Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1983, Qupperneq 34
34
DV. MIÐVIKUDAGUR 2. MARS1983.
Á krossgötum í kerfinu
— rætt við Ólaf
Reynissonog
Guðbjörgu
Guðjónsdóttur,
foreldra ísaks,
semer
þroskaheftur
ogfærekki inni
á Kópavogshæli
sakirmanneklu
ogfjárskorts
„Málin standa þannig í dag aö
sonur okkar kemst ekki aö á Kópa-
vogshæli og stafar þaö bæði af fjár-
skorti stofnunarinnar og manneklu.
Hann er aö veröa of gamall fyrir
dagheimili, raunar kemst hann inn á
aðra staöi fyrir þroskaheft börn, en
aliir eru sammála um aö hann þurfi
að vera á sólarhringsstofnun. Þaö
hefur fengist samþykkt aö hann fái
inni á Kópavogshælinu, þar er hann á
biölista, en allt stendur f ast. ’ ’
Þaö eru hjónin Ólafur Reynisson
og Guöbjörg Guðjónsdóttir sem þetta
hafa aö segja um reynslu sína af
kerfinu. Sonur þeirra, Isak, er tæpra
sex ára og mikið þroskaheftur.
Drengurinn hefur lengi hrakist milli
hinna ýmsu stofnana og heimila og
loks þegar hillir undir fastan sama-
staö handa honum virðast öll sund
lokuö. En gefum þeim Olafi og
Guöbjörguorðiö:
„ísak er fæddur meö heila-
skemmd, en þaö er enn ekki vitaö
hvort um er aö ræöa fæðingargalla
eöa eitthvað annaö. Fötlunin
uppgötvaöist þegar hann var
tæplega ársgamall. Hann er
eölilegur í útliti og ber þaö ekki meö
sér aö hann sé þroskaheftur.
Aðalmáliö er andlega fötlunin,
sem er mjög alvarleg. Hann er
anspastískur, eins og þaö er kallað,
sem lýsir sér í því aö hann veldur
mjög illa líkama sínum. Ef hann er
þreyttur, dettur hann á hvaö sem er.
Krampaköst fær hann stöku sinnum.
Þarfmann með sér
allan sólarhringinn
Andlegur þroski Isaks er á viö 8
mánaöa gamalt bam eöa þar um bil.
Hann þarf alveg mann með sér allan
sólarhringinn, sefurmjög óreglulega
og er mjög erfiður á heimili. Okkur
skilst á læknum aö hann sé mjög sér-
stakt tilfelli og hann virðist ekki sýna
neinarframfarir.”
— Hvemig hefur ykkur gengiö meö
hannhingaötil?
„I upphafi vorum við ansi hörö á
því aö leysa máliö sjálf,” segir Guö-
björg. „Sálfræðingur Isaks sagði að
viö myndum lenda í vandræöum þeg-
arframísækti.
Isak var á Múlaborg í tvö ár og
svo hefur hann verið á sérdeild á
VíðivÖllum í Hafnarfiröi í bráöum
þrjú ár. Tvisvar í mánuöi hefur hann
svo dvaliö á vistheimilinu við Dal-
jíSMls-MSSMSs-SfeagSsjSjgsss-ffaggl
XS&tSÍsHÍs;
gs&as:
is-isiiy
3»ðS3ssSSss|gss
p:j «=•: :1S: :
.>..».
Hjónin Ólafur Reynisson og Guðbjörg Guðjónsdóttir: „Einmitt þegar
mest riður á að Isak fái fastan samastað stendur allt fast. Hann er að
verða of gamall fyrir dagheimili og stendur þvi á krossgötum." Þau
hjónin eiga annan son, Ólaf Fannar, eins og hálfs árs, og er hann aiheii-
brigður.
DV-mynd: Bjarnieifur.
braut, aðra hverja helgi. Nú er svo
komið aö hann er að verða allt of
gamall til að vera á þessum stöðum.
