir hrotumar. Efniö heit-
ir Sonarex. Eg hafði samband við eina
lyfjaverslun hér á landi og fjögur inn-
flutningsfyrirtæki á lyfjum og skyld-
um efnum. Ekki tókst mér hins vegar
að finna að þetta efni heföi veriö flutt
til landsins. Þeir sem liggja andvaka
heilu nætumar vegna hrota annarra
ættu kannski að taka sig til og hugsa
upp leið til þess að fá efnið inn í landið.
Auðvitaö eru til ýmis húsráð um það
hvernig eigi að fá menn til að hætta að
hrjóta. En fæst þeirra duga. DS
þetta upplýsingar um hversu mörgum
olíulítrum og/ eða kílóvattstundum
var eytt yfir ákveðin tímabil og hvað
það kostaði. Greinilegt er aö það skipt-
ir máli fyrir okkur, sérstaklega þá sem
hita upp með rafmagni. Það virðist
Hiti:
Aflestur31.1.’82
Aflestur 21.1.’83
vera svo misjafnt verð á því milli
staöa. Ég sendi hér með samantekt á
eyðslunni hjá okkur sem erum tvö með
barn á öðru ári. Húsiö er 115 fermetrar
nettó og bílskúr 30 fermetrar nettó sem
haldið er frostlausum.
Mælisstaöa
33893
70318
Samtals til hitunar 36425 kvst.
100,9 kvst. á dag að meðaltali. Verð pr. kvst. er nú 0,5398
Ljós:
Aflestur 31.1.’82 83260
Aflestur 27.1.’83 87027
Samtals til ljósa 3767 kvst.
10,43 kvst. á dag að meðaltali. Verðið núna er 2,03 krónur á kvst.
hiti ljós samtals
Kostnaður á dag 54,50 21,15 75,65
Kostnaður á mánuöi 1.634 635,20 2.269,20
Kostnaður á ári 19.892 7.728,10 27.620,10
VERSLANIR!
Hin sívinsœla og myndarlega
FERMINGAR-
- GJAFAHANDBÓK
kemur út 19. mars nk.
Þeir auglýsendur sem áhuga
hafa á ad auglýsa í
FERMINGAR GJAFAHANDBÓKINNI
vinsamlegast hafi samband við
auglýsingadeild DV,
Síðumúla 33, eða í síma 82260
milli kl. 9 ogl 7.30 virka daga
fyrir 5. mars nk.
DS
Mikið bognar spangir henta börnum sem eru alltaf með gleraugun. Hinar henta
hins vegar betur þeim sem oft taka gleraugun af sér.
LONDON
Helgar- og vikuferðir
Brottför alla laugardaga.
Verðfrá 6.650
pr. mann i tveggja manna herbergi.
FERÐASKRIFSTOFA, Iönaðarhúsinu Hallveigarstígl. Símar 28388 og 28580