Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1983, Síða 31
DV. MIÐVIKUDAGUR 2. MARS1983.
31
Sandkorn Sandkorn Sandkorn
Bubble
Oli J6 átti afmæli í gær. DV
færði honum blómvönd en
framsóknarmenn höfðu
annað i huga. Sagan segir
nefnilega að háttsettur emb-
ættismaður hafi fyrir nokkru
verið kvaddur að höfuöstöðv-
um Framsóknarflokksins við
Rauðarárstig. Maðurinn er
með framsóknargen. Þegar á
Stiginn kom var honum tjáð
að hann skyldi nú snara út
þúsundkalli i gjöf til Öla Jó.
Það var auðvitaö auðsótt mál
en að gjöf skyldi kaupa
bubble bað einhvers konar
með nuddgræjum handa ut-
anrikisráðherranum. Ekki
skal fullyrt aö sinni að úr
hafðiorðið.
Tvisvar á bak
við eyrað
Á aukafundi í neðri deild
Aiþingis á föstudaginn tók
Garðar Sigurðsson smáskeið-
sprett í ræðustóli. Lánsfjár-
lagafrumvarp, sem er ókom-
ið enn, var til umræðu í fram-
hjáhlaupi, eins og oftar. Ein-
hvern pata hafði Garðar
samt af væntanlegu innihaldi
þess og notaði tækifærið tii
þess að berja ögn á flokks-
bróður sínum í iðnaðarráðu-
neytlnu. Til þess notaði hann
þó Albaniukerfið og skamm-
aði annan flokksbróður sinn
sem situr í fjármálaráðu-
neytinu.
Sagði Garðar að í lánsfjár-
áætlun væru áform um lán-
tökur í stórum stíl til fjögurra
glataðra verksmiðjuhug-
mynda iðnaðarráðherra en
ekki hefði verið sinnt beiðni
um stuðning við byggingu
skipalyftu í þeirri miklu ver-
stöð, Vestmannaeyjum.
Þingmaður Eyrbekkinga
og Stokkseyringa sagði Ragn-
ari fjármála að klóra sér
tvisvar á bak við eyrað áður
en hann tæki endanlega af-
stöðu til þessara mála.
Banana
lýðveldið
Sandkorni hefur borist eftir-
farandi visa vegna leiðara í
blaðinu um daginn um
bananalýðveldið ísland’. Til-
efni leiðarans var annars fá-
heyrð skipan í embætti flug-
málastjóra. Vísan er svona:
Upplaginu ekki hrósum
ekki bætti uppeldið.
Það byrjaði á baunadósum
bananalýðveldið.
Hríslan og
Karvel
Jóhannes Krístjánsson,
eftirherma og Vestfirðingur,
leit inn á ritstjórn DV á
dögunum. Hann hefur eins og
aðrir fylgst náið með sjón-
varpsútsendingum frá
Alþingi undanfarna daga.
Kom hann með fagra (trjá-)
grein sem hann flutti langt
að. Vili Jóhannes færa Karvel
Pálmasyni gripinn að gjöf
svo þingmanninum geti í
framtiðinni gengið betur að
gera GREIN fyrir atkvæði
sínu og þannig hraðað störf-
um alls hæstvirts Alþingis.
Greinin er varðveitt hjá
höfundi Sandkorns og getur
þingmaðurinn vitjað hennar
þar.
Svo frú ei viti
Gífurieg hækkun hefur orð-
ið á laxveiðileyfum frá síð-
asta ári og víða langt um-
fram verðbólgu. Laxveiðí-
menn hafa orðið að grípa til
þess ráðs að láta senda sér
þrjú til fjögur veiðileyfi á
skrifstofuna og aðeins eltt
heim. Menn verða svo sjálfir
að átta sig á hvers vegna...
Umsjón:
Öskar Magnússon
Kvikmyndir Kvikmyndir ■ Kvikmyndir
Austurbæjarbíó—Auga fyrir auga
Heiti: Auga ffyrir auga (An Eye For An Eye)
Leikstjóri: Steve Carver.
Handrit: William Gray og James Bruner.
Kvikmyndun: Roger Shearman.
Tónlist: William Goldstein.
Aðalleikendur: Chuck Norris, Christopher Lee,
Richard Roundtree og Maggio Cooper.
Það hafa margir leikarar reynt aö
feta í fótspor Bruce Lee en hann lést
á hátindi frægðar sinnar, sem hinn
ókrýndi konungur karate-mynda.
Kvikmyndagerðarmenn í Hong Kong
hafa reynt að setja á markaðinn
myndir þar sem líkt var í öllu því
sem Bruce Lee gerði og aðalleikar-
inn yfirleitt nauöalíkur honum en
þær myndir hafa verið misheppnað-
ar upp til hópa svo vægt sé til orða
tekið.
Bandarikjamenn hafa að þeirra
áliti fundið verðugan arftaka Bruce
Lee, nefnist sá Chuck Norris, fyrr-
verandi heimsmeistari i karate.
Hafa myndir með honum streymt á
markaðinn eins og um færibanda-
vinnu sé að ræða. Höfum við hér á
klakanum ekki farið á mis viö þær.
Liggur við að ein taki við þegar sýn-
ingu á annarri lýkur.