Hann þarf aö vera á sólarhrings-
stofnun. Til aö koma honum inn á
Kópavogshælið þurfti málið aö fara
fyrir svæðisstjórn þroskaheftra í
Reykjavík og svo í gegnum sams
konar svæöisstjórn í Reykjanes-
umdæmi. Það gekk vel og viö
geröum okkur því góðar vonir. Því
kom það mjög flatt upp á okkur
hvemig málið fór.”
„Það tók okkur langan tíma aö
taka ákvöröun um aö senda hann á
hæli, það gerir maður ekki fyrr en í
algerri uppgjöf,” bætir Olafur við.
„Sálfræðingar segja að ekki eigi aö
bíöa of lengi með slíka hluti og í
mörgum tilvikum er það gert of
seint. Nú er orðið þaö erfitt fyrir
okkur að hafa hann að viö teljum
þetta honum fyrir bestu.”
Aukinn skilningur á
málefnum Kópavogshælis
Olafur heldur áfram: „Þaö sem
þarf að koma til er aukinn skilningur
á málefnum Kópavogshælis. Það
hefur greinilega orðið fyrir barðinu á
spamaöi, en þar finnst okkur ráðist á
garðinn þar sem hann er lægstur.
Þama vantar starfsfólk en það fæst
ekki heimild til aö bæta fleira fólki
viö. Ekki hefur fengist fjárveiting til
byggingar svokallaðra sambýlis-
húsa og sundlaugin hefur orðið út-
undan. Pláss virðast losna mjög
sjaldan. Nú er svarið sem sé að við
gætum komið Isak aö ef manneskja
kemur til að vera meö honum allan
sólarhringinn. Slíkt er náttúrlega
ekki framkvæmanlegt.”
Óvísthve löng
biðin verður
„Biðtíminn getur orðið vika,
mánuðir, ár; þetta er allt í óvissu og
á meöan er ekki hægt að gera nein
framtíðarplön. Það má vel vera að
hægt sé að koma málinu í höfn með
einhverjum þrýstingi. En þetta er
stórt mál sem þarf að taka fyrir í
heild sinni og það em miklu fleiri úti í
kuldanum en við. Svona hlutir eru
feimnismál hjá mörgu fólki og þaö
era ekki allir sem vilja tjá sig um þá
í blöðum. Hér er um það alvarlegt
mál að ræða að það er full ástæða til
að hreyfa því,” sagöi Olafur og undir
þaö tók Guöbjörg heils hugar.
-PÁ.
»
ísak verður bráðum sex ára
gamall. Hann er fríðleiksdrengur
en mjög andlega fatlaður.
Manni bjargað f rá drukknun í Sandgerðishöf n:
vSá höndina koma upp úr ísnum”
„Eg sá höndina koma upp úr ísnum
og greip strax í hana og náði þar með
góðu taki á honum,” sagði Júníus
Guðnason, búsettur í Sandgerði, en
hann bjargaði 55 ára gömlum manni,
Sigursveini Bjamasyni, frá drakknun í
Sandgerðishöfn um klukkan hálftvö á
mánudag.
Tildrög þessa máls vora þau að
verið var að setja ís um borð í Dagfara
frá Húsavík, sem gerður er út frá
Sandgerði. Þrír menn stóðu á
vörubílspalli sem búið var að sturta.
Hleyptu mennimir ísnum niöur í gegn-
um gat á gafli pallsins.
Skyndilega gaf gaflinn sig og rannu
tveir mannanna niður. Annar þeirra'
náöi aö grípa í lunningu bátsins en
Sigursveinn féli um sex metra niður á
milli skips og bryggju.
„Eg var um borð í Dagfara og um
leið og ég sá hvað gerst hafði fór ég
niður stigann á bryggjunni og rótaði
ísnum ofan af Sigursveini, en um
sextíu sentimetra lag af ís var ofan á
honum. Eftir aö ég haföi náð taki á-
Sigursveini komu fleiri niður og við
aðstoöuðum hann við að komast upp,”
sagði Júníus ennfremur.
Sigursveinn missti ekki meðvitund
og var hann fluttur á sjúkrahúsiö í
Keflavík, en síðar á Borgarspítalann.
Hann mun hafa rifbeinsbrotnað og
skaddast á lunga við fallið.
-JGH.