Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1983, Side 16
16
DV. MIÐVIKUDAGUR 2. MARS1983.
Spurningin
Hvernig iíst þér á
úrslitin í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í
Reykjaneskjördæmi?
Grímur Oddmimdsson lögreglumaður:
Ég vil ekkert tjá mig um það, læt það
liggja milli hluta.
Andrés Magnússon kennari: Mér líst
ágætlega á þau, sérstaklega frammi-,
stöðu Gunnars G. Schram.
Ólafur Guðlaugsson tæknifræðingur:
Mér finnst þau benda til ákveðinnar
óánægju með formann þingflokksins.
Mér líst vel á nýja fólkið.
Kolbeinn Ágústsson iagerstjóri: Eg'
hef nú bara ekkert fylgst með þessu
máli og ekki kynnt mér úrslitin.
Sverrir Þorsteinsson, veitingamaður
og heildsali: Eg er mjög ánægður með
þau.
Guðmundur Sigurðsson bóndi, Reyk-
hóli Skeiðum: Þetta er mikið'
vantraust á forystu Sjálfstæöisflo
ins, þaö hlaut aö koma aö þessu.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Vegagjaldið:
Stórálögur á bílaeigendur
— nógkomiðfyrir
Einar Jónsson skrifar:
Enn á aö ráðast ábílaeigendur,nú
j meö nýjum skatti sem heitir ,,vega-
gjald”. Þessi siðlausa ríkisstjórn
ætlar að ljúka svo hinum auma ferli
sínum að læða í gegnum þingið stór-
álögum á bílaeigendur og er þó nóg
komið fyrir.
I
Með blekkingum á að koma því inn
hjá fólki að nú eigi aö lækka verð
nýrra bíla, en hver nýtur þess?
Aðeins þeir betur stæðu í þjóðfélag-
inu, þeir sem hvort sem er skipta um
bíla á eins — tveggja ára fresti. Hinn
almenni launþegi hefur ekki mögu-
leika á að kaupa nýjan bil á ca 150
þús. kr. en það er um það bil meðal-
verð í dag. Nú, kaup hins almenna
launamanns hrekkur ekki til aö
eignast nýjan bíl, hann kaupir
gamlan, og hann lækkar varla því
sem munar frá því sem er í dag. Ég
er ekki að tala um þingmenn sem
dylgja um 40 þús. kr. ráðstöfunar-
tekjur á mánuöi eða ráðherra, sem
hafa verulega meira, nei, ég er aö
tala um menn eins og mig og fleiri,
sem hafa um 10—14 þús. kr. á
mánuöi, og reyndar sumir minna og
þurfa aö vinna langan vinnudag fyrir
þessu kaupi. Það er einmitt þessi
hópur fólks sem finnur fyrir hinum
nýja skatti.
Álögur á bíla og allt sem til þeirra
þarf er þegar komið langt fram úr
því sem eðlilegt getur talist. Hér á
landi er til félagsskapur sem heitir
Félag islenskra bifreiðaeigenda.
Frá þessum félagsskap heyrist
ekkert orð, nema krafa um árgjald
aðupphæð550kr. ogerþaðvísttilað
ala einhverja framagosa sem eru í
einni sæng með því auma liði sem
stjórnar þessu landi í dag. Frá F J.B.
heyrist ekkert frá því flautukonsert-
inn mikli var um áriö og hafa þeir
sennilega verið aö flauta sig undir
sængina hjá fjármáiaráðherra. I dag
er F.I.B. varla nema ferðaskrifstofa
fyrir þá sem hafa góðar tekjur og
geta nýtt sér þá þjónustu. En upphaf-
legur tilgangur félagsins er
gleymdur þ.e. að gæta hagsmuna
félaganna gegn gráöugu ríkisvaldi
og því getum við hinir tekjulágu
strikað þetta félag út.