Austurbæjarbíó sýnir þessa
dagana eina mynd með kappanum,
nefnist hún Auga fyrir auga. I þetta
skipti leikur Chuck Norris fyrr-
verandi lögregluþjón sem eltist við
eiturlyfjasmyglara sem í byrjun
myndarinnar drápu vin hans og unn-
ustu. Að sjálfsögðu eru eiturlyfja-
smyglaramir flestir kvínverskrar
ættar og er myndin látin gerast í San
Francisco en þar er eins og allir vita
mikiö um fólk af kínverskum upp-
runa. Nú, söguþráðinn þekkja allir
sem á annaö borð sjá spennumyndir.
Uppgjör milli góðu mannanna og
þeirra slæmu. Þaö er að sjálfsögðu
mikið um slagsmál í myndinni og
skiptir ekki máli hvað marga hetjan
okkar slæst við, hún kemur alltaf
ósködduð úr byltunum og hefur ekki
mikiö fyrir þessu aö því er virðist.
Chuck Norris er ekki mikill leikari að
því er virðist. Einu tilfinningarnar
sem hann lætur i ljósi eru smábros-
viprur af og til en hann kemst upp
með þetta enda er ekki ætlast til að
hann sýni tilþrif í leik, hæfileikar
hans era á öðru sviöi.
Auga fyrir auga er ekki mikil
spennumynd og stendur ekki undir
því sem í auglýsingu stendur. En
fyrir hörðustu aðdáendur slagsmála-
íþrótta er kannski hægt að mæla meö
myndinni, en þeir sem hafa gaman
að kvikmyndum eru betur settir með
að láta hana fram hjá sér fara.
Hilmar Karlsson.
Jean-Lous Trintignant.
Kvikmyndaklúbbur
Alliance Francaise:
MORÐ-
INGI
FERLI
Kvikmyndaklúbbur Alliance
Francaise sýnir í kvöld og annaö
kvöld sakamálamyndina Morðingi á
ferli (Un Assassin qui Passe) sem
gerð var 1981 og leikstýrt af Michel
Vianney. Mcð aðalhlutverkin fara
Jean-Lous Trintignant, Carole Laure
og Richard Berry. Myndin er með
enskum texta.
Morðingi á ferli er sýnd í E-sal
Regnbogans og hefjast sýningar kl.
20.30 bæði kvöldin.
HK.
REDDAÐ MEÐ
SLAGSMÁLUM
Menning Menning
AÐ NORÐAN
OG SUNNAN
Samsöngvar karlakóranna Fóstbrœöra og
Geysis I Háskólabíói 25. febrúar.
Stjórnandi: Ragnar Björnsson.
Á efnisskrá: íslensk og norræn sönglög ásamt
kórum úr óperum Lortzings og Wagners.
Þegar tveir kórar eiga sér sameigin-
legan söngstjóra og langa sögu góöra
samskipta er allra hluta eölilegast að
þeir haldi sameiginlegar söngskemmt-
anir. Skipta þá landshlutamörk litlu
máli, allra síst þegar flugferð á milli
fjórðunga tekur styttri tíma en strætis-
vagnaferð á milli hverfa á öðrum
staðnum.
Byrjunin var í ekta kórheimsókna-
stíl — sungið til. Fóstbræður ljóðuöu á
kumpána sína að noröan og síðan tóku
norðanmenn við. Geysir býr að langri
heimaræktaðri sönghefð. Söng-
mótunarpostular þeir sem hálfhnoöað
hafa margan kórinn hér á suðvestur-
hominu virðasta hafa látið Geysi mest-
an part í friði. Þeir syngja því, eins og
á söngmáli er sagt, flatt, eða rétt eins
og náttúran býður þeim. Ef Geysis-
menn syngju svolítið hreinna mætti
flokka þá undir vandaða alþýðu-
söngvara. Ég ætla að vona að Ragnari
takist að meitla fram hjá þeim hreinan
tón án þess að skemma þá barnslegu
einlægni sem kórinn — hópurinn —
varðveitir í söng sínum.
Fátt nýtt
Það var fátt nýtt af Fóstbræðrum að
frétta. Söngskráin í sama dúr og að
undanfömu og var þar gætt samræmis
og jafnaðar við gestina. Fóstbræður
eiga afar vel samsyngjandi hóp með
gott innbyrðis jafnvægi í röddum. En
þeir gætu að skaðlausu bætt við nokkr-
um björtum og léttsyngjandi tenórum
til að gefa svolítinn glans.
Kerlingarhnútur
Samsöngur kóranna kom allþokka-
lega út fyrir hlé þegar þeir sungu Sé ég
eftir sauðunum, Á Sprengisandi, í Ralf
útsetningunni, og Særingu eftir
Tömudd. Maður hafði að vísu reiknað
meö þykkari hljóm úr þessum stóra
kór, sem taldi orðið á áttunda tug
manna, en söngstíll þeirra held ég að
sé of ólíkur til að úr verði góð blanda
við fyrsta samhristing. — Opem-
Tónlist
Eyjólfur Melsted
Ragnar Björnsson stjórnaði samsöng
karlakóranna Fóstbræðra og Geysis í
Háskólabíói 25. febrúar. — „Byrjunin
var í ekta kórheimsóknastíl — sungið
tU. Fóstbræður ljóðuðu á kumpána
sina að norðan og síðan tóku norðan-
menn við,” segir Eyjólfur Melsted.
kórana í lokin hefði aö ósekju mátt
strika út af söngskránni. Á meðferð
þeirra var hvorki haus né sporður.
Kórfélagar hafa eflaust haft gaman,
og vonandi gagn, af að kljást við þá en
algjör óþarfi var að draga úr ánægju
yfir bærilegum samsöng meö þessum
kerlingarhnút á endann.
-EM.
Kvikmyndir
Kvikmyndir
Kvikmyndir