Ekki þurfa ráöherrar að óttast f jöl-
miðla, þeir hafa ekki hátt um gjaldið,
aðeins smáletur ef þess er að nokkru
getið í dagblööunum og ríkisfjöl-
miðlar rétt skjóta inn einni smáfrétt.
Þó hefði mátt geta þess hve oft væri
hægt að fara í strætó fyrir þaö gjald,
sem greiða þarf af bíl sem vigtar 1
tonn. Svo reikningsglögga menn hafa
þessir fjölmiölar aö minnsta kosti
þegar hentar núverandi stjóm-
völdum.
Bifreiðaeigendur góðir, gerið
ykkur grein fyrir að þessi eina króna
á kg í dag er grunngjald og hækkar
með byggingarvísitölu. Hugleiðið
hvað svona gjald verður orðið hátt
eftir 4—5 ár í 60—80% verðbólgu. Þá
getur enginn venjulegur launamaður
átt bíl, þá hafa þeir sem mestu ráða í
núverandi ríkisstjóm náð takmarki
sinu, aðeins hálaunamenn geta ekið í
bílum eins og í draumalandinu Rúss-
landi og öðrum austantjaldslöndum.
Finnst ykkur, bíleigendur góðir,
ekki nóg komið? Bensínhækkun á 3—
4 mánaöa fresti. öll bifreiðagjöld á
uppleið, á síðastliðnu sumri vom
gjöld á smábílum lækkuð til að örva
innkaup á þeim en eftir fáa mánuöi
var þetta afnumiö. Hver getur treyst
þessum sömu mönnum í dag?
Það á að kjósa innan fárra vikna.
Fylgist með hverjir styðja þetta
makalausa fmmvarp ríkisstjórnar-
innar og strikið þá út í næstu
kosningum, jafnvel þótt þið kjósið
listann. Þetta er okkar eina vopn til
að ver jast ásælni gráðugra manna.
„Bifreiðaeigendur góðir, gerið ykkur grein fyrir að þessi eina króna á kg í dag er grunngjald og hækkar með bygg-
ingarvísitölu. Hugleiðið hvað svona gjald verður orðiö hátt eftir 4—5 ár í 60—80% verðbólgu. Þá getur enginn venju-
legur launamaður átt bíl,” segir Einar Jónsson meðal annars í bréfi sínu.
íslenska sjónvarpið bara hæfilega gott
9130-5089 hringdi:
Mig langar til aöhrósa íslenska sjón-
varpinu. Það er held ég bara alveg
hæfilega gott. I hverri viku em nokkrir
þættir sem vert er að horfa á en svo er
líka hægt að hafa slökkt heilu kvöldin
án þess að taka það nærri sér og er þaö
veL
Ef eitthvað má segja sjónvarpinu til
lasts er það helst að dagskráin á
föstudags- og laugardagskvöldum er
stundum bæði stutt og slöpp. Við sem
sitjum heima flestar helgar og horfum
meö tilhlökkun til gotterís og góðrar
myndar í vikulok verðum stundum
fyrir vonbrigðum. Væri ekki hægt að
endursýna meira af gömlu úrvalsefni,
sakamálaþáttum, leikritum og kvik-'
myndum, j afnvel þótt svarthvítt sé?
Hærra kaup en
umbjóöendumir?
0067—8058 hringdi:
Mér og fleirum finnst það kyndugt
aö sjá Kristján Thorlacius deildar-
stjóra í stjórnarráöinu túlka skoðan-
ir sínar í f jölmiölum og heimta meira
kaup. Á sama tima og kaupið hækkar
í krónutölu eykst dýrtíöin og þá vita
flestir að deildarstjórinn fær miklu
hærra kaup en þeir sem hann er að
gerakröfurfyrir.
Lesendur
Sigurður Valgeirsson
Kristján Thorlacius. '
„Væri ekki hægt að endursýna meira af gömlum úrvaisefni?” spyr 9130—5089.
Myndin er úr þættinum Læknir á lausum kili.